Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 15
ERLENT
Washington. AP, AFP. | George W.
Bush Bandaríkjaforseti lagði í gær
hart að þingmönnum öldungadeildar
Bandaríkjaþings
að staðfesta skip-
an Johns Bolton,
varautanríkisráð-
herra, í embætti
sendiherra
Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu
þjóðunum. At-
kvæðagreiðslu
um útnefningu
Boltons hafði ver-
ið frestað í utanríkismálanefnd öld-
ungadeildarinnar á þriðjudag eftir
að það var skyndilega og mjög óvænt
orðið tvísýnt hvort meirihluti væri
fyrir því að staðfesta Bolton.
Talið er að Bush hafi tjáð sig um
málið í gær í því skyni að taka af öll
tvímæli um það að Hvíta húsið stæði
enn þétt við bak Boltons. Höfðu farið
af stað vangaveltur um það hvert
framhald málsins yrði eftir atburði
þriðjudagsins og m.a. sagði blaðið
Los Angeles Times í leiðara að Bolt-
on ætti að gera forsetanum þann
greiða að draga sig í hlé.
Bush kenndi þrætugjörnum
stjórnmálamönnum í Washington
um stöðuna, sagði þá tilhneigingu
manna að fella pólitískar keilur oft
koma í veg fyrir að hagsmunum al-
mennings væri sinnt. En ljóst þykir
að málið er vandræðalegt fyrir Bush.
Fyrirfram hafði verið vitað að einn
þingmaður Repúblikanaflokksins í
utanríkismálanefndinni, Lincoln
Chafee, væri efins um útnefningu
Boltons en hann hafði þó látið hafa
eftir sér fyrir yfirheyrslur yfir Bolt-
on að hann myndi líklega greiða at-
kvæði með staðfestingu hans.
Á þriðjudag kom hins vegar á dag-
inn að annar repúblikani, George
Voinovich frá Ohio, var orðinn fullur
efasemda um valið á hinum umdeilda
Bolton. Sagði hann þá að demókrat-
ar í nefndinni hefðu vakið máls á at-
riðum varðandi Bolton sem kanna
þyrfti nánar. Tók formaður nefnd-
arinnar, repúblikaninn Richard Lug-
ar, þá þann kost að fresta atkvæða-
greiðslu um skipanina, enda orðið
óvíst um niðurstöðu í ljósi þess að
meirihluti repúblikana í nefndinni er
aðeins 10-8. Er nú talið að það muni
líða a.m.k. tvær vikur þar til nefndin
greiðir atkvæði um Bolton.
Framkoma við undirmenn
til skammar
Í yfirheyrslum yfir Bolton höfðu
nefndarmenn hlýtt á vitnisburð
nokkurra undirmanna Boltons í ut-
anríkisráðuneytinu, þar sem því var
haldið fram að framkoma Boltons við
samstarfsfólk sitt, einkum þá, sem
undir hann hefðu verið settir, hefði
verið til skammar. Útnefning Bolt-
ons hefur raunar sætt harðri gagn-
rýni víða um heim, ekki aðeins í
Bandaríkjunum, en Bolton þykir í
gegnum tíðina hafa látið ýmis um-
mæli falla um SÞ sem ekki þykja
benda til að hann hafi hagsmuni
samtakanna mjög í fyrirrúmi. Þá er
hann sakaður um að reyna gjarnan
að laga upplýsingar að hugmynda-
fræðilegum línum.
Bush leggur að þinginu
að staðfesta Bolton
Vaxandi andstaða
í utanríkismála-
nefnd öldunga-
deildar þingsins
John Bolton
STJÓRNVÖLD í Brasilíu hafa ákveðið að veita
Lucio Gutierrez, sem þjóðþing Ekvador setti af
sem forseta í atkvæðagreiðslu á miðvikudag,
pólitískt hæli. Var gert ráð fyrir því að hann
flygi til Brasilíu síðdegis í gær. Gutierrez er
þriðji forsetinn í Ekvador sem settur er af á síð-
ustu átta árunum og alls hafa setið sjö forsetar í
landinu frá árinu 1996.
Gutierrez hugðist fljúga á brott frá Ekvador
á miðvikudagskvöld, eftir að þing landsins hafði
sett hann af og stjórnarherinn tilkynnt að hann
væri hættur stuðningi við forsetann. Múgur
reiðs fólks mun hins vegar hafa komið í veg fyrir
að einkaþota Gutierrez gæti haft sig á loft frá
flugvellinum í Quito, höfuðborg Ekvador.
Fréttir hermdu fyrst að hann hefði í fram-
haldinu verið handtekinn en hið rétta var að
Gutierrez leitaði skjóls í sendiráði Brasilíu og
hafðist hann þar við í gær.
Mikil spenna hefur verið í Ekvador alla vik-
una og til mótmæla hafði komið gegn Gutierrez
forseta í höfuðborginni Quito, sakaði múgurinn
hann um að hafa misnotað vald sitt. Eiga þær
ásakanir rætur að rekja til þeirrar ákvörðunar
Gutierrez að setja allan hæstarétt landsins af
fyrir nokkrum mánuðum.
Létust a.m.k. tveir í þessum mótmælum og
um það bil 100 slösuðust.
Gutierrez á sér þó marga stuðningsmenn
einnig og var óttast að til harðra átaka kæmi
milli andstæðra fylkinga.
Vildi að mótmælin gegn
honum yrðu barin niður
Upp úr sauð í fyrradag eftir að Gutierrez
skipaði her landsins og lögreglu að brjóta mót-
mælin gegn honum á bak aftur, með valdi ef
þurfa þætti.
Þing landsins samþykkti með 62 atkvæðum
gegn engu að setja hann af og var varaforsetinn,
Alfredo Palacio, þegar skipaður forseti í stað-
inn. Her landsins sneri einnig baki við Gutier-
rez, sem hafði verið forseti frá því í ársbyrjun
2003. Hann var áður foringi í her Ekvador og
kom einmitt að því er Jamil Mahuad var settur
af sem forseti fyrir fimm árum. Í kjölfarið sat
Gutierrez í fangelsi í fjóra mánuði, fyrir aðild
sína að valdaráni, en náði síðan kjöri sem forseti
í nóvember 2002 eftir að hafa heitið að ráða nið-
urlögum spillingar og vinna að umbótum.
Vinsældir hans tóku hins vegar fljótt að dala
er hann greip til harðra aðhaldsaðgerða. Það
jók heldur ekki vinsældir hans hversu mikla
pólitíska samleið hann var talinn eiga með
George W. Bush Bandaríkjaforseta.
Dagur sæmdar, dagur vonar
Nýr forseti, Palacio, hefur heitið því að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu hið fyrsta og kalla
saman stjórnlagaþing í því skyni að skapa land-
inu nýtt stjórnarfyrirkomulag; en sem fyrr seg-
ir hafa nú þrír forsetar Ekvador verið settir af á
aðeins átta árum. „Í dag er veldi hrokans og ótt-
ans lokið. Í dag gengur þjóðin aftur veg sæmdar
og vonar,“ sagði Palacio á fundi með frétta-
mönnum.
Stuðningsmenn Gutierrez stóðu hins vegar
fyrir mótmælum fyrir framan þinghúsið, eftir
að þingið hafði sett forsetann af, og fór fólkið
fram á að þegar yrði boðað til kosninga í land-
inu.
Gutierrez fær póli-
tískt hæli í Brasilíu
Nýr forseti Ekvador lofar breytingum
Reuters
Alfredo Palacio varð fyrir aðkasti stuðningsmanna Lucios Gutierrez eftir að hann sór embætt-
iseið forseta Ekvador í fyrrakvöld. Allt bendir nú til að Palacio ljúki kjörtímabili Gutierrez.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
AÐ minnsta kosti sautján manns
biðu í gær bana og 150 slösuðust í
árekstri tveggja lesta nálægt bæn-
um Samaliya í Baroda-héraði, vest-
arlega á Indlandi; um 380 km norð-
ur af borginni Bombay. Um var að
ræða farþegalest og flutningalest
og má á myndinni sjá hvar er verið
að bjarga slösuðum manni úr far-
þegalestinni í gær. Ráðherra lest-
amála í Indlandi, Laloo Prasad
Yadav, mætti á vettvang snemma í
gær en lestarkerfið á Indlandi þyk-
ir afar óáreiðanlegt og óöruggt.
Skeytti mannfjöldinn skapi sínu á
ráðherranum, kastaði að honum
steinum og reyndi að kveikja í bíl
hans.
Reuters
Sautján fórust í
árekstri tveggja lesta