Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 20
Blönduós | Hundurinn Nonni er trúlega orðinn þreyttur á umhleypingum undanfarinna daga eins og mannfólkið. Hann er þó háður þeim sem heldur í spottann hverju sinni og varð því að gera sér að góðu að bíða þess að handhafi spottans lyki erindum sínum í pósthúsinu og héldi áfram á heilsubótargöngunni um bæ- inn. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hundspott í spotta Bið Akureyri | Höfuðborgin | Suðurnes | Árborgarsvæðið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Sameiningarkosningar sem fram fara um landið þvert og endilangt eru líka á ferðinni hér í Grundarfirði. Grundfirð- ingar þurfa að gera upp hug sinn hvort þeir vilja sameinast nágrönnum sínum hér á Snæfellsnesi. Afstaða fólks er nokkuð á reiki en þegar menn eru spurðir út í af- stöðu til sameiningar, segja þeir nær und- antekningarlaust. „Við þurfum að samein- ast en bara ekki núna.“ Hinn almenni íbúi kvartar yfir því að lítil umræða hafi farið fram um það hvernig málum verði háttað í sameinuðu Snæfellsnesi en skýring á því kemur þá gjarna í næstu setningu og hún liggur í því að sveitarstjórnarmenn hér hafi ákveðið fyrr á árinu að sameining væri ekki tímabær. Og eftir höfðinu dansa limirnir líklega að þessu sinni.    Rökkrið færist yfir jafnt og þétt og skammdegið hvetur fólk til dáða á menn- ingarsviðinu. Á haustdögum á síðasta ári var hleypt af stokkunum í Grundarfirði svokölluðum „Rökkurdögum“ með menn- ingarviðburðum í heila viku. Þetta þótti takast það vel að blásið er til áframhalds um næstu mánaðamót. Bæjarbúar hafa verið hvattir til þess að leggja sitt af mörkum og troða upp með hvers konar menningartengda viðburði. Fram- kvæmdastjóri Rökkurdaga hefur verið ráðinn og hefur víst ekki undan að skrá niður þau atriði sem fólk vill koma á framfæri við hina íbúana. Hinn almenni menningarneytandi í Grundarfirði bíður nú spenntur eftir að sjá hvernig hann geti notið stanslausrar menningar í heila rökk- urviku.    Húsnæðiseklu bar á góma í síðasta bæj- arlífspistli en þar virðist nú hilla undir góða úrlausn og bæjarstjórinn getur nú andað léttar, því á síðustu sex vikum hef- ur verið úthlutað og endurúthlutað 17 lóð- um fyrir 20–23 íbúðir. Þar af eru 14 lóðir til byggingaverktaka sem ýmist eru byrj- aðir framkvæmdir eða eru að byrja. Með þeim íbúðum sem eru í byggingu má reikna með fjölgun upp á 30–40 íbúðir á næstunni. Komist allar þessar íbúðir í gagnið á næsta og þarnæsta ári má fjölga hér í Grundarfirði um 100–150 nýja íbúa. Reyndar kom í ljós 1. október mitt í allri húsnæðiseklunni að hér hafði íbúum fjölg- að um 26, fyrstu níu mánuði ársins en þar af fæddust aðeins 7 börn en 19 voru að- fluttir fram yfir brottflutta. Þannig að spyrja má hvort ekki þurfi að efna til ást- arviku í tengslum við rökkurdagana að þessu sinni svo fjölga megi barnsfæð- ingum á næsta ári. Úr bæjarlífinu GRUNDARFJÖRÐUR EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON FRÉTTARITARA björgu Emilsdóttur. Þá afhenti hann Geislanum að gjöf tuttugu knetti og skól- anum tvo. Vígslan fór fram í blíðskap- arveðri og á eftir léku allir nemendur skólans knattspyrnu í þremur aldurs- flokkum. Sparkvöllurvar nýlegavígður við Grunnskólann á Hólmavík. Eyjólfur Sverrisson heim- sótti Hólmavík af þessu tilefni en hann hefur farið víða um land og vígt sparkvelli að undanförnu. Að sögn Eyjólfs er lok- ið við eða fram- kvæmdir langt komnar við þá 63 sparkvelli sem reistir verða í þessu átaki. Segist hann von- ast til að átakinu verði haldið áfram, enda sé þegar komin góð reynsla á þá velli sem farið er að nota. Eyjólfur klippti á borða á vellinum ásamt þjálfurum Geislans á Hólmavík, þeim Bjarna Ómari Haraldssyni og Ingi- Morgunblaðið/Kristín Einarsdóttir Sparkvöllur vígður Davíð Hjálmar Har-aldsson yrkir umóhapp borgar- stjóra, sem missti kjötsax á fótinn á sér: Steinunn Valdís, sterk og kná, stundar lítt að væla. Aflimar sem óðast má Akkillesarhæla. Sigrún Haraldsdóttir yrk- ir af sama tilefni: Um óþægindi ekki er spurt af þá höggið ríður, og Steinunn Valdís voguð burt vankantana sníður. Og Hákon Aðalsteinsson: Til að búa betri heim bæta margan þrælinn, á að höggva undan þeim Akkilesarhælinn. Við þessa iðju rifjast upp vísa Davíðs Hjálmars: Dómari er Drottinn strangur, dæmi fyrir löngu gaf. Fannst þá Denni fingralangur, fremstu kjúkur tók því af. Óhapp borgarstjóra pebl@mbl.is Kópavogur | Bæjaryfirvöld í Kópavogi undirrituðu í gær samning við Símann um uppbyggingu sjónvarps í gegnum ADSL- kerfi í bænum. Bæjarstjóri segir að meðal nýjunga sem fyrirhugaðar séu sé ný sjón- varpsstöð sérstaklega fyrir Kópavogsbúa. „Við erum að færa Kópavogsbúum að- gang að bestu fjarskiptaupplýsingakerfum sem eru fáanleg, bæði í nútíð og framtíð,“ sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri á fundi með fjölmiðlafólki í gær þar sem samningurinn var kynntur. Í þessu felst að tengingar Símans verða nýttar til þess að flytja stafrænt sjónvarp og bjóða upp á há- hraða netaðgang. Opnar það möguleika á kaupum á kvikmyndum og sjónvarpsþátt- um sem hlaðið er beint niður í sjónvarpið. Gunnar segir að þessi tækni gefi mögu- leika á því að bæjarfélagið starfræki sjón- varpsstöð þar sem hægt verði að nálgast upplýsingar um það sem er á döfunni í bæj- arfélaginu. „Við getum sent út efni til bæj- arbúa á númeraðri rás, við getum sent út það sem er að gerast í salnum, í íþróttum og annað. Ég sé fyrir mér í framtíðinni að menn geti verið með lykilorð, og farið þangað inn og fengið ýmsar upplýsingar um sjálfa sig, hvað þeir skulda, hvernig þeirra mál fara í kerfinu og þessháttar. Þetta er alger bylting í aðgengi hins al- menna íbúa inn í bæjarkerfið.“ Spurður hvers vegna þessi uppbygging ætti sér ekki frekar stað á vef bæjarfélags- ins, eins og gert hefur verið í Garðabæ, sagði Gunnar að sá möguleiki sé einnig til staðar. „En ég er alveg klár á því að þetta mun verða framtíðin.“ Þarf ekki að grafa skurði Gunnar segir lykilatriðið í þessari upp- byggingu að ekki verði grafinn einn einasti metri af skurðum, og vísaði þar til ljósleið- aravæðingar Orkuveitu Reykjavíkur í Reykjavík, á Seltjarnarnesi og Akranesi, þar sem víðast þarf að grafa heim að hús- um til að koma ljósleiðurum í öll hús, með tilheyrandi raski. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, sagði uppbygginguna í Kópavogi forsmekk að því sem koma skuli á höfuðborgarsvæð- inu og víðar. Síðar í mánuðinum segir Brynjólfur að verði kynnt svokallað gagn- virkt sjónvarp, þar sem notendum gefst kostur á því að velja sér myndir og sjón- varpsþætti til að horfa á, einhverja án end- urgjalds, svo sem fréttir og Kastljós Sjón- varpsins, en aðra með misháu endurgjaldi fyrir áhorf, svo sem kvikmyndir. Morgunblaðið/Ásdís Bæjarstjórinn og forstjórinn handsöluðu samning um stafrænar útsendingar. Samið um gagn- virkt sjónvarp AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.