Morgunblaðið - 09.07.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 09.07.2005, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LÍFIÐ í London er farið að ganga sinn vanagang, jarðlestirnar eru farnar af stað aftur sem og stræt- isvagnar. Fólk virðist vera komið í ró og var það reyndar allan tímann, að sögn Sverris Hauks Gunnlaugs- sonar, sendiherra Íslands í London. „Bretar eru rólegir í slíkri at- burðarás eins og sagan hefur margoft sannað. Lífið heldur áfram.“ Sverrir bendir á að margir hafi jafnvel búist við enn meiri hörm- ungum en áttu sér stað í fyrradag. Almannavarnakerfið hafi allt frá 11. september árið 2001 verið búið að þaulæfa viðbrögð. „Guði sé lof að þetta varð ekki meira. Þessu er hins vegar ekki endilega lokið og engin vísbending um að það geti ekki endurtekið sig á morgun eða hinn.“ Af Íslendingum í London er það að segja að „það er allt gott að frétta. Í hádeginu var lokið við það af hálfu utan- ríkisráðuneytisins og sendiráðsins að finna þá síðustu sem við vorum beðnir um að hafa upp á.“ Að sögn Heiðrún- ar Pálsdóttur hjá ráðuneytinu höfðu um hundrað og fimmtíu manns sam- band til að spyrjast fyrir um tvö eða þrjú hundruð ástvini. Að sögn Sverris voru milli tvö og þrjú þús- und Íslendingar í London í fyrra- dag. Flestir hafi líklega komist í samband við ættingja gegnum far- síma. Í gær kannaði íslenska sendi- ráðið hvort Íslendingur leyndist á einu þeirra sex sjúkrahúsa sem far- ið var með slasaða á. „Miðað við okkar upp- lýsingar getum við úti- lokað þann möguleika,“ segir Sverrir. Hann segir jafnframt að í nútímanum séu Ís- lendingar um allan heim og hlutfallslega meira en aðrar þjóðir að því er hann telur. „Það hjálpar mikið til við svona aðstæður að menn sem eru á staðn- um átti sig á að það besta sem þeir geti gert sé að láta strax vita af sér. Það hjálpar mikið til því þá er hægt að leita þeirra sem virkilega þarf að leita að.“ Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra í London „Látið strax vita af ykkur við svona aðstæður“ Sverrir Haukur Gunnlaugsson AP Öryggisgæsla á götum Lundúna hefur verið stórlega hert eftir hryðjuverkin á fimmtudag. Lögreglumenn eru hér gráir fyrir járnum fyrir utan þinghúsið í gær. Nú hefur verið staðfest að enginn Íslendingur varð fyrir líkamstjóni. HRYÐJUVERKIN í Lundúnum í fyrradag kalla ekki á sértækar öryggisaðgerðir á sviði flugverndar á Keflavíkurflugvelli, að sögn Jóhanns R. Benediktssonar sýslu- manns. Hins vegar hljóti atburðurinn að leiða til þess að upp- lýsingaskipti milli ríkja muni aukast að mun. „Og afleiðing- arnar af voðaverkum sem þessum hljóta að verða þær að stofn- anir sem standa í bar- áttu gegn hryðjuverk- um munu fá aukið vægi og fjármagn,“ segir Jóhann. Hann minnir á að frá hryðju- verkunum í New York 11. septem- ber 2001 hafi orðið gífurlegar breytingar á samskiptum milli leyniþjónusta, lögreglu og annarra aðila sem fást við öryggisgæslu víða um heim. „Þessar miklu breytingar hafa líka orðið í samskiptum milli ríkja,“ segir hann. „Þá hefur sam- starf milli ólíkra deilda og þátta á sviði öryggismála verið eflt mikið til að ná heild- stætt utan um hlutina. Slík þróun er stöðugt í gangi og sagan hefur sýnt að menn draga ákveðinn lærdóm af nýjum hryðjuverkum. Venjulega felst sá lærdómur í einhvers konar breytingu í ör- yggisumhverfinu. Slíkar breytingar þurfa hins vegar ekki að birtast al- menningi í hvert sinn. Þótt al- menningur verði ekki var við slík- ar breytingar á Keflavíkurflugvelli er ekki þar með sagt að það hafi ekki átt sér stað þróun í því hvern- ig við verndum borgara og stuðl- um að bættu öryggi,“ segir Jó- hann. Hryðjuverkin í Lundúnum Kalla ekki á sértæk- ar aðgerðir á Keflavíkurflugvelli Jóhann Benediktsson EUROCOP, heildarsamtök 600 þúsund lögreglumanna í Evrópu, heitir fullum stuðningi við bresk stjórnvöld við að koma lögum yfir þá sem bera ábyrgð á hryðjuverk- unum í Lundúnum á fimmtudag að því er Heinz Kiefer, forseti Euro- cop, segir í fréttatilkynningu sem send var frá Lúxemborg á fimmtu- dag. Landssamband lögreglu- manna á Íslandi á aðild að Euro- cop. Hanz Kiefer hvetur ennfremur yfirvöld til yfirvegunar í kjölfar at- burðanna og að mikilvægt sé að leyfa öryggisaðilum að vinna sína vinnu án truflunar frá hugsunar- lausum pólitískum aðgerðum. Aug- ljóst sé að hryðjuverkaógnin hafi ekki minnkað og því þurfi ESB og aðildarríki að halda áfram að styrkja innviði sína á öryggissvið- inu. Eurocop heitir stuðningi við Breta HRYÐJUVERKIN í Lundúnum virðast ekki hafa haft mikil áhrif á ferðalög Íslendinga til Lundúna að því er best verður séð. Nánast eng- in áhrif eru merkjanleg hjá flug- félaginu Iceland Express sam- kvæmt upplýsingum þaðan og svipaða sögu er að segja frá Ice- landair og hjá ferðaskrifstofunni Úrvali-Útsýn. Sáralítil áhrif á ferðalög BÓK fyrir samúðarkveðjur vegna þeirra sem létu lífið eða særðust í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum á fimmtudag verður opin í sendiráði Bretlands, Laufásvegi 33, dagana 11. til 15. júlí frá klukkan 9 til 12. Bók fyrir sam- úðarkveðjur ♦♦♦ UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU hef- ur tekist að hafa upp á öllum þeim Ís- lendingum í London, sem ráðuneyt- inu bárust fyrirspurnir um, en þeir voru á bilinu 200–300. Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir að búið sé að fá vissu fyrir að allir séu heilir á húfi. Hann sagði að Sigurður Arnarson, sendiráðsprestur, hefði farið á sjúkra- hús Lundúna og spurst fyrir um hvort Íslendingar hefðu verið fluttir þangað en svo var ekki. Áfram verður hægt að hringja í utanríkisráðuneytið, 545 9900, vilji menn koma á framfæri fyrirspurnum eða upplýsingum um Íslendinga í Lundúnum. Illugi sagði að starfsfólk ráðuneyt- isins vildi koma á framfæri þakklæti við alla þá sem lögðu ráðuneytinu lið. Haft upp á öllum Íslend- ingum í Lundúnum ♦♦♦ Tímaritið á sunnudögum á morgun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.