Morgunblaðið - 08.10.2005, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Reykjavík | Fábrotið upphaf Starfs-
mannafélags Strætisvagna Reykja-
víkur, sem upphaflega var stofnað til
þess að strætisvagnabílstjórar hefðu
einhvern vettvang til að keppa við
önnur fyrirtæki í fótbolta, hefur ekki
hindrað félagið í því að vaxa og dafna
eftir því sem strætisvögnunum hefur
fjölgað, og fagnar félagið 70 ára af-
mæli sínu um þessar mundir, en það
var stofnað 12. október 1935.
Einhverjum kann að finnast það
undarlegt að enn sé starfandi félag
starfsmanna SVR, sem nú hefur verið
sameinað öðrum strætisvagnarekstri
á höfuðborgarsvæðinu undir merkj-
um Strætó bs., en Kjartan Pálm-
arsson, formaður Starfsmannafélags
SVR, segir að þrátt fyrir sameiningu
hafi starfsmannafélögin haldist að-
skilin, enda misjafnlega stödd að
mörgu leyti.
Félagið hefur í gegnum tíðina sinnt
ýmsum verkefnum í þágu fé-
lagsmanna. Í dag segir Kjartan að
áherslan sé t.d. lögð á ökuleikn-
iskeppnir strætisvagnabílstjóra, þar
sem félagsmenn hafa unnið sigur á
Norðurlandamótum undanfarin fjög-
ur ár. Fótboltinn er einnig sjaldnast
langt undan, og hafa strætóbílstjór-
arnir átt það til að sparka í tuðru í
gegnum tíðina. Þeir sem kjósa aðrar
íþróttir tefla gjarnan, og segir Kjart-
an að menn hittist reglulega til að
tefla, og fari jafnvel á mót erlendis.
Skíðaskálanum var stolið
Meðal fyrstu verkefna starfs-
mannafélagsins, eftir að búið var að
kaupa fótbolta, var að reisa skíða-
skála fyrir félagsmenn. Það gekk þó
ekki betur en svo að skálanum var
stolið í heilu lagi, og sást aldrei síðan.
Nútímalegri útfærsla af skálanum
hefur þó litið dagsins ljós, og sækja
félagsmenn stíft í sumarbústað sem
félagið á, sér í lagi eftir að heitur pott-
ur var settur upp á veröndinni.
Kjartan segir ekki ótrúlegt að
Starfsmannafélag SVR muni hætta
störfum fljótlega eftir 70 ára afmælið,
enda orðið löggilt gamalmenni ef út í
það sé farið. Talsverð pressa hefur
verið á félagið að breyta nafni sínu,
enda fyrirtækið Strætisvagnar
Reykjavíkur víst ekki lengur til.
Kjartan segir því ekki ólíklegt að
þetta tilefni verði notað til þess að
breyta nafni og merki félagsins, þó
félagsmenn séu upp til hópa fremur
íhaldssamir á þetta gamla nafn, og
merki SVR sem því fylgir.
Starfsmannafélag Strætisvagna Reykjavíkur fagnar 70 ára afmæli á þessu ári
Frá fótboltafélagi
að fullvöxnu
starfsmannafélagi
Morgunblaðið/Óli K. Magnússon
Breyttir tímar Strætisvagninn er vinnustaður vagnstjórans og ljóst að vinnuaðstaðan hefur batnað talsvert síðan
R-1001 ók um stræti borgarinnar, þó að eflaust hafi hann þótt mikill gæðagripur þegar hann var upp á sitt besta.
Karlastétt Þær voru ekki margar konurnar sem keyrðu strætó fyrr á ár-
um, þó að þær séu sannarlega að sækja í sig veðrið þessa dagana.
Allir með stræó Það hefur oft verið þröng á þingi í strætó, þó að vagnarnir
geti oft virkað ansi tómlegir þegar líður á kvöld og um helgar.
Reykjanesbær | Um 90 manns mættu á stofn-
fund áhugafélags um flutning innanlandsflugs-
ins til Keflavíkurflugvallar, sem haldinn var í
fyrrakvöld. Þegar hafa um 130 stofnfélagar
skráð sig í félagið, sem hefur fengið nafnið Flug-
kef, sem vísar í vef félagsins, www.flugkef.is.
Félagið ætlar að beita sér fyrir þjóðarsátt um
flutning innanlandsflugsins til Keflavíkur, m.a.
með því að láta gera úttekt á þeim kostum sem
eru í stöðunni til þess að stytta þann tíma sem
tekur að komast frá miðbæ Reykjavíkur til
Keflavíkurflugvallar, segir Viktor B. Kjartans-
son, stjórnarmaður í Flugkef.
Viktor segir mikinn áhuga á þessu máli á Suð-
urnesjunum, en félagið muni þó gæta þess að
fara ekki fram af offorsi heldur reyna frekar að
vinna landsbyggðarfólk og aðra á sitt band með
rökum. „Mönnum finnst undarlegt að tala um að
byggja nýjan flugvöll við Reykjavík í stað þess
að nýta þann sem fyrir er, og það skapar auðvit-
að áhuga á málinu á Suðurnesjum,“ segir Vikt-
or.
Niðurstöður á málþingi
Spurður hvernig eigi að stuðla að þjóðarsátt í
jafn umdeildu máli og þessu segir Viktor: „Við
ætlum að láta gera hagkvæmniathugun á nokkr-
um valkostum í samgöngubótum, því það sem
helst er gagnrýnt við þessa tillögu er tíminn sem
tekur að keyra úr miðbæ Reykjavíkur til Kefla-
víkur.“ Meðal þess sem verður kannað er mögu-
leiki á að leggja göng frá Vatnsmýrinni á Álfta-
nes, og svo önnur frá Álftanesi suður fyrir
Straumsvík. Einnig verður skoðað hverju breyt-
ir þegar Reykjanesbrautin verður að fullu orðin
tvöföld, alla leið að Sæbraut.
Þegar búið er að vinna úttektina er stefnt á að
halda málþing þar sem niðurstöðurnar verða
kynntar og hægt að skiptast á skoðunum. Þá
segir Viktor að reynt verði að svara spurningum
um áhrif á sjúkraflug, varaflugvöll o.fl. „Við vilj-
um reyna að leggja til raunhæfa tillögu og reyna
svo að vinna henni fylgi meðal landsmanna.“
Viktor segir að kostnaður við slíka úttekt sé
vissulega einhver, en reiknað sé með því að
safna framlögum frá fyrirtækjum og sveitar-
félögum á Suðurnesjum til að ná upp í kostnað.
Reiknað sé með að safna um 2 milljónum króna
til að byrja með og sjá hversu langt sú upphæð
nær.
Vilja þjóðarsátt
um innanlandsflug
í Keflavík
Ljósmynd/Víkurfréttir
Barátta Um 90 manns mættu á stofnfundinn í fyrrakvöld en 130 hafa gerst stofnfélagar.
Meira á mbl.is/ítarefni
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES