Morgunblaðið - 08.10.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðrún Stein-dóra Jóhanns-
dóttir (af öllum köll-
uð Gunndóra)
fæddist á Siglufirði
31. janúar 1919.
Hún andaðist á
Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar 28.
september síðastlið-
inn. Foreldrar
Gunndóru voru
hjónin Marsibil Her-
dís Baldvinsdóttir,
Jóhannssonar, út-
vegsbónda á Siglu-
nesi, f. 22. apríl 1884, d. á Krist-
neshæli 25. febrúar 1923, og
Jóhanns Jóhannssonar, f. á Engi-
ágúst 1917, d. 18. maí 1975. Hálf-
systir, samfeðra, er Anna Sigur-
björg Jóhannsdóttir, f. 1927.
Í kjölfar alvarlegra veikinda
móður sinnar var Gunndóru á
fyrsta aldursári komið í fóstur til
Vopnafjarðar, til Þórunnar Elísa-
betar Kristjánsdóttur ljósmóður
og Guðna Kristjánssonar kaup-
manns. Og þar ólst hún upp. Hún
fluttist til Siglufjarðar 1944 og bjó
þar upp frá því. Gunndóra var tví-
gift. Fyrri maki var Sigurður Ein-
arsson smiður, ættaður úr sveit-
inni við Vopnafjörð, f. 26. apríl
1900, d. 10. ágúst 1969. Þau skildu
eftir fimm ára hjúskap. Þau voru
barnlaus. Seinni maki var Herbert
Sigfússon málarameistari á Siglu-
firði, f. 18. maí 1907, d. 19. júní
1984. Þeim varð ekki heldur
barna auðið. Útför Gunndóru
verður gerð frá Siglufjarðar-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
dal við Siglufjörð 19.
maí 1882, d. á Siglu-
firði 11. mars 1958.
Marsibil og Jóhann
eignuðust sjö börn.
Þau voru, auk Gunn-
dóru: Jóhann Sigurð-
ur, f. 9. september
1906, d. 13. júlí 1993;
Baldvina Marsibil, f.
12. september 1908,
d. 23. október 1986;
Kristrún Friðrika, f.
15. mars 1912, d. 30.
ágúst 1982; Marta
Laufey, f. 5. apríl
1914, d. 29. júní 1989; Oddur Guð-
mundur, f. 5. október 1915, d. 2.
september 1920; og Halla, f. 18.
Nú er frænka mín, hún Gunn-
dóra, búin að kveðja þetta líf, 86
ára gömul. Mig langar í fáeinum
orðum að minnast hennar.
Hún fæddist á Siglufirði, var
yngst sjö barna þeirra hjóna Marsi-
bil Herdísar Baldvinsdóttur og Jó-
hanns Jóhannssonar. Þegar móðir
hennar veiktist alvarlega tvístraðist
þessi stóri hópur og var að mestu
komið til ættingja og vina. Gunn-
dóra, sem þá var á fyrsta aldursári,
er sett í fóstur til merkishjóna í
Vopnafirði, þeirra Þórunnar Elísa-
betar Kristjánsdóttur ljósmóður og
Guðna Kristjánssonar kaupmanns.
Áður höfðu þau tekið að sér syst-
urson Guðna, sem hét Guðni Þór-
arinn Jónsson (mublusmiður) og
var fimm árum eldri en Gunndóra.
Gunndóra gekk í skóla á Vopna-
firði og átti þar góða æsku. Hún
talaði oft um það hve heppin hún
hefði verið að fá að alast þar upp
og hversu góða fósturforeldra hún
hefði fengið.
Gunndóra var tvígift. Hún giftist
19 ára Sigurði Einarssyni smið,
sem var ættaður úr sveitinni við
Vopnafjörð. Var hún gift honum í
fimm ár. Til Siglufjarðar kom hún í
nóvember 1943, 24 ára gömul, að
heimsækja systkini sín og fjöl-
skyldur þeirra. Hún dvaldi ekki
lengi í þetta sinn, en í febrúar á
næsta ári kom hún aftur og þá al-
komin.
Seinni maður Gunndóru var Her-
bert Sigfússon málarameistari.
Hann var einnig listamaður, málaði
landslagsmyndir svo eitthvað sé
nefnt og varð þekktur fyrir. Hann
hélt líka margar sýningar sem
fengu góða dóma. Herbert var
skemmtilegur maður og ekkert
skrýtið að Gunndóra skyldi hrífast
af honum. Gunndóra stundaði alla
almenna vinnu. Má þar t.d. nefna
vinnustaðina Ísafold, Siglósíld og
Þormóð ramma. Hún var eftirsótt-
ur starfskraftur, samviskusöm og
dugleg.
Gunndóra tók virkan þátt í
margs konar félagsstarfi í Siglufirði
og ber þar e.t.v. hæst störf fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Sjálfstæðis-
kvennafélagið. Átti flokkurinn
vissulega hauk í horni þar sem hún
var. Hún var einlæg og kát að eðl-
isfari, það sýndi hún best síðustu
mánuðina sem hún lifði. Hún hélt
kjarki og reisn til hinstu stundar.
Henni varð ekki barna auðið, en
kött einn átti hún til margra ára og
þótti sérlega vænt um hann. Til
marks um það er, að þegar hann dó
var hann settur í kistu og Nýja
testamenti með honum og hann
jarðaður með vipðhöfn í garði
þeirra hjóna á Siglufirði. Einnig
var hún góð við önnur dýr, og gaf
fuglunum mat í vetrarhörkum.
Nú þegar Gunndóra er farin rifj-
ast upp minningar frá liðnum dög-
um. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa
öðrum, hún vildi öllum vel.
Starfsfólki Heilbrigðisstofnunar-
innar á Siglufirði þakka ég góða
umönnun hennar.
Með hryggð í huga kveð ég kæra
móðursystur mína, með þakklæti
fyrir samverustundirnar.
Vafalaust var erfið oft þín stund,
nú er því lokið. – Heil á Drottins fund.
Brynja Stefánsdóttir.
GUNNDÓRA
JÓHANNSDÓTTIR
Elsku Magga mín.
Það að setjast niður
og skrifa minningar-
orð um þig er und-
arlegt og að þurfa að
trúa að þú sért farin
frá okkur fyrir fullt og allt er eitt-
hvað sem ég er ekki búinn að átta
mig á. Söknuðurinn er mikill en
minningarnar ylja enda fullt af
góðum minningum um þig. Ef ég
byrja bara á að rifja upp þegar við
Brynjar Þór vorum litlir, sóttum
við mikið í að fá að hittast um
helgar og sofa saman, enda ekki
bara frændur heldur góðir vinir
líka. Svo var helgunum eytt í hjó-
latúra, boltaleiki og síðast en ekki
síst bílaleik. Þetta voru einar bestu
helgar sem ég hef átt með þér og
fjölskyldu þinni, alltaf var ég vel-
kominn til ykkar og alltaf passað
upp á að enginn yrði svangur. Þú
varst listakokkur í matargerð og
eins kökugerð enda einna
skemmtilegast að koma í veislur til
þín, nóg af rjómakökum og alls
konar sætindum. Svo má ekki
gleyma fyrirtækjunum þínum,
Listasmiðjunni og Gler í gegn þar
sem þú bæði vannst og kenndir
fólki glerlistagerð og sýndir
hversu góð þú varst að vinna með
höndunum og alltaf var útkoman
góð. Ef ég hugsa um hversu góð
MARGRÉT
ÞÓRDÍS
EGILSDÓTTIR
✝ Margrét ÞórdísEgilsdóttir
fæddist í Reykjavík
1. október 1955.
Hún lést á heimili
sínu 19. júní síðast-
liðinn og var jarð-
sungin frá Grafar-
vogskirkju 27. júní.
þú varst og stuðn-
ingsrík þá eigið þið
Óskar eiginmaður
þinn mikinn þátt í því
hvernig ég hef það í
dag . Þegar ég var
fyrir vestan síðastlið-
inn vetur í mánuð var
mjög gott að heyra
reglulega í þér og
spjalla við þig. Við
töluðum mikið saman
um ýmsa hluti og
alltaf studdir þú mig
í öllu og stappaðir
stálinu í mig, ef þess
þurfti.
Þegar kemur að ferðalögum
koma manni í hug Magga og Ósk-
ar. Ég held að það sé ekki til einn
staður á öllu Íslandi sem þið kom-
uð ekki á. Þið ferðuðust út um allt
á jeppanum ykkar, hvort sem um
var að ræða útilegur með vinum og
ættingjum, fjallaferðir, jöklaferðir,
öræfaferðir eða hvað sem var, allt
fóruð þið Óskar saman enda ekki
bara hjón heldur miklir ferðafélag-
ar og mjög góðir vinir líka. Þórs-
mörk var ofarlega á listanum hjá
ykkur, enda ykkur líkt að vera á
fallegum stöðum í fallegu landslagi
að njóta lífsins og náttúrunnar.
Í febrúarmánuði á þessu ári
veiktist þú mikið og þér hrakaði
mjög hratt. Það var erfitt að horfa
upp á þetta allt saman en mikið
stóðstu þig samt vel í þessari bar-
áttu. Þegar ég hitti þig fyrstu vik-
una í júní og ég spurði hvernig þú
hefðir það þá sagðir þú: „Lífið
byggist á mörgum verkefnum og
ég er að ganga í gegnum eitt
þeirra núna.“ Þetta sagði mér að
þú myndir gera allt sem í þínu
valdi stæði til að ná þér upp úr
þessum veikindum á ný. Um miðj-
an mánuð var fjölskyldan öll sam-
ankomin og þá var útlitið orðið
mjög dapurt, illvígur sjúkdómur að
taka yfirhöndina og lífslíkurnar
minnkandi. Þú reyndir allavega
eins og þú gast og stóðst þig vel.
Hinn 19. júní síðastliðinn kom ég
til ykkar í Kambaselið um hádeg-
isbil og var hjá ykkur til að ganga
5. Ég sagði við Óskar og mömmu
mína að ég þyrfti aðeins að skjót-
ast niður í bæ til vinar míns og
myndi koma aftur. Þegar ég er að
aka eftir Sæbrautinni á leiðinni í
miðbæinn byrjar að hellirigna allt í
einu og nokkrum mínútum seinna
hringir mamma í mig og segir að
ég þurfi að koma í Kambaselið aft-
ur. Þegar ég kem finn ég að and-
rúmsloftið í húsinu var ekki gott,
það ríkti mikil sorg yfir öllu. Óskar
frændi tekur á móti mér faðmar
mig þétt að sér og segir: „Ég sam-
hryggist þér, Helgi minn, hún
Magga okkar er dáin. Ég varð
harmi sleginn og mjög sár. Það að
þurfa að trúa því að forystukona
eins og Magga væri dáin var ekki
að gera sig. En ég fékk allavega
svar við allri rigningunni, það var
ekki bara ég sem grét og allir sem
þarna voru heldur himinninn líka
enda góð kona fallin frá. Þú hefðir
orðið fimmtug núna 1. október síð-
astliðinn. Ég kíki að sjálfsögðu til
þín upp í kirkjugarð með blómvönd
og legg á leiðið þitt og hugsa um
gömlu, góðu minningarnar okkar.
Eins og segir í laginu: „Það er eitt
sem aldrei gleymist, það eitt er
minning þín.“
Elsku Óskar, Halli, Brynjar og
Bangsi, megi guð og gæfan fylgja
ykkur. Ég votta ykkur mína
dýpstu samúð og styrk á þessum
erfiðu tímum. Að lokum kveð ég
Möggu með tárin í augunum í
þeirri von að fá að hitta þig ein-
hvern tímann aftur. Vertu sæl í bili
og hafðu það sem allra best þar
sem þú ert.
Helgi Einarsson.
FRÉTTIR
Í TILEFNI af 30 ára afmæli Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti 4. október
sl. verður opið hús í skólanum við
Austurberg í dag, laugardaginn 8.
október kl. 11–15.
Gestum er boðið að koma og skoða
skólann í starfi. Allar deildir skólans
verða með sýnishorn af því sem þær
eru að gera. Jafnframt verður
kennsla í gangi og er öllum frjálst að
koma og fylgjast með. Nemendur á
starfsbraut skólans verða með kaffi-
sölu. Kór skólans mun syngja,
hljómsveit kennara mun spila, lista-
sýning verður í hátíðarsal, námsefn-
iskynningar, fræðslumyndbönd, fyr-
irlestrar um sögu stærðfræðinnar,
heilsufarsmælingar og fræðsla um
íþróttir og mataræði, sýnikennsla í
snyrtingu, svo og aðrar sýningar á
verkum nemenda.
Fyrrverandi nemendur, foreldrar
og forráðamenn nemenda og velunn-
arar skólans eru velkomnir.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðu skólans, www.fb.is.
Opið hús í tilefni af
30 ára afmæli FB
Á SÍÐASTA stjórnarfundi Hag-
þenkis var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„Stjórn Hagþenkis, félags höf-
unda fræðirita og kennslugagna,
mótmælir þeirri ráðstöfun forsætis-
nefndar Alþingis að ráða sendiherra
og fyrrverandi ráðherra sem enga
reynslu hefur af ritun fræðirita til að
hafa með höndum ritun sögu þing-
ræðis á Íslandi.
Ákvörðunin lýsir að mati stjórn-
arinnar virðingarleysi fyrir þeim
fræðimönnum sem hafa í námi og
starfi aflað sér reynslu og þekkingar
í rannsóknarvinnu og ritun fræðirita.
Stjórn Hagþenkis minnir á að til er
fjöldi vel menntaðra og reyndra
fræðiritahöfunda á sviði sagnfræði,
lögfræði og stjórnmálafræði, sem
betur hefðu verið fallnir til verksins
og sem eiga ekki hagsmuna að gæta
líkt og fyrrverandi þátttakandi í
stjórnmálum gerir óhjákvæmilega.
Stjórn Hagþenkis skorar á forsæt-
isnefnd að taka ákvörðun sína til
endurskoðunar og fá ritstjórum
verksins til samstarfs höfund eða
höfunda sem hafa sannað hæfni sína
með rannsóknum og ritun fræðirita.“
Ályktun stjórnar Hagþenkis
„Virðingarleysi fyrir
fræðimönnum“
NÝR sendiherra Svíþjóðar hér á
landi, frú Madeleine Ströje-Wilk-
ens, hefur afhent forseta Íslands
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum.
Sendiherrann kemur til starfa frá
Argentínu, en hún hefur einnig
verið sendiherra í Chile.
Madeleine Ströje-Wilkens hefur
starfað hjá sendinefnd SÞ í New
York og unnið fyrir UNDP í Chile
og Kenýa. Hún hefur tekið þátt í
eftirliti með kosningum fyrir
OSCE, SÞ og Carter forseta. Eig-
inmaður Madeleine er sendiherra
Svíþjóðar í Chile, þau eiga 3 börn.
Á myndinni má sjá Ólaf Ragnar
Grímsson forseta Íslands og
Madeleine Ströje-Wilkens sendi-
herra, ásamt starfsfólki sendiráðs-
ins.
Nýr sendiherra
Svíþjóðar
REYKJAVÍKURAKADEMÍAN
heldur umræðufund í dag um málefni
innflytjenda á Íslandi undir yfirskrift-
inni Skurðlæknir í skúringum? Fund-
urinn verður í húsakynnum Reykja-
víkurakademíunnar á Hringbraut
121, 4. hæð, laugardaginn 8. október
kl. 12-14. Erindi heldur Grazyna Ok-
unievska hjúkrunarfræðingur. Í pall-
borði taka þátt Vilborg Ingólfsdóttir,
Ólafur Grétar Kristjánsson og Ingi-
björg Hafstað.
Fundur um málefni
innflytjenda