Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI AUKIN eftirspurn flugferða til Bandaríkjanna frá Evrópu hefur að öllum líkindum bætt sætanýtingu tveggja stærstu flugfélaga Evrópu, Air France-KLM Group og Luft- hansa, að því er segir í Vegvísi greiningardeildar Landsbanka Ís- lands. Á sama tíma vaxa lágfargjalda- flugfélögin mikið innan Evrópu. Hjá stóru flugfélögunum í Evrópu er mikill vöxtur á lengri flugleiðunum eins og til Asíu og Bandaríkjanna en flugleiðir innan Evrópu ganga ekki jafn vel vegna mikillar sam- keppni þar við lágfargjaldaflug- félögin. Samtök evrópskra flugfélaga (The Association of European Air- lines) spá að raunaukning hjá þeim 30 flugfélögum sem standa að sam- tökunum verði 6,5% í ár. Gengi bréfa Air France-KLM hefur aftur á móti lækkað um 11% frá áramót- um en gengi easyJet hefur hækkað um 36% og Ryanair um 23% frá áramótum. IATA (International Air Tran- sport Association) áætlar að tap flugfélanna nemi um 6 milljörðum Bandaríkjadala á árinu (um 390 milljörðum íslenskra króna). Hátt olíuverð á þar stærstan hlut að máli, en eins og kunnugt er náði ol- íuverð nýju meti 27. júní síðastlið- inn, þegar fatið fór í 59,59 dali í framvirkum samningum og hefur verðið ekki verið hærra síðan 1988. Fjölmörg flugfélög hafa því hækkað miðaverð til að vega upp á móti þessum aukna kostnaði. Fyrri helm- ing júní var 8,1% vöxtur í umferð (sætiskílómetrar) og var sætanýting hjá félögum innan IATA 76,1%. Hefur Vegvísirinn það eftir sér- fræðingi á vegum Bloomberg að þrátt fyrir samdrátt í Evrópu hafi fjöldi farþega haldist þokkalega mikill vegna aukningar á flugleiðum utan Evrópu, en hætta geti skapast ef halla fer undan fæti á þeim flug- leiðum. Mikill vöxtur lággjalda- flugfélaga í Evrópu ● VERÐMATSGENGI Actavis er 45 kr./hlut samkvæmt nýju verðmati Greiningar Íslandsbanka á fyrirtækinu sem birtist í Morgunkorni Íslands- banka. Heildarverðmæti félagsins sam- kvæmt verðmatinu er 1,9 milljarðar evra sem samsvarar 150,2 millj- örðum króna, miðað við evrugengi 78,8. Við lokun viðskipta í Kauphöll Ís- lands í gær var gengi Actavis 41,4 kr./hlut og markaðsvirði félagsins var um 138,7 milljarðar króna. Greining Íslandsbanka mælir því með kaupum á bréfum félagsins til lengri tíma litið og til skemmri tíma litið er mælt með yfirvogun í eignasöfnum sem miðuð eru við íslenska markaðinn. Mælt með kaupum í Actavis ● KERFI, sem er dótturfélag Opinna Kerfa í Danmörku, hefur keypt keppi- nautinn Work It sem hef- ur höf- uðstöðv- ar sínar í Skan- derborg. Frá þessu er greint á vefmiðli dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV 2. Kaupin eru liður í stefnu Kerfis sem gengur út á að vaxa með kaup- um á öðrum félögum. Velta félagsins í fyrra var 100 milljónir danskra króna sem samsvarar 1.055 millj- ónum íslenskra króna. Samkvæmt fréttinni einbeitir Work It sér að HP-markaðnum, líkt og Kerfi, og var hagnaður fyrirtækisins um 1,4 milljónir danskra króna, tæp- lega 15 milljónir íslenskra króna, á síðasta ári. Dótturfélag Opinna kerfa stækkar GREININGARDEILD Íslands- banka segir í Morgunkorni sínu að hryðjuverkin í London hafi haft mikil áhrif á helstu fjármálamark- aði heims en sú lækkun sem varð hafi síðan að mestu gengið til baka. Í þessu sambandi megi draga nokkurn lærdóm af hryðjuverka- árásunum 11. september 2001 þar sem fjölmargir hafi farist og eyði- legging hafi verið mikil. En hin efnahagslegu áhrif hafi þá verið mest vegna þess hvernig árásirnar snertu almenning og breyttu hegð- un hans. Eins hafi áhrifin orðið mikil vegna þeirra aðgerða sem hryðjuverkin hafi kallað fram hjá stjórnvöldum víða um heim. Koma illa við fyrirtæki í ferðaþjónustu og skemmtanaiðnaði Hryðjuverkin 11. september hafi komið illa niður á fyrirtækjum í ferðaþjónustu og skemmtanaiðnaði og bréf þeirra hafi fallið í verði. Flugfélög hafi til dæmis átt sér- staklega erfitt uppdráttar og mörg þeirra orðið gjaldþrota í kjölfarið. Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að ódæðisverkin í London muni hafa áhrif á ferðaþjónustu- og samgöngufyrirtæki í Bretlandi og jafnvel víðar. Hert öryggis- gæsla og aukin barátta gegn hryðjuverkum styðji aftur á móti við fyrirtæki í framleiðslu hvers kyns hergagna. Þá hækki góð- málmar og hrávörur jafnan í verði á óvissutímum. „Áhrif sprenging- anna á fjármálamarkaði munu hins vegar að lokum ráðast nær alfarið af viðbrögðum stjórnvalda og al- mennings við þeim og því er enn allt óvíst í þessum efnum.“ Mest áhrif á ferðaþjónustuna Reuters ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu 1,3 milljörðum króna, þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um ríflega 1,1 milljarð. Mest viðskipti voru með bréf Bakkavarar, fyrir um 379 milljónir króna. Mest hækkun varð á bréfum Flögu, 3,9%, en mest lækkun varð á bréfum Atlantic Petroleum, 7,2%. Úrvalsvísitala aðallista hækkaði um 0,49% og er nú 4.174 stig. Gengisvísitala krónunnar var 110,25 við lokun markaða og lækk- aði hún um 0,09%. Styrktist gengið sem því nemur. Dræm viðskipti í Kauphöllinni SAMTÖK atvinnulífsins í Svíþjóð, SN, hafa rannsakað launamun í að- ildarfyrirtækjum sínum og komist að þeirri niðurstöðu að konur og karlar fá jafnmikið borgað fyrir sams konar störf. Launamunur á milli kynjanna skýrist af þáttum sem aldri, starfi, menntun og því hvaða atvinnuveitanda fólk vinnur hjá. Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna. „Umræða um 15–20% launamun endurspeglar ekki stöðuna hjá að- ildarfyrirtækjum okkar,“ segir Håkan Eriksson, forstöðumaður jafnréttissviðs SN. Í úttektinni kemur fram að launamunur hafi á síðasta ári verið 4,8% að meðaltali en séu þættir eins og ábyrgð og starfsaldur starfsmanna tekin með í reikninginn minnki hann enn frek- ar. Alls eru um 3,5% kvenna í stjórn- endastöðum í aðildarfyrirtækjum SN. Launamunur kynja lítill í Svíþjóð ISM framleiðslu- vísitalan í Bandaríkj- unum hækkaði í júní og kemur það sér- fræðingum á óvart þar sem vísitalan hefur lækkað síðast- liðna sjö mánuði. Frá þessu er greint í Wall Street Journal. Þar segir að vísitölu- gildi júnímánaðar hafi verið 53,8 en í maí var það 51,4. Bendir þetta sam- kvæmt WSJ til þess að eftirspurn eftir bandarískum framleiðsluvörum sé að aukast. Samkvæmt könnun sem fréttavefurinn Bloomberg gerði bjuggust sér- fræðingar við að vísitalan myndi standa í stað. Fjallað er um vísitöluna í Morgunkorni Íslandsbanka og segir þar meðal annars að vísitölugildi yfir 50 stigum gefi til kynna vöxt í framleiðslu. Þannig má segja að fram- leiðsluvöxtur hafi aukist eftir að hafa dregist saman síðastliðna sjö mánuði en vísitalan hefur verið hærri en 50 allt síðan í júní árið 2003. Margt bendir til þess að bandaríska hagkerfið sé nú að taka verulega við sér þar sem dregið hefur úr atvinnuleysi og einkaneysla hefur aukist. Er bandaríska hagkerfið að taka við sér? ● HLUTABRÉF hækkuðu í kauphöll- inni í Lundúnum í gær eftir að hafa lækkað í kjölfar hryðjuverkaárása á borgina. FTSE 100-hlutabréfa- vísitalan hækkaði í gær um 1,43% eða í 5.232 stig sem er hærra gengi en á miðvikudaginn og hefur FTSE 100 raunar ekki verið hærri frá árinu 2002. DAX-vísitalan í Frankfurt hækkaði sömuleiðis um 1,50% og er komin í 4.598 stig. Þá hækkaði CAC-vísitalan í París um 1,89% og fór í 4.300 stig. Sömu sögu var raunar líka að segja af hlutabréfamörkuðunum vestur í Bandaríkjunum, Dow Jones vísitalan hækkaði um 1,43%, Nas- daq vísitalan um 1,79% og S&P hækkaði um 1,17%. Hlutabréf hækkuðu í Bretlandi                   !!"         # $% &$'"          ) * + ,   ) *  , - # $ !%%&  $    ()* +,-. /01 2 *3, +,-. /01 2-,4,5 /01 67 +,-. /01 8 +,-. /01 92 +,  /01 :6 ;  /01 ,4;, , /01 -.< 7 2 /01 37- /01 8 ;  :6  /01 ,6 /01 : /01 ),-=-, >5,0) 7,;1 /01 ?-, /01 '( )  ),  +,-. /01  =, 4-, :6  /01 9=.4> /01 8@0)A >B4-, /01 ( /  /01 C/,> /01 7 0>, .) /01 D )6 )( ),6-= =/,> /01 36-=4)1 /,40,E)/1 /01 ,E77 7=4)34 /01 F 6-)34 /01 * (   +## -)-,;  /01  6  E>0>,4, /01 8 @= :6  /01  65)-,0G67 -4-,6  *01 A 0A, /01 + ,  - H @4) *4 1*,4                  I       I I I  I    I  I I I I  2,E) 7 0,5 0E,, *4 1*,4 I   I I I    I I I I I I I I I I I I I I I I I I J  K J IK J K J K I I J K I J K J  K J  K I I J  K I J K I I I J K I J  K J I  K I I I I I I I I I I 96 ,*4 .) 7  6;4 @ 6 -. 6 1  1 1 1 1 1 1 1  I  1 1 1 I I I 1 I 1 1  I   I I I I                                                                            F4 .) @ <M1 ,1  91 N )/-7- ,6) >36  *4 .)       I    I I I  I   I   I I I I  91I O* -= 50,=/6   36- /6-)0>5,1  91I E6  )6 4 677> 0,= E0,)3 -)6;1 /0-, )0 )1  91I F7  0E,,*, -= 0>5,=37 - 0G6  91I 4 ;4  M)70

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.