Morgunblaðið - 22.04.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 9
FRÉTTIR
Hörbuxur - Hörvesti - Hörkjólar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Frábært
úrval
Síðumúla 3
Bikiní
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Sumarfatnaður
Léttir jakkar,
síðbuxur og bolir
Dóróthea Magnúsdóttir, sími 892 5941
Hugrún Stefánsdóttir, sími 861 2100
Náttúruvænir
hárlitir
frá Ítalíu
Láttu lita þig með
náttúrulitum hjá fagfólki
eða fáðu faglega ráðgjöf
og litaðu þig sjálf.
Herbatint er lausnin.
Skólavörðustig 10, s. 511 2100
HÁR & HEILSA
BASS
Fást í 2 víddum - Litir: Hvítt - ivory
iðunn
tískuverslun Kringlunni ◆ sími 588 1680
Full búð
af nýjum
sumarvörum
Kringlunni · sími 568 4900
Gallabuxnadagar
20%
afsláttur
föstudag og laugardag
Laugavegi 51, sími 552 2201
ODD Nerdrum og Stefán Boulter
halda samsýningu á nokkrum
verka sinna í Gallery Terpentine í
Ingólfsstræti 5 í Reykjavík. Var
hún opnuð í gær, 21. apríl.
Á sýningunni eru olíumálverk og
grafíkverk en Stefán var aðstoðar-
maður hans og nemandi í 4 ár. Odd
sýnir þrjú ný olíuverk og Stefán er
með 10 olíuverk og nokkrar grafík-
myndir.
Hið einlæga
málverk
HJÁLPARSTARF á hamfarasvæð-
um er yfirskrift opins fundar sem
Rauði krossinn og Reykjavíkur-
akademían halda laugardaginn 23.
apríl kl. 12, í húsnæði Reykjavík-
urakademíunnar á fjórðu hæð í JL-
húsinu og er öllum opinn.
Á fundinum segir Sigrún Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri Rauða
krossins, frá þeim verkefnum sem
félagið hyggst ráðast í á flóðasvæð-
um á næstunni og Sigríður Björk
Þormar, hjúkrunarfræðingur og
heilsusálfræðingur, lýsir áfalla-
hjálp á vettvangi. Hún er einn tíu
sendifulltrúa Rauða kross Íslands
sem hafa unnið að hjálparstörfum í
Indónesíu og Sri Lanka síðustu
fjóra mánuðina, segir í fréttatil-
kynningu.
Hjálparstarf á
hamfarasvæðum
SAMKVÆMT vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofunnar unnu 59,6%
námsmanna, 16 ára og eldri, með
námi sínu á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs. Alls fjölgaði náms-
mönnum, sem unnu með námi, um
1.200 frá fyrsta ársfjórðungi árið
2004, eða úr 22.300 í 23.500 og var
sú fjölgun einungis meðal kvenna.
Alls voru námsmnn 39.400 á fyrsta
ársfjórðungi 2005.
Meðalfjöldi vinnustunda var 26,9
klukkustundir hjá námsmönnum
sem voru við vinnu í viðmið-
unarvikunni, 33,2 klukkustundir
hjá körlum en 22,5 klukkustundir
hjá konum. Til námsmanna teljast
allir þeir sem eru í skóla innan hins
almenna skólakerfis, á námssamn-
ingi eða í starfsþjálfun síðustu 4
vikurnar á undan könnunarviku,
eða stunda vinnu með námi.
Nærri 60% náms-
manna vinna með
námi sínu
OPNUÐ hefur verið vefsíða sem
stofnað er til af allmörgum sóknar-
börnum í Garðasókn „sem er stór-
lega misboðið vegna þeirrar aðfarar
sem formaður og varaformaður
Garðasóknar ásamt djákna hafa
staðið fyrir gegn sóknarprestinun
séra Hans Markúsi Hafsteinssyni“,
eins og segir í fréttatilkynningu.
Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar
hefur komist að þeirra niðurstöðu að
rétt sé að færa séra Hans Markús til
í starfi. Stuðningsmenn hans segja
að þessi niðurstaða liggi fyrir þrátt
fyrir að sóknarbörnum hans hafi
aldrei verið gerð grein fyrir þeim
ávirðingum sem á hann eru bornar.
Vilja aðalsafnaðarfund
„Þessu mótmæla sóknarbörn
harðlega og hafa því hafið söfnun
undirskrifta til stuðnings sóknar-
prestinum og krefjast þess jafn-
framt að boðað verði til aðalsafn-
aðarfundar í Garðasókn eigi síðar en
4. maí.
Nafnalisti verður afhentur dóms-
málaráðherra og biskupi með ósk um
að þeir hlutist til við að koma sóknar-
starfi aftur í viðunandi horf og sókn-
arprestur fái frið til að þjóna sínum
sóknarbörnum í sátt og samlyndi og
þannig verði komið í veg fyrir að
fjöldi sóknarbarna neyðist til að
segja sig frá þjóðkirkjunni ef vilji ör-
fárra í sóknarnefnd og djákna nær
fram að ganga.“
Vefsíðan er á slóðinni: www.inter-
net.is/hansmarkus.
Vefsíða til stuðnings séra Hans Markúsi
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111