Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 7
FRÉTTIR
Dregi› 52 sinnum á ári um 705 skattfrjálsar milljónir!
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
-dregi› í hverri viku
bifreiðar í vinninga
Ford Mustang
10
Opið um helg
ina
í aðalumboði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
27
49
9
4
/2
00
5
ERU einhverjar spurningar áður
en við förum?“ voru upphafsorð
Roberts Plants, söngvara sveit-
arinnar Strange Sensation, á
blaðamannafundi á Fjörukránni í
Hafnarfirði í gær. Plant var þó
fljótur að leiðrétta grínið og átti
dágott spjall við blaðamenn þar
sem hann bæði hann og hljóm-
sveitin slógu á létta strengi og
ræddu tónlist sína. „Það er frá-
bært að vera kominn aftur til Ís-
lands, landsins sem gaf mér svo
margt og blés mér í brjóst einu af
mínum bestu lögum.“
Á fundinum rifjaði Plant m.a.
upp komu sína til Íslands með Led
Zeppelin árið 1970 og sagði sögur
af þeirri upplifun sem sú ferð var.
„Ég get varla ímyndað mér hvern-
ig þessi þrjátíu og fimm ár gátu
liðið svona hratt,“ sagði Plant.
„Það verður að hafa það í huga að
ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
keltneskri menningu og sögu. Það
að koma hingað var nokkurs konar
hliðstæð reynsla þess sem hafði
áhrif á mig sem ungan mann. Það
er dálítið kaldhæðnislegt að þegar
við Jimmy Page sömdum Immigr-
ant song höfðum við aldrei áður
séð miðnætursólina og við vorum
bergnumdir af þessu öllu saman.
Við vorum engilsaxar að þykjast
vera keltar.“
Plant segir reynsluna af því að
semja Immigrant song hafa verið
frábæra, en lagið er eins og marg-
ir vita innblásið af Íslandi. „Ég
kom hingað sem lítill strákur, átti
æðislegt samband við fólkið hér og
samdi æðislegt lag. Það er ekki
slæm helgi. En ef ég hefði bara
vitað um skaðann sem það átti eft-
ir að valda í rokkheiminum. Allar
rokksveitir fóru í víkingagírinn og
söngvarar fóru að klæða sig í
þröngar buxur þannig að tólin
stóðu út. Ég er alveg miður mín
yfir því,“ sagði Plant kíminn.
Of gamall fyrir óþarfa
Að sögn hljómsveitarmeðlima
hafa viðtökur við sveitinni verið af-
ar góðar, en þeir hófu tónleika-
ferðalag sitt í Bandaríkjunum í
síðasta mánuði. Sveitin hefur m.a.
leikið í London, St. Pétursborg og
Prag. „Það sem við erum að gera
með þessari plötu, Mighty Rearr-
anger, og hljómsveitinni Strange
Sensation er að skapa eitthvað
raunverulegt,“ segir Clive Deamer
trommuleikari. „Þessi hljómsveit
snýst ekki um neina fortíðarþrá,
heldur erum við að taka okkar eig-
in stefnur og draga frá alls kyns
áhrifavöldum eins og marokkóskri
tónlist og blús frá 1920, villtum og
furðulegum hlutum.“
Aðspurðir hvort fortíð Plants
flækist fyrir sveitinni segja þeir
alls ekki laust við það að blaða-
menn reyni að bera þá saman við
Led Zeppelin og áhorfendur vilji
sjá gamla daga á ný. „En við erum
Strange Sensation og erum að
gera nýja hluti, okkar hluti. Við
leikum auðvitað líka gömul lög
sem Plant samdi með Page,“ sagði
Skin Tyson gítarleikari. Undir
þetta tekur Plant.
„Ég finn fyrir söknuði fólks eftir
þessum tíma og auðvitað finn ég
fyrir honum líka. En aðalatriðið er
að þessi lög snúast um mínar, okk-
ar, væntingar, einskis annars. Við
erum að fara í okkar
eigin átt núna. Það er
líka frábært að ég er
ekki lengur miðpunkt-
urinn.
Ég get hreinlega
labbað af sviðinu í
smástund og það
breytir engu, tónlistin
keyrir alveg. Það er
heldur ekki til neins
að vera að keppa við
hljómsveitir frá þess-
um tíma sem eru enn
að spila sömu gömlu
lögin. Það er óttalega
innantómt.“
Hæðir og lægðir
Plant segir það
skipta sig miklu máli
að hafa unnið við að
gera góða tónlist á
lífsleiðinni. „Ég hef
átt bæði lægðir og
hæðir í mínu lífi, þar
sem ég hélt að ég
væri að gera rétta hlutinn, en ein-
hvern veginn var ég að reyna of
mikið,“ sagði Plant.
„Það hefði verið einfalt að
hlaupa alltaf aftur til móðurskips-
ins, en það hefði verið tilgangs-
laust, því móðurskipið lagðist að
bryggju fyrir mörgum árum. Það
að skapa svona góða tónlist sparar
mér líka mikla tímasóun.
Ég myndi ekki þrífast í ein-
hverri endurminningahljómsveit
því ég er orðinn of gamall til að
gera hluti sem gefa ekkert af sér.“
Engin
fortíðarþrá
Morgunblaðið/Sverrir
Robert Plant og Charlie Jones bassaleikari hrifust af víkingastyttum fyrir utan Fjöru-
krána og smelltu af nokkrum myndum af listaverkunum.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Robert Plant og Strange Sensation halda tónleika í Laugardalshöllinni í kvöld
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
karlmann í 22 mánaða fangelsi,
þar af 19 mánuði skilorðsbundið,
fyrir tvö þjófnaðarbrot. Hæsti-
réttur mildaði refsingu Héraðs-
dóms Reykjavíkur frá 8. nóv-
ember 2004 sem dæmt hafði
ákærða til jafnlangrar fangels-
isrefsingar en þó án skilorðs.
Hæstiréttur mat málið svo að í
ljósi þess að ákærði sýndist nú
vera að takast á við áfengis- og
vímuefnavandamál sín af fullri
festu væri rétt að skilorðsbinda
refsinguna að hluta.
Ingibjörg Benediktsdóttir
hæstaréttardómari skilaði séráliti
og sagði að í fyrri dómum yfir
ákærða hefði fjórum sinnum áður
verið vísað til þess að hann hafi
gengist undir meðferð vegna
áfengis- og vímuefnanotkunar og
væri að vinna bug á þeim vanda.
Taldi hún ekki koma til álita að
skilorðsbinda refsinguna þegar
litið væri til brota ákærða, saka-
ferils hans og endurtekinna skil-
orðsrofa.
Meirihluta dómsins skipuðu
hæstaréttardómararnir Hrafn
Bragason og Árni Kolbeinsson.
Verjandi var Hilmar Ingimund-
arson hrl. og sækjandi Bragi
Steinarsson vararíkissaksóknari.
Fékk skilorð
út á áfengis-
meðferð
LÖGREGLAN á Akureyri hefur
handtekið fjórða manninn vegna
fíkniefnamáls, sem kom upp á
Blönduósi í síðustu viku þegar
stöðvaðir voru þrír menn á bíl
með 300 grömm af hassi. Hefur
maðurinn verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
Lögreglan á Akureyri segir að
rannsókn málsins sé allumfangs-
mikil. Tveir menn sem hand-
teknir voru í síðustu viku sitja
enn í gæsluvarðhaldi en þriðja
manninum hefur verið sleppt.
Lögreglan lagði hald á um 12
gr. af amfetamíni í heimahúsi sl.
sunnudag í tengslum við rann-
sóknina.
Handtekinn
vegna
fíkniefnamáls