Morgunblaðið - 11.04.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 11.04.2005, Síða 28
28 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Lóa Stefánsdóttirfæddist á Akur- eyri 24. mars 1933. Hún lést í Vancouver B.C. í Kanada 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jensey Jörgína Jóhannes- dóttir, f. á Ísafirði 3. júlí 1893, d. 15. júlí 1958, og Stefán Grímur Ásgrímsson, f. á Sauðdalsá í Holts- hreppi í Skagafirði 26. sept. 1899, d. 1. desember 1968. Lóa var yngst átta systkina og lifa þau öll systur sína. Þau eru: Jón Arn- dal Stefánsson, f. 1920, Sigurlaug Arndal Stefánsdóttir, f. 1922, Ás- grímur Stefánsson, f. 1923, Guð- rún Þorbjörg Stefánsdóttir, f. 1925, Magðalena Stefánsdóttir, f. 1928, Jensey Jörgína Stefánsdótt- ir, f. 1929, og Elín Stefánsdóttir, f. 1930. Árið 1953 giftist Lóa Birgi Jóhanni Sigurðssyni, f. 21. mars 1930. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Elín Sigurds- son, f. 24. maí 1964, maki David Trayno. Sonur þeirra er Kristian, f. 11.9. 1998, 2) Ian Sigur- dsson, f. 10. febrúar 1967, maki Kather- ine Sigurdsson. Börn þeirra eru Owen Stefán, f. 20.3. 1997, og Alexandra Jensey, f. 20.11. 1999. Dóttir Lóu og Aðalgeirs Axelssonar, f. 1927, d. 2004, er Agnes Aðalgeirsdóttir, f. 10.3. 1951, maki Hersteinn Brynjúlfsson, f. 22.6. 1945. Sonur þeirra er Kári, f. 23.5. 1990. Útför Lóu var gerð í Vancouver B.C. 24. mars. Minningarathöfn um hana var haldin í Reykjavík sunnudaginn 10. apríl. Lóa var móðursystir mín. Hún var sautján árum eldri en ég. Þrátt fyrir þennan aldursmun var áhugi hennar á samskiptum við mig og systkina- börnin mikill og kannski meiri en oft er um móður og föðursystkin. Ástæð- an hefur eflaust verið tengd hlut- verki hennar í sínum systkinahópi, yngsta barn, bæði vernduð og atyrt. Með mér var hún foringi eins og stóra systir sem naut þess að hafa áhrif. Ég naut þessara samskipta við hana þegar hún kom heim, bæði í matarboðum hjá mömmu og á veit- ingastöðum. Lóa var stemnings manneskja og gat látið sér detta í hug að segja: „Komdu með mér á djammið.“ Síðast þegar hún kom fyrir tæpum tveimur árum komst ég ekki með henni á djammið en í staðinn fóru dóttir mín og systir með henni á svo- kallað djamm og var dóttir mín hug- fangin af þessari sérstöku orku sem Lóa hafði þrátt fyrir mikil veikindi. Dóttur minni fannst gaman að geta sagt frá því í vinahópi sínum að hún hafi verið á djamminu með ömmu- systur sinni. Lóa var lífsglöð. Lífsgleði hennar birtist mér nú síðustu misserin í því hvað hún var í ótrúlega góðu jafn- vægi í veikindum sínum og gagnvart öðrum, allt átti sinn tíma. Ég átti góðar stundir með henni í síðustu heimsókn. Hún hafði yndi af því að sýna mér það sem hún keypti hjá „Tuska“ eins og ákveðinn verslunar- eigandi er kallaður og var hún alveg hissa á „prísunum“ og öllum skemmtilegu vörunum sem hægt væri að finna þar. Systur hennar fimm dáðust að henni fyrir sjálfstæði hennar í útliti og framkomu. Lóa vildi hafa fallegt í kringum sig og var mikill fagurkeri, hún hafði bæði skoðun og festu í því hvernig umhverfi og hlutir ættu að líta út í nálægð við hana. Það var oft vitnað í Lóu þegar huga þurfti að klæðaburði, snyrtingu og umhverfi á heimili. Lóa og allar systur hennar hafa átt sterkt systrasamband sem fór ekki fram hjá neinum sem til þekktu. Lóa bjó á Akureyri alla tíð áður en hún lagði land undir fót og á ég marg- ar minningar frá þeim tíma sem lítil stelpa í heimsókn á Akureyri hjá skyldfólki mínu. Flottast var auðvit- að að koma til Lóu. Hún bjó í nýju einbýlishúsi og ekki laust við að í minningunni sé einhver dýrðarljómi yfir þessum híbýlum hennar sem voru kannski bara venjuleg! En Lóa bjó þar. Það hefur líklega verið nóg fyrir mig að skoða fötin hennar, skóna, snyrtiborðið og hvernig hún var frá degi til dags. Árið 1959 fluttist Lóa búferlum frá Íslandi og settist að í Vancouver B.C. í Kanada. Hún lærði hárgreiðslu þar og starfrækti hárgreiðslustofur víða um borgina og voru þær orðnar níu þegar þær voru flestar í einu. Lóa veiktist af krabbameini fyrir fáum árum, en hún hélt áfram að koma heim og nú síðast sumarið 2003. Sjúkdómurinn hafði þá sett sitt mark á hana en engu að síður var hún lífsglöð. Hún vann sig ótrúlega vel í gegnum þetta ferli og verður mörg- um til eftirbreytni í þeim efnum. Edda Agnarsdóttir. LÓA STEFÁNSDÓTTIR ✝ Sverrir HartvigOlsen fæddist í Hrísey í Eyjafirði 9. nóvember 1925. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 3. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Olav Ingvald Olsen vélsmiður, f. 6. sept. 1889 í Visnes í Ling- stad við Kristjan- sund Noregi, d. 27. ágúst 1973, og Bjarn- rún Magdalena Jón- atansdóttir Olsen, f. 28. nóvember 1895 í Sigluvík á Svalbarðsströnd, d. 2. maí 1970. Sverrir var einn sjö systkina sem eru auk Sverris í aldursröð: Ólöf María, látin, Jón Kristján, búsettur í Keflavík, Karl Hinrik, búsettur í Ytri-Njarðvík, Bjarni Gísli, búsett- ur í Keflavík, Henrý, látinn, og Birgir, búsettur í Ytri-Njarðvík. Sverrir kvæntist 22. september 1949 Guðmundu Margréti Þor- valdsdóttur frá Grund í Ytri- Njarðvík. Börn þeirra eru þessi í aldursröð: 1) Stefanía Vallý, f. 25.janúar 1946, gift Geirmundi Kristinssyni, þau er búsett í Kefla- vík. Börn þeirra eru: a) Kristín Jór- unn, f. 23. október 1965, b) Sverrir Hartvig, f. 10. júlí 1968. b) Guð- munda Margrét, f. 10. desember 1975. 2) Ólöf María, f. 21. apríl 1950, gift Sigurði Erlendssyni, þau eru búsett í Kópavogi. Þeirra synir launa bæði í skíðastökki og göngu. Í þá daga áttu Siglfirðingar fremstu skíðamenn landsins. Hann byrjaði að vinna í vélsmiðju föður síns þegar hann var 15 ára gamall, en faðir hans rak Vélsmiðju Siglu- fjarðar í 16 ár eða þar til hann flutti til Njarðvíkur árið 1945 þar sem hann stofnaði Vélsmiðju Ol. Olsen. Sverrir vann í vélsmiðjunni öll árin sem hún var starfrækt, eða samtals 39 ár að sex mánuðum undaskildum sem hann fór á síld. Hann tók við rekstri smiðjunnar með Karli bróður sínum 1959 þeg- ar faðir hans hætti störfum sökum aldurs. Hann hafði daglega verk- stjórn á hendi, en Karl bróðir hans sá um fjármálahliðina. Þegar útgerð á Suðurnesjum var orðin lítil og grundvöllur fyrir rekstri vélsmiðju brostinn hættu þeir bræður rekstri. Sverrir stund- aði um skeið verslunarrekstur en réðst til Kirkjugarða Reykjavíkur sem útfararstjóri 1985 til 1996. Það ár stofnaði hann ásamt félaga sínum Sverri Einarssyni Útfarar- stofu Íslands þar sem hann starfaði til dauðadags. Sverrir var einn af stofnendum Karlakórs Keflavíkur og var ein- söngvari með kórnum um árabil. Hann hafði mikið yndi af íþróttum og lét sér ekki nægja að fylgjast með, heldur stundaði bæði alhliða líkamsrækt og lyftingar allt þar til sjúkleiki aftraði frekari iðkun. Hann vann til verðlauna í kraftlyft- ingum á opinberum mótum, og setti m.a. Íslandsmet í samanlögðu árin 1999 og 2000, þá 75 ára gam- all. Útför Sverris verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. eru: a) Erlendur, f. 10. október 1970. b) Guð- mundur Már, f. 8. maí, 1972. c) Rúnar Þór, f. 16.júní 1980. 3) Sigríð- ur, f. 29. nóvember 1952, gift Einari Gísla- syni, þau eru búsett í Garðabæ. Sigríður á frá fyrra hjónabandi með Vilberg Karlssyni börnin: a) Karl Inga, f. 25. mars, 1973. b) Stef- aníu Margréti, f. 24. september, 1981. 4) Sverrir Örn, f. 31. mars 1954, búsettur í Keflavík. Hann er fráskilinn en á með Guðrúnu Halldórsdóttur börnin: a) Sverrir Hartvig, f. 21. maí, 1978. b) Unni Svövu, f. 16. ágúst 1982. 5) Rúnar Þór, f. 23. jan- úar 1959, kvæntur Margréti Ingi- bergsdóttur, þau eru búsett í Keflavík. Börn þeirra eru: a) Elísabet, f. 28. apríl 1982. b) Ragn- ar Örn, f. 13. maí, 1989. Guðmunda lést 20. ágúst 1975. Seinni kona Sverris var Einína Einarsdóttir. Þau skildu. Sverrir fluttist til Siglufjarðar með foreldrum sínum 1929. Þar gekk hann í barnaskóla. Auk þess stundaði hann nám í Reykholti í Borgarfirði. Árið 1959 hélt hann til Bandaríkjanna í rafsuðunám og lauk þar prófi. Á uppvaxtarárunum á Siglufirði var skíðaíþróttin stunduð af kappi og vann Sverrir til fjölda verð- Hraðinn er mikill á öllum sviðum mannlífsins. Þeir sem gefa sér tíma til að horfa til baka til að fræðast eru gjarnan taldir gamaldags því fram- tíðin sé það sem skipti máli. Þessi formáli hefði getað verið upphaf að þjóðfélagsumræðum okkar Sverris Olsen á góðum degi. Hann var ein- mitt maður sem hafði þann hæfileika að tvinna saman þá reynslu sem hann ávann sér á löngum ferli við nú- tímann. Og notfæra sér þann hæfi- leika bæði í leik og starfi. Ég kom fyrst inn á heimili þeirra Sverris og Mundu í Njarðvíkunum fyrir um það bil 40 árum þar sem mér var afar vel tekið. Heimili þeirra var á allan hátt til fyrirmyndar, ekki síst fyrir reglusemi og snyrti- mennsku. Sverrir var að mörgu leyti harður húsbóndi og gerði miklar kröfur bæði til fjölskyldunnar og annarra sem hann umgekkst. En sjaldnast gerði hann meiri kröfur til annarra en sjálfs sín. Enda var hann duglegur, ósérhlífinn og laghentur með afbrigðum. Snyrtimennskan var hans aðalsmerki alla tíð, bæði í um- gengni og ekki síst í klæðaburði. Þar bar hann af. Hann brýndi oft fyrir okkur sem næst honum stóðum að snyrtilegur klæðaburður væri aðals- merki og sjálfsögð tillitssemi við náungann, ekki síst í starfi. Góð vinátta var með okkur Sverri alla tíð þó ekki værum við alltaf sam- mála. Eftir að Munda lést árið 1975 urðu mikil straumhvörf í lífi hans. Tíma tók að aðlaga sig breyttum að- stæðum enda voru þau hjónin mjög samrýnd. En Sverrir var ósérhlífinn og nýr kafli tók við. Hann hafði verið vélsmiður frá 15 ára aldri en tók nú til við að sinna útfararþjónustu í Reykjavík. Þar nýttust kostir hans ekki síður en í smiðjunni og starfið átti hug hans allan. Umhyggja hans fyrir fjölskyldu sinni var alltaf í fyr- irrúmi og var gaman að fylgjast með hve vel fór á með honum og barna- börnunum. Ég vil þakka þér, Sverrir minn, fyrir samveruna í gegnum tíðina. Ég er þess fullviss að þú ert nú kominn á það tilverustig sem þú trúðir að biði þín fyrir handan. Geirmundur Kristinsson. Elsku afi. Það er með miklum söknuði sem við systkinin ritum þessi minningarorð. Þú varst sterk- ur persónuleiki og hafðir á ýmsan hátt mótandi áhrif á okkur öll í gegn- um tíðina. Metnaðurinn og stoltið var mikið fyrir hönd barnabarnanna allra. Að setja markið hátt var þér að skapi enda þekktir þú vel sjálfur að þurfa að vinna fyrir hlutunum sem ungur maður í smiðjunni. Og síðar áttirðu eftir að skila óeigingjörnu starfi á Útfararstofu Kirkjugarð- anna og seinna Útfararstofu Íslands þar sem þú starfaðir við útfarar- stjórn um árabil. Þarna fengu þínir eðlislægu eiginleikar að njóta sín, vinnusemi, nærgætni og einstök smekkvísi. Og þú uppskarst hlýhug og þakklæti frá þeim sem áttu um sárt að binda. Minningarnar af Holtsgötunni eru ógleymanlegar í faðmi ykkar ömmu. Það var ekki kastað til hendinni á þeim bæ. Allt skyldi pússað, stífað og pressað. Amma var einstök kona að myndarskap og hlýju. Hún lést því miður langt um aldur fram. Fráfall ömmu var mikill missir fyrir þig og okkur öll. Hún var ákveðinn horn- steinn. Við erum þess fullviss að hún tekur á móti þér. Stundirnar með þér í Selási í Borgarfirðinum á síðustu misserum eru ómetanlegar. Fjöllin voru þér hugleikin frá uppeldisárunum á Siglufirði og þér leið vel að horfa yfir Skarðsheiðina á fallegu sumarkvöldi. Og þar fékkstu að kynnast barna- barnabörnunum. Það var mikið skeggrætt um málefni líðandi stund- ar og þú hafðir ákveðnar skoðanir á hlutunum. En ávallt var stutt í glettnina og stundum mátti ekki á milli sjá hvort alvara eða grín lægi að baki. Við minnumst þín, elsku afi, með miklu stolti og hlýhug. Þú bugaðist aldrei í erfiðum veikindum og við þykjumst þess viss að þú eigir góðan stað vísan í æðri heimum. Guð blessi minningu um góðan afa. Um vorkvöldin síðla ég sigli einn um sundin blá. Til hvíldar er heimurinn genginn og hljómarnir þysmiklu fallnir í dá. Um sofanda varir fer viðkvæmt bros meðan vornóttin gengur hjá. (Tómas Guðm.) Kristín, Sverrir og Guðmunda. Elsku afi, mikið er nú sárt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Þú varst nú alltaf flottur afi, það var alltaf mikill glæsibragur yfir þér, flottur í tauinu, í góðu formi og stoltur af þínu fólki. Við vorum nú líka stolt af þér, munum alltaf þegar þú settir met í lyftingum þrátt fyrir háan aldur, okkur fannst við eiga flottasta og sterkasta afann í heim- inum þá. Það var nú líka gaman þegar þú komst í heimsókn til okkar og við sátum við eldhúsborðið heima og þú varst að segja okkur frægðarsögur af þér og þínum og tuggðir skyrið þitt í leiðinni. Okkur fannst alltaf svo undarlegt að heyra þig tala um hvað þú gerðir í vinnunni þinni hjá útfararstofunum, en þú varst mjög stoltur af því og fannst það mikill heiður að fá að starfa þar. Þannig varstu, afi, allt sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú með sóma. Við eigum eftir að sakna heim- sókna þinna, en við vitum að nú ertu kominn til hennar ömmu. Nú líður ykkur vel saman. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Takk fyrir styrkinn og stoltið sem þú gafst okkur. Guð blessi þig, elsku afi. Elísabet og Ragnar. Það eru margar minningar sem skjótast fram í hugann er maður kveður góðan vin og samstarfsmann. Sverri Olsen kynntist ég er hann hóf störf við útfararþjónustu Kirkju- garða Reykjavíkur fyrir um það bil tuttugu árum, en ég var þá starfandi þar fyrir. Með okkur Sverri tókst fljótt góður vinskapur, þótt aldurs- munurinn væri töluverður eða 34 ár. Haustið 1996 ákváðum við Sverrir að reka sjálfstæða útfararþjónustu og stofnuðum Útfararstofu Íslands sem Sverrir starfaði hjá til dauða- dags. Það hefur reynst mér mikið gæfu- spor að fara í sjálfstæðan rekstur með honum, því Sverrir hafði rekið sitt eigið fyrirtæki í 39 ár ásamt bróður sínum, Vélsmiðju Ól. Olsen í Njarðvík, þannig að hann hefur miðl- að til mín mikilli reynslu sem nauð- synleg er við rekstur fyrirtækis. Að starfa við útfararþjónustu er oft á tíðum mjög erfitt því að aðstæður geta verið mjög viðkvæmar og erf- iðar og þá reynir mjög á að starfsfólk útfarastofanna sjái svo um, að allt standist sem sagt er og gert. Sverrir Olsen var einn af þessum traustu, allt stóðst sem hann tók sér fyrir hendur og hann bar mikla virð- ingu fyrir starfi sínu og var miður sín ef honum fannst að eitthvað mætti betur fara. Hann var mjög stundvís, snyrtilegur, prúður og orðvar, enda fannst mér hann alltaf vera „grand old man“ í þessu starfi. Sverrir var að mörgu leyti sér- stakur maður, hann lifði fyrir fram- tíðina, var ekki að velta sér upp úr fortíðinni og fannst að hlutirnir mættu betur fara en hefðu ekki verið betri áður fyrr. Við urðum mjög nán- ir vinir og hann sagði mér og trúði fyrir mjög mörgum hlutum og var oft gaman að spjalla við hann, enda er hans kynslóð mjög dýrmæt sögu okkar. Ekki vorum við Sverrir alltaf sammála, nöldruðum hvor í öðrum og skiptumst á skoðunum, en alltaf vorum við á sömu skoðun um allt sem sneri að vinnunni og kvöddumst ávallt sáttir. Nú á kveðjustund verður mér litið yfir farinn veg og þá átta ég mig á því hve stóran þátt Sverrir Olsen hefur átt í lífi mínu, enda, eins og áð- ur sagði, hefur samstarf okkar varað í rúm tuttugu ár, næstum hálfa ævi mína. Ég þakka fyrir dýrmæta vináttu, gott samstarf og alla þá hvatningu sem Sverrir Olsen hefur veitt mér. Fjölskyldu Sverris, börnum, tengda- börnum og afkomendum votta ég samúð mína, en Sverrir var mjög stoltur af hópnum sínum. Kæri vinur, ég kveð þig með sökn- uði. Guð blessi minningu Sverris Olsen. Sverrir Einarsson. SVERRIR HARTVIG OLSEN Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.