Morgunblaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 9 FRÉTTIR Þri. 18/10: Karrýkorma og nanbrauð m/tveimur salötum og híðishrísgrjónum. Mið. 19/10: Maíspönnukökur og chillipottur m/tveimur salötum og híðishrísgrjónum. Fim. 20/10: Próteinbollur með cashewhnetusósu m/tveimur salötum og híðishrísgrjónum. Fös. 21/10: Súrsætur pottur með góðu buffi m/tveimur salötum og híðishrísgrjónum. Helgin 22.-23/10: Hummus & ofnbakað grænmeti & buff m/tveimur salötum og híðishrísgrjónum. Póstsendum Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Flott undirföt Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 551 2040 Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 5 1 2040 Silkitré og silkiblóm Glæsilegt úrval af innitrjám www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Töff peysur og jakkarj Str. 38-56 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mán. - fös. frá kl. 10 - 18 lau. kl. 10 - 16 Þunnar peysur Str. 36-56 Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020 www.ljósmynd.is Fermingarmyndartökur Tilboðsmyndatökur Fjölskyldumyndatökur Pantið tímanlega Kjólföt Laugavegur 74 • 105 Reykjavík • Sími 551 3033 Hágæða kjólföt og allir fylgihlutir • Kjólföt 35.900 • Kjólföt m/svörtu vesti 39.800 • Pípuhattar 19.500 • Lakkskór 13.600 Skyrtur, slaufur og allir fylgihlutir. Berið saman verð og gæði. Hverfisgötu 6, sími 562 2862 S O K K A B U X U R Laugavegi 54, sími 552 5201 Póstsendum 1.000 kr. dagur í dag * sígaunapils * peysur * gallabuxur * jakkar * bolir og margt fleira Laugarvegi 63 s: 551 4422 NÝ SENDING ULLARJAKKAR, DÚNÚLPUR, HETTUKÁPUR FYRSTU skrefin nefnist nýr sjónvarpsþáttur um meðgöngu, fæðingu og fyrstu æviárin sem nú er í undirbúningi og sýndur verður vikulega á SkjáEin- um innan skamms. „Við munum leitast við að koma til skila á bæði jákvæðan og skemmtilegan hátt þessu undri og kraftaverki sem felst í því að eignast barn,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir, dagskrár- gerðarkona, sem vinnur þættina í samstarfi við Hauk Hauksson, upptöku- stjóra, sem áður vann m.a. að gerð fréttaskýringar- þáttarins Í brennidepli fyr- ir Sjónvarpið. „Við munum beina sjón- um okkar að því hvernig við getum höndlað lífhamingjuna saman sem foreldrar og fjölskylda og gert það sem er best fyrir barnið sem og okkur sjálf,“ segir Guðrún og leggur áherslu á að foreldrar og börn verði í aðalhlutverki í þátt- unum. „Okkur til aðstoðar verða síð- an færustu sérfræðingar á þessu sviði og fólk sem kemur að velferð barna,“ segir Guðrún og tekur fram að af viðbrögðum fólks við þættinum að dæma þá sé greinilegt að for- eldrum finnist löngu orðið tímabært að fá þátt á borð við Fyrstu skrefin. Vel er þekkt að þeir sem von eiga á erfingja séu fróðleiksfúsir og dug- legir að leita sér upplýsinga um meðgönguna, fæðinguna og hvað sé barninu fyrir bestu bæði á Netinu og í hinum ýmsu bókum. Aðspurð segir Guðrún sjónvarpsþættina hugsaða sem góða viðbót við það efni sem fyrir er. „Að mörgu leyti má segja að sjónvarpsþáttur sé að- gengilegra form fyrir fólk, auk þess sem mikilvægt er að fá íslenskt sjónarhorn á þetta málefni, því okk- ar veruleiki og íslenski reynsluheim- urinn er oft svolítið frábrugðin þeim veruleika sem birtist í erlendum bókum eða þáttum.“ Ætti að höfða jafnt til foreldra sem afa og ömmu Að sögn Guðrúnar er ráðgert að framleiða tólf þætti til að byrja með og beina sjónum að einu tilteknu þema í hverjum þætti. „Þannig munum við t.d. fjalla um fyrirbura og fjölbura, svefnröskun og ýmsa al- genga kvilla á borð við eyrnabólgur og magakveisur, auk þess sem við verðum með sérstakan pabbaþátt, enda feður sífellt að taka aukinn þátt í uppeldi barna sinna.“ Aðspurð um framhaldið segir Guðrún að auð- veldlega megi bæta við fleiri þáttum fái fyrstu tólf þættirnir góðar við- tökur, enda af nægu efni að taka. Að mati Guðrúnar ættu þættirnir að geta höfðað jafnt til foreldra, afa og ömmu, sem og fólks sem er að huga að barneigum. „Einnig ættu þætt- irnir að geta höfðað til fólks sem þegar er búið að ala upp börnin sín. Enda gæti ýmislegt sem fram kem- ur í þáttunum komið þeim á óvart, þar sem ýmislegt er breytt frá því fyrir bara t.d. tíu árum enda breyt- ast hlutir hratt í þessum geira.“ Samhliða sjónvarpsþáttunum hef- ur nýtt mánaðalegt tímarit göngu sína þar sem finna má ítarefni með þáttunum. Að sögn Hlyns Sigurðs- sonar, sem framleiðir Fyrstu skref- in og gefur út tímaritið í samstarfi við Fróða, verður nýja tímaritið góð viðbót við Uppeldi, eina blaðið á markaðnum þar sem uppeldi og meðganga er til umfjöllunar. „Mark- miðið er að tímaritið verði fræðandi, skemmtilegt og forvitnilegt fyrir alla sem áhuga hafa á börnum og barnauppeldi, en þar verður fjallað um allt sem viðkemur meðgöngu, fæðingu og uppeldi barna að fjög- urra ára aldri,“ segir Hlynur og bendir á að bæði þátturinn og tíma- ritið verði í samstarfi við barna- land.is, en notendur vefjarins munu geta haft áhrif á umfjöllunarefni þáttarins og blaðsins. Nýr sjónvarpsþáttur á SkjáEinum Morgunblaðið/Brynjar Gauti Guðrún Gunnarsdóttir og Haukur Hauksson fjalla um meðgöngu, fæðingu og uppeldi í nýjum sjónvarpsþætti á SkjáEinum. Foreldrar og börn í aðalhlutverki í Fyrstu skrefunum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Innihaldið skiptir máli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.