Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG Þ að var vaskur og spennt- ur átta manna hópur Ís- lendinga sem mætti ný- lega glaðbeittur út á Reykjavíkurflugvöll með veiðistangir og skotvopn í farangr- inum því nú skyldi stefnan tekin á Grænland þar sem áætlað var að verja næstu fimm dögum í silungs- og hreindýraveiði. Enginn í hópnum, utan hins þaulvana leiðsögumanns Gunnars Óla Hákonarsonar, hafði áður upplifað veiðiferð til Græn- lands, en samkvæmt ferðalýsingu átti, eftir lendingu í Narsarsuaq, að sigla til Isortoq Reindeer Station, höfuðstöðva hreindýrabóndans Stef- áns Magnússonar. Til að gera langa sögu stutta beið mjög „breytt“ ferðaplan hópsins við lendingu á Grænlandi því í stað þess að fara til Isortoq var siglt með hóp- inn til Marraq þar sem honum var skutlað í land. Frá fjöruborðinu beið fjallganga ferðalanganna yfir í næsta dal, að sjálfsögðu með allan farang- urinn og það í rigningu. Er komið var að því sem átti að heita gistiað- staða, mátti heyra saumnál detta þar sem menn misstu skyndilega málið eitt andartak. Þarna stóð hrörlegur kofi, sem hélt hvorki vatni né vindum og hafði hvorki rennandi vatn, sal- ernisaðstöðu né rafmagn upp á að bjóða. Kofa þessum mun hafa verið klambrað saman fyrir einum 40 ár- um, en þangað hafði ekki nokkur sála komið í heilt ár fyrir utan hin ýmsu skordýr, sem nóg var af og hreinsa þurfti út áður en nýir íbúar flyttu inn. Fljótlega fékk kofinn viðurnefnið „Hótel helvíti“. Þar sem kofinn var lítill og rúmaði ekki allan hópinn, var brugðið á það ráð að slá upp lappa- tjaldi fyrir utan sem afmælishjón- unum var úthlutað. „Undir morgun var Sigríður hætt að finna fyrir út- limum þrátt fyrir að vera dúðuð í ull- arföt frá toppi til táar. Enginn botn var í tjaldinu, heldur aðeins blaut leðja og eldiviðurinn, sem nota átti til að halda á okkur hita, var svo blautur að aldrei reyndist unnt að kynda al- mennilegt bál. Ekki voru gerðar fleiri tilraunir með tjaldútilegur að þessu sinni því undir morgun, þar sem við hjónin lágum hálffreðin úti í frostinu, var ákveðið að sofa næstu nætur á pínulitlu eldhúsgólfi „Hótels helvítis“,“ segir Daníel í spjalli við Ferðablaðið. Eins og í „Survivor“ Þarna dvaldi hópurinn í þrjá sólar- hringa við erfiðar aðstæður því hvorki var þarna símasamband né nægar matarbirgðir fyrir átta full- orðnar manneskjur og því má segja að líðan ferðalanganna hafi verið ámóta og þeirra, sem þátt taka í raunveruleikaþættinum „Survivor“. „Mest megnis lifðum við á snæhéra og hreindýrakjöti, sem ekki þykir sérlega lystugt nýveitt og þó að hreindýrakjöt þyki lúxusvara, er heldur mikið að borða það í öll mál þó að bryddað hafi verið upp á tilbreyt- ingu með því að tína jurtir og ber í villtri náttúrunni til að krydda kjötið með.“ Þrátt fyrir aðbúnaðinn, sem svo sannarlega stóðst ekki væntingar, ríkti góður andi í hópnum. Ákveðið var að horfa á spaugilegu hliðarnar og gerðu karlarnir mikið grín að hár- blásaranum og rauða silkinátt- kjólnum, sem var að finna í farangri frú Sigríðar. Hópurinn skiptist næstu tvo dag- ana á að fara á hreindýraveiðar með leiðsögumanni á litlum báti. „Veiðar í þessari stórkostlegu náttúru eru ólýsanlegar. Eltingaleikur við þessar tignarlegu skepnur upp um fjöll og firnindi taka vissulega á, en er ein- stök upplifun á meðan hafernir sveima yfir í tæru loftinu. Öll náðum við að skjóta hreindýr og fróðlegt var fyrir Siggu, með hjálp Gunnars Óla, að fá sjálf að taka innan úr dýrinu og gera að því. Þar sem hann hefur ára- langa reynslu sem leiðsögumaður og skytta á Grænlandi, reyndist hann hafsjór fróðleiks um veiðarnar, hegð- un dýranna, sögu landsins og fleira. Meðal annars fengum við að vita að skinn af grænlenskum hreindýrum eru ekki nýtanleg þar sem fluga verpir í þau og skemmir feldinn og í raun er íslenski hreindýrastofninn sá eini í heiminum sem er laus við flug- ur þessar.“ Ógleymanlegt ævintýri Á fjórða degi var hópurinn loks sóttur á bát og siglt til Isortoq, þar sem hreindýravinnslustöðin er og þar komust menn í langþráða silungsveiði, en einungis í nokkrar klukkustundir. Flestir héldu af stað með stangir, en eftir samtal um neta- veiðar við Stefán hreindýrabónda náðu Sigríður og Sverrir í utan- borðsmótor, sem þau settu á lítinn bát og héldu til veiða. Er út á sjó var komið, reyndist mótorinn hálfgert skrapatól því hann drap á sér í tíma og ótíma og oft þurfti að grípa til þeirrar einu árar, sem var um borð. Upp úr netaveiðunum höfðust fimm- tán silungar, sem eldaðir voru snar- lega og menn átu með bestu lyst. Sil- ungurinn þótti góð tilbreyting frá hreindýrakjötinu þó að meðlætið væri ekkert ef undan er skilinn steiktur laukur. Daníel segist hiklaust mæla með því að áhugasamir hreindýraveiði- menn takist á hendur slíka ferð, en leggur áherslu á að menn hafi allar forsendur algjörlega á hreinu áður en lagt er í’ann. „Við vorum auðvitað búin að afla okkur allra upplýsinga um ferðaáætlun og aðbúnað, en því miður brást það sem okkur hafði ver- ið lofað. Þegar öllu er á botninn hvolft sannast hið fornkveðna að það sem ekki drepur mann, herðir mann og að sjálfsögðu kennir neyðin naktri konu að spinna. Þetta var auðvitað ógleymanlegt ævintýri, sem ég gæti vel hugsað mér að endurtaka, haf- andi allar forsendur á tæru. Ekki býst ég þó við því að hreindýrakjöt verði á mínum borðum í bráð.“  GRÆNLAND | Silkináttkjóllinn og hárblásarinn reyndust óþörf þegar komið var á áfangastað Hreindýr í öll mál Hjónin Sigríður Ingvarsdóttir og Daníel Gunnars- son áttu bæði stórafmæli á árinu og gáfu hvort öðru veiðiferð til Grænlands í afmælisgjöf. Ferðin var pöntuð með löngum fyrirvara og mikið búið að hlakka til. Margt fór þó öðruvísi en ætlað var og víst er að ferðin mun seint líða þeim úr minni. join@mbl.is Hreindýraveiðimennirnir á Grænlandi, þau Sigurjón Sigurjónsson, Sigríður Ingvarsdóttir, Gunnar Óli Há- konarson, Sverrir Júlíusson, Daníel Gunnarsson, Þórir Stefánsson, Þórir Kr. Þórisson og Jón Þór Ingimundarson. Hvorki var rennandi vatn né rafmagn í hrörlega kofanum sem ekki rúmaði allan hópinn og fékk hann fljótt viðurnefnið „Hótel helvíti". GÓÐ ÞJÓNUSTA – GÓÐ VARA – GOTT VERÐ Dugguvogi 10 • 104 Reykjavik 568 2020 Pitstop opnar á Íslandi Í heimi akstursíþrótta merkir pitstop örstutt pása. Ökumaðurinn fær tækifæri til að anda á meðan bíllinn er yfirfarinn og skipt er um dekk. Nú hefur verið opnuð glæsileg Pitstop dekkjaverslun og þjónustustöð að Dugguvogi 10 í Reykjavík þar sem farið er eftir sömu formúlu. Viðskiptavinirnir njóta hvíldarinnar á Pitstop Café, glugga í blöðin eða athuga tölvupóstinn og leyfa krökkunum að dunda sér í leikhorninu. Við sjáum um bílinn á meðan. Eftir furðuskamman tíma eru bíll og eigandi til í næsta hring. Starfsfólk Pitstop er traustur og samhentur hópur meðmikla sérþekkingu og reynslu. Hjá Pitstop fer saman góð þjónusta, frábær vara og mjög gott verð. Frábær opnunartilboð BF Go odr ich flíspeysa Fylgir keyptum dekkjaga ngi un di r je pp a Pi tst op thermo-kanna Fylgir keyptum dekkjagangi u ndi r f ol ks bí l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.