Morgunblaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Raðauglýsingar
Húsnæði í boði
Einbýli til leigu
Glæsilegt einbýlishús við sjávarsíðuna í
Kópavogi til leigu til lengri tíma. Einstakt út-
sýni. 180² á tveimur hæðum. Innbyggður bíl-
skúr. Fjögur rúmgóð svefnherbergi. Gróinn
garður með stórri aflokaðri verönd. Losnar
fljótlega. Frekari upplýsingar í netfangi
odagmar@indosat.net.id fyrir 1. nóvember.
Félagslíf
I.O.O.F. Rb. 4 15410188-8½
III*
HLÍN 6005101819 VI
FJÖLNIR 6005101819 III EDDA 6005101819 I
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 18610188
Fl
Á ÁRI hverju er Atskákmót Ís-
lands haldið og hefur sú hefð skapast
að einvígið um Íslandsmeistaratitil-
inn er sýnt í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu. Engin breyting varð á þessu
í ár né heldur urðu umskipti á því
hverjir öttu kappi saman um titilinn
þar eð Jóhann Hjartarson og Hannes
Hlífar Stefánsson mættust einnig til
úrslita árið 2004. Útsendingunni var
stýrt af Bjarna Felixsyni en honum
til halds og trausts voru Friðrik
Ólafsson, stórmeistari og Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksam-
bands Íslands. Eins og við mátti bú-
ast var taflmennska beggja kepp-
enda traust og í fyrri skákinni svaraði
Jóhann kóngspeðsleik Hannesar með
kóngspeði sínu og upp kom spænski
leikurinn. Hægt og sígandi virtist
sem færi Jóhanns á drottningarvæng
væru öflugri en sókn hvíts á kóngs-
væng. Til að halda meira lífi í stöðu
sinni fórnaði Hannes peði og stuttu
eftir það kom eftirfarandi staða upp:
Hér hefði Hannes geta leikið 1.
Rd4 og virðist þá sem veilan á c6 og
biskupar hvíts ætti að gefa hvítum
a.m.k. jafnt tafl. Hannes hinsvegar
lék 1. Bf4? og eftir 1. ... Rh5! var hann
lentur í miklum vandræðum. Þegar
hér var komið við sögu var tími hans
orðinn naumur og var því skiljanlegt
að hann tók ekki eftir eina leiknum í
stöðunni sem var 2. Rd4 þar sem eftir
2. ... Db4 3. De3 Hxc1 4. Hxc1 Rxf4 5.
Dxf4 Dxd4 6. Df5+ nær hvítur mann-
inum til baka. Sú staða er vissulega
mun betri á svart en þó ekki gjörtöp-
uð á hvítt eins og eftir leik Hannesar
2. Hxc8 Rxg3! 3. Hxe8 Rxf5 og svart-
ur náði að knýja fram sigur með
manni meira. Í síðari skákinni svar-
aði Hannes drottningarpeðsleik Jó-
hanns með drottningarindverskri
vörn og upp kom athyglisverð staða.
Sjálfsagt hefur Hannes verið búinn
að jafna taflið þegar hann gaf hvítum
færi á að skipta upp svartreitum
biskupum beggja herja. Við þessi
uppskipti urðu hangandi peð svarts
veikari fyrir vikið sem síðar leiddi til
þess að hvítur vann peð. Í staðinn
fékk svartur nokkur færi og við gríp-
um inn í stöðuna þegar hvítur hafði
nýlokið að svarað riddaraskák á f3
með Kg1-Kg2.
Hannes lék 1. ... Rd2 og eftir 2.
Bd3! átti hann ekki annars úrkosta
en að leika 2. ... Hb3 og varð fram-
haldið þá 3. Bxa6 Hxa3 4. Bb7 og í
þessari stöðu þáði Hannes jafnteflis-
boð Jóhanns enda útilokað fyrir
svartan að vinna skákina peði undir
og án nokkurra gagnfæra að viti.
Þegar staðan í stöðumyndinni er
könnuð nánar hefði verið athyglis-
vert að sjá hvernig Jóhann hefði
svarað 1. ... Re5! Svartur hótar þá ill-
þyrmilega 2. ... Rfg4 eða 2. ... Re4.
Eina leiðin fyrir hvítan að svara því
væri að leika 2. He1! og ætti hann þá
ekki að standa lakar þar sem 2.
... Re4 væri svarað með 3. He2. Að
finna hinsvegar 2. He1 var mun örð-
ugra verkefni en 2. Bd3.
Með þessum sigri Jóhanns varð
hann Íslandsmeistari í atskák í þriðja
sinn og hefur hann þá unnið titilinn
næst oftast en Helgi Ólafsson hefur
unnið hann í flest skipti eða alls fjór-
um sinnum. Helgi hefur komist átta
sinnum í úrslit og sjálfsagt hefur Jó-
hann komist jafnoft í úrslitin. Hannes
hefur einnig margoft teflt til úrslita
en eingöngu einu sinni hampað titl-
inum.
Endanleg úrslit á
HM liggja fyrir
Lokaumferðin í heimsmeistara-
keppni FIDE fór fram föstudaginn
14. október sl. í San Luis í Argentínu.
Eins og við mátti búast gerði Ves-
elin Topalov með hvítu stutt jafntefli
við Judit Polgar en sú ungverska átti
erfitt uppdráttar á mótinu og lenti í
neðsta sæti. Viswanathan Anand
tryggði sér annað sætið á stigum með
því að gera stutt jafntefli með svörtu
gegn Peter Svidler. Michael Adams
náði ekki að vinna sína fyrstu og einu
skák á mótinu þó að hann væri manni
yfir gegn Alexander Morozevich.
Rússinn varðist fimlega í erfiðri
stöðu og peðin tvö sem hann hafði
upp í manninn dugðu til að ná jafn-
tefli. Peter Leko náði að ljúka mótinu
með sigri á fyrrverandi heimsmeist-
ara FIDE, Úsbekanum Rustam Kas-
imdzhanov. Lokastaða mótsins varð
því þessi:
1. Veselin Topalov (2.788) 10 vinninga af 14
mögulegum.
2.–3. Viswanathan Anand (2.788) og Peter
Svidler (2.738) 8½ v.
4. Alexander Morozevich (2.707) 7 v.
5. Peter Leko (2.763) 6½ v.
6.–7. Rustam Kasimdzhanov (2.670) og Mich-
ael Adams (2.719) 5½ v.
8. Judit Polgar (2.735) 4½ v.
Haustmóti TR lýkur
á miðvikudaginn
Úrslitin í A-flokki Haustmóts TR
eru enn ekki ráðin þegar ein umferð
er eftir en Guðmundur Kjartansson
er efstur. Snorri G. Bergsson getur
náð honum að vinningum með sigri í
frestaðri skák gegn Kristjáni Eð-
varðssyni. Hrannar Baldursson hef-
ur þegar tryggt sér sigur í B-flokki
en í C-flokki eru Einar S. Guðmunds-
son og Vilhjálmur Pálmason jafnir og
efstir.
Síðasta umferð mótsins hefst kl.
19.30 miðvikudaginn 19. október og
eru allir skákáhugamenn hvattir til
að mæta á svæðið og fylgjast með
spennandi skákum.
Jóhann varð Atskák-
meistari Íslands
Morgunblaðið/Ómar
Jóhann Hjartarson varð Atskákmeistari Íslands 2005.
SKÁK
Skáksamband Íslands
ATSKÁKMÓT ÍSLANDS 2005
15. október 2005
daggi@internet.is
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
Húsavík | Jósef Matthíasson var
einn margra húsvískra veiðimanna
sem héldu til rjúpnaveiða á laug-
ardaginn þegar veiði hófst að nýju
eftir tveggja ára veiðibann. Hann
hélt á Þeistareykjasvæðið með fé-
laga sínum Birgi Mikaelssyni og
höfðu þeir 10 rjúpur upp úr krafs-
inu. Þeir sögðu ekki mikið af rjúpu
á svæðinu, a.m.k. ekki þennan dag
og hún væri ljónstygg. Höfðu þeir
svipaða sögu að segja af þeim
veiðimönnum sem þeir höfðu
spurnir af og hittu á þessu svæði í
ferð sinni.
En þeir Jósef og Birgir voru þó
kampakátir með feng fyrsta dags-
ins og sögðu að ekki mætti taka
allan skammtinn í fyrstu ferð, nú
væri ástæða til að fara aftur síðar.
Fengu 10
rjúpur
fyrsta veiði-
daginn
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Jósef Matthíasson með feng fyrsta
veiðidagsins.
STYRKTARFÉLAG krabbameinssjúkra
barna, SKB, afhenti fyrir skömmu Barnaspít-
ala Hringsins nýja íbúð til afnota fyrir fjöl-
skyldur barna utan af landi sem koma í
krabbameinsmeðferð á spítalann. Íbúðin sem
er við Lindargötu er þriggja herbergja,
fullbúin húsgögnum og öðrum húsbúnaði.
Barnaspítalinn hefur umsjón með rekstri
og úthlutun íbúðarinnar þótt hún sé í eigu
SKB. Fyrirtækin IKEA, Eirvík og Elko studdu
SKB dyggilega við kaup á húsbúnaðinum.
Myndin er tekin við afhendingu íbúðar-
innar við Lindargötu. Frá vinstri: Ásgeir Har-
aldsson sviðsstjóri lækninga á Barnaspítala
Hringsins, Benedikt Axelsson formaður SKB,
Anna Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri hjúkr-
unar, Sigrún Þóroddsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur á göngudeild krabbameinssjúkra barna,
Kristín Rútsdóttir ritari og umsjónarmaður
íbúða á vegum Barnaspítalans og Auður
Ragnarsdóttir deildarstjóri dag- og göngu-
deild.
Afhenti Barnaspítalanum
íbúð til afnota
UNGLINGAMEISTARAMÓT
Taflfélags Reykjavíkur fór fram sl.
laugardag og voru Norðurlanda-
meistarar, Íslandsmeistarar og
Reykjavíkurmeistarar á meðal
þátttakenda.
Leikar fóru svo að efstur varð
Ingvar Ásbjörnsson með 5 vinninga
úr sex skákum, Hjörvar Steinn
Grétarsson varð jafn Ingvari að
vinningum en lægri á stigum og í 3.
sæti með 4,5 vinning varð Daði
Ómarsson. Daði varð jafnframt
Unglingameistari Taflfélags
Reykjavíkur 2005, þar sem tveir
hinir fyrrnefndu eru ekki fé-
lagsmenn.
Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu
sætin og að auki var farandgripur
fyrir efsta sætið. Að auki gaf
Smekkleysa aukaverðlaun fyrir 5
efstu sætin og efsta sæti stúlkna og
voru það Sverrir Þorgeirsson, Vil-
hjálmur Pálmason og Sigríður
Björg Helgadóttir sem hlutu þau
verðlaun.
Vilhjálmur Pálmason, Sigríður Björg Helgadóttir, Sverrir Þorgeirsson,
Ingvar Ásbjörnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Daði Ómarsson.
Unglingameistari TR