Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 27

Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 27 MINNINGAR REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Hulda GuðrúnSigurðardóttir fæddist í Hvassa- hrauni á Vatnsleysu- strönd 6. apríl 1918. Hún lést á heimili sínu á Seltjarnarnesi 13. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru þau Kristrún Þórðardóttir frá Vogsósum, f. 9. júlí 1894, d. 24. júlí 1982, og Sigurður Sæ- mundsson frá Vind- heimum, f. 8. febrúar 1884, d. 12. febrúar 1969. Þau bjuggu í Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd. Hulda var fjórða í röðinni af sex systkinum. Þau voru: Þórður Elías, f. 29. júlí 1914, d. 17. nóvember 1973, Ár- sæll, f. 27. nóvember 1915, d. 30. september 1942, Sæmundur, f. 7. desember 1916, d. 16. desember 1978, Guðmundur Kristinn, f. 19. júlí 1919, d. 25. febrúar 2001, og Gunnar Ingibergur, f. 4. apríl 1923, d. 9. ágúst 2003. Hulda giftist árið 1942 Björg- vini P. Jónssyni, kaupmanni í Vaðnesi, f. 11. júlí 1912, d. 18. september 1984. Börn þeirra eru fimm og heita: 1) Oddný, f. 8. júní 1942. Börn hennar eru Björgvin P. Hallgrímsson, f. 1. ágúst 1966, og Sigríður Hallgrímsdóttir, f. 15. janúar 1971. 2) Ársæll, f. 22. nóvember 1943. Börn hans eru Hulda Rut Ársælsdóttir, f. 10. apríl 1963, og Kristján Þ. Ársæls- son, f. 29. ágúst 1965. Unnusta Ársæls er Helga Kristjánsdóttir, f. 12. apríl 1943. 3) Björk, f. 24. júlí 1949, maki Steinar Már Clausen, f. 7. ágúst 1947, þau eiga þrjú börn, Alfreð Má Clausen, f. 18. júlí 1972, Björgvin Clausen, f. 28. janúar 1974, og Kristínu Jó- hönnu Clausen, f. 20. maí 1983. 4) Sigrún, f. 29. nóvember 1950, d. 27. júlí 1999. 5) Már, f. 22. september 1960, maki Elísabet Dolinda Ólafsdóttir, f. 9. mars 1965, þau eiga þrjú börn, Lindu Björgu Arn- ardóttur, f. 21. mars 1989, Kjartan Más- son, f. 3. janúar 1995, og Svein Rún- ar Másson, f. 22. apríl 1999. Lang- ömmubörn Huldu eru þrettán. Hulda ólst upp í Hvassahrauni þar til foreldrar hennar hættu búskap. Hún útskrifaðist frá Kvennaskól- anum í Reykjavík 1938 en vann síðan m.a. á Hótel Valhöll á Þing- völlum og í kexverksmiðjunni Esju. Síðar fór hún í Húsmæðra- skólann á Ísafirði og lauk þar námi 1942. Hulda og Björgvin hófu búskap á Klapparstíg 1942 en fluttu í Suðurhlíð við Starhaga árið 1953 og í Goðheima árið 1960. Í lok sjöunda áratugarins heillaðist Hulda af jóga og stund- aði það og kenndi nánast til ævi- loka. Fyrst kenndi hún í jógastöð- inni Heilsurækt og síðar hjá Heilsubót í Hátúni. Jafnframt kenndi hún á sumarnámskeiðum, m.a. á Varmalandi og á Reykhól- um. Nokkrum árum eftir að Björgvin lést byggði Hulda sér heimili með jógasal og garði í Hlaðhömrum í Grafarvogi og iðk- aði þar og kenndi jóga og var einnig tíður gestur í jógastöðinni Heimsljósi. Fyrir tveimur árum flutti Hulda í Tjarnarmýri á Sel- tjarnarnesi og tók fullan þátt í fé- lagsstarfi aldraðra og stundaði jafnframt jóga í Jógastöð Vest- urbæjar. Útför Huldu fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Mig langar til að hripa niður nokkur minningarorð um fyrrver- andi tengdamóður mína, Huldu Guðrúnu Sigurðardóttur, þótt nú sé langt um liðið síðan við áttum náin samskipti. Hulda var stórbrotin kona og allt lék í höndum hennar. Hún reyndist mér líka vel á erfiðum tímum í lífi mínu og alltaf þegar í harðbakkann sló var hún fljót til að rétta mér hjálparhönd. Hún saumaði falleg föt á ömmu- börnin sín, sem kölluðu hana Huldu ömmu, þá er ég að meina börnin mín. Eins saumaði hún föt á mig við sérstök tækifæri. Hún kenndi mér margt, til dæmis að telja út í lopapeysur, og margar kökuuppskriftir á ég í bók, sem ég nota enn og eru frá henni komnar, til dæmis „Hulduömmubollur“ sem voru mjög vinsælar í gamla daga. Hulda var einnig afar góð við móð- ur mína sem átti lengi við erfiðan sjúkdóm að stríða. Margt fallegt er það sem rifjast upp og margar góðar eru minning- arnar við leiðarlok, þótt ekki sé rúm til þess að segja frá þeim hér. Ég votta öllum þeim sem syrgja í dag, börnum hennar og barnabörn- um, mína dýpstu samúð. Ljúfir straumar lifna í vitund minni, minningar vakna rifjast upp á ný. Það er svo gott að hverfa í sátt. Kveðja líf sem ljúfan næturdraum. Drottinn blessi minningu Huldu ömmu. Þóra Björk Benediktsdóttir. Mín kæra Hulda amma er dáin. Þegar ég sest niður til að skrifa kveðjuorð til ömmu minnar verður mér ljóst að stundirnar sem við átt- um saman eru ótalmargar. Stund- irnar þegar þú gættir mín á Klapp- arstígnum, þegar ég kom á laugardögum í Goðheimana til að sofa hjá afa og ömmu, þú settir rúll- urnar í hárið og brúna netið yfir og ég fékk að hjálpa þér að vinna heimilisverkin þótt smá væri. Þeg- ar ég bjó hjá þér sá ég þig sauma út, smíða, mála, bólstra, teppa- leggja og flísaleggja. Þú gast allt. Stundirnar þegar þú varst að máta á mig fötin sem þú saumaðir á mig. Mér fannst fermingarkjóllinn minn sá flottasti í heiminum. Stundirnar á menntaskólaárunum mínum þeg- ar ég heyrði þig sauma er ég fór að sofa og heyrði þig sauma er ég vaknaði, þú þurftir aldrei að sofa. Þú áttir alltaf stund aflögu ef ég þurfti á þér að halda. Við bökuðum, saumuðum, lásum, prjónuðum. Þú last með mér undir próf og hafðir alltaf áhuga á því sem ég gerði. Þegar ég las undir jólapróf í sögu og kom til þín inn í eldhús að baka smákökurnar þuldi ég yfir þér sjálf- stæðisbaráttu Íslendinga klukkan þrjú um nótt. Þegar ég útskrifaðist úr menntaskólanum saumuðum við kjólinn. Þegar Siggi minn kom til sögunnar fannst þér hann jafnæðis- legur og mér og þú varst alltaf að spyrja um okkur Sigga. Árin liðu hratt en alltaf varstu þar og ekki bara þegar stórar stundir í lífu mínu voru, heldur allt- af. Þú komst manna fyrst á fæðing- ardeildina þegar ég átti börnin mín, komst og nuddaðir mig þegar ég var alveg frá í öxlunum, gættir barnanna minna í tíma og ótíma. Stundirnar í Hlaðhömrunum þegar ég kom og þú varst að bardúsa í garðinum tilbúin með kaffi og með- læti. Þar héldum við uppteknum hætti. Þú varst alltaf svo glöð yfir öllum hlutum. Þegar upp komu erf- iðar stundir í mínu lífi og þínu gát- um við alltaf hvatt hvor aðra áfram, ræddum hlutina fram og til baka. Ferðin okkar til Krítar síðastliðið sumar var einstök er við nutum sól- arinnar og syntum í sjónum ásamt Írisi minni, þar fannst þér blómin svo falleg og ekkert jafnaðist á við að sitja úti og drekka morgunkaffið. Þegar ég hugsa um þessar stund- ir koma tár í augu og eitt stórt bros á varir mínar yfir öllum þeim fal- legu minningum sem ég á um þig. Kæra amma, ég þakka og lofa fyrir allar þessar stundir í lífi mínu sem ég átti með þér og þínar fallegu gjafir sem þú gafst mér og mínum en stærsta gjöfin varst þú sjálf. Þín Hulda Ruth Ársælsdóttir. Elsku amma. Takk fyrir allar góðu stundirnar með þér. Við sökn- um þín mikið en þó hjálpar mikið að vita að þú ert á góðum stað þar sem sólin, sem þú hafðir svo mikið dá- læti á, skín alltaf og mikið er af fal- legum blómum. Þú varst svo mikil blómakona. Þótt þú sért farin eigum við minningarnar enn. Þessar minning- ar eru allar góðar. Þegar við komum í heimsókn vastu alltaf með eitthvað gott handa okkur og bakaðir oftar en ekki pönnukökur. Allra bestu pönnukök- ur í heimi. Og alltaf þegar við kvöddum fengum við koss og faðm- lag. Þér fannst svo mikilvægt að gera vel við alla og undir þér best þegar þú gast glatt aðra. Allar þessar minningar, um bestu ömmu í heimi, munum við varðveita alla ævi. Linda, Kjartan og Sveinn Rúnar. Sólin er hnigin, sest bak við skýin. Og ég hugsa til þín næturlangt. Baráttuknúin, boðin og búin. Tókst mig upp á þína arma á ögurstundu. Þú varst alltaf þar í blíðu og stríðu og hjá þér átti ég skjólið mitt. Alltaf gat ég treyst á þína þýðu. Og ég þakka þér alla mína ævidaga. Hve oft þú huggaðir og þerraðir tárin mín. Hve oft þau hughreystu mig orðin þín. Studdir við bakið. – Stóðst með mér alla leið. Opnaðir gáttir. Allt sem þú áttir léstu mér í té – og meira til. Hóf þitt og dugur. Heill var þinn hugur. Veittir mér svo oft af þínum viskubrunni. Kenndir mér og hvattir æ til dáða og mín kaun græddir þá þurfti við. Alltaf mátti leita hjá þér ráða. Og ég eigna þér svo ótal margt í mínu lífi. (Stefán Hilmarsson.) Elsku langamma. Takk fyrir samveruna. Gylfi Þór, Íris Hrund, Kristrún Hulda og Sigrún Margrét. Í dag kveðjum við með trega frá- bæran samferðarfélaga til margra áratuga, Huldu G. Sigurðardóttur frá Hvassahrauni á Vatnsleysu- strönd. Hulda er síðasti útskrift- arkandidatinn frá þessari jarðvist úr hópi systkina sem öll voru fædd og uppalin í Hvassahrauni, á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar. Bræður hennar voru Þórður, Sæ- mundur, Ársæll, Guðmundur og Gunnar. Þegar litið er yfir farsæla vegferð þessarar heiðurskonu blas- ir við að hún var umfram allt, sinn- ar eigin gæfu smiður. Ætla má að styrkur hennar til að höndla ham- ingjuna í lífinu, hafi framar öðru legið í hláturmildi, töfrandi fram- komu og góðvild. Þetta voru mann- kostir sem hún hafði fengið ríku- lega úthlutað, í vöggugjöf frá guði. Fyrstu bernskuminningar mínar tengdar þessari kæru frænku voru ævintýralegar lautarferðir suður í Hvassahraun og oft upp í Vatns- leysustrandarheiðina. Ferðir þess- ar voru farnar á Willýs Wagoneer jeppa, fágætum kostagrip í eigu þeirra hjóna Huldu og Björgvins Jónssonar, kaupmanns í Vaðnesi og síðar Grund. Bíll þessi var lengi sá eini sem tengdist fjölskyldum okk- ar til beggja átta, enda var Björg- vin Jónsson eini businessmaðurinn, tengdur okkar fólki. Hápunktar þessara ferðalaga var þegar lagt var upp. Fremst sátu Hulda og Björgvin, þá komu Kristrún Þórð- ardóttir amma og afi Sigurður Sæ- mundsson. Næst voru mamma og pabbi, Lóa og Þórður. Aftast í skottinu iðaði óþreyjufull krakka- þvagan, frændsystkini sem teyguðu að sér yndislega bensínlyktina þeg- ar jeppinn loks ók úr hlaði. Það er einmitt þessi hópur úr skottinu, sem í dag syrgir í hljóði yfir mold- um kærrar móður, frænku og vinar ásamt nýjum kynslóðum afkom- enda, sem á sama hátt syrgja kæra ömmu og langömmu. Um miðjan aldur þegar Hulda hafði lokið hefðbundnu ævistarfi, við að eignast og koma til manns fimm barna hópi, réðst hún til at- lögu við nýja áskorun í lífinu. Þetta var þegar hún stofnaði ásamt nokkrum félögum Jógastöðina Heilsubót. Með þessu frumkvæði varð hún virkur þátttakandi í brautryðjandastarfi, sem var ára- tugum á undan sinni samtíð á Ís- landi. Það leikur ekki vafi á að það mannræktarstarf sem grunnur var lagður að við stofnun Jógastöðvar- innar, hefur hjálpað mjög mörgum Íslendingum til betra andlegs og líkamlegs heilsufars. Á þessum vettvangi voru persónutöfrar henn- ar og dugnaður, sannarlega drif- kraftur sem dugði til árangurs. Ekki bara fyrir hana sjálfa, heldur miklu fremur fyrir stóran hóp þakklátra skjólstæðinga hennar til margra ára. Engu að síður blasti það við okkur sem fylgdumst með henni, að þessi þjálfun huga og handar virtust ætla að viðhalda full- um æskublóma hennar til eilífðar. Öll árin sem henni voru að lokum gefin, voru þess vegna í litlu sam- ræmi við glæsilegt útlit, spengileg- an vöxt og léttan limaburð, rétt eins og hún hefði áskrift að ævarandi bernsku. Fyrrnefnd fullyrðing um að hún hefði verið sinnar eigin gæfu smiður, byggist á augljósu sam- hengi þess að axla sjálf ábyrgðina á eigin lífi og velferð, með þeim fórn- um sem slíkt viðhorf krefst. Þessa mikilvægu áskorun vann Hulda Sigurðardóttir fullkomlega á eigin forsendum, eins og við vitum sem til hennar þekktum. Að leiðarlok- um, kærar þakkir fyrir samfylgdina og allar góðar stundir liðinna ára- tuga. Við fráfall elskaðrar og virtr- ar ættmóður votta ég öllum afkom- endum hennar mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning Huldu Guðrúnar Sigurðardóttur. Fyrir hönd Suðurhlíðar-systkina. Sigurður R. Þórðarson. Við komum til hennar í lok vinnu- dags, litlir hópar kvenna á ýmsum aldri, hún tók á móti hverjum hópi vissa daga uppi á lofti heima hjá sér. Þar leysti hún okkur úr álögum streitu og stirðleika, fékk okkur til að teygja vöðva og sinar sem höfðu lítið verið notuð við kyrrsetustörf eða kannski ekki beitt rétt þegar tekist var á við verkefni daganna. Hún var langreynd í jógafræðun- um, hún Hulda, kvenleg, liðug og létt eins og Dísa ljósálfur þó að hún væri komin yfir áttrætt. Sumar æf- ingarnar bera nöfn ýmissa dýra og í líki þeirra reyndum við að bregða okkur undir leiðsögn hennar og los- uðum okkur við eril dagsins, tók- umst á við okkur sjálfar, lengdum stytta vöðva, leyfðum huganum að leita inn á við og létum kyrrð og frið streyma í sálina. Ískaldar tær og fingur beint utan úr kulda vetrarins urðu fljótt funheitir af æfingum sem gerðar eru í kyrrstöðu og þögn, engin hlaup eða hamagangur en þær reyna á og fá blóðið til að streyma. Hulda var okkar fimust og þegar við glímdum við erfiðar jafn- vægisæfingar og einhver okkar, jafnvel hún sjálf, missti einbeit- inguna, sagði hún uppörvandi: Þetta er bara eins og í lífinu, ef við dettum þá stöndum við bara upp aftur. Svo sjálfsagt og einfalt var það. Það var nefnilega ekki bara lipurleiki hennar og þekking á jóga- æfingum sem gerði heimsóknir á loftið hennar eftirsóknarverðar, það var ekki síður sú hvetjandi vel- vild, hlýja og jákvæðni sem frá henni stafaði og gerði hana að góð- um kennara. Hún talaði til okkar þannig að mér varð stundum hugs- að til þess þar sem ég lá með litla hópnum og slakaði á eftir æfing- arnar, að jafnvel þó að ég væri löm- uð og gæti engan vöðva hreyft mundi það vera ávinningur að láta bera sig upp á loftið til að vera í ná- vist hennar. Þannig birtist hún mér sem manneskja og fyrir það vil ég nú þakka um leið og ég votta ástvinum Huldu einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Huldu G. Sig- urðardóttur. Guðrún Agnarsdóttir. HULDA G. SIGURÐARDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.