Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 56
ÖNNUR Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík efnir til sýningar á kvikmyndinni Network frá árinu 1976 og umræðna á eftir í samvinnu við Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna. Sýningin hefst í Tjarnarbíói klukkan 19 í kvöld og stendur sýning hennar ásamt umræðum til um klukkan 22. Í pallborðsumræðum taka þátt Þorsteinn J. dag- skrárgerðarmaður, María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttamaður á Sjónvarpinu og mastersnemi í fjöl- miðlafræði, Þorbjörn Broddason, prófessor við HÍ, Jóhann Hauksson, blaðamaður á Fréttablaðinu, og Heiða Jóhannsdóttir, frá Alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðinni. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Verðlaunamyndin Network eða Sjónvarpsstöðin er af mörgum talin til helstu meistaraverka 8. ára- tugarins en hún fjallar um þróunina í sjónvarps- fréttamennsku á tímum fyrirtækjasamsteypa og hnattvæðingar, aukna afþreyingarvæðingu frétta og söluvænleika veruleikasjónvarps, langt á undan sínum samtíma. Í myndinni er skyggnst inn í heim sjónvarpsfréttamennsku en þar segir af umbreyt- ingartímum á sjónvarpsfréttastöðinni UBS þar sem ólík viðhorf til hlutverks fréttamennsku takast á. Kvikmyndir | Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík Network sýnd og rædd FRANSKI leikstjórinn Olivier Assays mun því miðurekki geta verið viðstaddur sýningu á nýjustu mynd hans, Hrein (Clean) í kvöld. Hátíðinni bárust þau skilaboð í gær að Assays væri veikur og gæti þess vegna ekki verið viðstaddur sýninguna. Kvikmyndin Pelikanmaðurinn verður sýnd í dag kl. 15 í Tjarnarbíói. Aðalleikari myndarinnar, Kari Ketonen, verður viðstaddur og svarar spurningum og skemmtir börnunum. Felix Bergsson mun kynna Kari og vera með skemmtiatriði. Aðgangseyrir handa börn- um undir 12 ára aldri er einungis 200 krónur. Auk þess fá öll börn sælgæti frá Nóa Síríus. Bernd Ogrodnik, yfirbrúðumeistari kvikmyndarinn- ar Strengir (Strings), verður viðstaddur sýningu myndarinnar í kvöld kl. 20 í Háskólabíói. Kvikmyndina 06/05 eftir hollenska kvikmyndagerð- armanninn Theo van Gogh verður sýnd á AKR í dag kl. 17 í Regnboganum. Að sýningunni lokinni verður framleiðanda myndarinnar, Gijs van de Westelaken, afhent viðurkenning í þágu tjáningarfrelsisins, en leikstjórinn Theo van Gogh var myrtur í nóvember á síðasta ári af íslömskum öfgamanni. Halla Gunn- arsdóttir blaðamaður mun stýra umræðum að sýningu lokinni. Gestir á AKR í dag www.filmfest.is 56 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ LANGT inni í senegalskri sveit býr lítið samfélag í leirkofum með strá- þökum. Skjaldbökurnar vappa um og fara sér hægt, geitur og kiðlingar leita að æti í götusundum. Helj- armikil mauraþúfa sperrir sig marg- arma til himins gegnt moskunni, reisulegustu byggingunni á svæð- inu. Þessi ólíku sköpunarverk eru táknræn fyrir langvarandi og frið- sæla sambúð mannsins og nátt- úrnnar. Kaupmaðurinn á horninu býður varning sinn til sölu, blíðmáll og stimamjúkur við þorpskonurnar sem bera sig vel í litríkum klæðum. Karlarnir eru sjálfsagt úti á akr- inum að þreskja kornið. Undir kyrrláta yfirbragðinu hafa magnast harðsnúnar deilur. Konur, undir forystu Colle (Coulibaly), vilja afnema umskurð á stúlkum og hefur hún skapað friðhelgi umhverfis hús- ið sitt, órjúfanlega samkvæmt æva- fornum siðum. Í griðlandið hennar Colle hafa flúið nokkrar stúlkur og sitja þar sem fastast ásamt dóttur hennar. Í hinum hópnum eru þær sem vilja viðhalda kennisetningum Kóransins. Þeir sem stjórna bænum eru einungis karlmenn í öldunga- ráðinu og þeim er lítið skemmt. Moolaadé er einhver kraftmesta mynd um samstöðu kvenna og sam- takamátt. Umskurður á stúlkubörn- um er svívirða sem múslimar hafa lagt af í flestum löndum öðrum en í Afríku sunnan Sahara, þar sem aft- urhaldsöm karlaveldi ríghalda í ófögnuðinn. Íhaldssemi karlpeningsins kemur einnig fram í tilskipun þorpshöfð- ingjans um að öllum útvarpstækj- umm verði varpað á brennu og hún verður ekki til að lægja öldurnar. Sembene flytur okkur inn í fram- andi veröld á viðeigandi hátt, frá- sagnarmátinn og samtölin eru óvenjuleg og samkvæmt fornum hefðum þjóðflokksins. Coulibaly er fremst leikaranna sem hin nútíma- lega byltingarkona, Colle. Karlarnir sem fara með stærstu hlutverkin eru þéttir fyrir, engu líkara en þeir séu að spinna frammi fyrir mynda- vélunum, og hafi gert það áður. Verk á borð við Moolaadé eru ósviknar hátíðamyndir. Hún er ekki gerð til þess að taka inn auðævi heldur að vekja eftirtekt á mik- ilvægu innihaldinu. Framandi, ljóð- ræn og beitt í senn og kemur örugg- lega að notum sem vopn í baráttunni gegn kúgun og málsvari jafnréttis. Konur gegn kúgun KVIKMYNDIR Háskólabíó: AKR 2005 Leikstjóri: Ousmane Sembene. Aðalleik- endur: Fatoumata Coulibaly, Maimouna Hélène Diarr, Salimata Traoré. 120 mín. Senegal. 2004. Moolaadé  Sæbjörn Valdimarsson Moolaadé er kraftmikil mynd um samstöðu kvenna og samtakamátt. AÐDÁENDUR George Michael hljóta að vera kátir um þessar mundir. Í heimildarmyndinni um hann sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni í Reykjavík kemur hann til dyranna eins og hann er klæddur, oft drep- fyndinn og að því er virðist algerlega hreinskilinn. Hann tjáir sig um líf sitt og dregur fátt undan; við fáum t.d. að heyra hans hlið á því þegar löggan í Los Angeles hirti hann fyrir ósæmilega hegðun á almenn- ingsklósetti og hann segir líka frá sambandi sínu við Anselmo Feleppa, sem dó úr AIDS árið 1992. Svo er auðvitað allskonar fróðleikur um bernskuna og upp- vaxtarárin í London, um Wham! sem var einhver vin- sælasta popphljómsveitin á sínum tíma og margt, margt fleira. Nokkrir frægir félagar popparans koma fram, þar á meðal Elton John, sem segir: „Að koma út úr skápn- um með því að vera handtekinn á almenningsklósetti er ekki besta leiðin til að koma út úr skápnum.“ Svo sem fyrr var greint frá er Michael blátt áfram og hann gerir lítið úr sjálfum sér frekar en hitt. Það er undirstrikað með brotum úr ótal tónlistar- myndböndum frá níunda áratugnum, og þau eru að sjálfsögðu skelfilega hallærisleg, enda skelltu áhorf- endur upp úr í Háskólabíói á laugardaginn þegar myndin var sýnd. George Michael: A Different Story er einstök, fag- Drepfyndinn George Michael KVIKMYNDIR Háskólabíó: AKR 2005 Leikstjórn: Southan Morris. 95 mínútur. Bretland 2005. George Michael: A Different Story  Reuters George Michael kemur „til dyranna eins og hann er klæddur, oft drepfyndinn og algerlega hreinskilinn.“ Jónas Sen mannlega unnin heimildarmynd um eina mestu popp- stjörnu sögunnar og óhætt er að fullyrða að hún sé einn af hápunktum hátíðarinnar. Regnboginn kl. 17:00 Laugardaginn 8. október Í þágu tjáningarfrelsis www.filmfest.is NÝR BÚNAÐUR Í TJARNARBÍÓI Hollenski kvikmyndagerðarmaðurinn Theo van Gogh var myrtur í fyrra fyrir skoðanir sínar. Við sýnum síðasta verk hans – 06/05 – í dag og veitum framleiðanda myndarinnar viðurkenningu í minningu van Goghs og í þágu tjáningarfrelsis. Háskólabíó 15:40 Töfrakastali Howls 16:00 Hvar er heimili vinarins? 18:00 Nágrannar 20:00 Strengir 22:00 Hrein Regnboginn 16:00 Postulínsbrúðan 17:00 06 / 05, sjötti maí 18:00 Skjaldbökur geta flogið 18:00 Fullkominn dagur 20:00 Sumarást 22:00 Rekkjusögur Tjarnarbíó 15:00 Pelikanmaðurinn 17:00 Fædd í vændi 19:00 Sjónvarpsstöðin 22:00 Dauði hr. Lazarescu Upplýsingar og skráning í símum 863 0611 / 863 0610 og/eða á www.upledger.is • Á þessu byrjendanámskeiði verður kennd höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, s.s. líffærafræði höfuðbeina og hryggs, hlutverk mænuvökvans, hvernig á að skynja taktinn í mænuvökvanum, stöðva hann og lesa í viðbrögð líkamans. Fjallað verður um bandvefskerfi líkamans og kennt hvernig losað er um spennu í því. Kennt verður hvernig höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfið starfar. Kenndar verða aðferðir til að losa um höfuðbein og spjaldbein. Byrjendanámskeið (CSTI) á Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð verður haldið dagana 13.-16. nóv. 2005 á RadissonSAS Hótel Sögu. Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð Verð krónur 71.000.- Innifalin er vinnubók, hádegismatur og kaffiveitingar. Hlíðarási 5, 270 Mofellsbæ • Sími 466 3090 • info@upledger.is • www.upledger.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.