Morgunblaðið - 09.07.2005, Side 32
32 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
9. júlí
Eyrarbakki
Spunnið, kveðið og þæft í Hús-
inu.
9.–10. júlí
Akranes
Írskir dagar
Írskir dagar hófust í gær en
standa einnig yfir í dag og á
morgun. Fjölskylduskemmtun.
9.–10. júlí
Dalir
Leifshátíð.
Hátíðin að Eiríksstöðum hófst í
gær en um er að ræða fjöl-
skylduskemmtun.
9.–10. júlí
Suðureyri
Sæluhelgi.
Hátíðin
hófst sl. fimmtudag en stendur
fram á sunnudag.
9.–10 júlí
Siglufjörður
Þjóðlagahátíð.
Hófst sl. miðvikudag og stend-
ur fram á morgundag.
10. júlí
Blönduós
Íslenski safnadagurinn.
9.–10. júlí
Hérað
Sumarhátíð.
Íþróttahátíð fyrir fjölskylduna
10. júlí
Vopnafjörður
Burstafellsdagur.
Lifandi safnadagur
10. júlí
Snæfellsnes
Fuglaskoðunarferð.
Haldin á vegum Þjóðgarðsins
Snæfellsjökuls.
11. júlí
Egilsstaðir
Íslenski safnadagurinn.
Uppákomur á Minjasafni
Austurlands
15.–17. júlí
Þórshöfn
Kátir dagar.
15.– 17. júlí
Hrísey
Fullveldishátíð.
16. júlí
Sauðárkrókur
Hafnardagur.
15.–17. júlí
Blönduós
Matur og menning.
Fjölskylduhátíð.
14.–17. júlí
Ísafjörður
Útivistarhátíð.
Siglingardagar og mikið um að
vera á Ísafirði.
16. júlí
Drangsnes
Bryggjuhátíð.
Fjölskylduskemmtun.
Á FERÐ UM
LANDIÐ
Bryggju-
hátíð og
Kátir
dagar
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
ÍRSKIR dagar eru á Akranesi
um helgina og hefur hátíðin
dafnað með hverju árinu.
Lissabon var byggð á sjöhæðum á tímum Róm-verja og er í dag höfuð-borg Portúgals. Efst
trónir kastalinn Castelo de Sao
Jorge þaðan sem gott útsýni er til
allra átta. Elsta hverfi borgarinnar,
Alfama, hringar sig í kringum kast-
alann sem endurspeglast af krækl-
óttum og ruglingslegum götum og í
því hverfi fæddist fado-söngmenn-
ingin. Þarna segir Guðlaug Rún
Margeirsdóttir að ríki samkennd
meðal íbúanna, sem heilsast af svöl-
um yfir þröngar götur og þarna
kyrja Portúgalar sína þjóðlaga-
tónlist, sem fjallar um trega, ástir
og örlög frá liðnum tíma.
Flóðbylgja í kjölfar jarðskjálfta
árið 1755 sópaði burtu miðborginni í
einu vetfangi með miklu mannfalli
og þegar markgreifinn af Pombal,
sem þá var hægri hönd konungsins,
sagði: „Nú skulum við jarða hina
látnu og huga að hinum lifandi,“
upphófst mikið endurreisnarstarf.
Í stað kræklóttra stíga fékk mið-
borgin á sig nýja mynd. Hannaðar
voru beinar og breiðar götur, sem
fengu nöfn með rentu og Gull- og
Silfurgatan urðu meðal helstu versl-
unargatna borgarinnar.
Götur þessar liggja upp frá versl-
unartorginu Praca do Comércio eða
Verslunartorginu svonefnda, þar
sem verslun og viðskipti voru stund-
uð á árum áður enda vísar torgið að
höfninni. Þarna stóð konungshöllin
sem hrundi svo í fyrrnefndum jarð-
skjálfta. Veglegt borgarhlið liggur
upp frá Verslunartorginu og að Rua
Augusta-götu, sem skilur að Gull-
og Silfurgötuna upp að Rossiotorgi
og í Baixa-hverfið, sem heillað getur
hvern sem er með fjölmörgum kaffi-
húsum, veitingastöðum, lifandi
mannlífi, hátískuverslunum og síð-
ast en ekki síst litlum og sérlega
gamaldags vefnaðarvöruverslunum,
þar sem gamlar konur með uppsett
hár við búðarborð þjóna kúnnunum
af lipurð.
Breiðgatan Avenida de Liberd-
ade liggur síðan upp af Rossio-torgi,
þar sem veglegt Þjóðleikhús borg-
arbúa blasir við. Við hlið leikhússins
er bráðnauðsynlegt að koma við og
fá sér kirsuberjasnafs á A Ginjinha
sem seldur hefur verið á sama götu-
horni allt frá árinu 1840. Við sama
torg er upplagt að koma við í „Hinu
þjóðlega bakaríi“ til að kaupa
kóngakökur, sem eru Portúgölum
sérlega hugleiknar yfir jólahátíðina.
Einræðið hefti íbúanna
Í Portúgal búa um tíu milljónir
manna að meðtöldum íbúafjölda
Madeira og Azoreyja og er landið
rúmlega 92 ferkílómetrar að stærð.
Lýðræði hefur ríkt í landinu allt frá
hinni friðsamlegu blómabyltingu,
sem gerð var árið 1974 þegar ein-
ræðisstjórn undir forsæti Salazar
var steypt af stóli á einni nóttu án
blóðsúthellinga. Ramalho Eanes var
á lýðræðislegan hátt kjörinn fyrsti
forseti landsins. Einræðisstjórn
ríkti í landinu í 48 ár eða frá 1926 til
1974 og var Salazar for-
sætisráðherrra frá 1932 til 1968.
Márar stjórnuðu landinu allt frá
8. öld og fram til 1249 er konungs-
ríki var stofnað. Skaginn, sem
Portúgal og Spánn stendur á, er
kallaður Íberíuskaginn, sem á ís-
lensku þekkist sem Pýreníaskaginn.
Á tímum einræðisins voru íbúarnir
mjög heftir og máttu þeir hvorki
ferðast né tjá skoðanir sínar sem
leiddi af sér mikla stöðnun í þjóð-
félaginu, en Portúgalar vilja helst
gleyma þessum hörmungartímum.
Tvær brýr liggja yfir ána Rio
Tejo eða Tagus, eins og áin er oft
nefnd, til höfuðstaðarins. Eldri brú-
in er í daglegu tali nefnd „25. apríl“
sem vísar í daginn sem blómabylt-
ingin var gerð árið 1974 þegar
Portúgalar fengu lýðræðið. Brúin
var byggð á árunum 1962–1966 og
var hönnuð af sömu aðilum og gerðu
Golden Gate brúna í San Francisco.
Brúin var nefnd Ponte de Salazar
eftir einræðisherranum Salazar sem
þá ríkti, en eftir byltinguna var
nafninu breytt og brúin nefnd eftir
byltingardeginum. Brúin er 2,3 kíló-
metra löng og 70 metra há frá sjó,
en áður en brúin kom, voru notaðir
bátar til að ferja fólk á milli.
Hin brúin og sú nýrri er 19 km
löng og telst því vera lengsta brú í
Evrópu. Hún er hluti af nýlegri
uppbyggingu á svæði því í Lissabon
sem í daglegu tali kallast Expo-
svæðið eða Parque das Nacoes,
Garður þjóðanna. Svæðið var allt
byggt upp fyrir Heimssýninguna
1998. Það er steinsnar frá Lissabon-
flugvelli og þar er m.a. lestarstöð,
verslunarmiðstöð, fjöldi veitinga-
staða, kvikmyndahús, leikvellir,
heilsuklúbbur og sædýrasafn, þar
sem einn íbúinn er lifandi lundi frá
Íslandi. Ásýnd Lissabon breyttist
stórum með tilkomu Expo-
svæðisins, sem nú dregur að sér
fjölda gesta. Boðið er upp á skoð-
unarferðir um svæðið með litlum
lestum og einnig er hægt að skoða
það úr kláfum, sem ganga á vírum í
loftinu.
Þjást fyrir fótboltann
Lissabon er full af menningu.
Auk hins merka Þjóðleikhúss
Teatro Nacional de Dona Maria við
Rossio-torg og Óperuhússins
Teatro Nacional de Sao Carlos í
Chiado-hverfinu er í borginni fjöldi
annarra leikhúsa, tónleikahúsa auk
listasafna. Hæst bera söfnin Museu
Calouste Gullbenkian, Museu Nac-
ional de Arte Antiga og Centro de
Arte Moderna. Ekki má svo gleyma
fótboltabullum því Portúgalar þjást
fyrir fótboltann, segir Guðlaug Rún.
Langflestir Portúgalar eru áhang-
endur Benfica, sem hefur bæki-
stöðvar sínar í Lissabon. Luz-
knattspyrnuvöllurinn er heimavöll-
ur Benfica, en hann tekur 65 þúsund
manns í sæti.
Til að komast til og frá hverfum í
Lissabon er neðanjarðarlestarkerfi
borgarbúa til fyrirmyndar. Og þeg-
ar því sleppir ganga ofanjarðar-
lestir út í helstu úthverfi og aðrar
borgir. Séu menn á annað borð
komnir til Lissabon er skemmtilegt
að heimsækja Caiscais og Estoril,
sem eru sér bæjarfélög vestur af
Lissabon. Cascais var fyrrum fiski-
mannabær og Estoril lítill strand-
bær, en eru nú ríkra manna bæir,
sem byggst hafa hratt upp og þar
hafa gjarnan stórmenni og við-
skiptajöfrar hreiðrað um sig. Til að
sjá sig um í borginni er upplagt að
taka sporvagn eða strætó frá Versl-
unartorginu við ána því þaðan er úr
fjölmörgum leiðum að velja. Sækist
menn eða konur í búðarflakk, má
benda á að Lissabonbúar státa af
Colombo, stærstu verslunarmiðstöð
í Evrópu þar sem gera má reyf-
arakaup.
PORTÚGAL|Höfuðborgin Lissabon er byggð á sjö hæðum
Kóngakökur og kirsuberjasnafs
Í Lissabon, höfuðborg
Portúgala, sameinast
bæði gamalt og nýtt. Jó-
hanna Ingvarsdóttir
bað Guðlaugu Rún Mar-
geirsdóttur, íbúa í
Portúgal til tuttugu ára,
að sýna sér borgina með
augum heimamanna.
Torg fíkjutrésins, Rossíótorg, í Lissabon og Þjóðleikhúsið sést við enda torgsins. .
Gott er að setjast niður og horfa á mannlífið á Rua Augusta-götu.
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.visitlisboa.com
Til að kynnast borginni er góð leið að taka sér far frá Verslunartorginu
með sporvögnum eða strætisvögnum sem ganga um borgina.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir