Morgunblaðið - 17.08.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 220. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Íslenski lopinn
í uppáhaldi
Dóra hefur hannað og prjónað
frá unga aldri | Daglegt líf 18
Úr verinu og Íþróttir í dag
GÖRAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, stefnir að því nú í haust að
lækka verulega skatta á áfengi eða
um allt að því 40%. Sá hængur er þó á
þessari fyrirætlan, að Vinstriflokk-
urinn, sem styður stjórn Perssons á
þingi, er henni algerlega andvígur.
Í viðtali við Svenska Dagbladet
sagði Persson óhjákvæmilegt að
bregðast við þeirri staðreynd, að
áfengisverð í Svíþjóð er miklu hærra
en í nágrannalöndunum að Noregi
einum undanskildum. Það hefur aft-
ur leitt til mikils áfengissmygls auk
þess sem lögleg áfengisinnkaup Svía
í Danmörku og á meginlandinu
aukast stöðugt. Ekki er vitað hver
skattalækkunin verður en talað er
um 40% á sterku víni og 30% á léttum
vínum og öli. Myndi þetta þýða, svo
dæmi séu tekin, að flaska af Absolut-
vodka færi úr 1.930 ísl. kr. í 1.350.
Vill lækka
skatta á áfengi
MÖRGUM landsmönnum hefur ef-
laust brugðið í brún og talið
haustið skollið á þegar risið var
úr rekkju í gærmorgun og grámi,
rok og rigning blasti við utan-
dyra. Þótti mönnum haustkoman
heldur ótímabær um miðjan
ágúst. „Við vorum að ræða þetta á
veðurstofunni og komumst að
þeirri niðurstöðu að þetta væri
ekki haustið, heldur fremur síð-
sumarslægð, sem mun fara hjá,“
segir Þór Jakobsson veðurfræð-
ingur. „Það er ekki komið að haust-
inu ennþá, þótt búast megi við
vætutíð þessa vikuna. En það er
ekki öll nótt úti enn og ekki sum-
arið heldur. Auðvitað er athygl-
isvert þegar svona hvassviðri verð-
ur á þessum árstíma, en það var
samt ágætlega hlýtt. Þetta var því
að okkar mati aðeins tímabundinn
afturkippur í sumarið. Landsmenn
munu sjá sólina að nýju.“
Morgunblaðið/RAX
Tímabundinn aftur-
kippur í sumarið
ÞEIR sex sem ákærðir eru í Baugs-
málinu verða spurðir að því af dóm-
ara hvort þeir játi eða neiti þeim sök-
um sem á þá eru bornar við
þingfestingu í Héraðsdómi Reykja-
víkur kl. 13.30 í dag, en þá verður
málið þingfest fyrir dómnum.
Ákærðu hafa allir lýst því opinber-
lega yfir að þeir neiti sök.
Dómurinn verður fjölskipaður,
dómstjóri er Pétur Guðgeirsson hér-
aðsdómari, og kemur í ljós í dag
hvaða tveir dómarar sitja með hon-
um í dómi. Allir hinir ákærðu hafa
verið boðaðir til að mæta í þingfest-
inguna, en þeir eru Jóhannes Jóns-
son, Jón Ásgeir Jóhannesson, Krist-
ín Jóhannesdóttir, Tryggvi Jónsson,
Stefán Hilmar Hilmarsson og Anna
Þórðardóttir.
Málsskjölin í Baugsmálinu eru
gríðarlega umfangsmikil, eða um 20
þúsund síður. Þau verða þó ekki gerð
opinber, og samkvæmt upplýsinga-
lögum verður ekki heimilt að gera
þau aðgengileg fyrr en 80 ár eru liðin
frá því þau urðu til. Hinir ákærðu
geta þó gefið leyfi til þess að fara yfir
skjölin, en þá þurfa allir sem ákærðir
eru að gefa leyfi sitt fyrir því.
Málsskjölin ekki afhent
Hjá Héraðsdómi Reykjavíkur
fengust þær upplýsingar að máls-
skjöl yrðu afhent þeim sem hefðu
lögvarða hagsmuni, þ.e. fulltrúum
ákæruvaldsins og sakborningum,
eða umboðsmönnum þeirra. Emb-
ætti ríkislögreglustjóra hefur enn-
fremur staðfest við Morgunblaðið að
embættið muni ekki afhenda máls-
skjölin öðrum en þeim sem lögvarða
hagsmuni hafa í málinu.
Stjórn Baugs leitaði til bresks lög-
fræðifyrirtækis eftir að ákærurnar
voru birtar, og verða niðurstöður út-
tektar lögfræðinganna kynntar á
fundi með fjölmiðlum í dag.
Baugsmálið
þingfest í dag
í héraðsdómi
Þingfest í Baugsmálinu | 11
FARÞEGAÞOTA flugfélagsins
West Caribbean Airways fórst í
afskekktu fjalllendi í Venesúela
snemma í gærmorgun að staðar-
tíma, nálægt landamærunum að
Kólumbíu. 160 manns voru um
borð í vélinni og biðu allir bana.
Flugvélin var á leiðinni frá Pan-
ama til eyjunnar Martinique í Kar-
íbahafi, sem lýtur franskri stjórn.
Allir farþegar vélarinnar voru
franskir ríkisborgarar á heimleið
en átta manna áhöfnin var frá Kól-
umbíu. Flugvélin var af gerðinni
McDonnell-Douglas MD-82 en um
var að ræða annað slysið sem flug-
vélar West Caribbean lenda í á
fimm mánuðum, í mars dóu átta
þegar lítil flugvél þess fórst
skömmu eftir flugtak í Kólumbíu.
West Caribbean er lággjalda-
flugfélag með aðsetur í Medellin í
Kólumbíu. Flugfélagið átti þrjár
farþegaþotur af gerðinni MD-82,
að meðtalinni þeirri sem fórst í
gær, og tvær MD-81. Þá á félagið
nokkrar minni flugvélar.
Jesse Chacon, innanríkisráð-
herra Venesúela, sagði að flug-
maður vélarinnar hefði tilkynnt
bilun í öðrum hreyfli hennar og
farið fram á heimild til að lenda
vélinni á Maracaibo-flugvelli í
Venesúela. En skömmu síðar bil-
aði einnig hinn hreyfillinn og tók
þá flugvélin að hrapa hratt til jarð-
ar. Lenti hún í Sierra de Perija-
fjalllendinu og sögðust íbúar bæj-
arins Machiques, um 830 km vest-
ur af Caracas, hafa séð mikla
sprengingu verða.
Miklar rigningar voru sagðar
hamla starfi björgunarsveita á
vettvangi í gær, sem og sú stað-
reynd að landið á þessum slóðum
er erfitt yfirferðar. Þó var búið að
finna einn af flugritum vélarinnar í
gærkvöldi.
Flugslysið í Venesúela kemur
aðeins tveimur dögum eftir að
kýpversk flugvél fórst skammt frá
Aþenu í Grikklandi á sunnudag,
með þeim afleiðingum að 121 beið
bana.
160 fórust í flug-
slysi í Venesúela
! "#
$
% &
'#
&
'
()&
*)*+,*-
!.-/&01
$ 2
"3
%
&4
%5
#
%
#
$
36
2"
7 2
#
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Sögð hafa orðið | 14
Neve Dekalim. AFP, AP. | Íbúar gyð-
ingabyggðanna á Gaza streymdu frá
svæðinu í nótt eftir að frestur, sem
þeim hafði verið veittur til að yfir-
gefa heimili sín sjálfviljugir, rann út.
Í öfuga átt fóru ísraelskar öryggis-
sveitir sem áttu að fjarlægja með
valdi þá sem aftaka með öllu að
hverfa frá heimilum sínum.
Ekki var í gærkvöldi gert ráð fyrir
því að hermenn létu til skarar skríða
gegn þeim allra hörðustu, sem
hvergi vilja fara, fyrr en hugsanlega
við sólarupprás í dag. Fyrir liggur þó
að þeir verða færðir á brott með
valdi, fari þeir ekki sjálfviljugir.
Ísraelsk stjórnvöld hafa ákveðið
að öllum gyðingabyggðum á Gaza
skuli lokað. Ríflega átta þúsund gyð-
ingar bjuggu á Gaza, innan um 1,4
milljónir Palestínumanna, og í gær-
kvöldi höfðu flestir haft sig á brott.
En herinn mætti harðri mótspyrnu á
nokkrum stöðum, m.a. í stærstu gyð-
ingabyggðinni í Neve Dekali, en
harðlínumenn er ferðast höfðu frá
Ísrael höfðu tekið sér stöðu með íbú-
unum þar. Kastaði fólkið eggjum og
grjóti að hermönnunum og hrópaði
að þeim ókvæðisorð. Aðrir grétu.
„Skiljið þið ekki að þetta er stríðs-
glæpur? Við munum ekki fyrirgefa
þetta og aldrei gleyma þessu,“ hróp-
aði einn úr gjallarhorni.
Mættu harðri mótspyrnu
Ljúka á lokun gyðingabyggða á Gaza í dag
Fimmtíu ísraelskir | 14
Úr verinu | Minni fiskafli Meiri toghraði Íslenskt hráefni á lúxushót-
elum Umskipað norður í höfum Íþróttir | Handboltastrákarnir unnu Kongó
Sigur í körfu gegn Hollandi Landsleikur í knattspyrnu gegn S-Afríku