Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 09.07.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 47 MENNING Frá því að ég fór í myndlistar-nám til Þýskalands árið1990, að loknu námi í MHÍ, hef ég verið þeirrar gæfu aðnjót- andi að geta haft myndlistina að minni einu atvinnu,“ segir Sigrún Ólafsdóttir listakona. Hún er búsett í Þýskalandi og hefur búið þar í 15 ár. Í dag opnar hún sýningu í Gall- eríi Sævars Karls og er þetta fyrsta sýningin hennar á Íslandi í átta ár. „Ég hef haldið einkasýningar í Evr- ópu og tekið þátt í fjölda samsýn- inga.“ Að hennar sögn eru stóru verkin spennandi en auk þeirra gerir hún einnig minni skúlptúra og teikningar. „Ég vinn samhliða við að gera skúlptúra, stóra og litla auk þess að teikna. Þessir verk- þættir tvinnast saman og geta ekki án hvor annars verið því þeir eru hluti af heildarferlinu,“ segir Sig- rún um verk sín. Jafnvægi og and- stæður eru helstu viðfangsefni Sig- rúnar. Nýlega var gefin út bók um hana og verk hennar í tilefni af þremur stórum einkasýningum í Þýskalandi. Titill bókarinnar „Force and Tenderness“ eða kraft- ur og mýkt og vísar í andstæðurnar sem Sigrún vinnur gjarnan með. Þriðja sýningin verður í september í Wilhelm Hack Museum í Ludwigs- hafen.    Sigrúnu hefur gengið vel í Þýska-landi en hún hefur verið fengin til þess að gera stóra skúlptúra fyr- ir opinberar byggingar og einka- fyrirtæki. „Styrkur minn liggur mest í því að gera stór verk og þess vegna finnst mér skemmtilegast að fá stór verkefni fyrir stórar bygg- ingar.“ Sigrún er stórhuga og lista- verk eins og þau stærstu sem hún hefur unnið krefjast mikillar vinnu, útreikninga og hugsunar. Hún vinnur með stálsmiðum og það er margra manna verk að þróa lista- verkið frá því að vera hugmynd á blaði í það að vera 10 metra hátt eða breitt listaverk sem á að stand- ast veður og vinda. Þessi risastóru verk Sigrúnar hafa oft verið þróuð í samvinnu við þá arkitekta sem teikna byggingarnar. Sigrún segir að það sé sérstaklega skapandi ferli og næri báða aðila, arkitektinn og listamanninn.    Listamenn sækja oft kraft oghugmyndir í íslenska náttúru og Sigrún er engin undantekning. Þrátt fyrir að hafa búið lengi í Þýskalandi hefur hún reynt að koma reglulega til Íslands og von- ast til að geta unnið meira hér á landi á næstunni samhliða verk- efnum sínum úti. „Mér eru tengslin við Ísland afskaplega mikils virði og ég vil nú vera lengur hér á ári hverju en ég hef getað til þessa. Fjölskylduástæður hafa ráðið því að ég hef aðallega verið virk í Þýskalandi en ekki hér á Íslandi. Sonur minn sem fór með mér utan tæplega þriggja ára gamall er nú að verða fullorðinn og þess vegna er ég ekki lengur bundin yfir hans skólagöngu. Núna get ég ráðið mín- um tíma meira sjálf,“ segir Sigrún. Hún er stödd hérna í fimm vikur sem er með því lengsta sem hún hefur verið síðustu ár. Stefnan er tekin á að ferðast um landið og hitta vini og ættingja. „Draumurinn er að vera hér á sumrin.“ segir Sig- rún og það lifnar yfir henni þegar hún talar um tjaldútilegur og ís- lensku sumrin. Að koma með verk til Íslands frá Þýskalandi og sýna er æði kostn- aðarsamt og hún er afar þakklát fyrir þá aðstoð sem hún hefur feng- ið og nefnir sérstaklega að Samskip flutti verkin henni að kostnaðar- lausu. Á sýningunni í Galleríi Sævars Karls verða skúlptúrar og teikn- ingar, eitt verkið verður á gang- stéttinni fyrir utan galleríið. Sýn- ingin verður opnuð í dag kl. 14 í Galleríi Sævars Karls. Jafnvægi og andstæður ’„Styrkur minn liggurmest í því að gera stór verk og þess vegna finnst mér skemmtileg- ast að fá stór verkefni fyrir stórar bygging- ar.“‘ AF LISTUM Guðrún Birna Kjartansdóttir Tíu metra hátt stálskúlptúrverk eftir Sigrúnu í Rohrbach í Þýskalandi. gudrunbirna@mbl.is Krítargrunnur og túss á léreft. 180 x 180 eftir Sigrúnu Ólafsdóttur. Myndin er á sýningu í Galleríi Sævars Karls sem verður opnuð í dag. Frekari upplýsingar um Sigrúnu er að finna á www.sigrun-olafs- dottir.de. „MENN hafa verið að velta þessum möguleika fyrir sér í mörg ár,“ segir Stefán Jón Hafstein, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, um þá hug- mynd að Reykjavíkur- borg stofni sérstakan listskreytingasjóð fyrir borgina að fyrirmynd Listskreytingasjóð ríkisins. Aðspurður segir Stefán Jón hug- myndina hins vegar vera í salti núna. Segir hann að sér hafi á síð- asta ári borist tillögur um útfærslur slíks sjóðs, en að sér hafi ekki litist á það hversu gert var ráð fyrir viða- miklu batteríi. „Ég hafði því hugsað mér að taka þetta mál upp á breyttum forsendum, en ætlaði að gefa mér góðan tíma til að skoða þessi mál í þaula,“ segir Stefán Jón og tekur fram að hann hafi ákveðnar efasemdir um að sú hugmynd að eyrnamerkja ákveðið fé til listskreytinga í byggingum Reykjavíkurborgar í gegnum sér- stakan listskreytingasjóð sé besta leiðin til þess að efla menningarlífið í borginni. Starfslaunum breytt í styrki Nefnir hann sem dæmi að áður fyrr hafi Reykjavíkurborg verið með starfslaun listamanna líkt og ríkið, en kosið að breyta þeim frekar í verkefnastyrki þar sem borgaryfir- völdum hafi ekki fundist hitt fyrirkomulagið nægilega eftirsóknarvert. „Það er eins með þetta. Við veltum fyrir okkur hvort listskreytingasjóður sé endilega besta leiðin til að ná til listamanna og efla þá í borginni. Allt kemur fjár- magnið á endanum úr sama sjóðnum. Ég spyr mig því, ef við ætl- um að setja einhverja peninga í aukna menn- ingarstarfsemi, sem við erum jú alltaf að gera, hver er þá besta leiðin? Því á endanum snýst þetta um það hvernig peningum okkar er best varið,“ segir Stef- án Jón og nefnir þann möguleika að borgin kaupi einfaldlega fleiri listaverk og komi þeim fyrir í byggingum sín- um eða efli list á al- mannafæri frekar en að stofna sérstakan listskreytinga- sjóð. Fyrir hverja úthlutaða krónu er beðið um tífalt meira „Ég hef einfaldlega efasemdir um að búa til enn eitt batteríið í kring- um takmarkað styrkjafé, því sann- leikurinn er sá að fyrir hverja krónu sem við úthlutum til frjálsrar list- starfsemi í borginni er beðið um að minnsta kosti tífalt meira. Er það raunveruleg ósk listamanna að aukið fé til menningarmála fari í svona far- veg frekar en annan?“ spyr Stefán Jón að síðustu. Myndlist | Efast um að listskreytinga- sjóður borgarinnar sé skynsamleg leið „Snýst um hvernig peningum okkar er best varið“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Stefán Jón Hafstein BANDARÍSKI rithöfundurinn Evan Hunter, sem skrifaði einnig undir nafninu Ed Mc- Bain, lést af völdum krabba- meins á heimili sínu í Connecti- cut í vikunni, 78 ára að aldri. Hunter fæddist í New York árið 1926 og fékk þá nafnið Salvatore Lombino. Hann hóf skriftir þegar hann gegndi herþjónustu í bandaríska flotanum í síðari heimsstyrjöldinni og árið 1952 breytti hann nafni sínu í Evan Hunter þar sem hann taldi að ítalskt ætterni hans yrði honum fjötur um fót á rithöfundarferl- inum. Hunter skrifaði fjölda saka- málasagna undir ýmsum nöfn- um en þekktasti bókaflokkur- inn sem hann skrifaði var um 87. lögreglustöðina í New York. Fyrsta bókin í flokknum kom út árið 1956 og vakti athygli fyrir raunsannar lýsingar á borgar- glæpum. Bækur Hunters komu út í yfir 100 milljónum eintaka um allan heim og hafa margar þeirra verið þýddar á íslensku. Hunter skrifaði oft tvær eða þrjár bækur á ári og sagði eitt sinn við blaðamann að hann vissi ekki hvað hann hefði skrif- að margar bækur og heldur ekki undir hve mörgum nöfnum hann hefði skrifað þær. Hunter skrifaði einnig kvikmynda- handrit, m.a. handrit mynd- arinnar Fuglarnir, sem Alfred Hitchcock leikstýrði árið 1963. Evan Hunter látinn Evan Hunter

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.