Morgunblaðið - 09.07.2005, Side 50
50 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Liv Ullmann er stórglæsilegkona með sterkar skoð-anir á mönnum og mál-efnum. Þegar blaðamaður
hitti hana á Hótel Borg síðastliðinn
fimmtudag var hún eins og allir aðr-
ir slegin yfir atburðum dagsins í
Lundúnum.
„Það er erfitt að tala um eða jafn-
vel hugsa um nokkuð annað en það
sem er að gerast þar þessa stund-
ina,“ byrjar hún en bætir við að sér
finnist þó mikilvægt að halda áfram.
„Það er lífsnauðsynlegt að halda
alltaf áfram að bera út boðskap lista
og menningar. Ef við hættum því
hafa hryðjuverkamennirnir unnið.“
Ullmann er stödd hér á landi í
tvennum erindagjörðum.
„Ég kom upphaflega hingað á
vegum nefndar sem heitir Hilton
Humanitarian Organisation. Við
hittumst ár hvert á mismunandi
stöðum í heiminum og veljum á milli
tólf samtaka sem vinna að góðgerð-
armálum í heiminum og verðlaunum
ein þeirra með upphæð jafnhárri
Nóbelsverðlaununum. Í þetta sinn lá
leiðin til Íslands,“ segir hún.
„Þegar framleiðendur myndar-
innar A Journey Home fréttu af
þessari ferð minni var ákveðið að
hafa undirbúningsfund í leiðinni.
Mér finnst sérstaklega gaman að
koma til Íslands núna því þegar ég
skrifaði handritið að myndinni hafði
ég aldrei komið hingað.“
Kvikmyndin sem um er rætt er
byggð á skáldsögu Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, Slóð fiðrildanna, og
skrifaði Ullmann sjálf handritið að
myndinni og hyggst leikstýra henni
eins og greint hefur verið frá. Mynd-
in er framleidd af bandarísku fram-
leiðslufyrirtæki sem og íslenska
fyrirtækinu Saga Film sem mun
annast framleiðslu þess hluta sem
tekinn verður hér á landi. Áætlað er
að tökur hefjist í mars eða apríl á
næsta ári og mun rúmur helmingur
myndarinnar gerast á Íslandi.
„Þegar upphaflega var leitað til
mín og ég beðin að leikstýra verkinu
var búið að gera handrit eftir bók-
inni. Mér fannst það handrit alls
ekki trútt bókinni og afréð að skrifa
það upp á nýtt. Ég hreifst nefnilega
umsvifalaust af bókinni hans Ólafs
og vildi gera henni góð skil,“ segir
Ullmann.
Fangar íslenskan
raunveruleika
„Bókin hafði alveg geysilega mikil
áhrif á mig, allt þetta yfirnáttúru-
lega og þeir óútskýranlegu hlutir
sem eiga sér stað. Mér finnst heill-
andi þeir hlutir sem eru stór hluti af
lífi fólks en það talar samt ekki um,
þetta óáþreifanlega. Mér finnst
Ólafur hafa fangað þetta vel í bók
sinni. Fólkið segir eitt en meinar
kannski eitthvað annað. Mér fannst
mjög freistandi að reyna að fanga
þetta í bíómynd. Kvikmyndir geta
nefnilega fangað þetta augnablik hjá
fólki þegar það brosir þótt það gráti
innra með sér.“
Sagan segir frá íslenskri konu
sem búsett er á Englandi en snýr
aftur upp á Íslandsstrendur til að
gera upp fortíð sína, sem bæði hefur
góðar og slæmar hliðar.
„Þetta er mynd um venjulegt fólk
frá Íslandi og hvers vegna það er
eins og það er,“ segir Ullmann.
„Slíkar myndir hafa ekki áður verið
gerðar, að erlendir aðilar komi til Ís-
lands til að reyna að fanga íslenskan
raunveruleika fyrir stóran markað.
Ég held að það sé mikilvægt, gott að
beita auga gestsins í þessu tilliti.“
Ullmann segir kvikmyndina eiga
að endurspegla íslenskan raunveru-
leika og þá eiginleika sem Ísland
hefur upp á að bjóða.
„Þetta verður sönnun á því hvers
vegna Ísland er í huga allra enn land
goðsagnanna. Þótt við sýnum ekki
goðsagnirnar sjálfar sýnum við fram
á að þær lifa með fólkinu í landinu.
Þetta er venjulega óvenjuleg saga
um einstakt fólk,“ útskýrir hún.
Ullmann segir aldrei neitt annað
hafa komið til greina en að taka
stóran hluta myndarinnar upp hér á
landi.
„Ég hef ekki séð mikið af landinu
ennþá en það sem ég hef séð og
heyrt og lesið um landið er svo sér-
stakt. Þessi náttúra, hafið, hraunið
og allt þetta sem sést hvergi annars
staðar í heiminum. Mér fannst við
verða að koma hingað þar sem ræt-
ur konunnar í sögunni liggja,“ segir
hún.
Ullmann ber samstarfinu við Ólaf
Jóhann mjög vel söguna.
„Ég er búin að vera að vinna að
handritinu í hálft annað ár og við
Ólafur höfum hist reglulega og rætt
saman. Hann hefur reynst mér al-
veg ótrúlega vel. Það eru ekki allir
höfundar eins og hann þegar maður
er að vinna með sköpunarverk
þeirra en hann hefur verið alveg
einstaklega jákvæður og þægileg-
ur,“ segir hún.
Kvikmyndir mikilvægar
Ekki hefur enn verið upplýst hver
muni fara með aðalhlutverk mynd-
arinnar en Ullmann segir það vera
stórkostlega leikkonu sem unnið
hefur til Óskarsverðlauna, og nú
geta menn reynt að giska. Hún segir
það alveg ákveðið að myndin muni
einnig skarta íslenskum leikurum þó
svo að hún sé öll á enska tungu.
„Þar sem ég er forseti kvik-
myndaleikstjóra í Evrópu ætti ég
ekki að gera mynd eingöngu á enska
tungu heldur helst hafa hana á
ensku og íslensku. En þar sem þetta
er bandarísk framleiðsla verður
þetta að vera svona,“ segir Ullmann.
„Ég mun samt láta konuna tala
enskuna með íslenskum hreim, þeim
Kvikmyndir | Liv Ullmann undirbýr tökur á kvikmynd eftir Slóð fiðrildanna hér á landi
Ísland er land goðsagnanna
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Kvikmyndir sem miðla ólíkum menningarheimum til okkar eru mikil-
vægar til að við skiljum að við erum hluti af stórri heild.“
Leikkonunni og leikstjóranum Liv Ullmann er
margt til lista lagt. Birta Björnsdóttir ræddi
við hana um upplifunina á Íslandi, kostina við
leikstjórastarfið og mikilvægi kvikmyndanna.
MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.20
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
„Svalasta mynd ársins og
besta mynd þessa sumars“
Þ.Þ. FBL
„...í heildina frábær mynd...“
T.V. kvikmyndir.is
„...í heildina frábær mynd...“
„...hrein og tær upplifun...
gjörsamlega geðveik mynd!“
K&F XFM
„...hrein og tær upplifun...
gjörsamlega geðveik mynd!“
DÖJ kvikmyndir.com
DÖJ kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3 (400 kr.) 5.30, 8
og 10.30 B.i 16 ára
DÖJ kvikmyndir.com
„...í heildina frábær mynd...“
T.V. kvikmyndir.is
„...hrein og tær upplifun...
gjörsamlega geðveik mynd!“
K&F XFM
BLÓÐUG, BRÚTAL
OG BRILLIANT!
Sýnd kl. 2, 5, 6.30, 8, 9.30, 10.50 og 12.15 B.i 16 ÁRA
Sýnd kl. 3.30 og 10 B.i 10 ÁRA
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Frá leikstjóra Bourne Identity
Blaðið
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
x-fm
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 38.000 gestir
T O M C R U I S E
I N N R Á S I N E R H A F I N
MYND EFTIR Steven spielberg
„Innrásin er girnileg
Sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
„EKTA
STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
Sýnd kl. 3 (400 kr.), 8 og 10.20
B.i 14 ára
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
„Töff, kúl og eiturhörð“
Ó.Ö.H. DV –
„Töff, kúl og eiturhörð“
„. í heildina frábær ynd. “
„. hrein og tær upplifun.
gjörsamlega geðveik mynd!“
DÖJ kvikmyndir.com
, l i
... i t lif ...
j l i !
DÖJ kvikmyndir.com
„. í heildina frábær mynd. “
T.V. kvikmyndir.is
. .
... i li ...
j l i !
. . i i .i
i i .
„Svalasta mynd ársins og
besta mynd þessa sumars“
Þ.Þ. FBL. .
„Töff, kúl og eiturhörð“
Ó.Ö.H. DV –
, l i
. . .
„ ff, l it r r “
. . .
„Svalasta mynd ársins og
besta mynd þessa sumars“
Sýnd kl. 5.30 B.i 14 ára
„Skotheld frá A-Ö ----
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM „Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Blaðið
Sýnd kl. 1.45 m. ísl tali
„HOLLYWOOD í
ESSINU SÍNU“
-Blaðið
VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI - 23.000 GESTIR
RÚVR
kl. 3, 5.30, 8 og 10.30