Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 1
DREGIÐ hefur úr hækkun á
vísitölu fasteignaverðs íbúðar-
húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
að undanförnu.
Hækkunin í marsmánuði nam
2,4% frá fyrri mánuði, en 13% ef
litið er til síðustu 3 mánaða,
21,7% síðustu 6 mánuði og
32,2% síðustu 12 mánuði, skv.
tölum frá Fasteignamati ríkis-
ins.
Framboð eigna eykst
Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala,
segir að fasteignamarkaðurinn
sé byrjaður að leita jafnvægis á
nýjan leik, þótt enn sé mikil
hreyfing á markaðnum. Eignir
staldri lengur við en áður.
„Þetta sést vel ef skoðaðar
eru fasteignaauglýsingar.
Framboðið hefur verið að aukast
mikið, þótt það sé enn mjög mikil
sala eins og tölurnar gefa til
kynna,“ segir hann.
Þó ber að hafa í huga að
ástandið á fasteignamarkaði
undanfarin misseri er langt í frá
að vera eðlilegt. „Það er auðvitað
mjög merkilegt þegar eign fer í
sölu að hún sé seld innan viku og
oft innan 2–3 daga.
Á sama tíma má fólk reikna
með að það taki 2–3 mánuði að
selja bílinn sinn,“ segir Björn
Þorri.
Mikill samdráttur
í kaupsamningum
„Ástandið síðustu misseri er
búið að vera mjög sérstakt og
maður man satt að segja ekki
annað eins. Ég held að markað-
urinn eigi þó ennþá eitthvað inni.
2,4% hækkun milli mánaða er
feikilega mikil hækkun og það
má ekki gera lítið úr því,“ segir
Björn Þorri Viktorsson.
Þess má geta að samdráttur í
kaupsamningum nam 24,3% á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs
borið saman við 4. ársfjórðung
2004 og samdráttur í veltu var
17,7%.
Dregur úr hækkunum á vísitölu fasteigna-
verðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Markaðurinn að
leita jafnvægis
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is
STOFNAÐ 1913 107 . TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Engin
fortíðarþrá
Robert Plant aftur í landi miðnæt-
ursólar í nýjum félagsskap | 7
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Nissan Murano – einn með öllu Gríðarleg aukning á
innflutningi Íþróttir | Hermann Hreiðarsson meiddist á hné
gegn Aston Villa Haukar í úrslit en oddaleikur ÍR og Vals
Minsk, Vilníus. AP. | Embættismenn í Hvíta-
Rússlandi brugðust í gær hart við þeirri
áeggjan Condoleezzu Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna,
að skipt yrði um stjórn í
landinu. „Hér er verið
að fara fram á að steypt
verði af stóli löglega
kosinni stjórn Hvíta-
Rússlands,“ sagði m.a.
Nikolaj Cherginets,
áhrifamaður á hvít-
rússneska þinginu.
Rice var stödd í Vil-
níus í Litháen í gær en
þar var haldinn utanríkisráðherrafundur
Atlantshafsbandalagsins (NATO). Í ræðu
sem hún flutti kallaði hún Hvíta-Rússland
„síðasta einræðisríkið í miðri Evrópu“ og
sagði tíma kominn á breytingar. Hitti Rice
einnig hvít-rússneska andófsmenn og bauð
þeim stuðning í baráttunni fyrir lýðræði í
heimalandi þeirra.
Forsetakosningar fara fram í Hvít-
Rússlandi á næsta ári og sagði Rice að þá
myndi þarlendum bjóðast „ágætt tæki-
færi“ til að lýsa yfir vilja sínum. Hún réð
stjórn Alexanders Lúkasjenkós forseta frá
því að reyna að hafa áhrif á niðurstöðuna,
grannt yrði fylgst með kosningunum, rétt
eins og fylgst hefði verið með forsetakosn-
ingunum í Úkraínu á síðasta ári.
Úkraína á leið inn í NATO?
Samið var um aukna samvinnu NATO
og Rússlands í hernaðarmálum á fundin-
um í Vilníus. Þá urðu utanríkisráðherrar
NATO-ríkjanna sammála um að efla sam-
starf og samvinnu við nýja ríkisstjórn í
Úkraínu. Hjá NATO munu menn þó telja
það óraunhæft markmið stjórnvalda í Kíev
að Úkraína verði undir það búin að ganga í
NATO að einungis þremur árum liðnum.
Hvít-Rússar
æfir vegna
ummæla
Rice
Condoleezza Rice
„VIÐ TELJUM að við munum ná saman
við breiðan hóp fjárfesta fyrir miðjan maí,“
sagði Agnes Bragadóttir, formaður Al-
mennings ehf., í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld, en Agnes átti ásamt Orra Vig-
fússyni athafnamanni fundi með bæði er-
lendum og innlendum fjárfestum í London
í gær. Voru þau að sögn afar ánægð með
niðurstöðu fundanna og sögðu greinilegt
að fjárfestar hefðu mikinn áhuga á Al-
menningi ehf. Á þessu stigi málsins eru
engir samningar komnir á borðið, en að
sögn Agnesar gera þau Orri sér í hug-
arlund að þau nái að mynda öflugan hóp
fjárfesta á allra næstu vikum.
Aðspurð segir Agnes um stóra fjárfesta
að ræða, en sagðist á þessu stigi málsins
ekki geta gefið upp hverja væri um að
ræða þar sem hún væri bundin trúnaði.
Gat hún þó upplýst að um væri að ræða
mjög stór fyrirtæki. „Fyrirtæki sem hafa
mikla reynslu af einkavæðingu síma bæði
á evrópska og alþjóðlega vísu. Það er alveg
ótrúlega mikil hreyfing með okkur og mik-
ill vilji þessara fjárfesta að fá okkur til liðs
við sig,“ segir Agnes.
Agnes segir íslenska símann greinilega
höfða til erlendra fjárfesta, sem sæju
möguleika á samlegðaráhrifum með sam-
starfi við önnur erlend símafyrirtæki og
uppbyggingu á ákveðnum sviðum.
Í viðræðum
við fjárfesta
í London
Almenningur ehf.
Dublin. AFP. | Ríkisstjórn Írlands hefur
samþykkt nýjar reglur sem eiga að
tryggja að a.m.k. 40% þeirra sem sitja í
opinberum nefndum og ráðum ríkisins
verði konur.
Það hefur verið markmið írsku stjórn-
arinnar að fjölga konum í nefndum og ráð-
um ríkisins í a.m.k. 40%. Ný skýrsla sýnir
að hvað varðar útnefningar ráðuneytanna
sjálfra hefur markmiðinu verið náð en aðr-
ir aðilar, sem tilnefna fólk í opinberar
nefndir og ráð, hafa verið langt frá því að
uppfylla þennan kvóta. Hefur hlutfall
kvenna þar aðeins verið 19%.
Frank Fahey, undirráðherra í dóms-
málaráðuneytinu írska, sagði að ástæða
væri til að bregðast sérstaklega við þess-
um niðurstöðum, enda skipuðu aðrir aðilar
en ríkið sjálft meirihluta nefndarmanna,
eða um 60%. Gera nýjar reglur ráð fyrir að
þeir sem tilnefna í nefndir og stofnanir rík-
isins verði að skila inn nafni bæði konu og
karls. Mun ríkisstjórnin síðan ákveða
hvaða aðili er skipaður, með hliðsjón af því
hvernig 40% markinu er best náð.
Konur verði
40% fulltrúa
í nefndum
REYKVÍKINGAR og landsmenn allir fögn-
uðu í gær komu sumars með pompi og
prakt. Margt var sér til gamans gert sum-
ardaginn fyrsta og fjölmargir viðburðir í
boði. Veðrið hélst líka réttum megin við
vonskuna og var milt víða um land.
Sem fyrr skipa skátar mikilvægan sess í
hátíðarhöldunum og þrömmuðu þeir í
skrúðgöngum með fánaborgir víða um land.
Sumri fagnað með fánafjöld
Morgunblaðið/Sverrir
♦♦♦