Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARFUMRÆÐAN
EFTIR að verkefnisstjórn Samtaka
sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar
lagði fram tillögur sínar um þau
sveitarfélög sem sameina skyldi kusu
sveitarstjórnirnar á Snæfellsnesi full-
trúa í sameiningarnefnd. Þeirri nefnd
var falið að vega og meta kosti og
galla sameiningar hér á Snæfellsnesi.
Er niðurstöður sameiningarnefndar
lágu fyrir og fengu umfjöllun og af-
greiðslu í bæjarstjórn Snæfellsbæjar
lögðust 5 af 7 bæjarfulltrúum gegn
kosningum sem vera áttu í apríl sl.
Lífdagar sameiningarnefndarinnar
voru þá lengdir og nefndin fengin til
að búa til kynningarefni og undirbúa
kosningar í dag, 8. október. Nefndin
sendi frá sér kynningarbækling sem
er ágætur miðað við það andrúmsloft
sem hann var skapaður í. Fundir
voru boðaðir á fjórum stöðum á svæð-
inu og efni bæklingsins kynnt 23. og
24. sept. sl. Tími fyrir almenning til
að ræða þetta mikilsverða mál er því
mjög stuttur.
Fleiri atvinnutækifæri
Við sem undirritum þetta bréf erum
úr hópi Snæfellsbæinga sem eru á
þeirri skoðun að samþykkja beri
sameininguna í kosningunum í dag.
Þeir sem ekki vilja sameiningu núna
tala margir þannig, jafnvel bæj-
arstjórnarmenn, að auðvitað komi að
sameiningu seinna, það sé bara
spurning hvenær, jafnvel eftir 5, 10
eða 20 ár. Hér á eftir nefnum við
nokkur atriði sem við teljum að skipti
máli um að ákvörðun verði tekin
strax og að það séu líkur fyrir því að
við getum tapað ýmsu á því að bíða.
Það liggur ljóst fyrir að sveit-
arfélögunum verði boðið upp á að
taka við nokkrum verkefnum sem nú
eru í umsjá ríkisins. Þau sveitarfélög
sem verða valin til að taka við þeim
verkefnum verða að vera það öflug að
geta mætt kröfum nútímans um þjón-
ustu. Nú þegar hafa stór landsvæði
sameinast til að ná þessari stöðu. Má
þar t.d. nefna sveitarfélögin Borg-
arbyggð og Fjarðabyggð. Þessi staða
vinnst ekki hjá okkur með því að þrjú
sveitarfélög á svæðinu séu að togast á
um þessi verkefni. Sameining mun
því bæta búsetuskilyrði á öllu Snæ-
fellsnesi og skapa fleiri atvinnutæki-
færi.
Orkukostnaður
Á síðustu vikum hafa gerst atburðir
sem tengja hluta af Snæfellsnesi við
höfuðborgarsvæðið. Orkustofnun
Reykjavíkur hefur keypt Hita- og
vatnsveitu Stykkishólms og einnig
hitaréttindi í Grundarfirði og vatns-
veituna þar sem er til mikilla hags-
bóta fyrir íbúana. Áður var Orkuveit-
an búin að yfirtaka veitur á Akranesi
og í Borgarbyggð og samkvæmt síð-
ustu fréttum mun fyrirtækið leggja
ljósleiðara um þessa staði og til há-
skólanna í Borgarfirði.
Eftir undirskrift samninganna við
Grundarfjörð lét forustumaður Orku-
veitu Reykjavíkur þau orð falla í við-
tali við fréttamann að næst kæmi að
því að skoða það að koma heita vatn-
inu til Ólafsvíkur og Hellissands. Ef
sú hugmynd að leggja heitavatnslögn
frá Grundarfirði til Ólafsvíkur og
Hellissands gæti orðið að veruleika
myndi það ekki aðeins styrkja þétt-
býlið og bæta þar atvinnu- og búsetu-
skilyrði heldur auka mikið verðmæti
og nýtingarkosti þess lands þar sem
lögnin væri lögð um. Besta leiðin til
árangurs er að láta þessa hugmynd fá
brautargengi og að gera byggðirnar
á Snæfellsnesi að einu sveitarfélagi.
Til þess er nú tækifæri. Að sjálfsögðu
hvetjum við til frekari leitar eftir
heitu vatni í Snæfellsbæ.
Samgöngumál
Góðir áfangar hafa náðst í samgöngu-
málum okkar á síðustu árum. Enn
vantar þó að ljúka við að leggja nýjan
veg um Fróðárheiði með bundnu slit-
lagi. Öflugt og sameinað sveitarfélag
á Snæfellsnesi gæti beitt sér fyrir að
þeirri framkvæmd yrði flýtt.
Hafnirnar þrjár í Ólafsvík, Rifi og
Arnarstapa hafa allar verið í upp-
byggingu. Þó er svo komið að það má
kalla sérstakan viðburð ef flutn-
ingaskip kemur hér í höfn. Nú eru
hafnar umræður um að siglingar
muni hefjast um svokallaða norð-
urleið milli Austur-Asíu og Evrópu.
Ef af þessu verður er gert ráð fyrir
að umskipunarhafnir verði á Íslandi.
Það liggur vel við að í Breiðafirði
verði ein slík höfn. Umræða um þetta
málefni er þegar hafin hjá sveit-
arstjórnum bæði á Austfjörðum og
Vestfjörðum. Hér skiptir frumkvæði
og samstaða máli ef árangur á að
nást.
Dreifbýlið
Í dreifbýli sameinaðs Snæfellsness
verða miklir möguleikar á áframhald-
andi öflugri ferðaþjónustu og að land-
búnaður blómstri. Sú staðreynd, að á
minnsta kosti þremur stöðum sunnan
fjalla er að finna nýtanlegt heitt vatn,
gefur mikla möguleika til atvinnu-
sköpunar í ferðaþjónustu og landbún-
aði auk þess að vera hvati að annarri
atvinnuuppbyggingu í sveitunum.
Sameinuð getum við staðið betur
að framgangi þessara mála
Snæfellsbæingar. Við höfum nefnt
hér nokkur atriði sem tengjast fram-
tíð okkar byggðarlags og fleira mætti
nefna. Við teljum að til þess að nefnd-
ar hugmyndir verði að veruleika sé sú
leið líklegust til árangurs að stofna
eitt öflugt sveitarfélag á Snæfells-
nesi. Við hvetjum fólk til að mæta á
kjörstað og kjósa með sameiningu.
Styðjum lýðræðið og horfum til fram-
tíðar
F.h. áhugahóps um sameiningu
sveitarfélaga á Snæfellsnesi,
PÉTUR S. JÓHANNSSON,
DRÍFA SKÚLADÓTTIR,
KRISTJÁN ÞÓRÐARSON.
Horfum til framtíðar
á Snæfellsnesi
Frá Pétri S. Jóhannssyni,
Drífu Skúladóttur og
Kristjáni Þórðarsyni:
Morgunblaðið/Ingó
Snæfellsnes er einn þeirra staða þar sem kosið er um sameiningu sveitarfé-
laga í dag. Greinarhöfundar mæla með sameiningu.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Sameining sveitarfélaga
Fjölbreytt
vetrarstarf
Selfosskirkju hafið
VETRARSTARF Selfosskirkju hefst
að vanda nú á haustdögum. Dagskrá
safnaðarstarfsins í vetur verður
m.a. sem hér segir:
Almennar messur í Selfosskirkju
alla sunnudaga kl. 11. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu á eftir.
Barnaguðsþjónustur í lofti safn-
aðarheimilisins alla sunnudaga kl.
11.15. Þátttakendur geta komið kl.
11 og verið við upphaf messunnar í
kirkjunni, en líka er hægt að koma
kl. 11.15 og ganga þá um hliðardyr
safnaðarheimilis.
Morguntíðir með fyrirbænum eru
í kirkjunni þriðjudaga til föstudaga
kl. 10. Þá er einnig tekið við bæn-
arefnum. Kaffisopi á eftir.
Kvöldguðsþjónustur með léttri
tónlist verða haldnar í Selfosskirkju
og auglýstar sérstaklega. Þorvaldur
Halldórsson, söngvari, hefur veg og
vanda af tónlistinni.
Opin kirkja – Kyrrðarstundir.
Selfosskirkja er að öðru jöfnu opin
frá því kl. 9 virka daga og endra-
nær, á meðan starfsemi fer fram í
henni. Tilvalið er að koma í kirkjuna
og eiga þar kyrrðarstund.
Kvenfélag Selfosskirkju. Auk al-
menns félagsstarfs hefur kven-
félagið tekið að sér að annast um
léttan hádegisverð að lokinni messu-
gjörð í kirkjunni á sunnudögum. Þá
sér félagið um erfisdrykkjur, ef ósk-
að er, og kaffiveitingar við ýmis
tækifæri.
Fermingarstörfin í Selfosskirkju.
Fyrsti spurningatími vetrarins var
27. september síðast liðinn. Ferm-
ingar eru fyrirhugaðar, sem hér
segir: Pálmasunnudag 9. apríl, skír-
dag 13. apríl, annan í páskum 17.
apríl, 23. apríl, 30. apríl og 7. maí.
Athugið, að allar athafnirnar hefjast
kl. 11. Á næstunni verða haldnir
fundir með foreldrum ferming-
arbarna, og verða þeir auglýstir sér-
staklega.
Foreldramorgnar eru miðviku-
daga kl. 11–12. Boðið er upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmti-
legar og fræðandi samverustundir.
Kirkjuskóli fyrir börn á aldrinum
6 til 10 ára starfar í Félagsmiðstöð-
inni, Tryggvagötu 23, þriðjudaga kl.
14. Guðspjallið lesið, bænir, sögur
og söngvar, auk þess sem margt er
sér til gaman gert.
Æskulýðsfélag Selfosskirkju
heldur fundi í safnaðarheimilinu.
Starfið er ætlað fermingarbörnum
og þaðan af eldri unglingum.
Samkomur leikskólabarna og
grunnskólanema á aðventunni. Í
samráði við leikskóla Árborgar og
grunnskólana á Selfossi koma öll
leikskólabörn og grunnskólanem-
endur á aðventusamkomur í Selfoss-
kirkju í desember.
Eldri borgarar. Dagvistun aldr-
aðra kemur í heimsókn í kirkju og
safnaðarheimili fyrsta fimmtudag í
hverjum mánuði. Þá er helgistund í
kirkju, en skemmtidagskrá, sam-
söngur og kaffidrykkja í safn-
aðarheimili.
Guðsþjónustur á Ljósheimum og
Heilbrigðisstofnuninni á Selfossi.
Síðasta sunnudag í hverjum mánuði
yfir veturinn eru haldnar guðsþjón-
ustur á Ljósheimum kl. 14.30 og á
Heilbrigðisstofnuninni kl. 15.15.
Kirkjukór Selfoss syngur við
messur og aðrar athafnir í Selfoss-
kirkju. Hann er kór fullorðinna,
undir stjórn organistans, Glúms
Gylfasonar.
Barnakór Selfosskirkju starfar í
tveimur deildum. Í yngri deild eru
börn á aldrinum 8 til 10 ára, en í
hinni eldri 11 til 12 ára. Kórinn
syngur m.a. við guðsþjónustur á
sjúkrastofnununum. Stjórnandi er
Glúmur Gylfason.
Unglingakór Selfosskirkju. Í
kórnum eru 13 til 15 ára unglingar.
Kórinn syngur annað veifið við
messur. Stjórnandi er Stefán Þor-
leifsson.
Tólf spora námskeið. Námskeiðið
verður kynnt í safnaðarheimili mið-
vikudaginn 12. október næst kom-
andi kl. 20.
Hjónanámskeið á vegum Ár-
nesprófastsdæmis verður haldið í
Skálholti sunnudaginn 20. nóv-
ember og hefst námskeiðið á hádegi.
Geisli, félag um sorg og sorg-
arviðbrögð. Félagið mun starfa með
líku sniði og undanfarna vetur, en
þá voru haldnir fundir í lofti safn-
aðarheimilisins fyrsta þriðjudag í
mánuði kl. 20 og stóðu þeir yfirleitt í
rúma klukkustund.
Viðtalstímar prests og djákna.
Viðtalstími sóknarprests er þriðju-
daga til föstudaga kl. 10–13 og eftir
samkomulagi. Viðtalstími djákna er
þriðjudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 10–12 og eftir sam-
komulagi.
Haustmessa í
Krýsuvíkurkirkju
SUNNUDAGINN 9. október nk. kl.
14 fer hin árlega haustmessa fram í
Krýsuvíkurkirkju. Sætaferð verður
frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 13.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason, sókn-
arprestur Hafnarfjarðarkirkju,
messar. Svava Kristín Ingólfsdóttir,
sópran, verður forsöngvari og syng-
ur einsöng. Sveinn Sveinsson leikur
á þverflautu. Við lok messunnar
verður „Upprisa“ altaristafla kirkj-
unnar tekin ofan til vetrardvalar í
Hafnarfjarðarkirkju.
Eftir messuna er Sveinshús opið
en þar stendur enn yfir sýningin
„Fuglar í myndum“. Henni lýkur á
þessu hausti.
Á liðnu sumri voru tekin upp at-
riði í Krýsuvík fyrir stríðs-
kvikmyndina „Flags of our fathers“,
sem Clint Eastwood leikstýrir. Sú
kvikmyndataka setti mörk sín á um-
hverfið, en sökum árvekni og gagn-
rýni umhverfisvina urðu þau sem
betur fer minni en virtist stefna í
fyrr í sumar. Jafnframt var varað
við því að draga minningu skelfing-
aratburða síðari heimsstyrjaldar inn
í friðsæla náttúru og sögu Krýsuvík-
ur, þar sem kirkjan litla miðlaði
Guðsblessun yfir hrjóstrugt lands-
lag og mannlíf fyrri tíðar. Enn veitir
hún skjól og frið þeim sem til hennar
leita svo sem gestabækur hennar
vitna um er fyllast fljótt af þakk-
látum umsögnum erlendra og inn-
lendra ferðalanga. Og messa í
Krýsuvíkurkirkju reynist þeim dýr-
mæt og gefandi sem hana sækja.
Æðruleysimessa í
Hafnarfjarðarkirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 9. október
nk. kl. 20 fer fram æðruleysismessa í
Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Karl V.
Matthíasson, vímuefnavarnaprest-
ur, mun stýra henni ásamt sr. Gunn-
þóri Ingasyni, sóknarpresti Hafn-
arfjarðarkirkju. Hljómsveitin
Gleðigjafar sér um tónlistarflutning
á léttum og björtum nótum.
Þess er vænst að AA-menn, fjöl-
skyldur þeirra og velunnarar sæki
messuna en hún er öllum opin. Eftir
hana er opið hús í Ljósbroti Strand-
bergs þar sem hægt er að spjalla yf-
ir kaffibolla, kexi og kökum. Þrír
AA-hópar sækja vikulega fundi í
Vonarhöfn, safnaðarheimilisins
Strandbergs. Svo sem endranær fer
fram guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11
á sunnudagsmorguninn.
Fræðsla og messa
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 9. október kl. 10
hefst dagskrá dagsins í Hallgríms-
kirkju á fræðslumorgni sem verður í
umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar, en
hann mun ræða um starf ísl. kirkj-
unnar á erlendri grund. Kl. 11. verð-
ur messa og barnastarf. Sr. Sig-
urður Pálsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hró-
bjartssyni. Magnea Sverrisdóttir
djákni sér um barnastarfið. Hörður
Áskelsson verður organisti og stýrir
söng félaga úr Mótettukór Hall-
grímskirkju. Eftir messu verður
boðið upp á kaffisopa.
Þiðjudaginn 11. október verður
þriðji opni 12 spora fundurinn í Hall-
grímskirkju kl. 20, en fundirnir eru í
kórkjallara kirkjunnar, gengið inn
um austurdyr. Fyrstu fjórir fundir
vetrarins eru opnir, en eftir það er
ekki bætt inn í hópinn.
Opið hús
í Hallgrímskirkju
Í FYRRAVETUR buðum við fólki
sem komið er af léttasta skeiði til
samveru í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Efnið var menningarlegt,
fræðandi og vonandi oft skemmti-
legt. Í vetur verður haldið áfram á
sömu braut og boðum við nú til
fundar miðvikudaginn 12. október
kl. 14. Að þessu sinni mun Birna
Hjaltadóttir rifja upp minningar frá
Kúveit og sópransöngkonan Helga
Magnúsdóttir syngja einsöng.
Vetrarstarf
eldri borgara
í Háteigskirkju
VETRARSTARFIÐ fyrir eldri borg-
ara í Háteigskirkju er hafið. Fé-
lagsvist á mánudögum klukkan 13.
Kaffi, söngur og upplestur. Miðviku-
daga er fyrirbænastund klukkan 11,
súpa klukkan 12, brids klukkan
13.Allir velkomnir. Fimmtudaga
klukkan 13.30 eru Vinafundir í Setr-
inu kl. 14 alla fimmtudaga í október
og nóvember í umsjón séra Tómasar
og Þórdísar þjónustufulltrúa. Á
vinafundum hjálpast fólk við að
vekja upp gamlar og góðar minn-
ingar. Kaffi á eftir. Föstudaga er
bridsaðstoð frá klukkan 13 og kaffi.
Allar upplýsingar gefur Þórdís í
síma 511 5405.
Kirkjudagurinn
í Óháða söfnuðinum
Á MORGUN sunnudaginn 9. október
er Kirkjudagurinn í Óháða söfn-
uðinum kl. 14. Messan er fjöl-
skyldumessa, þar sem allir eru inni í
kirkjunni á meðan guðsþjónustan
varir. Verður leikræn boðmiðlun
höfð um hönd í guðsþjónustunni.
Á eftir verður kaffisala kven-
félagsins til styrktar starfinu, og eru
allir velkomnir í þessa fjölskyldu-
guðsþjónustu.
Kaffisala í
Kristniboðssalnum
ÁRLEG kaffisala Kristniboðsfélags
karla í Reykjavík verður í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut 58–60,
norðurenda og 3. hæð, sunnudaginn
9. október kl. 14–17. Karlarnir í fé-
laginu hafa lengi haft þann sið að
bjóða hverjum sem vill að kaupa
kaffi hjá sér og renna því – tesop-
anum eða gosdrykknum – niður með
gómsætum kökum og styðja um leið
málefnið. Allur ágóði af kaffisölunni
rennur til starfs Kristniboðs-
sambandsins í Eþíópíu, Kenýu og
Asíu. Fjórir kristniboðar eru við
störf í Eþíópíu og þrír í Kenýa.
Kvöldvaka í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið 9.
Morgunblaðið/KristinnSelfosskirkja.