Morgunblaðið - 12.06.2005, Qupperneq 38
yfir fjörðinn, enn annar vill vera sem lengst frá
götum yfir höfuð.
Er ekkert erfitt að halda sér vakandi, á nóttunni?
Einstaka sinnum. Ég passa samt að dreifa föstu
verkefnunum yfir nóttina, svo ég klári ekki allt
strax. Svo hef ég sjónvarp og góða bók, ef mjög
lítið er að gera. En persónulega finnst mér frekar
auðvelt að snúa sólarhringnum við og dagarnir
nýtast þá vel. Eftir vinnu sef ég til tæplega þrjú,
þá eru börnin á heimilinu að koma úr skóla og
leikskóla og ég er útsofinn og tilbúinn í daginn
með þeim.
Einhverjar eftirminnilegar uppákomur í næt-
urvörslunni?
Já, á fyrstu næturvaktinni minni tók einn
skrautlegur sig til og ók bíl niður kirkjutröpp-
urnar – og hafnaði á planinu við hótelið. Þetta
gerðist á allra fyrstu næturvaktinni minni og ég
hélt auðvitað að ég væri að missa vitið.
Ertu aldrei einmana, í vinnunni?
Jú, það kemur fyrir, sér í lagi yfir vetrartímann
þegar fáir eru á ferli og maður sér kannski ekki
lifandi sálu í sex, sjö tíma.
Þú hringir þá ekkert í vini eða vandamenn?
Um miðja nótt? Nei, ekki ennþá. Það kannski
kemur að því …
En eru gestirnir aldrei andvaka?
Jú, sérstaklega á sumrin – blessaðir útlending-
arnir eru ekki vanir því að hafa bjart alla nóttina.
Nýlega kom einmitt einn sem var búinn að raka
sig og ætlaði í morgunmat, en var steinhissa þegar
klukkan var bara þrjú. Ég gaf honum þá kaffisopa
og hann sat og spjallaði við mig það sem eftir lifði
nætur.
Dvelurðu sjálfur mikið á hótelum?
Það er helst í þau fáu skipti sem ég bregð mér
til útlanda. Mér finnst það alltaf skemmtilegt. Ég
er líka farinn að kunna utan að hvað hótelin eiga
að geta boðið upp á og nýti mér það auðvitað
miskunnarlaust á öðrum hótelum! | sith@mbl.is
Stundum eru
gestirnir andvaka
NÆTURVÖRÐUR EINS OG ÉG | BIRGIR RÚNAR DAVÍÐSSON Á HÓTEL KEA Á AKUREYRI
L
jó
sm
yn
d:
S
ka
pt
i H
al
lg
rí
m
ss
on
… og ég hélt auðvitað
að ég væri að missa vitið.
Hvað eru næturvaktirnar langar?
Þetta eru tólf tíma vaktir og ég vinn eina viku í
senn, fæ svo næstu viku frí.
Hefurðu gert þetta lengi?
Í tæpt ár, en ég vann áður á dagvöktum í mót-
tökunni.
Hvert er starfssviðið?
Næturvörður ber í raun ábyrgð á öllu hótelinu
eins og það leggur sig, yfir nóttina. Fyrst og
fremst aðstoðar hann gestina, svo er að hafa auga
með hótelinu og undirbúa verk næsta dags.
Er þetta háskalegt starf?
Nei, það er það eiginlega ekki. Fólk er reyndar
oft öðruvísi á nóttunni en á daginn, og því þarf
stundum að taka öðruvísi á málum.
Hvernig er fólk öðruvísi að næturlagi?
Margir eru afslappaðri á kvöldin, þegar maður
hittir það að deginum til er það í vinnunni og á
hraðferð. Svo koma helgarnar og þá færist oft fjör
í leikinn. Sumir koma hér við á leið sinni í eða úr
miðbænum, til þess að hringja á leigubíl eða reka
önnur erindi.
Dugar einn næturvörður, á stóru hóteli?
Það fer alveg eftir bókunarstöðu og því hvað er
að gerast. Ferðamennirnir eru til dæmis flestir
komnir í háttinn klukkan 23 á sumrin, en svo eru
hér stundum meiriháttar skemmtanir og þá veitir
oft ekki af tveimur.
Skemmtilegustu gestirnir?
Mér finnst alltaf rosalega gaman að fá erlenda
ferðamenn. Flestum þeirra líkar svo vel við Ís-
land. Margt kemur þeim á óvart, þeir bjuggust
ekki við svona fallegu landslagi, fallegum bæjum
og eru alveg himinsælir. Svo koma hingað reglu-
lega fastagestir og alltaf gaman að sjá þá. Þetta
eru til dæmis sölumenn, stjórnmálamenn að
heimsækja kjördæmið, og fleiri.
Og vilja fastagestirnir þá sömu herbergin?
Misjafnt, sumir vilja gjarnan tiltekna tegund af
herbergi. Einn vill horfa yfir göngugötuna, annar