Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 39 MINNINGAR verkstjóri. Þar var hann við stjórnvöl- inn þar til frystihúsið var selt, þá réðst hann til Skinneyjar-Þinganess og vann þar til hinstu stundar. Og einmitt á Hornafirði hitti hann ástina sína, Aðalheiði Hannesdóttur. Alla, eins og hún er alltaf kölluð, átti þegar hér var komið sögu lítinn dreng, Hannes, sem Egill gekk í föðurstað og aldrei var gerður munur á milli hans og sona þeirra Egils og Öllu, og sannaðist það best þegar Hannes skírði einn drengjanna sinna Egil. Gestrisni þeirra hjóna í Haga- túninu var einstök. Okkur er ógleym- anlegt þegar við vorum einu sinni á Humarhátíð á Hornafirði og gistum ásamt átta öðrum næturgestum í Hagatúninu, þá komust þau hjón að því að allir bekkjarfélagar yngsta sonarins úr Menntaskólanum á Laug- arvatni voru líka á Humarhátíð. Í há- deginu á sunnudeginum voru þeir all- ir boðnir í hádegismat. Ekkert mál, bara dekkað borð þrisvar sinnum og allir fengu nóg að borða. Það var einmitt þessi einstaka gest- risni sem lagði grunninn að okkar góðu vináttu. Við komum til Hafnar sumarið 1974, vorum í tjaldi og þar veiktist eldri sonur okkar þá sex ára. Við hittum Egil en Baldvin og Egill vissu auðvitað hvor af öðrum að norð- an. Ekki var við annað komandi en drífa okkur öll í hús og þar vorum við þangað til drengur var orðinn frískur. Þegar ský dró fyrir sólu í lífi okkar fyrir mörgum árum þá sannaðist vel hverjir voru vinir í raun. Því munum við aldrei gleyma. Egill starfaði mikið fyrir verk- stjórafélag Austurlands og sat í stjórn Verkstjórasambandsins. Hann munaði ekkert um að bruna til Reykjavíkur klukkan fimm að morgni, sitja stjórnarfund fyrir há- degi og bruna síðan heim að kvöldi. En alltaf gaf hann sér tíma til að heilsa upp á Baldvin í vinnunni og spjalla smá stund og oftar en ekki var eitthvert góðgæti í pokahorninu, síld, fiskur eða humar. En okkar bestu stundir með Agli voru þó fjallaferðirnar okkar. Við buðum Agli að slást í gönguhópinn okkar sem var á leið í gönguferð í Fjörður fyrir nokkrum árum. Egill féll inn í hópinn á sinn ljúfa hátt. Þar kynntumst við alveg nýrri hlið á Agli. Hann þekkti nánast hverja þúfu og hvern stein og á sinn prúða ljúfa hátt miðlaði hann okkur af þekkingu sinni. Ekki voru síðri gönguferðirnar í Lónsöræfin og Víkurnar. Þar þekkti hann allt umhverfið og söguna ennþá betur en fararstjórinn okkar enda nýtti fararstjórinn óspart þekkingu Egils í þeim ferðum. Egill fór margar skemmtilegar og óvenjulegar gönguferðir á undan- förnum árum fyrir austan. Síðari árin skrifaði hann gjarnan um gönguferð- irnar í blað verkstjóranna og vildi með því deila þessu áhugamáli sínu með öðrum. Við kveðjum okkar kæra vin með miklum trega og þökkum honum allar góðu samverustundirnar sem við átt- um með honum. Elsku Alla, Hannes, Jónas, Borg- þór og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Einnig sendum við móður Egils, systkinum og tengdaforeldrum, okk- ar einlægustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Egils Jónas- sonar. Baldvin Jóhann og Guðrún. Sunnudaginn 2. júlí barst mér sú harmafregn að minn gamli góði vinur, Egill Jónasson á Hornafirði, hefði lát- ist af slysförum. Með nokkrum fátæklegum orðum langar mig að minnast þessa góða drengs, en kynni okkar Egils hófust fyrir um það bil þremur áratugum þegar hann starfaði sem yfirverk- stjóri hjá hraðfrystihúsi KASK á Hornafirði og undirritaður hjá sjáv- arafurðadeild Sambandsins í Reykja- vík. Samvinna fyrirtækjanna í þá tíð var mikil og með starfsmönnum þeirra tókust oft góð kynni. Þannig var það í tilfelli okkar Egils, við kynntumst í vinnunni og urðum góðir vinir og sú vinátta varð meiri og nán- ari vegna sameiginslegs veiðiáhuga. Í þá daga var áhuginn á laxveiði mikill og ávallt þegar ég hugsa til Eg- ils sé ég hann fyrir mér í vöðlum og vindblússu með veiðistöngina í hend- inni, goluna í ljósu hrokknu hárinu, fullan af orku og áhuga fyrir veiðinni. Við áttum því láni að fagna að geta veitt saman í Laxá í Aðaldal nokkrum sinnum og höfðum þá aðsetur hjá for- eldrum Egils, Huldu og Jónasi í Ár- holti á Húsavík. Þessar veiðiferðir og samveran í Árholti gleymist aldrei og engin orð fá því lýst hvílík forréttindi það voru að fá að veiða með þeim feðgum, Agli og Jónasi, og njóta í leið- inni vináttu og gestrisni. Oft var setið og spjallað langt fram á kvöld, rætt um veiðina og sagðar veiðisögur í bundnu og óbundnu máli um leið og við gæddum okkur á kræsingum sem Hulda móðir Egils bar í okkur veiði- félagana. Þeir feðgar eru nú báðir horfnir á braut og ég leyfi mér að gæla við þá hugsun að þeir sitji nú saman á ný við fallegan æðarfoss og renni fyrir fisk. Á þessari stundu er mikill harmur kveðinn að eiginkonu, sonum, móður, tengdaforeldrum og frændfólki öllu og missirinn verður aldrei bættur, en ég trúi því að ljúfar minningar og mikil samheldni í hópi ættingja vinni með tímanum bug á mestu sorginni. Elsku Alla, synir og ættingjar. Við Sif sendum okkar innilegustu samúð- arkveðjurog biðjum Guð að veita ykk- ur styrk og blessa minninguna um góðan dreng. Benedikt Sveinsson. Sumar fregnir sem berast eru svo óvæntar og ótrúlegar að ekki er hægt að meðtaka þær samstundis. Hin ósjálfráðu viðbrögð verða oftast: Þetta er óhugsandi. Þetta getur ekki verið satt. Þannig varð mér við þegar mér var síðla dags laugardaginn 2. júlí sl. færð sú fregn að Egill Jónas- son væri látinn. Hann hefði beðið bana í fjallgöngu á Ketillaugarfjall í Hornafirði. Kynni okkar Egils hófust fyrir rösklega 40 árum þegar við – ungir menn – hófum báðir störf hjá Kaup- félagi Austur-Skaftfellinga. Hann hafði ráðið sig sem verkstjóra í frysti- húsi kaupfélagsins og hóf störf þar í janúar 1965, en ég kom til starfa á skrifstofu félagsins í júní sama ár. Við áttum síðan eftir að vera samstarfs- menn í kaupfélaginu næstu 27 árin. Þetta voru ár mikils uppgangs og at- hafna bæði hjá fyrirtækinu og í byggðarlaginu. Við vorum stoltir af því að fá að vera þátttakendur í því. Egill varð nokkrum árum síðar yfir- verkstjóri í fiskvinnslu kaupfélagsins og tók þátt í því að flytja starfsemi þess úr „gamla frystihúsinu“ í nýtt og fullkomið fiskiðjuver sem tók til starfa í ársbyrjun 1977. Hann var ekki alltaf í auðveldu hlutverki. Að stjórna á fjölmennum vinnustað. Leitast við að þjóna þörf- um seljenda hráefnis og kaupendum afurða og gera hag vinnuveitandans og verkafólksins sem bestan. Fyrir tíma fiskveiðistjórnunar og aflatak- markana var ekki alltaf spurt um hvíldartíma og vinnuálag oft gríðar- lega mikið. Egill var maður til að rísa undir þessu álagi og leysti sín verk- efni ávallt af hendi af samviskusemi og trúmennsku. Utan starfsins tók hann virkan þátt í samfélaginu. Var öflugur liðsmaður í Lionsklúbbi Hornafjarðar frá byrjun og einnig í ýmsum nefndum á vegum sveitarfé- lagsins, einkum þó hin síðari ár. Hann var jafnan hreinskiptinn og sagði skoðanir sínar opinskátt og umbúða- laust. Ekki er víst að öllum hafi alltaf líkað það, en hann var einnig maður sem stóð við orð sín og trúr þeim mál- stað sem hann vann fyrir. Hin síðari ár, þegar álag minnkaði í daglegum störfum hans, fékk hann m.a. útrás fyrir orku sína í gönguferð- um um óbyggðir landsins, en einkum þó hér í nágrenninu. Hafði hann gengið á fjölmörg fjöll og tinda hér um slóðir undanfarin ár, en ekkert fjall hafði hann þó gengið jafnoft á og Ketillaugarfjall. Þannig var það þenn- an örlagaríka laugardag í liðinni viku. Hann hafði enn einu sinni lagt á fjallið og ætlaði að verja til þess morgninum meðan Aðalheiður kona hans var við störf í versluninni. Varla hefur hann – fremur en nokkurt okkar hinna – grunað að þetta yrði hinsta förin. Ég þakka Agli Jónassyni sam- fylgdina og góð kynni á liðnum 40 ár- um og votta Aðalheiði, Hannesi Inga, Jónasi og Borgþóri og fjölskyldum þeirra og öllum öðrum aðstandendum innilegustu samúð okkar Heiðrúnar. Hermann Hansson. Það er morgunn og síminn er hljóð- ur. Það er skrýtið að sitja við skrif- borðið í vinnunni og eiga ekki lengur von á hringingu um tíuleytið frá Höfn. Síminn hringdi og númerabirtirinn sýndi hver hringdi. Sæll sagði ég. Sæl sagði hann, er ekki allt gott að frétta? Er nokkuð sérstakt? Ég er bara að láta heyra í mér. Þetta voru oftar en ekki orð Egils Jónassonar, formanns Verkstjórafélags Austurlands, þegar hann hringdi til að fylgjast með gangi mála á skrifstofu félagsins. Fréttin á laugardagskvöldið af sviplegu andláti Egils gat ekki verið raunveruleg en ný vika hófst og síminn hringir ekki enn, þetta er raunveruleikinn. Fyrstu viðbrögðin voru: Hvernig fer með fé- lagið okkar? Hvað gerum við nú? Slíkir voru kraftar hans og dugnaður. Egill var aldeilis ekki að leggja árar í bát, heldur var mikil bjartsýni fram- undan og mikið eftir af kröftum sem hann ætlaði að nota næstu ár í þágu félagsins. Það var mikil gleðistund hjá Agli þegar hann tók við glæsilegum bikar á landsþingi Verkstjórasam- bandsins í maí sem var afhentur fyrir bestan árangur í fjölgun félaga frá síðasta þingi og það var öruggt að Eg- ill ætlaði að taka aftur við þessum bik- ar á Ísafirði árið 2007. Viðurkenning- in var Egils og það var gaman að hann skyldi fá að njóta þess að sýna þeim sem komu í heimsókn, en því miður var sá tími sem hann fékk að njóta viðurkenningarinnar allt of stuttur. Það er gaman að hafa fengið að þekkja og starfa með Agli, hvort held- ur á þingum eða fundum á vegum Verkstjórafélagsins. Hann var óhræddur að láta skoðanir sínar í ljós og einnig fús að hlusta á skoðanir annarra. Margar góðar hugmyndir fékk hann í félagsstarfinu og hafa önnur félög tekið þær til eftirbreytni og segir það okkur margt. Hann eyddi miklum tíma í akstur, hvort sem það var hingað norður á firði eða til Reykjavíkur á stjórnarfundi hjá Verkstjórasambandinu, og oft furðaði ég mig á orkunni sem hann hafði, en áhuginn var mikill og vinna skyldi verkin vel og þá þýddi ekkert annað en halda ferðinni áfram. Egill hefur kvatt okkur, eftir stönd- um við hljóð með söknuð í huga en minningu um góðan samferðamann sem vildi okkur öllum allt hið besta. Þótt söknuður okkar sé mikill er söknuður eftirlifandi eiginkonu, barna, tengdabarna, barnabarna og aldraðrar móður mestur. Elsku Alla, synir og fjölskyldur, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Í huga okkar geymum við minningar um traustan vin, Egil Jónasson. Sigurbjörg og Ásmundur, Reyðarfirði. Á þessum erfiðu tímum er margs að minnast frá vinskap og samstarfi okkar Egils síðustu áratugi. Egill fór stundum með mér á sjó og oft geng- um við saman á fjöll. Ef það var svo að ég var á sjónum en hann til fjalla mátti ég eiga von á símtali þar sem hann sagði mér frá því upp á hvaða tind hann væri nú kominn. Nú í seinni tíð komst ég þó ekki nærri eins oft með honum til fjalla og ég hefði viljað en það stóð þó alltaf til að bæta það upp. Egill hóaði okkur gömlu vinnu- félögunum árlega saman í skötuveislu á Þorláksmessu. Það var líka fastur liður hjá okkur Agli og Arnari að ganga fyrir Horn á milli jóla og nýárs. Minningar um þennan góða vin eiga eftir að koma oft upp í hugann, hvort sem er við skötuveislu, á sjónum, til fjalla eða í daglegu amstri. Það er erfitt að kveðja svo góðan vin og hvert orð virðist fátæklegt. Vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Elsku Alla og fjölskylda og aðrir aðstandendur. Mig langar til að votta ykkur mína dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Ég veit að missir barna- barnanna er ekki síst mikill því Egill var með eindæmum barngóður mað- ur. Göngur okkar verða ekki fleiri kæri vinur, en í huganum munt þú fylgja mér. Þú kvaddir í faðmi fjallsins sem þú unnir svo heitt og enginn hafði gengið oftar en þú. Mín næsta ganga verður á staðinn þar sem þú kvaddir þennan heim. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þinn vinur, Kristján Jónsson (Kiddi). Þegar berast fréttir af válegum tíð- indum eru viðbrögðin oftast sorgar- blandin, sérstaklega ef um góða vini eða skyldmenni er að ræða. Svo varð um mig þegar ég fékk fréttir af svip- legu láti Egils Jónassonar, góðs fé- laga í stjórn Verkstjórasambands Ís- lands, en hann var einnig vinur. Kynni okkar Egils voru ekki löng, að- eins sex ár. Frá því um haustið 1999 er ég settist í stól stjórnarmanns hjá Verkstjórasambandi Íslands. Ég ætl- aði að setjast í stólinn næst dyrunum, úti á enda, frekar óöruggur, þegar hann kemur til mín og segir nokkuð hvasst: „Þú situr ekkert þarna, góði minn, þetta er mitt sæti,“ brosir svo ljúflega og segir, „þú tekur sætið hans Brynjars“. Svo tók hann í höndina á mér og bauð mig velkominn, frá þeirri stundu var hann vinur minn. Egill hafði mjög ákveðnar skoðanir og stóð með þeim. Hann hafði mjög sterka réttlætiskennd og vildi öllum gott gera. Hann hafði góða yfirsýn yf- ir launamál og sérstaklega kjör fisk- verkunarfólks og var alltaf með á tak- teinunum nýjar hugmyndir þar að lútandi. Starf hans sem formaður Verkstjórafélags Austurlands var sérstakt og óeigingjarnt. Ég er ekki frá því að þegar hann var að segja okkur hinum í stjórn Verkstjórasam- bandsins frá aðferðum sínum og elju- semi við að kynna félagið sitt hafi gætt nokkurrar öfundar, allavega kom fyrir að ég fann stundum fyrir þeirri tilfinningu. Egill kvað oft fast að orði, sérstaklega í málum sem voru honum hugleikin. Oft hringdi hann í mig daginn eftir snarpan stjórnar- fund til að ræða um einstök mál og þar sem ég er ritari VSSÍ kom oft þessi spurning, hvort ekki mætti milda það sem hann hefði sagt í hita leiksins, málið væri kannski ekki al- veg svona alvarlegt. Hann var líka fyrstur manna til að biðjast afsökunar ef hann hafði farið með rangt mál og fyrstur að fyrirgefa ef menn báðust fyrirgefningar. Það var aðdáunar- verður áhuginn og sannfæringar- krafturinn þegar hann var að afla stuðnings við, og segja frá hugmynd- um sínum um kynningu á Verkstjór- afélagi Austurlands og jafnframt Verkstjórasamtökunum á opinni fyr- irtækjakynningu á Egilsstöðum sl. sumar. Hvað hann var ánægður þeg- ar við svo í haust sögðum honum að við hefðum haft fréttir af kynningunni og jafnvel orðið varir við fjölgun í okk- ar félögum vegna hans kynninga. Ég veit að ég mun sakna Egils, snarpra athugasemdanna, létta húm- orsins og ekki má gleyma frásögnun- um af öllum gönguferðunum. Sér- staklega var það mér minnisstætt þegar hann var að segja mér frá fjallaferðunum af mínum heimaslóð- um, Norðfirði. Slóðir sem ég þekkti aðeins af frásögnum annarra. Síðast þegar ég hitti Egil var það á bifreiðastæðinu fyrir framan Stapann í Njarðvík að loknu þingi Verkstjóra- sambands Íslands. Hann á leið aust- ur, ég á leið út í Keflavík. Síðasta kveðjan var, „sjáumst hressir á fyrsta fundinum í haust“. Því miður get ég ekki fylgt Agli síðustu gönguferðina þar sem ég er staddur erlendis. Fjöl- skyldu Egils sendi ég samúðarkveðj- ur og bið þeim öllum Guðs blessunar. Úlfar Hermannsson, formaður VF Suðurnesja, ritari VSSÍ. Mig langar að minnast Egils Jón- assonar með örfáum orðum. Agli kynntist ég fyrst almennilega eftir að við fórum að vinna saman árið 1999. Ég varð þá yfirmaður hans þar sem hann starfaði sem verkstjóri í fiskvinnslu. Það tók okkur nokkurn tíma að læra hvor á annan. Egill benti mér á að hann væri reyndari en ég, en ég taldi mig hafa eitthvað sem var merkilegra. Smávægilegur núningur skapaðist stundum, líklega vegna þrjósku okkar beggja. Slíkt risti þó aldrei djúpt og smám saman náðum við vel saman og áttum mjög gott samstarf síðustu misseri. Það var lær- dómsríkt og gaman að vinna með Agli. Það er því mikill missir að hon- um á vinnustaðnum og ekki síður úr verkstjórahópnum þar sem hann kom oft með mikilvæg sjónarhorn á mál- efnin. Egill var hraustur maður, bar sig vel og hlífði ekki sjálfum sér. Hann gerði sér vel grein fyrir því hverju hann sinnti best og hvað var best að fela öðrum. Elsku Alla, Guð styrki þig, strák- ana þína og fjölskyldur þeirra í ykkar mikla missi. Hermann Stefánsson. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.