Morgunblaðið - 09.07.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 31
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
FDM í Danmörku, systurfélag Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda hefur
gefið út vandaða og ítarlega hand-
bók um tjaldsvæði í Evrópu; Camp-
ingguide Europa 2005/06. Í bókinni
eru ítarlegar og tæmandi upplýs-
ingar um 3.560 tjaldsvæði í 25 lönd-
um álfunnar.
Tjaldbúðahandbókin Camp-
ingguide Europa 2005/06 fæst hjá
FÍB. Þar fá félagsmenn FÍB einnig
tjaldbúðaskírteini sem veitir þeim
margvíslegan forgang og fríðindi á
tjaldsvæðunum.
Um 26.000 tjaldsvæði í Evrópu
Tjaldsvæði í Evrópu eru talin vera
um 26 þúsund talsins, en svæðin sem
fjallað er um í bókinni eru þau tjald-
svæði sem tekin hafa verið út af sér-
fræðingum hins öfluga þýska bif-
reiðaeigendafélags, ADAC og
sérfræðingum FDM. Um hvert og
eitt þeirra er í handbókinni stutt lýs-
ing á staðsetningu, aðstöðu og bún-
aði og gefnar stjörnur fyrir hvern
þátt þeirrar aðstöðu sem í boði er.
Auk lýsinga á tjaldsvæðunum
sjálfum eru leiðbeiningar um hvað-
eina er lýtur að tjaldferðalagi, akstri
með tjaldvagn eða hjólhýsi, hraða-
takmarkanir, hvar aðstoð er að finna
í neyðartilvikum o.m.fl.
Frumstætt eða lúxus?
Tjaldbúðaferðalög eru sá ferða-
máti sem býður upp á hvað mesta
fjölbreytni og tjaldsvæði í Evrópu
eru allt frá því að vera einföld og
frumstæð upp í það að vera ferða-
miðstöðvar með öllum þægindum og
lúxus sem hugsast getur.
BÆKUR | 3.560 tjaldsvæði tekin fyrir
Tjaldbúðaferða-
lag um Evrópu í
sumarleyfinu
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þó að margir njóti þess að fara í tjald yfir sumartímann hérlendis er líka
gaman að ferðast með tjald um meginland Evrópu.
Nánari upplýsingar fást hjá FÍB
Borgartúni 33, Reykjavík.
Sími 414 9999.
Fullkomnaðu
verkið með
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
Hjónin Einar D.G. Gunnlaugsson og
Þóra M. Sigurðardóttir brugðu sér
nýlega í borgarferð til Kaup-
mannahafnar. Þau gistu á Comfort
Hotel Europe, þriggja stjörnu hóteli
í miðborginni rétt við brautarstöð-
ina, en hafa líka góða reynslu af
First Hotel Vesterbrogade.
Tilefni ferðarinnar var áttræð-
isafmæli móðursystur Einars, Elsu
Eklund, sem hélt upp á afmælið með
pomp og prakt laugardaginn 18. júní
í veislusal Keiluhallarinnar í Tornby
í Amager. Skyldmenni komu víða að,
m.a. frá Danmörku, Íslandi, Fær-
eyjum og Bretlandi.
Geirþrúðarklaustur í uppáhaldi
„Kaupmannahöfn er uppáhalds-
borgin í okkar huga og við förum
gjarnan líka til borgarinnar fyrir jól-
in til að upplifa jólastemninguna.
Fljótlega eftir lendingu er stefnan
gjarnan tekin á veitingahúsið Det
lille Apotek, þar sem framreiddur er
dæmigerður danskur matur. Við
pöntum okkur alltaf öl, snafs og
„danskan platta“ með ýmsu góðgæti
á, m.a. síld, steiktum rauð-
sprettuflökum og heitri lifrarkæfu
með beikoni. Þetta er svakalega
girnilegt og getur maður nánast ver-
ið að borða allan daginn í góðri
stemningu,“ segir Einar og bætir við
að Geirþrúðarklaustur sé líka meðal
uppáhalds veitingastaða þeirra í
Kaupmannahöfn.
Einar og hans frú urðu fyrir ákaf-
lega skemmtilegri lífsreynslu á eft-
irlætis veitingastaðnum sínum í
Kaupmannahöfn að þessu sinni því á
meðan þau sátu yfir kræsingunum
gafst þeim færi á að hitta annan Ol-
senbræðra, sem sungu sig inn í
hjörtu Evrópubúa í Evróvisjón-
söngkeppninni árið 2000 með laginu
„Fly on the wings of love“.
Þeim hjónum var vísað til borðs út
við opinn glugga, sem sneri að gang-
stéttinni þar sem úti voru líka borð
og stólar fyrir viðskiptavini stað-
arins. Úr hátölurum hljómaði lagið
„Talking to you“ með Dananum Jak-
obi Sveistrup sem var framlag Dana
í Evróvisjón-keppninni í ár. „Þar
sem ég er sjálfur mikill Evróvisjón-
unnandi, spurði ég þjóninn hvort
hægt væri að kaupa diskinn með
Jakobi og var mér samstundis bent á
búð á Strikinu. Þjónninn fór að ræða
um Evróvisjón og í ljós kom að hann
vissi nær allt um keppnina, miklu
meira en ég, meira að segja hvað
varðar framlög okkar Íslendinga.
Eftir að hafa setið að snæðingi um
stund kom þjónninn til okkar að
nýju og bað okkur að líta út um
gluggann. Þar sat enginn annar en
Jörn nokkur Olsen, sem ásamt bróð-
ur sínum sigraði í Evróvisjón árið
2000, og gæddi sér á einum köldum
bjór. Við Evróvisjón-aðdáendurnir,
þjóninn og ég, drifum okkur auðvit-
að út á götu með myndavélina.
Myndatökum var vel tekið af hálfu
Olsens enda reyndist hann ein-
staklega ljúfur í fasi og viðmóti.
Hann sagði mér m.a. af vel heppn-
uðum tónleikum á Íslandi, en þá var
líka kominn tími til að leyfa Jörn að
klára bjórinn sinn í rólegheitunum
sem hann og gerði og hjólaði síðan
heim á leið.“
Þolinmóður í búðum
Fyrir utan afmælisveisluhöld,
upplifðu þau Strikið og nágrenni
þess. Þar sem heimflugið var að
kvöldi mánudags og tékka þarf út af
hótelum um hádegi, brugðu þau á
það ráð að koma farangrinum fyrir í
geymslu á flugvellinum. Þau tóku
síðan lest inn í Fields-mollið, sem er
bæði stór og nýleg verslunarmiðstöð
skammt frá Kastrup. „Þar er virki-
lega gaman að eyða degi enda er ég
ekkert venjulegt eintak af karl-
manni því ég hef ákaflega gaman af
að fara í búðir. Frúin þarf ekkert að
draga mig með sér í búðir, en ég vil
bara að verslunareigendur hugsi
fyrir því að hafa stóla í búðunum svo
að mennirnir geti sest niður á meðan
konurnar þeirra athafna sig í búð-
unum að vild. Ég vil nefnilega frekar
að konan mín kaupi sér föt, sem
hana langar í, en kaupi ekki bara
eitthvað af því að ég var óþol-
inmóður að bíða.“
Í haust verður stefnan sett á
Frankfurt-Hahn með Iceland Exr-
pess og þá má búast við því að ekið
verði um Rínardalinn.
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?
Hitti Olsen í Köben
Góður sumarhiti var í borginni og sumarútsölurnar komnar á fullan skrið.
Einar ásamt Jörn Olsen fyrir utan
veitingastaðinn Apótekið.
join@mbl.is
Danskur platti og öl á veitingastaðnum Apótekinu er fastur liður hjá hjón-
unum Þóru M. Sigurðardóttur og Einari D.G. Gunnlaugssyni.
Apótekið
www.det-lille-apotek.dk
Geirþrúðarklaustur
www.sgk.as/
Comfort Hotel Europe
www.hotel-denmark.demon.co.uk/
comforteuro.html
First Hotel Vesterbrogade
www.aok.dk/profile/8305
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Vika í Danmörku
www.hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
89
09
06
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta