Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 41

Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 41 Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann! Óskarsverðlaunahafinn, Geoffrey Rush er frábær sem Peter Sellers n myndin fjallar um feril og stormasamt einkalíf eins besta gamanleikara heims.  Kvikmyndir.is SVAMPUR SVEINSS KL 6 MRS. CONGENIAL.2 KL. 10 PACIFIER KL. 8 - 10 B.I. 16 BOOGEY MAN KL. 8 - 10 THE PACIFIER KL. 8 - 10 MILLION DOLLAR BABY KL. 8 - 10 ÁLFABAKKI GEY MAN kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16. ára MPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 - 6 MPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 6 - 8 PACIFIER kl. 4 - 6 - 8 - 10.10 / VIP kl. 8 - 10.10 CONGENIAL. 2 kl. 3.30 - 5.40 - 8 -10.20 LIFE AND DEATH OF PETER SELLERS kl. 8 LIFE AND DEATH OF PETER SELLERS Lúxus VIP kl. 5.30 RING TWO kl. 10.20 B.i. 16. ára BANGSÍMON og FRÍLLINN m/ísl.tali. kl. 4 COACH CARTER kl. 10.10 KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK Hringrás óttans hefur náð hámarki kvikmyndir.is SK BOOGEY MAN kl. 6 - 8.30 - 10.30 B.i. 16. ára SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 6 THE PACIFIER kl. 6 - 8 - 10 MRS. CONGENIAL. 2 kl. 8.15 RING TWO Sýnd kl. 10.30 B.i. 16. ára Hetja. Þjóðsögn. Svampur Svampur Sveinsson og félagar eru komnir með sína fyrstu bíómynd. Með íslensku og ensku tali. Bráðfjörug, spennandi og sprenghlægileg gamanmynd með ofurtöffaranum Vin Diesel í aðalhlutverki! FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina. Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Hákon Svavarsson, lögg. fasteignasali, sími 898 9396. Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli LÍKT og The Mother, tekur The Woodsman fyrir efni sem er allt í senn vandmeðfarið, fáséð og nánast forboðið, og skilar því af smekkvísi. Hér er aðalpersónan, Walter (Bacon), miðaldra maður, nýbúinn að afplána 12 ára fangelsisvist fyrir kynferðislega misnotkun á telpum. Fortíðin þjakar hann, ekki aðeins að Walter eigi í eilífri innri kvöl vegna verknaðarins og í sífelldri spennu hvort hann missi grímuna á vinnu- staðnum, heldur sækir á hann efinn um hvort hann verði nokkru sinni hæfur að samlagast þjóðfélaginu á nýjan leik: Fer allt aftur í sama far- ið? Lítil hjálp er í sálfræðingnum sem hann heimsækir reglulega og lög- reglumaður sem fylgist með honum (Mos Def), lætur hann finna óþyrmi- lega fyrir sér. Þá er það ekki til að bæta aðstæður Walters að hann býr gengt grunnskóla þar sem hann hef- ur fylgst með grunsamlegum náunga, hugsanlega barnaníðing í leit að fórnarlambi. Eina ljósið í myrkrinu er mágur hans (Bratt), og samverkakona hans í sögunarmyllunni (Sedgwick), sem hefur mátt ýmislegt þola og þau verða ástfangin, þrátt fyrir allt. Myndin er byggð á leikriti og geldur þess lítillega, en leikstjór- anum og nýliðanum Kassell tekst þó vonum framar að færa efnið af svið- inu út í samfélagið. Það má hins veg- ar setja spurningarmerki við efnis- meðferðina. Fátt vekur meiri viðbjóð í þjóðfélaginu en barnaníð- ingar þó að þar fari fársjúkir menn, vanhæfir að ganga lausir og örugg- lega eru flestir þeirrar skoðunar að slíkir einstaklingar eigi sér ekki við- reisnar von. Umhugsunarverð niðurstaða The Woodsman væri ekki jafnviðunandi ef ekki kæmi til stórfenglegur leikur Bacons í ómennsku hlutverki níð- ingsins sem vill komast aftur á með- al manna. Bacon hefur lengi verið í hópi bestu leikara Hollywood af sinni kynslóð en hefur ekki fengið sömu tækifærin að aðrir úr úrvals- liðinu, líkt og t.d. Depp, Penn og DiCaprio. Hér töfrar Bacon áhorf- endur til að sitja lamaðir yst á stól- bríkinni með hnút í maganum í válegu atriði er hann vingast við unga telpu í almenningsgarði. Mað- ur þorir ekki að hugsa út í hvað ger- ist næst en vonar það besta. Það eitt er ærin ástæða til að sjá myndina. Aðrir leikarar eru langt yfir með- allagi, ekki síst rapparinn Mos Def, en The Woodsman er myndin hans Bacons og vonandi gefur frammi- staðan þessum vanmetna stórleikara tækifæri á fleiri slíkum afrekum. Aukinheldur minnir myndin okkur á að öll erum við fólk þó að hegðun okkar bendi ekki alltaf til þess. Á ystu mörkum KVIKMYNDIR Háskólabíó: IIFF Leikstjóri: Nicole Kassell. Aðalleikendur: Kevin Bacon, Mos Def, Kyra Sedgwick, Benjamin Bratt, Eve. 87 mín. Bandaríkin. 2004. Skógarhöggsmaðurinn (The Woodsman)  Kevin Bacon leikur aðal- hlutverkið í The Woodsman. Sæbjörn Valdimarsson BÍÓPASSAR sem hægt var að kaupa á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðina IIFF sem hófst fyrir helgi seldust upp á örskömmum tíma. Um var að ræða passa sem kostaði 5.000 kr. og gilti inn á 10 myndir að eigin vali. Takmark- að magn passa var í boði, eða 500 talsins, og seldust þeir upp um helgina. Fischer fór í bíó Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að hátíðin hafi farið afar vel af stað og aðsóknin fyrstu dagana hafi farið fram úr björtustu vonum. „Það er greinilega að skila sér í bíó fólk sem ekki fer reglulega í bíó og hefur starfsfólkið haft á orði hversu breiður hóp- ur þetta er. Það sást meira að segja til Bobby Fischer,“ segir Ísleifur og hlær. Þá hefur sú kærkomna nýbreytni hér á landi að gefa bíóáhugamönnum tækifæri til að ræða við kvikmynda- gerðarmenn og leikara slegið í gegn, en að sögn Ísleifs Þórhallssonar hefur nær undantekningarlaust verið fullur salur á slíkum sýningum og Íslendingar verið dug- legir að spyrja. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin IIFF 2005 Aðsóknin framar björtustu vonum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísleifur Þórhallsson, Walter Salles og Anna Marín Schram voru á opnunarhófi alþjóðlegu kvikmynda- hátíðarinnar á fimmtudag. LEIKHÓPURINN Kláus frum- sýndi á föstudagkvöld leikritið Riðið inn í sólarlagið á Litla svið- inu í Borgarleikhúsinu. Verkið er eftir enska verðlaunaleikskáldið Önnu Reynolds og segir frá þremur pörum og samböndum þeirra en pörin eiga það sameig- inlegt að eiga við svonefnt svefnherbergisvandamál að stríða. Leikstjórar verksins eru tveir, þeir Ólafur Jens Sigurðs- son og Oddur Bjarni Þorkels- son sem þýddi verkið. Sex leikarar, þrír karlar og þrjár konur, skipa leikhópinn Kláus og fara þessir sex leik- arar með öll 11 hlutverkin í leikritinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikhópurinn Kláus stillti sér upp fyrir ljósmyndara eftir sýninguna. Frá vinstri: Margrét Sverrisdóttir, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Erlendur Ei- ríksson, Alexía Björg Jóhannesdóttir, Guðjón Þorsteinn Pálmarsson og Ólafur S.K. Þorvaldz. Þau Sigrún Valbergsdóttir, kynning- arstjóri Borgarleikhússins (t.v.), Alexía Björg Jóhannesdóttir leik- kona og Hilmir Snær Guðnason leik- ari taka tal saman eftir sýninguna. Frá frumsýningu verksins í Borgarleikhúsinu. Erótík og samskipti kynjanna er viðfangsefni verksins. Kláus reið inn í sól- arlagið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.