Morgunblaðið - 09.07.2005, Síða 1
LÍF var tekið að færast í venjulegar
skorður í London í gær og sam-
göngur að miklu leyti komnar í samt
horf eftir sprengjutilræðin í fyrra-
dag. Ættingjar fólks sem enn er
saknað biðu þó milli vonar og ótta í
gærkvöldi og festu sumir upp mynd-
ir af ástvinum sínum á lestar-
stöðvum. Vitað var í gær að enn
voru lík undir braki í lestargöngum.
Erfiðlega gekk að leita að þeim
vegna þess að björgunarmenn urðu
að fara varlega af ótta við hrun í
göngunum.
Múslímaklerkurinn Sheikh Omar
Bakri Mohammed, sem er sýr-
lenskur og leiðtogi hópsins Al-Mu-
hajiroun, sem hefur bækistöð í
London, varaði við árásum á Lond-
on í viðtali við portúgalskt blað,
Publico, fyrir 15 mánuðum. Bakri
er sjálfur grunaður um tengsl við
al-Qaeda-samtökin en sagði að
samtökin hefðu alls ekki stjórn á
öllum hópunum sem kenndu sig við
þau. Hópur af því tagi hefði staðið
fyrir tilræðinu í Madríd í fyrra.
„Hér í London er vel skipulagður
hópur sem kallar sig al-Qaeda í
Evrópu,“ sagði Bakri. „Ég veit að
þeir eru að leggja lokahönd á mikla
aðgerð.“
Breskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt
stjórnvöld fyrir að hafa ekki verið á
varðbergi og bent á að nýlega var
viðbúnaðarstigið fært neðar en það
hefur verið síðan eftir árásirnar á
Bandaríkin 11. september 2001.
„Við tímasetningu árásanna á
samgöngukerfi höfuðborgarinnar á
fimmtudag, sem líklega hafa verið
samræmdar, virðast menn hafa not-
fært sér glufu í upplýsingaöflun og
stórhættuleg mistök í öryggisvið-
búnaði,“ sagði dagblaðið The Fin-
ancial Times. Charles Clarke innan-
ríkisráðherra sagði að ekki hefðu
borist neinar viðvaranir um árás í
London þennan dag. „Þetta gerðist
fyrirvaralaust,“ sagði Clarke. Hann
vísaði því á bug að lögreglan hefði
brugðist en farið yrði yfir allar áætl-
anir og gögn til að reyna að átta sig
á því hvort gera hefði mátt betur.
Bresk stjórnvöld leggja nú kapp á
að finna vísbendingar sem dugi til að
hægt verði að hafa uppi á þeim sem
stóðu fyrir tilræðunum en líklegt er
að um fjarstýrðar sprengjur hafi
verið að ræða. Minnst 50 manns létu
lífið í tilræðunum og fórnarlömbin
voru frá alls fimm löndum. Nú er
ljóst að 13 létust í sprengingunni í
strætisvagninum við Tavistock-torg.
Heimildarmenn segja að borg-
arbúar virðist staðráðnir í að láta til-
ræðin ekki hræða sig. Blaðamaður
Morgunblaðsins var staddur á Leic-
ester Square í gærkvöldi og var þar
fjöldi fólks eins og yfirleitt á föstu-
dagskvöldum. Var ekki að sjá að fólk
léti atburði fimmtudagsins hafa
áhrif á sig. En fjöldi lögreglumanna
í gulum vestum var á ferli og fylgd-
ust þeir vel með öllu.
Bresk stjórnvöld gagn-
rýnd fyrir andvaraleysi
Lífið er að færast í samt horf í London eftir tilræðin
Múslímaklerkur varaði við árásum fyrir 15 mánuðum
STOFNAÐ 1913 183. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Liv Ullmann á
fiðrildaslóðum
Viðtal við leikkonuna sem undirbýr
tökur á kvikmynd hér á landi | 50
Lesbók | Sögusvið síðustu daga Trotskís Skuggamyndir í
svart-hvítri veröld; Sin City Börn | Keðjusagan Gátur í
gríni Íþróttir | FH til Bakú Tony Adams til Feyenoord
15-90%
Afsláttur
ÚTSALA
vi› Smáralind
í fullum gangi
Íþróttir, Lesbók og Börn í dag
Sameinuðu þjóðunum, Gleneagles. AFP, AP. | Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagn-
aði í gær niðurstöðu leiðtogafundar átta helstu iðn-
ríkja heims, G-8, sem ákváðu að fella niður
erlendar skuldir 18 ríkja og stórauka aðstoð við
þróunarríki, ekki síst í Afríku. „Þetta er góður dag-
ur fyrir Afríku og góður dagur fyrir baráttuna
gegn fátækt,“ sagði í yfirlýsingu Annans.
Fundi G-8 lauk í gær og leiðtogarnir ákváðu að
árið 2010 yrði búið að auka árlega aðstoð við þróun-
arríki um 50 milljarða dollara á ári. Er talið að
helmingurinn af þessu fé renni til Afríku. Einnig
var hvatt til þess að útflutningsbætur á landbún-
aðarvörur yrðu lagðar niður og dregið úr niður-
greiðslum.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist
hafa viljað ganga lengra. „Ég tel að sum okkar
hefðu viljað ganga lengra og ákveða hvenær út-
flutningsbæturnar yrðu lagðar af,“ sagði ráð-
herrann. Hann sagðist þó vona að slík dagsetning
yrði tilgreind á fundi Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar í desember.
Talsmenn ýmissa hjálparstofnana gagnrýndu í
gær niðurstöður G-8-fundarins, sögðu framlögin of
lág og grípa yrði strax til aðgerða gegn fátækt í
Afríku. En tónlistarmennirnir Bob Geldof og Bono,
sem beittu sér fyrir samkomum þar sem hvatt var
til aukinnar aðstoðar við Afríku, lýstu ánægju sinni
þótt ekki hefðu allar væntingar gengið eftir.
„Aldrei fyrr hafa jafnmargir átt þátt í að móta
stefnuna í heimsmálum. Ef einhver hefði spáð því
fyrir þremur vikum, að aðstoðin við Afríku yrði
stóraukin og skuldir afskrifaðar, hefði enginn trú-
að því,“ sagði Geldof. Og Bono sagði að um góða
byrjun væri að ræða á langri fjallgöngu. „Heims-
byggðin talaði og stjórnmálamenn hlustuðu,“ sagði
Bono.
Tvöfalda aðstoðina við Afríku
G-8-ríkin/29
FJÖLMARGIR lögðu leið sína að King’s Cross-
lestarstöðinni í gær og vottuðu fórnarlömbum
sprengjuárásarinnar sem þar var gerð virðingu sína.
Sprengjan, sem sprakk í lest í göngum við stöðina á
fimmtudagsmorgun, varð 21 að bana og særði fjöl-
marga til viðbótar. Lestarsamgöngur í borginni kom-
ust aftur á að mestu leyti í gær eftir að hafa legið niðri
um hríð vegna sprengjuárásanna.
Reuters
Votta fórnarlömbum virðingu sína
KONUR verða í meirihluta
allra árganga í læknanámi við
Háskóla Íslands á komandi
vetri. Voru þær um 70% þeirra
sem tóku inntökupróf fyrir
námið í sumar.
Margrét Georgsdóttir, for-
maður Félags kvenna í lækna-
stétt, segir konur vera 24%
starfandi lækna, 33% af 450 ís-
lenskum læknanemum erlend-
is og nær 50% útskrifaðra
lækna í ár.
Í umræðunni um breytt
kynjahlutfall í stéttinni spá
sumir lækkun launa en aðrir
fjölgun lækna þar sem konur
vinni síður vaktavinnu en
karlar.
Stefán B. Sigurðsson, deild-
arforseti læknadeildar, segir
að ekki hafi verið gripið til
markvissra aðgerða til að
fjölga konum í deildinni held-
ur hafi þessi þróun orðið af
sjálfu sér. Hann segir að með
fleiri konum komi inn ný sjón-
armið, til dæmis um að vinnan
skuli bitna minna á heimilislíf-
inu.
Sigrún Perla Böðvarsdóttir,
formaður Félags læknanema,
segir fjölgun kvenna jákvæða
þar sem þær hafi verið í
minnihluta.
„Skjólstæðingar okkar eru
af báðum kynjum og ég tel
mjög gott að sjúklingar geti
valið sér lækni eftir kyni ef
þeir vilja,“ segir Sigrún og
bætir við að karlmenn í dag
líti öðrum augum á vinnuna en
áður.
„Þeir eru jafnákveðnir og
við í að sinna fjölskyldunni og
hafa önnur áhugamál en vinn-
una.“
Konur í
meirihluta í
læknanámi
Kynjahlutföllin | 11
Eftir Kristján Jónsson og
Davíð Loga Sigurðsson í London
kjon@mbl.is, david@mbl.is
Hryðjuverk í London
Látið strax vita af ykkur
Sendiherra Íslands í London | 10
Láta ódæðið ekki breyta lífi sínu
Davíð Logi Sigurðsson í London | 18
Hvenær næst?
Fjölmiðlar fordæma voðaverkin | 22