Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 44
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR!
JÁ!
LÍMDIR ÞÚ OLNBOGANN Á MÉR VIÐ
BORÐIÐ EINA FERÐINA ENN
JÁ!
LÍMDIRÐU
LÍKA
BOLLAN?
JÁ, OG REYN-
DU NÚ BARA AÐ
TAKA LÓFANN AF
ANDLITINU
EF VIÐ
VÆRUM
GIFT OG ÞÚ
STUNDAÐIR
GOLF...
... ÞÁ MYNDI ÉG HATA
KYLFURNAR ÞÍNAR. EF ÞÚ
VÆRIR MEÐ BÍLADELLU ÞÁ
MYNDI ÉG HATA BÍLINN ÞINN
OG? ÉG HATA
PÍANÓIÐ ÞITT!
SVONA NÚ ÚT
Í LAUGINA!
KALVIN, VEISTU HVAÐ
ROTTUSKOTT ER?
NEI!MÉR ER
KALT NÚ
ÞEGAR. ÉG
FER EKKI!
ÞAÐ ER ÞEGAR MAÐUR
TEKUR BLAUTT HANDKLÆÐI
OG SNÝR UPP Á ÞAÐ. ÞEGAR
MAÐUR ER SVO SLEGINN
MEÐ ÞVÍ ÞÁ STINGUR ÞAÐ
ÉG HÉLT AÐ SUNDLAUGAR-
VERÐIR LÆRÐU BARA
LÍFGUNARTILRAUNIR
OG SVOLEIÐIS
EN
HANN ER
EKKI
ALVÖRU
STRÁKUR!
DÓTTIR YKKAR ER ALLTAF AÐ
BJÓÐA MÉR Í MAT. MÉR ER
FARIÐ AÐ FINNAST ÞETTA HÁLF
VANDRÆÐALEGT
HVAÐA VITLEYSA, ÞÚ
ER BARA ORÐINN EINN
AF FJÖLSKYLDUNNI
... SKALTU EKKI VERA
MEÐ OLGNBOGANA
UPP Á BORÐI
OG
ÞAR AF LEIÐANDI...
ÉG HEF HEILAN DAG TIL AÐ
VINNA Í BÓKINNI MINNI
ÞETTA SÝNIR MANNI BARA AÐ
MAÐUR GETUR LÁTIÐ DRAUMA SÍNA
RÆTAST EF MAÐUR GEFUR SÉR TÍMA
SÆL FRÚ ARDEN, ÉG ER HRÆDD UM
AÐ DÓTTIR ÞÍN SÉ MEÐ HITA, GETUR
ÞÚ KOMIÐ OG SÓTT HANA
EINS GOTT
AÐ ÉG ER Í
FRÍI Í DAG
GOTT AÐ ÉG LAGÐI
BÍLALEIGUBÍLNUM
MÍNUM ÚR AUGSÝN
EF HAMARHÖND SÆI
KÓNGULÓARMANNINN, ÞÁ
GÆTI HANN DREPIÐ FAN-
GELSISSTJÓRANN
EN HANN MUN EKKI KIPPA SÉR
UPP VIÐ AÐ SJÁ PETER PARKER
Dagbók
Í dag er laugardagur 9. júlí, 190. dagur ársins 2005
Víkverja blöskrar íhvert sinn sem
hann hættir sér út fyr-
ir borgarmörkin.
Þrátt fyrir eilífar pre-
dikanir um þá hættu
sem fylgir framúr-
akstri, öflugar auglýs-
ingaherferðir Um-
ferðarstofu og fjölda
alvarlegra bílslysa á
vegum úti virðast
sumir ökumenn aldrei
láta segjast. Það getur
verið að sláandi skilti,
sem greina frá fjölda
látinna í umferðinni á
árinu og illa klesstir
bílar, missi marks hjá þeim sem
keyra hraðast, þeir sjá varnaðar-
orðin hreinlega ekki í æsingnum.
Á ferðalagi Víkverja til og frá
Stykkishólmi síðastliðna helgi voru
ófáir ökumenn sem stunduðu fram-
úrakstur grimmt þrátt fyrir að
hvorki veðurfar né skilyrði á vegum
leyfðu slíkt.
Um hvort almenn ánægja með að
þenja ökutækið til hins ýtrasta eða
tilraun til að stytta sér leið heim var
tilgangur þessa glannaskapar þorir
Víkverji ekki að fullyrða en hafi
markmiðið verið það síðarnefnda er
víst að ökumennirnir hafa ekki haft
erindi sem erfiði. Hraðakstur borgar
sig nefnilega sjaldnast
og ótrúlegt í raun
hversu lítinn tíma fólk
sparar á því að spyrna
í.
x x x
Það helltist sorg yfirVíkverja á dög-
unum þegar hann rak
augun í opnu í Dag-
blaðinu þar sem fjallað
var um kvenkyns þátt-
takendur á Wimble-
donmótinu í tennis.
Stórar myndir af
glæsilegum íþrótta-
konum fylltu síðuna og
verandi áhugamaður um tennis ætl-
aði Víkverji að lesa textann sem
myndunum fylgdi. Var í annars
stuttum texta gert svo lítið úr þess-
um frábæru afrekskonum, þeim
stillt upp sem klæðlitlum kyntákn-
um og imprað á því að greinilegt
væri hvers vegna karlmenn horfðu á
þetta stærsta tennismót ársins, þ.e.
klæðlitlar konur!
Niðurlægingin á ekki síður við um
karlmennina sem um var rætt,
íþróttaáhugi karlmanna gerður að
einhverju allt öðru sem ég efast um
að margir karlmenn kæri sig um.
Sorgleg tímaskekkja í fréttaflutn-
ingi sem reyndar dæmir sig sjálf.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Akranes | Skagamenn halda hátíðlega írska daga núna um helgina. Systk-
inin Donna og Joe McCaul eru á myndinni hér að ofan en þau koma fram á
hátíðinni. Þau eru helst þekkt fyrir þátttöku sína í Evróvisjón fyrir Írland í
vor. Keppni um rauðhærðasta Íslendinginn verður á morgun og sigurveg-
arinn hlýtur ferð til Dublinar. Dagurinn endar á balli með Pöpunum og Sál-
inni á Breiðinni þar sem gera má ráð fyrir ekta írskri stemningu.
Reuters
Donna og Joe á Írskum dögum
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir,
sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jóh. 20.)