Morgunblaðið - 08.10.2005, Side 33

Morgunblaðið - 08.10.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 33 Á MORGUN fara víða fram kosningar um sameiningu sveitar- félaga. Umræða um mikilvægi efl- ingar sveitarstjórnarstigsins hefur verið of lítil. Vissulega eru þær til- lögur sem kosið er um aðeins lítið skref í rétta átt en mik- ilvægt. Flestum er ljóst að sveit- arstjórnarstigið hér á landi er alltof veikt og verkefni þess í engu sam- ræmi við það sem gerist í okkar ná- grannalöndum. Allt- of mörg verkefni sem eðlilegra er að sveitarfélög annist eru hjá ríkisvaldinu, meginástæða þess er að sveitarfélögin eru mörg og smá. Þeir sem styðja mið- stýringu og telja að best sé að ákvarð- anir séu teknar sem lengst frá þeim sem þjónustunnar njóta vilja eðlilega engu breyta í skipan sveitarstjórnarmála. Efling sveitarstjórn- arstigsins er hluti af valddreifingu og eitt þeirra mála sem skipta landsbyggð- ina hvað mestu. Hugmyndafræðin er einföld og með ólíkindum hvað hægt hefur gengið á þessari braut. Meg- inskýringin er vantraust milli rík- isvaldsins og sveitarfélaganna, þess vegna verður að byggja upp traust milli aðila. Það gerist hins vegar ekki nema ríkisvaldið hafi trúverðuga stefnu um gjörbreyt- ingu á samskiptum og verkaskipt- ingu milli ríkis og sveitarfélaga. Fram að þessu hafa samskipti að- ila tekið mið af smáskammtalækn- ingum á sveitarstjórnarstiginu vegna skorts á skýrri framtíð- arsýn. Nærþjónustu til sveitarfélaga En hvert skal stefna? Öll nær- þjónusta á heima hjá sveitarfélög- unum. Þannig eru gæði þjónust- unnar best tryggð svo og áhrif íbúanna. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga er úrelt enda ákveð- in við allt aðrar aðstæður en fyrir hendi eru í dag. Breytingarnar hafa aðeins verið í misstórum skrefum, flestum litlum, en það örlar ekki á raunverulegri upp- stokkun. Dæmin um verkefnin sem eiga heima hjá sveitarfélögum þegar þau eru orðin stærri og öfl- ugri er t.d. þjónusta við fatlaða, heilsugæslan, framhaldsskólinn, rekstur flugvalla annarra en al- þjóðlegra flugvalla og hluti af starfsemi Vegagerðarinnar. Rekstur framhaldsskóla er gott dæmi um verkefni sem sannarlega á heima hjá sveitarfélögunum, um er að ræða nærþjónustu sem þarf að taka mið af aðstæðum í um- hverfinu. Þá er stór hluti þeirra sem nota þjónustuna undir lög- aldri og tenging og samfella milli skólastiga verður sífellt mikilvæg- ari. Við slíkar aðstæður blasir við mikilvægi þess að sami aðili beri ábyrgð á rekstri skólastiganna frá leikskóla að lokum framhalds- skóla. Flutningur grunnskólans er gott dæmi um velheppnaðan flutn- ing verkefnis frá ríki til sveitarfé- laga frá sjónarhóli þeirra sem þjónustunnar njóta. Grunnskólinn hefur tekið stakkaskiptum eftir að sveitarfélögin tóku yfir rekstur hans. Fátt sýnir betur hvað grunnþjónustan á miklu betur heima hjá sveitarstjórnum heldur en hinu fjarlæga opinbera valdi. Hið sama mun gerast við flutning framhaldsskólans. Skipting verka á milli sveitarfé- laga og ríkisins hefur þróast á allt annan veg hjá nágrannaþjóðum okkar. Þar er hlutfall ríkis og sveitarfélaga af opinberri þjónustu öf- ugt við okkar, þ.e. hlut- ur sveitarfélaganna er þar meiri en ríkisins. Ekkert réttlætir að þetta sé ekki sambæri- legt hér á landi og því eðlilegt markmið að taka mið af Norð- urlöndunum. Í því felst valddreifing, betri þjónusta, betri meðferð fjár og aukin áhrif íbú- anna á eigið umhverfi. Til að þróunin geti verið á þessa lund í framtíðinni þarf heild- arendurskoðun á tekju- stofnun sveitarfélaga. Það þarf að leita leiða til að breikka tekju- grunninn t.d. með því að sveitarfélög fái hlut- deild í óbeinum skött- um til að fjármagna ný verkefni sem þau taka við frá ríkinu. Það er hins vegar ógerningur að finna viðunandi lausn bæði á verkefna- og tekju- skiptingu nema með uppstokkun sveitarstjórnarstigsins, þ.e. veru- legri fækkun og mikilli stækkun sveitarfélaga samhliða verk- efnaflutningi frá ríki til sveitarfé- laga. Þess vegna munu kosning- arnar um sameiningu sveitarfélaga í næsta mánuði ekki tryggja lausn. Það er hins vegar mikilvægt að úrslit kosninganna tryggi að stigið verði lítið skref í rétt átt. Næstu skref Stóra verkefnið á þessu sviði er að færa sveitarstjórnarstigið inn í nútímann, það þarf að framkvæma sem fyrst því miklir hagsmunir eru í húfi. Þess vegna þarf strax að loknum sameiningarkosning- unum að hefja markvissan und- irbúning að næstu skrefum. Sumt blasir við, t.d. þarf að tryggja að reglur jöfnunarsjóðs vinni með sameiningu en ekki gegn, þannig verði tryggt að öll sveitarfélög sem sameinist fái aldrei minni tekjur og helst auknar tekjur við sameiningu. Vegna smæðar sveit- arfélaga og fjölda plástursaðferða í of langan tíma má segja að jöfn- unarsjóðurinn sé orðinn að sér- stöku vandamáli. Reglur sjóðsins eru orðnar svo flóknar að fáir skilja þær til fullnustu. Sveitarfélögin verða að vera miklu færri og stærri en til að slíkt tryggði aukið lýðræði þarf margt að koma til, t.d. setja laga- ramma varðandi ákveðna mála- flokka t.d. leikskóla, grunnskóla og fjallskil, slíkar stjórnir mætti kalla þorpsstjórnir, hverfastjórnir eða hreppsnefndir. Þannig má nálgast þörfina fyrir öflug sveit- arfélög og samhliða vinna bug á ótta margra um að hin stóru sveit- arfélög gleypi allt og völdin færist fjær fólkinu, – en ekki nær. Markmið með slíkum breyt- ingum er að færa ákvarðanatöku nær fólkinu og tryggja áhrif þess í stærstu málaflokkunum. Stærri og öflugri sveitarfélög – geta gert meira Einar Már Sigurðarson fjallar um sameiningu sveitarfélaga Einar Már Sigurðarson ’Markmið meðslíkum breyt- ingum er að færa ákvarð- anatöku nær fólkinu og tryggja áhrif þess í stærstu málaflokk- unum.‘ Höfundur er alþingismaður. sem efnt þessa jálsa að- æða- ðisleg og aldi íbúa gs að arfélag itarfélagi alla sveit- na að tkvæða- . ldi ks kveða arfé- nað i eða astjóri arfélaga. MIKILVÆG ákvarðanataka bíð- ur nú íbúa í mörgum sveit- arfélögum landsins þar sem kosið verður um sameiningu sveitarfé- laga í dag. Eins og staðan er í dag eru 70% opinberrar stjórn- sýslu hjá ríkinu og þá að langstærstum hluta staðsett í Reykjavík. Sveit- arfélögin ráða ekki sínum málum sjálf nema sem nemur 30%. Við berum okkur iðulega saman við Norðurlöndin og þar er þetta hlutfall alveg öfugt. Við þurfum í sameiningu að vinna að því að þannig verði stjórnsýsla á Íslandi í framtíðinni. Sumir hafa bent á mik- ilvægi þess að fastmótaðar tillögur um verkefni og tekjustofna verði að liggja fyrir áður en hægt sé að ákveða sameiningu sveitarfélaga. Mín skoðun er sú að sameining sveitarfélaga sé grundvöllur þess að sveitarfélög geti yfir höfuð tekið að sér þau verkefni sem nú er um rætt. Sum hver hafa ekki tök á að sinna að fullu núverandi lögbundn- um verkefnum sökum smæðar. Frumkvæði sveitar- stjórnarmanna Ákveðins misskilnings hefur gætt á íbúafundum sem ég hef sótt og virðist það ekki hafa komið nægjanlega skýrt fram að það voru sveitarstjórnarmenn sem óskuðu eftir eflingu og stækkun sveitarfé- laga og þar með þessu verkefni. Á fulltrúaráðsfundi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga 22. og 23. mars 2002 samþykktu sveit- arstjórnarmenn stefnumörkun í byggðamálum. Þar var m.a. fjallað um stækkun og eflingu sveitarfé- laga. Stefnumörkunina í heild sinni má finna á heimasíðu félagsmálaráðu- neytisins á síðu um eflingu sveit- arstjórnarstigsins. Vorið 2003 var síðan samþykkt á fulltrúaráðsfundi Sambandsins, þar sem á annað hundrað sveitarstjórnarmenn áttu sæti, að fara í þetta verkefni. Flugvöllur og stjórnsýsla En víkjum aðeins að öðru máli sem þessu tengist og mikið hefur verið í umræðunni. Nú virðist sem borgarfulltrúar í Reykjavík séu orðnir sammála um það að Reykjavík- urflugvöllur eigi að víkja úr Vatnsmýrinni. Íbúar og sveitar- stjórnarmenn utan höfuðborgarsvæðisins munu í kjölfar þessa gera enn ríkari kröfu á að ákveðin verði með skýrum hætti önnur tekju- og verkaskipt- ing ríkis og sveitarfé- laga en nú er. Það er ekki ólíklegt að ákveð- in þjónusta og stjórn- sýsla byggist upp þar sem flugvöll- urinn verður settur niður. Menn hafa bent á Suðurnesin í því sam- bandi. Það er rétt að benda á að það eru svæði hér á Borgarfjarðarsvæð- inu sem gætu sinnt þessu hlutverki. Ekki munu menn heldur slá hend- inni á móti þeim störfum sem flytt- ust með. Með tilkomu Sundabraut- ar yrði hæfilega langt fyrir sveitarstjórnarmenn og íbúa á höf- uðborgarsvæðinu að sækja ýmsa þjónustu stjórnsýslu og innanlands- flugsins t.d. upp í Borgarnes eða um 40 mínútur eða álíka vegalengd og til Keflavíkur. Útgangspunkturinn í þessari hugleiðingu er sá að það þarf að breyta verkaskiptingunni, sveitarfélögin vilja ráða sínum mál- efnum meira sjálf. Það verður þá að gera þau hæfilega stór og nægj- anlega sterka einingu. Stjórnsýsla landsmála og sveitarstjórnarmála á ekki öll að vera í Reykjavík. Við eig- um ekki að bíða eftir því að flugvöll- urinn fari úr Vatnsmýrinni. Gerum þessi skil strax og eflum sveit- arfélögin á landsbyggðinni með sameiningu svo þau geti tekið við auknum verkefnum. Styrkjum stöðu sveitarfélaga Samkeppni sveitarfélaga um fólk og fyrirtæki gerir okkur ljósa nauð- syn þess að sveitarfélög hafi burði til að veita þá þjónustu sem íbú- arnir ætlast til að veitt sé. Ekki síð- ur er það mikilvægt í nútímaþjóð- félagi að sveitarfélög geti markað það umhverfi fyrir fyrirtæki að þau sjái sér beint hag í að setja þar nið- ur starfsemi sína. Bent hefur verið á að við sameiningu muni tapast mikilvæg opinber störf úr sveit- arfélögum. Þetta eru eðlileg við- brögð þar sem fá opinber störf eru þegar fyrir hendi og munar mikið um hvert og eitt. Við bendum á móti á að við verðum að horfa á heildarsamhengið. Þó störfum fækki mun ætla að til lengri tíma litið geti í sterku sveitarfélagi orðið til ný opinber störf með nýjum verkefnum. Mér finnst hafa komið skýrt fram undanfarnar vikur hversu já- kvæðir íbúar eru almennt gagnvart því að efla sveitarstjórnarstigið og sameina sveitarfélög. Menn eru hinsvegar ekki á einu máli hvenær sameining sé tímabær. Ég veit að það er mörgum hjartans mál hvern- ig þeirra gamla sveitarfélagi muni reiða af í nýju sameinuðu sveitarfé- lagi. Þetta er mörgum mikið tilfinn- ingamál og eðlilegt þar sem heiti hreppa og sveitarfélaga og mörk þeirra eiga sér þúsund ára sögu. Nýtum kosningaréttinn Það er mikilvægt að niðurstaða liggi fyrir með nokkuð afgerandi hætti hvort sem menn eru fylgjandi eða andvígir sameiningu. Ég hvet því alla þá sem þess eiga kost í dag að kjósa um sameiningu sveitarfé- laga að nýta kosningarétt sinn og mæta á kjörstað. Vatnsmýrin og sameining sveitarfélaga Helga Halldórsdóttir fjallar um sameiningu sveitarfélaga Helga Halldórsdóttir ’Ég veit að það ermörgum hjartans mál hvernig þeirra gamla sveitarfélagi mun reiða af í nýju sameinuðu sveitarfélagi.‘ Höfundur er forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar, á sæti í sameiningarnefnd. ekki að- bjóðandi. num og irtæki mál sé af- Það þarf na að inna ðstæður, a verði , mann- ðstöðu. til þeirra í dag. ulegan kefni til og áhrif eit- megnug tillögur er tím- lnum og báknið Reykja- a verður ð þeir hvernig r veikist að há- m um þá m í því erk- örf num arfjarð- meining- rðan - ÍBÚAR Vatnsleysustrandar- hrepps og Hafnarfjarðar hafa þeg- ar litið er til sögunnar átt um lang- an aldur mjög góð samskipti. Hér áður fóru menn á milli staða fótgangandi eða ferð- uðust á hestum, þá var farið hægar yfir en nú, staldrað við og málin rædd. Lýsing Stein- þóru Einarsdóttur sem bjó á Vatnsleysuströnd á fólki og staðháttum þegar hún, ásamt syst- ur sinni og föður, fór fótgangandi inn til Óseyrar við Hafn- arfjörð í byrjun tutt- ugustu aldar líður mér seint úr minni. Frásögn hennar bar með sér hlýjar minningar um ein- læga vináttu og virðingu fyrir sam- ferðafólki sínu á Vatnsleysu- ströndinni og í Hafnarfirði. Í dag gefst okkur íbúum Hafn- arfjarðar og nágrönnum okkar í Vatnsleysustrandarhreppi kostur á að velja um sameiningu þeirra sveitarfélaga sem hér er getið, sameiningu sem kemur að mínu áliti til með að styrkja bæði sveit- arfélögin enn frekar. Við upphaf yfirstandandi kjör- tímabils var mörkuð sú stefna að unnið skyldi að stækkun og eflingu sveitarfélaganna með frjálsri sam- einingu, var stefnan mörkuð á vett- vangi Sambands íslenskra sveitar- félaga með það í huga að styrkja sveitarfélögin til að sinna núverandi skylduverkefnum sínum og vera betur í stakk búin að taka við nýjum og krefj- andi verkefnum. Í kjölfar stefnu- mörkunarinnar hef- ur verið starfandi samstarfsnefnd á vegum beggja sveit- arfélaganna síðustu mánuði, hefur hennar hlutverk verið að sjá um undirbúning kosninga um sam- einingu og fyrir tilstuðlan nefnd- arinnar var ParX – viðskiptaráð- gjöf IBM falið að vinna skýrslu um greiningu á áhrifum sameiningar á sveitarfélögin. Skýrslan hefur verið kynnt íbú- um á fundum sem og á heimasíðum beggja sveitarfélaga. Í skýrslunni koma m.a. fram þeir kostir samein- ingar að svæðið yrði eitt atvinnu- og þjónustusvæði með bættum samgöngum. Þá mun í stækkuðu sveitarfélagi verða enn frekar lögð áhersla á að byggja upp og styrkja nærþjónustuna. Hafnarfjörður og Vatnsleysu- strandarhreppur eru ört vaxandi sveitarfélög og búa þau hvort um sig yfir miklum gæðum, sameinuð gæði sveitarfélaganna geta fært okkur ný sóknarfæri sem koma til með að nýtast íbúum vel þegar litið er til lengri tíma. Hafnfirðingar og íbúar Vatns- leysustrandarhrepps, tökum þátt í kosningunum, mætum á kjörstað og veljum sameiningu, þannig höf- um við áhrif á eflingu og framþróun sveitarstjórnarstigsins okkur öllum til hagsbóta. Góð samskipti Hafnfirðinga og íbúa Vatnsleysustrandarhrepps Valgerður Sigurðardóttir fjallar um sameiningu Hafn- arfjarðar og Vatnsleysu- strandarhrepps ’… sameinuð gæðisveitarfélaganna geta fært okkur ný sókn- arfæri sem koma til með að nýtast íbúum vel þegar litið er til lengri tíma.‘ Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Valgerður Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.