Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
SUÐURNES
FLUGSAFNINU á Akureyri barst
höfðingleg gjöf í vikunni, ljós-
mynda- og flugmódelasafn Rúnars
Bárðar Ólafssonar. Rúnar bjó á
Suðurnesjum og starfaði sem mál-
ari en hann lést af slysförum árið
1998, langt fyrir aldur fram. Í ljós-
myndasafninu eru 30–50 þúsund
myndir af flugvélum og sagði Svan-
björn Sigurðsson, forstöðumaður
Flugsafnsins, sem veitti gjöfinni
viðtöku, að um stóra og mikla gjöf
væri að ræða. Safn Rúnars væri
ekki aðeins stærsta safn mynda af
flugvélum hér á landi, heldur líka
það langbesta. „Þetta eru bestu
heimildir sem hægt er að fá um
flugflota Íslands og heimildir um
þær vélar sem komu til Keflavík-
ur.“
Foreldrar Rúnars, Ólafur Þ. Guð-
mundsson og Guðlaug F. Bárð-
ardóttir og fleiri aðstandendur af-
hentu gjöfina. Ólafur sagði við það
tækifæri, að áhugi Rúnars á flug-
vélum hefði byrjað mjög snemma
og að hann hefði fylgst vel með
þeim flugvélum sem flugu yfir
heimili fjölskyldunnar í Njarðvík,
sem var í aðflugslínu einnar brautar
á Keflavíkurflugvelli. Ólafur sagði
að áhugamál Rúnars hefði þróast
með samsetningu flugmódela og
myndatökum og var myndavélin
hans fasti fylgifiskur í leik og starfi.
Safn Rúnars er vel skráð, það
verður varðveitt á Minjasafninu á
Akureyri og er þar öllum aðgengi-
legt.
Morgunblaðið/Kristján
Myndasafn Foreldrar Rúnars Bárðar Ólafssonar, Guðlaug F. Bárðardóttir og Ólafur Þ. Guðmundsson, afhentu
Svanbirni Sigurðssyni, forstöðumanni Flugsafnsins á Akureyri, mynda- og flugmódelasafn sonar þeirra. Nafni
Rúnars, Rúnar Bárður Kjartansson, systursonur hans, tók einnig þátt í athöfninni.
Flugsafnið fékk höfðinglega gjöf
Listasumar | Heimur ljóðsins
2005. Dansinn fram í dauðann, kvöld
með kvæðum eftir T.S. Eliot og Jó-
hannes úr Kötlum, Ketilhúsinu í
Listagili laugardagskvöldið 9. júlí kl.
21.30. Flytjendur eru Þorsteinn
Gylfason, Sif Ragnhildardóttir,
Michael Jón Clarke og Richard
Simm. Aðgangseyrir kr. 1.000.
Sunnudagur 10. júlí Sigurhæðir –
hús skáldsins kl. 14–16.
Kaffi og vöfflur við ljóðalestur.
Minjasafnið á Akureyri – Sögu-
ganga um Innbæinn. Lagt af stað frá
Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11, kl. 14.
Akureyrarkirkja kl. 17. Sumartón-
leikar í Akureyrarkirkju: Frá Sví-
þjóð, Matthias Wager, orgel.
Yfirstandandi sýningar: Ketilhús-
ið: „Í minningu afa.“ Sýning á kín-
verskri myndlist og kynning á kín-
verskri menningu. Deiglan: Kristján
Pétur Sigurðsson sýnir „Tónfræði
fyrir að(fram)komna.“ Listasafnið á
Akureyri: „SKRÍMSL – Óvættir og
afskræmingar.“ Gallerí Svartfugl og
Hvítspói: Sýning Sveinbjargar Hall-
grímsdóttur á tréristum. Sýningin
ber yfirskriftina „Blær“. Jónas Viðar
Gallery: „Undir Hannesi.“ Samsýn-
ing 10 listakvenna. Safnasafnið,
Svalbarðsströnd: 10 ára afmælissýn-
ingar. Gallery Box: Sýning Siggu
Bjargar Sigurðardóttur. Café Karól-
ína: Sýning Vilhelms Antons Jóns-
sonar. Gallerí ash Varmahlíð: Hlyn-
ur Hallsson sýnir vegamyndir 9. júlí
– 1. ágúst. Opnun laugardaginn 9.
júlí klukkan 14.
Aftur í bæjarstjórn | Valgerður H.
Bjarnadóttir bæjarfulltrúi, sem verið
hefur í tímabundnu leyfi, kemur nú
aftur til starfa í bæjarstjórn. Þetta
var tilkynnt á fundi bæjarráðs í gær.
Jafnframt gerði Vinstrihreyfingin –
grænt framboð þá breytingu á skipan
fulltrúa í nefndum, að Valgerður tek-
ur aftur sæti sem aðalmaður í bæj-
arráði, framkvæmdaráði og stjórn
Fasteigna Akureyrarbæjar og Jón
Erlendsson verður varamaður.
Laufás | Silfur- og skrautmunir
prýða gamla bæinn í Laufási á ís-
lenska safnadeginum, sunnudaginn
10. júlí.
Tvær konur munu sýna og segja
frá silfurgripum og kvennaskrauti
íslenska búningsins milli kl. 14.30
og 16. Í stofu gamla bæjarins mun
Inga Arnar, nemi í þjóðfræði við
Háskóla Íslands, sýna og spjalla um
skúfhólka, sem skreyttu skotthúfur
íslenska búningsins.
Það er ekki síst sagan sem gerir
hlutinn merkilegan. Skúfhólkar er-
fast gjarna milli kynslóða eins og
annað búningasilfur. Í fallegum
skúfhólk er talsverð eign, enda
gátu skúfhólkar verið trúlof-
unargjafir. Fólk er hvatt til að
koma með skúfhólka, peysufatahúf-
ur og annað kvensilfur og mun Inga
rannsaka það á staðnum.
Í skála Gamla bæjarins mun Anja
Broch silfursmiður, sýna silf-
ursmíði. Kaffi og veitingar eru til
sölu í gamla Prestshúsinu.
Listmunir Inga Arnar skoðar skúf-
hólka í eigu Minjasafnsins.
Skúfhólkar
og silfursmíði
í Laufási
Njarðvík | „Markmiðið var
að hafa sem mest viðhaldsfría
lóð svo við gætum notað tím-
ann í annað en að slá gras og
hreinsa arfa,“ segir Gunnar
Ágúst Halldórsson á Hrauns-
vegi 8 í Njarðvík. Hann og
kona hans, Linda Helgadótt-
ir, fengu umhverfisvið-
urkenningu Reykjanesbæjar
fyrir afar vel heppnaða end-
urbyggingu húss og fallega
lóð.
Þetta er þriðja árið sem
Gunnar og Linda eiga húsið
og þau hafa gert það upp
jafnt að utan sem innan og
útbúið nýjan garð. „Þetta var
ljótasta húsið í Njarðvík þeg-
ar við komum,“ segir Gunn-
ar. Þau hafa unnið endurbæt-
urnar að mestu sjálf og ekki
þurft að kaupa mörg handtök
að, að sögn Gunnars.
Hann segir að þau hafi
mokað öllu út úr garðinum,
nema trjánum, og síðan
byggt hann upp hægt og ró-
lega að nýju. Í garðinum eru
stórir pallar, möl og steinar.
Gunnar segir að flestar hug-
myndirnar séu komnar frá
Lindu og þau hafi unnið að
þessu saman um kvöld og
helgar, með öðru.
Viðurkenningar afhentar
Umhverfisviðurkenningar
Reykjanesbæjar voru afhent-
ar við athöfn í Duushúsum í
fyrradag. Björk Guðjóns-
dóttir, forseti bæjarstjórnar,
afhenti viðurkenningarnar.
Eigendur húsanna Melaveg-
ur 17 til 21 í Njarðvík fengu
viðurkenningar fyrir snyrti-
legan og fallegan frágang á
húsi og lóð. Þeir eru Stefán
Björnsson, Jóhanna Árna-
dóttir, Ingólfur Ingólfsson,
Sigrún Valdimarsdóttir, Þór-
dís Björg Ingólfsdóttir og
Valgeir Freyr Sverr-
isson.
Helgi Vilhjálms-
son, eigandi veitinga-
staðarins Kentucky
Fried Chicken að
Krossmóa 2 í Njarð-
vík, fékk viðurkenn-
ingu fyrir fallega
byggingu og vel frá-
gengna lóð. Sorpeyð-
ingarstöð Suðurnesja
fékk viðurkenningu
fyrir góðan frágang á
húsi og lóð í iðn-
aðarhverfi en Kalka
er að Berghólabraut 7
í Helguvík. Þá fékk Fast-
eignafélagið Þrek í Keflavík
viðurkenningu fyrir frábæran
frágang á húsum og lóðum
sem félagið hefur byggt und-
anfarið.
Viljum geta notað
tímann í annað
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Endurbætur Gunnar Ágúst Halldórsson og Linda Helgadóttir
taka ásamt dóttur sinni, Glódísi Hlíf, við viðurkenningu úr
hendi Bjarkar Guðjónsdóttur, forseta bæjarstjórnar.
Lítið gras Mölin setur svip á garðinn á
Hraunsvegi 8 í Njarðvík.
Garður | „Það hefur aldrei
verið stefnan að gera þetta
að verðlaunagarði,“ segir
Guðmundur Jens Knútsson
rafvirki, að Lyngbraut 1 í
Garði, sem fékk umhverf-
isverðlaun fegrunar- og um-
hverfisnefndar Sveitarfé-
lagsins Garðs í ár. „Við
höfum gert þetta af okkar
áhuga, þegar tími hefur gef-
ist til höfum við bætt einni og
einni hríslu við,“ bætir kona
hans, Anna Mary Péturs-
dóttir sjúkraliði við.
Auk verðlaunagarðsins að
Lyngbraut 1 veitti nefndin
tvær viðurkenningar. Oddný
Harðardóttir og Eiríkur Her-
mannsson fengu viðurkenn-
ingu fyrir skemmtilegt um-
hverfi í garðinum við hús sitt,
Björk. Þá fengu Sveinbjörg
Þóra Gunnarsdóttir og Sæv-
ar Leifsson viðurkenningu
fyrir fallegan og snyrtilegan
garð að Einholti 8.
Þegar Anna og Guð-
mundur fluttu inn í ófullgert
hús sitt 1979 stóð það efst í
byggðinni í Garði og ekki
mikið skjól til að fást við trjá-
rækt eða annan gróður. Þau
byrjuðu þó á garðinum
tveimur eða þremur árum
síðar og fyrsta trjáplantan
var gróðursett 1983. Þau
gera lítið úr því að mikil
vinna sé að byggja upp og
halda við fallegum garði.
Anna segir að þau ferðist
mikið innanlands á sumrin en
hugi að garðinum þess á
milli. „Þetta snýst bara um
að hafa snyrtilegt í kringum
sig. Það hefur verið mottóið
hér,“ segir Guðmundur.
Þau leggja áherslu á að
garðurinn þeirra sé ósköp
venjulegur og enginn skrúð-
garður, enda hafi þau sjálf
útbúið hann eftir sínu eigin
höfði. Þá sé hann til notkunar
fyrir fjölskylduna. Þau nefna
að börnin hafi getað leikið
sér þar að vild, meðal annars
í fótbolta með félögunum.
„Maður losnar þá líka við
mosann,“ segir Guðmundur.
Ánægð með framfarirnar
Kristjana, formaður fegr-
unarnefndar, er ánægð með
framfarir í ræktunarmálum í
Garðinum. Segir að margir
garðar hafi komið til greina
við úthlutun verðlauna og
viðurkenninga í ár. Nefndin
hefur aldrei valið fegurstu
götuna. Hún segir að nú fari
að koma að því enda vanti
nokkrar götur aðeins herslu-
muninn og hann náist von-
andi með samstilltu átaki á
næstu árum.
Hún hælir einnig sveitarfé-
laginu fyrir að ganga á undan
með góðu fordæmi í sínum
framkvæmdum og nefnir sér-
staklega umhverfið á Garð-
skaga sem nú hefur verið lag-
fært en nefndin hefur kvart-
að undan því í mörg ár.
Höfum bætt einni
og einni hríslu við
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verðlaunagarður Anna Mary Pétursdóttir og Guðmundur
Jens Knútsson búa á Lyngbraut 1 í Garði.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is