Morgunblaðið - 09.07.2005, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
BAUGUR Group hefur staðfest að
fyrirtækið hafi ákveðið að hætta
þátttöku í fyrirtækjahópnum sem
átt hefur í viðræðum við versl-
anakeðjuna Somerfield varðandi
hugsanlegt tilboð í félagið. Kom
þetta fram í tilkynningu frá fyr-
irtækinu sem send var út í gær-
kvöldi.
Þar segir að ákvörðunin hafi
verið tekin í þágu fyrirtækjahóps-
ins, aðila hans og hluthafa Somer-
field í kjölfar þess að ákærur hafi
verið birtar forstjóra Baugs og
fimm öðrum einstaklingum. Að
auki hafa Baugur og fyrirtækja-
hópurinn samið um að Baugur
selji öll hlutabréf sín í Somerfield
fyrir 190 pens hvern hlut til félags
undir stjórn Tchenguiz Family
Trust og að ljúki fyrirtækjahóp-
urinn yfirtöku á Somerfield muni
hann endurgreiða Baugi kostnað
sem fallið hefur á félagið vegna
vinnu við undirbúning hugsanlegr-
ar yfirtöku á Somerfield. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
gæti Baugur fengið um 3,5 millj-
arða króna hagnað út úr hlutafjár-
eign sinni í Somerfield miðað við
gengi bréfanna í dag.
Höldum ótrauðir áfram
„Þetta eru auðvitað mikil von-
brigði en undir þeim kringum-
stæðum sem þarna voru þá urðum
við að taka tillit til þeirra sjón-
armiða sem aðrir [fjárfestar í
hópnum] færðu fram,“ sagði
Hreinn Loftsson, stjórnarformað-
ur Baugs, í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. „Þrátt fyrir
þessi vonbrigði munum við halda
áfram ótrauðir og menn munu sjá
það fljótlega að það er engan bil-
bug að finna á fyrirtækinu. Þess
verður ekki langt að bíða að greint
verði frá athyglisverðum fjárfest-
ingum erlendis,“ sagði Hreinn en
vildi ekki tjá sig frekar um þær að
svo stöddu.
Baugur hættir við þátt-
töku í Somerfield-tilboði
Mikil vonbrigði, segir Hreinn
Loftsson, stjórnarformaður Baugs
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Baugsrannsóknin | 6
FJÁRFESTARNIR þrír sem ásamt
Baugi hafa átt í viðræðum um kaup
á verslanakeðjunni Somerfield
segja í fréttatilkynningu að Baugur
hafi ákveðið að draga sig út úr við-
ræðunum í kjölfar ákæra íslenskra
stjórnvalda á vissa einstaklinga í
þeim tilgangi að lágmarka truflun
fyrir fjárfestahópinn og hluthafa í
Somerfield. Þakka fjárfestarnir
Baugi fyrir fagmennsku og heið-
arleika í tengslum við þessar
„óheppilegu aðstæður“, líkt og það
er orðað.
„Síðustu mánuði höfum við feng-
ið tækifæri til að vinna náið með
Baugi og hefur framlag hans verið
dýrmætt fyrir fjárfestahópinn,“
segir í tilkynningunni.
Kemur fram að fjárfestarnir
þrír, Apax, Barclays Capital og R20
Limited, sem er ráðgjafi The
Tchenguiz Family Trust, muni
halda áfram vinnu við hugsanlegt
tilboð í Somerfield. Tekið er fram
að ekki sé hægt að segja með vissu
hvort tilboð sé væntanlegt.
Þakka Baugi
fagmennsku
BROTIST var inn í bíl í Reykjavík í
fyrrinótt sem var fullur af nesti og
sælgæti ætluðu knattspyrnustrákum
sem æfa með 7. flokki Víkings. Nestið
og sælgætið áttu að fara með strákun-
um upp á Akranes þar sem Lottómót-
ið í knattspyrnu fer fram nú um
helgina.
Þjófurinn eða þjófarnir gerðu sér
lítið fyrir og brutu rúðu bílsins, sem
var fyrir utan heimili í Hólmgarði í
Fossvogi. Þeir virtust engan áhuga
hafa á hljómflutningstækjum í bílnum
eða öðru þess háttar, heldur var nest-
ið það eina sem þeir tóku.
„Það var búið að fylla bílinn af
Prins póló, samlokum og gúmmíi sem
átti að notast yfir helgina en svo var
þetta straujað í nótt,“ segir Þorvaldur
Sveinsson, þjálfari 7. flokks. Hann
segir strákana hafa verið að vonum
svekkta eftir þjófnaðinn. Ekki er vit-
að hver eða hverjir voru að verki og
málið er í rannsókn lögreglu.
Sælgæti
stolið frá
Víkingum
FJÓRAR hrefnur höfðu
veiðst í gær, en þá voru bát-
arnir sem veiða vegna
hrefnurannsókna Hafrann-
sóknastofnunar allir í höfn
vegna brælu.
Það var Halldór Jónsson ÍS
sem veiddi fjórðu hrefnuna
og kom með hana að landi í
fyrrinótt. Fengurinn í það
skiptið var 7,64 m langur
hrefnutarfur og veiddist hann
á Vestfjarðamiðum, að sögn
Gísla Víkingssonar, verkefn-
isstjóra hvalarannsókna Haf-
rannsóknastofnunar.
Áður höfðu bátarnir fengið
hver um sig eina hrefnu. Auk
Halldórs Sigurðssonar ÍS fást
Dröfn RE og Njörður KO við
rannsóknaveiðar á hrefnu í
sumar.
Fjórar
hrefnur
veiddar
NÝJASTA afsprengi Boeing-
verksmiðjanna, breiðþota af gerð-
inni 777-200LR, flaug yfir Reykja-
vík í gær.
Þotan er langfleygasta farþega-
þota heims og mun geta flogið í
allt að 18 tíma án millilendingar.
Hún er þar með eina farþega-
flugvélin sem getur flogið í beinu
flugi milli nánast hvaða tveggja
borga sem er. Eftir flugið yfir
Reykjavík lenti hún á Keflavíkur-
flugvelli.
Þotunni flugu reynsluflugmenn
Boeing-verksmiðjanna og með í
för var hópur alþjóðlegra fjárfesta
og framámanna flugfélaga. Flug-
félagið Pakistan International
Airlines fær fyrstu eintök flugvél-
arinnar í janúar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Áhugasamir ljósmyndarar á jörðu niðri.
Risaþota á flugi
yfir Reykjavík
NOKKRIR mótmælendur við Kára-
hnjúka gengu inn í kynningar-
miðstöðina í Végarði í Fljótsdal í gær
og tóku allt kynningarefni sem þar
var og klipptu í sundur. Því næst
settu þeir upp borð fyrir utan mið-
stöðina þar sem mátti finna kynning-
arefni frá mótmælendunum. Töldu
mótmælendurnir að í bæklingunum
mætti finna ýmsar vafasamar fullyrð-
ingar um áhrif Kárahnjúkavirkjunar.
Sigurður Arnalds, talsmaður Lands-
virkjunar vegna Kárahnjúkavirkj-
unar, segir uppátækið hafa verið
óviðeigandi og kjánalegt. Hann segir
ekki verða gripið til sérstakra að-
gerða vegna þessa.
Að sögn Örnu Aspar Magnúsar-
dóttur, sem er ein af mótmælend-
unum, fóru um sjö manns í miðstöð-
ina. Þar spurðu þeir starfsmann
miðstöðvarinnar hvort að kynningar-
efnið væri ekki ókeypis sem var
reyndin. Allt kynningarefnið var tek-
ið, klippt niður og síðan sett í endur-
vinnslu. Arna sagði þetta hafa verið
gert í tilefni þess að í gær hafi verið
alþjóðlegur baráttudagur gegn gróð-
urhúsaáhrifum og veðurfarsbreyt-
ingum af völdum mengunar. „Við
fórum inn í upplýsingamiðstöð
Landsvirkjunar vegna tengsla
Landsvirkjunar við Alcoa og vegna
þess að rafmagn sem verður til af
virkjuninni hér fer eingöngu í mjög
mengandi þungaiðnað,“ segir Arna
og bætir því við að þetta hafi verið
friðsamleg aðgerð. Aðspurð segir
hún að í upplýsingabæklingum
Landsvirkjunar sé að finna afar vafa-
samar fullyrðingar, t.d. um endurnýt-
anlega græna orku, sem mótmælend-
urnir taki ekki trúanlegar. Þá hafi
auk þess vantað allar upplýsingar um
umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkj-
unar.
Sigurður segir hópinn ekki einungis
hafa tekið kynningarefni frá Lands-
virkjun heldur líka efni frá öðrum,
t.d. Menningarsetrinu í Skriðu-
klaustri.
Mótmælendur klipptu og
fleygðu kynningarefni
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Végarður í Fljótsdal.
Óviðeigandi og kjánalegt, segir talsmaður Landsvirkjunar
TVEIR Svíar, þeir Lars Carls-
son og Jonas Eklund, hyggjast
í sumar klífa hæstu fjallstinda
á Norðurlöndunum fimm,
þeirra á meðal Hvannadals-
hnjúk.
Leiðangurinn hefst hinn 13.
júlí á hæsta fjallstindi Svía,
Kebnekaise, 2.114 m háum. Þá
verður hæsti tindur Finnlands,
Halti, sem er 1.328 metrar,
klifinn. Því næst er það Mölle-
höj í Danmörku, 170,86 metrar.
Næstur í röðinni er svo hæsti
fjallstindur á Norðurlöndum,
Galdhöpiggen í Noregi, sem er
2.469 m. Lokaatlagan verður
svo gerð 19. júlí að Hvanna-
dalshnjúk sem er 2.111 metrar.
Hægt er að fylgjast með ferða-
laginu á www.toppturen.se.
Ætla að
klífa hæstu
tinda Norð-
urlanda