Morgunblaðið - 22.04.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 37
MENNING
Karlakórinn
Stefnir
Síðari tónleikar Karlakórsins Stefnis á þessu vori
verða í Hlégarði, Mosfellsbæ, laugardaginn
23. apríl kl. 16.00. Gestir verða Karlkór Eyja-
fjarðar. Kórarnir koma fram hvor í sínu lagi og
syngja auk þess nokkur lög saman
F Y N D I Ð • F E R S K T • F J Ö R U G T • F A R S A K E N N T
„Það er mikill uppgangur í Borgarleikhús-
inu þessa daga og sýningin á Héra Héra-
syni er dæmi um hve leikhópurinn í húsinu
mætir gríðarlega sterkur til leiks.“
Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið
„Brilljant leikhús!“
Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið
„Stefán Jónsson hefur, ásamt Berki Jónssyni
og hinum, í stuttu máli sagt, gert farsann
að listrænum viðburði. Geri aðrir betur.“
María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið
LÉTTBJÓR
„Ég hef sjaldan séð Hönnu Maríu gera betur.“
María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið
„..sýningin var ekki bara skemmtileg og gletti-
lega sett saman heldur komst grafalvarlegur
boðskapur hennar mjög vel til skila.“
Elísabet Brekkan / DV
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norð-
urlands hefur árlega pantað eitt og
tvö ný tónverk. Þessi þáttur í stefnu
hljómsveitarinnar er hinn merkasti
og ný athygl-
isverð tónverk
hljómað, sem
örugglega eiga
eftir að heyrast
víðar um loft.
Þannig lék tón-
skáldið Snorri
Sigfús Birgisson
einleik með Sin-
fóníuhljómsveit
Norðurlands fyr-
ir nokkrum árum
í nýjum píanókonserti sínum með
elegans að hætti gömlu meistar-
anna, en verkið hafði hann samið að
beiðni hljómsveitarinnar. Á þessum
tónleikum kom Snorri Sigfús með
kammertónverk sem fylgdi hinni
frábæru sögu Jónasar Hallgríms-
sonar, Stúlkan í turninum, en eins
og áður var verk þetta pantað af
SN. Ævintýrið um Stúlkuna og
turninn er í ætt þess besta sem
skrifað hefur verið af þessu tagi.
Mikil spenna og jafnvel hryllingur í
ætt við svið Edgars Allans Poes ein-
kennir söguna. Tólf manna hljóm-
sveit skipuð fólki af svæðinu lagði
sig eftir að flytja vel og skila sögu-
spennu tónverksins. Það sem
Snorra Sigfúsi tókst svo vel að
skapa var þetta ógnandi en líka ein-
læga söguumhverfi, og féll hann
aldrei í þá gryfju að láta einhver
klisjukennd leiðarstef persóna ráða
för. Einstaklega áhrifamikil og fjöl-
breytt notkun slagverks var gríp-
andi. Þannig liggur við að söguna
hefði mátt flytja án orða, svo heild-
stætt var tónverkið. Hljómsveitin
var með einn á hvert af strok-
hljóðfærum, málm- og tréblást-
urshljóðfærum. Einnig var hlutverk
slagverks og píanós veigamikið.
Skúli Gautason flutti söguna með til-
þrifum og látbragði. Þetta verk á að
fara með í skólakynningar! Skóla-
kynningar hefðu einnig verið upp-
lagðar með söngvana þrjá úr Söng-
leiknum Oliver. Ég hreifst af Oliver
á fjölum Leikhússins á Akureyri og
varð ljóst þá hve mögnuð tónlist
Lionels Barts er og einnig hve al-
úðlega og vandvirknislega tónlistin
var flutt í sýningunni og sagði mér
þá sem áður að tónlistargagnrýn-
endur eiga að fjalla um slíkar upp-
færslur, ekki leiklistargagnrýn-
endur eingöngu. En að hlýða síðan á
söngvana á tónleikum var hrein op-
inberun. Þarna fór Lionel Bart sem
tónskáld langt fram úr því sem mig
minnti og flutningur Ólafs Egils í
hlutverki Fagins hrein snilld. Stór
orð en sönn. „Strákarnir hans Fag-
ins“ sungu af þvílíkri innlifun og
krafti að maður hefði umborið hnupl
þeirra á einu og einu vasaúri. Guð-
mundur Óli náði að láta bekkina
dansa. Þetta samstarf Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands og Leik-
félags Akureyrar að þessum tón-
leikum var til fyrirmyndar og
vonandi framhald á. Flytjendur
fengu dynjandi lófaklapp hrifinna
áheyrenda í lokin.
Faglegur
Fagin og
Stúlkan í
turninum
TÓNLIST
Samkomuhúsið á Akureyri
1) Frumflutningur á Stúlkan í turninum f.
leiklestur og kammerhljómsveit. Snorri
Sigfús Birgisson samdi tónlistina skv.
pöntun SN við samnefnda sögu Jónasar
Hallgrímssonar.
2) Þrjú lög úr söngleiknum Oliver eftir
Lionel Bart, þau heita: Plokka pening,
Heim um hæl og Spá í spilin.
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands, ásamt „fingralöngum“ strákakór
úr „Oliver“.
Einsöngvari: Ólafur Egill Egilsson, Fagin.
Sögumaður: Skúli Gautason. Stjórnandi:
Guðmundur Óli Gunnarsson. Sunnudag-
urinn 17. apríl kl. 16.00.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Jón Hlöðver Áskelsson
Guðmundur Óli
Gunnarsson
ÍSLAND hefur ekki aðeins verið
mært af myndlistarmönnum, heldur
einnig af tónskáldum. Í Hafnarborg
má líta Íslandsmyndir danskra og ís-
lenskra myndlistarmanna í 150 ár og
á tónleikum þar á sunnudagskvöldið
var flutt atriði úr hinni frægu Al-
þingiskantötu Páls Ísólfssonar, Rís
Íslandsfáni. Þar var á ferðinni
Óperukór Hafnarfjarðar, sem fagn-
ar fimm ára afmæli sínu um þessar
mundir. Voldugur söngurinn var
sérlega kraftmikill og var ekki laust
við að maður fylltist þjóðernistilfinn-
ingu með allar þessar fallegu lands-
lagsmyndir á veggjunum, sem eins
og sköpuðu ramma utan um söng-
inn.
Margt á efnisskránni var prýði-
lega sungið af kórnum. Fyrirlátið
mér faðirinn sæti úr Galdralofti Jóns
Ásgeirssonar var ákaflega fallegt,
einnig Patria opressa úr Macbeth
eftir Verdi og Regina Coeli úr Cava-
leria Rusticana eftir Mascagni. Ým-
islegt annað var ekki eins gott, Her-
mannakórinn úr Il Trovatore eftir
Verdi var óhreinn og er sömu sögu
að segja um Nornakórinn úr Mac-
beth sem var heldur ónákvæmur. Al-
mennt talað virtist veikleiki kórsins
fyrst og fremst felast í lágværum
söng, því sterkir kaflar hljómuðu yf-
irleitt vel.
Nokkrir einsöngvarar komu fram
á tónleikunum; Elín Ósk Óskars-
dóttir söng t.d. atriði úr Macbeth og
gerði það ágætlega. Ólafur Kjartan
Sigurðarson, aðaleinsöngvari
kvöldsins, var líka öruggur á sínu, en
dálítið öfgakenndur. Fínleg blæ-
brigði voru takmörkuð, söngurinn
virkaði einsleitur
og varð það
þreytandi er á
leið. Áhrifaríkast
var „Perfidi“ úr
Macbeth, en þar
var ofsinn í túlk-
uninni mest sann-
færandi.
Frammistaða
annarra ein-
söngvara var mis-
áhugaverð; at-
hyglisverðastur var Stefán
Arngrímsson, en hann er með fal-
lega, djúpa rödd þótt söngurinn
sjálfur hafi verið full stirður.
Píanóleikarinn Peter Maté stóð
sig með sóma, þrátt fyrir að heyrast
hefði mátt meira í honum á köflum.
Ef píanó á að vera í hlutverki heillar
hljómsveitar duga engin vett-
lingatök.
Á tónleikunum gekk ljósmyndari
fram og aftur til að taka myndir af
kórnum og einsöngvurunum í alls-
konar stellingum. Fleiri fundu sig
knúna til að gera hið sama og miðað
við hve margar myndir voru teknar
hefði mátt ætla að um heimsviðburð
hefði verið að ræða. Þetta var býsna
þreytandi og átti maður bágt með að
skilja afhverju aðalljósmyndarinn
gat ekki bara setið kyrr á fremsta
bekk og tekið myndir sínar þar.
Með þrumuraust
Elín Ósk
Óskarsdóttir
TÓNLIST
Hafnarborg
Óperukór Hafnarfjarðar flutti tónlist eftir
ýmis tónskáld undir stjórn Elínar Óskar
Óskarsdóttur. Einsöngvarar: Ólafur Kjart-
an Sigurðarson, Stefán Helgi Stef-
ánsson, Margrét Grétarsdóttir, Stefán
Arngrímsson, Svana Berglind Karlsdóttir,
Hörn Hrafnsdóttir og Elín Ósk Ósk-
arsdóttir. Píanóleikari: Peter Maté. Einn-
ig lék Hólmfríður Sigurðardóttir á píanó í
einu atriði. Sunnudagur 17. apríl.
Kórtónleikar
Jónas Sen
ELMA Atladóttir,
sópransöngkona heldur
einsöngstónleika ásamt
Ólafi Vigni Albertssyni,
píanóleikara, kl. 16 á
laugardag í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði.
Á fjölbreyttri efnis-
skrá tónleikanna eru
meðal annars sönglög
eftir Tryggva M. Bald-
vinsson og Jón Ásgeirs-
son og ljóðaflokkurinn
Mädchenblumen eftir
Richard Strauss. Auk
þess munu þau Elma og
Ólafur Vignir flytja arí-
ur úr óperunum Á valdi
örlaganna eftir Giuseppe Verdi og
Galdra-Lofti eftir Jón Ásgeirsson.
Elma Atladóttir
lauk burtfararprófi
(AC) frá Söngskól-
anum í Reykjavík árið
1996 og söngkenn-
araprófi (LRSM) frá
sama skóla árið 1998.
Elma hefur verið félagi
í Kór Íslensku óp-
erunnar um árabil og
tekið þátt í mörgum
uppfærslum hennar.
Meðal annars söng hún
hlutverk smaladrengs í
uppfærslu Óperunnar
á Toscu nú í vetur og
hefur komið fram sem
einsöngvari við ýmis
önnur tækifæri.
Miðaverð er 1.500 krónur.
Elma Atladóttir
Elma syngur í
Víðistaðakirkju
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111