Morgunblaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 41
DAGBÓK
Vegleg rússnesk menningarhátíð stend-ur nú yfir í Kópavogi. Bókasafn Kópa-vogs tekur virkan þátt í dagskránnien Hrafn Andrés Harðarson er bæj-
arbókavörður: „Við flöggum, sem bókasafn,
bókum rússneskra höfunda, bæði í íslenskum
þýðingum og á öðrum tungumálum, sem og á
rússnesku því Bókasafn Kópavogs er móð-
ursafn rússneskra bókmennta í samstarfsverk-
efni almenningsbókasafna á Íslandi,“ segir
Hrafn. „Við eigum dágóðan kost rússneskra
bóka auk þess að hafa nýlega fengið mikið safn
af listaverkabókum um rússneska myndlist.
Þær bækur eru allar á rússnesku, en málverkin
tala engu að síður sínu máli.“
Fjölbreytt dagskrá er í bókasafninu á Rúss-
nesku menningardögunum: „Við erum með sýn-
ingu í samstarfi við Sendiráð Rússlands á skjöl-
um sem leynd hefur nýlega verið svipt af og
varða meðal annars samskipti Íslands og Sov-
étríkjanna á þeim tímum þegar Ísland verður
lýðveldi.“ Að auki er í safninu ljósmyndasýning
frá rússnesku vígstöðvunum í seinni heims-
styrjöld. „Þetta eru mjög sláandi ljósmyndir og
glæsilegar,“ segir Hrafn.
Eins og vera ber verður lestrardagskrá í
bókasafninu, þar sem Tolstoy verður í sviðsljós-
inu, en einnig verða öðrum helstu skáldum
Rússlands gerð ágæt skil. „Í tilefni hátíð-
arinnar höfum við prentað út þýðingar á ljóðum
rússneskra skálda, sem fólk fær með í pokann
þegar það fær lánaðar bækur hjá safninu.“
Af dagskrárliðum á menningarhátíð hlýtur
Kvikmyndahátíð bókasafnsins að standa upp
úr: „Í Kórnum, á neðstu hæð bókasafnsins,
verða sýndar rússneskar bíómyndir: sú elsta
frá 1925, Beitiskipið Potjemkin eftir Sergei Ei-
senstein.“ Sýningarskráin spannar nær alla síð-
ustu öld og má bæði finna teiknimyndir fyrir
börnin sem og alvarlegri myndir og umdeildar.
Í dag, þriðjudag, hefst dagskráin kl. 14 á Æv-
intýrinu um úlfinn og kanínuna en seinna um
daginn, kl. 16 og 18 verður hin hádramatíska
ástarsaga Anna Karenina eftir Lev Tolstoy
sýnd í tveimur hlutum.
Að auki eru allir sýningarskápar bókasafns-
ins fullir af matrjoskum (sem Íslendingar
þekkja sem babúskur), heimilisiðnaðarmunum
allskonar, lakköskjum og lukkueggjum sem
gerð hafa verið eftir rússneskri handverkshefð.
„Við ætlum með dagskrá okkar að gægjast
inn um glugga á húsi þessa mikla stórveldis, því
við sýnum aðeins brot af þeirri gríðarlega miklu
sögu, menningu og bókmenntum sem Rússland
býr yfir,“ bætir Hrafn við að lokum.
Sýning | Fjölbreytt dagskrá hjá Bókasafni Kópavogs á Rússneskum menningardögum
Kvikmyndir, ljósmyndir og skjöl
Hrafn Andrés Harð-
arson er fæddur í Kópa-
vogi 1948. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA
1968, lærði bókasafns-
og upplýsingafræði í
Lundúnum og útskrif-
aðist þaðan 1972.
Bókavörður á Borg-
arbókasafni Reykjavík-
ur frá 1968–76, og bæj-
arbókavörður í
Kópavogi síðan. Hrafn
hefur gefið út sjö ljóðabækur og syngur í
óperukór Hafnarfjarðar.
Hrafn er kvæntur Önnu Sigríði Einarsdóttur
bókasafnsfræðingi og bæjarbókaverði í Hafn-
arfirði. Eiga þau dótturina Hörn sem er söng-
kona og verkfræðingur.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 18. október,verður sjötugur Guðmundur
Sigurðsson, fyrrum umdæmisfulltrúi
á Akranesi. Hann er staddur á Spáni á
afmælisdaginn ásamt konu sinni.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 18. október,er sextugur Þorgeir Jónsson
prentsmiður, starfsmaður Alþingis og
Þróttari, Kambsvegi 8, Reykjavík.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Við fóðruðum varginn
ÚTI á Granda var veiðibjallan óá-
reitt í slógi og þunnildum alla nótt-
ina. Gerið á kæjanum var, til að sjá,
eins og bátar væru í aðgerð. Svo fór
hún á haugana í ætisleit á daginn,
og settist svo á vatnsból Hafnfirð-
inga. Gósentíð. Veiðibjallan kom
upp ótal ungum – með okkar hjálp.
Fjölgaði ört. Þá var ákveðið að fara
að hýsa slógið. Veislan búin.
Leggjast á smáfugla, egg og
unga. Svangar veiðibjöllur (svart-
bakur) fóru þá inn í land í ætisleit.
Svartbakar eru stórir fuglar og
þurfa óhemju býsn að éta. Nú sjást
þeir uppi á heiðum, meira en 100 m
yfir sjávarmáli, 100–200 km frá
ströndinni, og hér hlakka þeir yfir
mófuglum, ungum þeirra, and-
arungum, og jafnvel nýbornum
lömbum. Þeir sjást í hópum í upp-
sveitum. Þeir eiga það til að gera
atlögur að manni til að verja veiði-
svæði sitt.
Lóan í flokkum flaug – Við flutt-
um inn mink í náttúruna okkar. Og
grimman silfurref. Svo bættist
svartbakurinn við. Óðinshanarnir
mínir sjást ekki lengur á lóninu. Ló-
an sem ,,í flokkum flýgur“ er nú 10
lóur í flokki, en voru 1.000 fuglar í
flokki þegar ég var lítil stelpa. Evr-
ópubúar skjóta íslensku lóuna í tug-
þúsundatali, sér til ánægju, þegar
hún hvílir sig eftir flugið suður yfir
úthafið.
,,Ég át fegurð fjallanna“, minnir
mig að Jón úr Vör hafi ort. „Ég
skaut ekki, en ég át.“ Hvers vegna
þarf maðurinn að eyðileggja allt líf?
Fuglarnir vinna sleitulaust allt
sumarið við að koma litlu ungunum
sínum upp í litla haganlega gerða
heimilinu sínu. Ást og umhyggja í
náttúrunni. – Við skulum alfriða
rjúpuna, þessa fáu fugla sem lifa af
varginn, mannvonskuna og vet-
urinn.
Guðrún Kristín Magnúsdóttir
rithöfundur.
Ýkt kúl bachelor
ÉG var að lesa frábæra grein í
Morgunblaðinu í dag, mánudaginn
17. október, í Ljósvakanum á bls.
38. Greinin heitir Ýkt kúl bachelor
eftir Orra Pál Ormarsson. Hún er
bara í einu orði sagt frábær. Hann
dregur þar upp mynd af þættinum
eins og hann er.
Kona í Keflavík.
Sebastian er týndur
HANN er gulbröndóttur með rauða
hálsól,
eyrnamerkt-
ur 05G115.
Sást seinast
í Bryggju-
hverfi 5. okt.
Þeir sem
hafa orðið
hans varir síðan vinsamlega hafi
samband í síma 552 3762 eða
846 0426.
TVÆR af frægustu sálumessum tón-
listarsögunnar verða fluttar á tón-
leikum Mótettukórs Hallgrímskirkju á
allra heilagra messu, sunnudaginn 6.
nóvember kl. 17. Á þessum degi í fyrra
söng Mótettukórinn sálumessur eftir
Gabriel Fauré og Maurice Duruflé við
orgelundirleik Mattiasar Wagers. Nú
verður sálumessa Faurés flutt á ný, í
sjaldheyrðum hljómsveitarbúningi, og
aftur mun rödd drengjasópransins
Ísaks Ríkharðssonar hljóma í Pie Jesu
kaflanum.
Seinna verk tónleikanna er sálu-
messa Wolfgangs Amadeusar Mozarts.
Í kringum hana hefur spunnist leynd-
ardómsfullur vefur þjóðsagna í ljósi
þess að tónskáldið unga lést frá verk-
inu ókláruðu eftir að hafa fengið dul-
arfulla beiðni um að semja það. Sálu-
messan verður flutt til minningar um
Mozart, en 250 ár verða liðin frá fæð-
ingu hans 27. janúar nk.
Flytjendur á tónleikunum auk Mót-
ettukórs og Kammersveitar Hall-
grímskirkju og Ísaks Ríkharðssonar
eru einsöngvararnir Pascale Schulze-
Schmidt sópran, Alina Dubik alt,
Gunnar Guðbjörnsson tenór og Andr-
eas Schmidt bassi. Stjórnandi er Hörð-
ur Áskelsson.
Miðasala er hafin í Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sálumessur Mozarts og
Faurés í Hallgrímskirkju
41. SKÁLDASPÍRUKVÖLDIÐ verð-
ur á Iðu í kvöld kl. 20, í bókahorni
bókaverslunarinnar á fyrstu hæð.
Gestir mega koma niður með hress-
ingu á upplesturinn. Nú er röðin komin
að Hallbergi Hallmundssyni að lesa úr
eigin ljóðum, smásögum og þýðingum.
Hallberg fagnar tveimur nýjum bók-
um: smásagnasafni og þýðingakveri.
Gunnar Randversson ljóðskáld og
Guðmundur Björgvinsson myndlist-
armaður og rithöfundur leika nokkur
lög á gítar.
Hallberg á
Skáldaspíru-
kvöldi
60 ÁRA afmæli.Í dag, 18. október,er sextugur Þórir Ingvarsson,
tæknifræðingur, til heimilis að
Stekkjarhvammi 22, Hafnarfirði.
Hlutavelta | Þessar ungu stúlkur,
Ingibjörg Sól Ævarsdóttir og Lena
Kristín Finnsdóttir, héldu nýlega
hlutaveltu til styrktar Rauða krossi
Íslands og söfnuðust 2.500 krónur.
Systir Lenu, Elva Dögg Finnsdóttir,
stóð einnig að hlutaveltunni en hana
vantar á myndina.
Morgunblaðið/Kristján
Menningarhátíðar FEB
Í Borgarleikhúsinu 19. okt. nk.
kl. 14.00–16.00
Í anddyri leikur Júlíkvartettinn frá kl. 13.30–14.00
Kynnir: Herdís Egilsdóttir.
Margrét Margeirsdóttir, formaður undirbúningsnefndar, býður
gesti velkomna.
Ávarp: Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur.
Ljóðalestur: Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld, les eigin ljóð.
Kórsöngur: Tólf ára börn úr Ártúnsskóla syngja lög við ljóð
Tómasar Guðmundssonar.
Gunnar Eyjólfsson, leikari, flytur valda kafla úr
uppáhaldsverkum.
Hlé
Einsöngur: Óskar Pétursson, skagfirski tenórinn, undirleikari
Jónas Þórir.
Ljóð og léttmeti: Séra Hjálmar Jónsson.
Harmonikuleikur: Félagar úr Félagi harmonikuunnenda leika
nokkur lög.
Kórsöngur: Gerðubergskórinn, stjórnandi Kári Friðriksson.
Miðaverð kr. 1.800. Miðapantanir í Borgarleikhúsinu í síma 568 8000
og hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík í síma 588 2111.
Dagskrá
Líkunum breytt.
Norður
♠KD10
♥– S/Enginn
♦ÁDG10
♣ÁG8642
Vestur Austur
♠97642 ♠Á53
♥K3 ♥G1082
♦985 ♦764
♣753 ♣KD9
Suður
♠G8
♥ÁD97654
♦K32
♣10
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Þótt deila megi á opnun suðurs og þá
ákvörðun hans að taka út úr þremur
gröndum í fjögur hjörtu, er nið-
urstaðan eðlileg og geimið alls ekki
slæmt.
Útspil vesturs er spaði og austur
tekur kóng blinds með ás og skiptir yf-
ir í laufkóng.
Svo er að sjá sem spilið liggi til sagn-
hafa: Hann tekur á laufás, fer heim á
spaðgosa og spilar hjartaás og litlu
hjarta. Vestur fær á á hjartakóng og
austur síðar annan slag á tromp, en
samtals fær vörnin aðeins þrjá slagi,
svo geimið vinnst.
En þá erum við komin að kjarna
málsins – vörn austurs. Þegar suður
leggur niður hjartaás ætti austur að
fylgja lit með áttunni! Ef sagnhafi
kann til verka mun hann velta stöðunni
fyrir sér og komast að þeirri nið-
urstöðu að það sé tvöfalt líklegra að
áttan sé frá G8 eða 108 heldur en K8.
Hann ætti því að spila hjartadrottn-
ingu næst til að reyna að gleypa gosa
eða tíu.
Ef spilið þróast þannig mun suður
verða fyrir vonbrigðum þegar hin
raunverulega lega kemur í ljós en get-
ur huggað sig við að hann spilaði með
líkum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is