Morgunblaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Margrét Ant-onsdóttir fædd-
ist á Dalvík 20. júlí
1926. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
10. október síðast-
liðinn. Móðir henn-
ar var Stefanía
Halldóra Jónsdótt-
ir, f. á Dalvík 24.
september 1901, d.
23. júní 1974. Faðir
hennar var Anton
Axel Ásgrímsson, f.
á Gunnólfsá ytri í
Ólafsfirði 22. ágúst 1885, d. 3. maí
1967. Margrét var tekin í fóstur á
fyrsta ári og var fósturmóðir
hennar Ingibjörg Tryggvadóttir
frá Halldórsstöðum í Bárðardal, f.
16. maí 1904, d. 14. desember
1986.
Margrét giftist hinn 20. nóvem-
ber 1954 Sigurði Lárusi Kristjáns-
syni, f. á Jaðri í Glerárþorpi 13.
Harpa Gunnlaugsdóttir og Jakob
Gunnlaugsson. c) Harpa Hrönn
Sigurðardóttir, f. 6. október 1958,
maki Gunnar Viktorsson. Synir
þeirra eru Guðmundur Ingi Gunn-
arsson og Arnarldur Orri Gunn-
arsson. d) Kristlaug María Sigurð-
ardóttir, f. 28. mars 1964, maki
Loftur Guðni Kristjánsson. Börn
þeirra eru Margrét Dagmar
Loftsdóttir og Sigurður Galdur
Loftsson. e) Íris Halla Sigurðar-
dóttir, f. 23. október 1966, maki
Jón Eggert Árnason. Börn þeirra
eru Hlynur Jónsson, Silja Jóns-
dóttir og Pálmi Jónsson. Lang-
ömmubörn Margrétar eru 17.
Margrét ólst upp í Bárðardal og
Húsavík ásamt Ingibjörgu móður
sinni. Eftir að hún flutti til Ak-
ureyrar bjó hún alla tíð í Gler-
árþorpinu, fyrst hjá tengdafor-
eldrum sínum í Eyri í
Sandgerðisbótinni, þá í Jötunfelli
og loks í Langholti 15 en það hús
byggðu þau hjónin. Síðustu árin
bjó hún að Lindarsíðu 4.
Útför Margrétar verður gerð
frá Glerárkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Jarðsett verður frá Lögmanns-
hlíðarkirkjugarði.
september 1923. Þau
eignuðust fimm
börn, en fyrir átti
Margrét einn son,
Kristján Jakob Pét-
ursson, f. 8. júní
1948, maki Ragn-
heiður Ólafsdóttir.
Börn þeirra eru Sig-
uróli Kristjánsson,
Gréta Kristjánsdótt-
ir, Kristján Krist-
jánsson og Pétur
Heiðar Kristjánsson.
Börn Margrétar og
Sigurðar eru: a) Guð-
mundur Friðrik Sigurðsson, f. 6.
febrúar 1953, maki Auður Han-
sen. Börn þeirra eru: Katrín Mel-
stað Jónsdóttir, Stefán Þór Jóns-
son, Hákon Melstað Jónsson,
Sigurður Grétar Guðmundsson og
Elmar Jón Guðmundsson. b) Ingi-
björg Anna Sigurðardóttir, f. 24.
apríl 1955, maki Gunnlaugur
Sverrisson. Börn þeirra eru
Elskuleg amma okkar er dáin og
hún var besta amma á jörðinni. Við
gátum ekki hitt ömmu eins oft og
við vildum vegna þess að hún átti
heima á Akureyri, langt, langt frá
okkur. Það var alltaf gaman að
hitta ömmu Grétu af því að hún
var alltaf svo góð og skemmtileg.
Þegar við komum í heimsókn til
hennar og Sigga afa, eða þau til
okkar, var alltaf mjög gaman hjá
okkur systkinunum og við skelli-
hlógum allan daginn.
Við söknum elsku ömmu okkar
og vildum að hún væri ennþá
hérna hjá okkur. Við samhryggj-
umst Sigga afa og öðrum vanda-
mönnum af öllu hjarta.
Margrét Dagmar og Sig-
urður Galdur Loftsbörn.
Elsku besta amma mín, nú er
komið að kveðjustund, fyrr en ég
bjóst við.
Hún amma mín hefur alla sína
tíð verið dugleg og úrræðagóð og
verið mikil húsmóðir og fyrirmynd
annarra í þeim efnum. Hún t.d.
bakaði pönnukökur á tveimur
pönnukökupönnum og fór létt með
það. Minningarnar eru margar og
sérstaklega jól í Langholtinu, en
þar bjuggu amma og afi í mörg ár.
Amma hélt fast í hefðirnar og eru
aðfangadagskvöld þar með heima-
tilbúnum ís og öðrum kræsingum
yndislegar minningar, svo ekki sé
minnst á jóladag þar sem borðin
svignuðu undan dýrindis hnallþór-
um og smákökum. Amma byrjaði
strax og ég fæddist að dekra við
mig og var það bara byrjunin og
gleymi ég aldrei þegar hún keypti
ís handa mér þrátt fyrir frost og
kulda úti. En kuldinn fór ekki vel í
hana því gigtin versnaði um allan
helming í kuldanum. Amma fékk
lömunarveikna á sínum tíma og
hafði það áhrif á hana alla tíð.
Þrátt fyrir það gerði hún allt sem
lá fyrir að gera dags daglega og
gerði það á sinn hátt. Aldrei datt
henni í hug að kvarta og kveina yf-
ir verkjum eða eymslum í líkaman-
um, fannst það ekkert hafa upp á
sig.
Amma passaði mig mikið þegar
mamma og pabbi voru að vinna og
var ég því mikið hjá henni og afa.
Þegar ég gisti og fannst vera tími
til kominn að fara á fætur bræddi
ég hana með því að segja „Elsku
amma mín, eigum við ekki að koma
á fætur núna?“ Amma var alltaf
glöð að fá okkur í heimsókn og tók
okkur alltaf með opnum örmum.
Hún vildi alltaf spila, segja sögur
frá því í gamla daga og kenna
manni ýmislegt.
Amma og ég höfum alltaf verið
nánar og gæti ég haldið endalaust
áfram að segja frá góðum minn-
ingum. Minningarnar lifa áfram og
með söknuði kveð ég hana ömmu
mína sem gerði svo margt fyrir
mig.
Elsku amma, ég veit í mínu
hjarta að þú heldur áfram að fylgj-
ast með mér eins og áður. Við
skulum hugsa um afa. Hvíl þú í
friði.
Elsku Siggi afi og afkomendur,
megi Guð leiða ykkur í gegnum
sorgina og missinn og hjálpa ykkur
að halda í minningarnar.
Ástarkveðja
Harpa Gunnlaugsdóttir.
Það er erfitt að gera sér í hug-
arlund að þú sem áttir svo sterkan
þátt í að ala mig upp og gera mig
að því sem ég er, sért farin. Ein-
hvern veginn datt mér aldrei í hug
að jafn mikil kjarnakona og þú
myndir svo skyndilega kveðja okk-
ur. Ég hef nú komist að því að
ömmur eru líka mannlegar þó svo
þær virki sem ofurhetjur þegar
maður elst upp. Tíminn í Langholti
fannst mér alltaf stórkostlegur og
hann mótaði mig og hin ömmu-
börnin meira en við vitum af, þú
varst alltaf með allt á hreinu og
vissir alltaf hvað við þurftum. Þú
manst æsku mína betur en ég og
fræddir mig oft um lætin og has-
arinn sem ég átti víst að hafa lent
í, þú bentir mér líka í laumi á að ég
væri bara framlenging af pabba og
hann framlenging af þér. Ég leit
upp til þín á margan hátt þegar ég
kom í heimsókn í Lindarsíðuna og í
dag finnst mér þægilegt að geta
litið upp og séð þig efst uppi að
henda lyklum til mín, sú minning
segir mér að þú vakir yfir okkur.
Takk fyrir stuðninginn og góðu
ráðin og takk fyrir áhrifin sem þú
hafðir á Elísabetu og Söru Ragn-
heiði og takk fyrir að vera ná-
kvæmlega þú sjálf, hvað sem gekk
á. Kaffihringur á samanbrotinni
servéttu mun sýna mér að þú fylg-
ist með og ert enn á staðnum.
P.s.: ég skulda þér ennþá mynd
af Söru Ragnheiði.
Kristján K.
Elsku amma Gréta, ég er svo
þakklát fyrir að hafa fengið að hafa
þig öll þessi ár og fyrir það að hún
Karítas fékk að kynnast þér. Þú
varst ein af mínum betri vinkonum
því ég gat talað um allt við þig. Ég
trúi því að nú sért þú komin á góð-
an stað þar sem englarnir og al-
mættið umvefja þig og leiða þig á
nýjar brautir. Ég bið góðan guð að
styrkja Sigga afa á þessum erfiða
tíma, svo og okkur öll sem eigum
um sárt að binda.
Ég kveð þig, elsku amma mín,
með ljóði eftir Stein Steinarr.
Minningin um þig lifir.
Í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefni enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, og þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynji höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Mín hljóða sorg og hlátur þinn,
sem hlutu sömu gröf.
(Steinn Steinarr.)
Gréta.
Elsku amma Gréta, nú ertu
komin til Guðs, þín verður sárt
saknað. Það var svo gaman að
koma til þín þú varst svo góð og
skemmtileg, vildir alltaf spila, gera
pappírsþotur og leika við okkur.
Við fengum líka oft ís, vöfflur og
fleira gotterí hjá þér þó það væri
ekki laugardagur. Elsku amma,
hvíl þú í friði.
Þínir langömmustrákar
Patrekur og Lárus.
Elsku amma Gréta, það var allt-
af svo gaman og gott að koma til
þín. Þú varst alltaf tilbúin með kex
og bleiku ömmukökuna. Þú varst
líka alltaf svo glöð þegar við
mamma komum í heimsókn til þín
og afa. Ég sakna þín voða mikið,
elsku amma Gréta, en ég veit að
nú líður þér vel uppi á himnum hjá
guði og fylgist með okkur.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þín langömmustelpa
Karítas Rún.
MARGRÉT
ANTONSDÓTTIR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og
langafi,
ÁRNI BJARNASON,
Fögruhlíð 7,
Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, laugar-
daginn 15. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ruth Árnadóttir, Guðmundur Jónsson,
Ása Bjarney Árnadóttir, Jón Örn Pálsson,
Guðný Hildur Árnadóttir, Guðleifur Guðmundsson,
Haraldur Árnason, Valgerður Bjarnadóttir,
Árni Özur Árnason, Díana Ósk Pétursdóttir,
Reynir Bjarnason, Guðný Bernhards,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær fósturmóðir mín, frænka og systir okkar,
INGIBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
áður til heimilis í Akurgerði 3,
Reykjavík,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund föstu-
daginn 14. október.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
24. október og hefst athöfnin kl. 13.00.
Agnes Þórunn Guðbergsdóttir, Kristján Ingvar Jóhannesson,
Dóra Rún Kristjánsdóttir,
Jóhannes Kristjánsson,
Guðbergur Kristjánsson,
Arnfríður Margrét Hallvarðsdóttir, Þór Þorbergsson
og fjölskylda,
Ingigerður Anna Kristjánsdóttir,
Halldóra Kristjánsdóttir,
Finnur Kristjánsson, Sæbjörg Jónsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og sonur,
SIGURÐUR VALDIMAR OLGEIRSSON
fv. skipstjóri og útgerðarmaður,
Uppsalavegi 22,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík,
laugardaginn 15. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Auður Þórunn Hermannsdóttir,
Ásta Sigurðardóttir, Páll L. Björgvinsson,
Olgeir Sigurðsson, Jakobína Gunnarsdóttir,
Hermann Sigurðsson, Ásta Birna Gunnarsdóttir,
Kristján Friðrik Sigurðsson, Sylvía Rún Hallgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Olgeir Sigurgeirsson og Ragnheiður Fr. Jónasdóttir.
Eiginmaður minn,
JÓHANN HERMANNSSON
fyrrverandi umboðsmaður skattstjóra
á Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sunnudaginn
16. október.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
22. október kl. 11.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðrún S. Tryggvadóttir.
Elskulegur eiginmaður, faðir, fósturfaðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN SIGTRYGGUR ZOPHONÍASSON,
Gullsmára 10,
Kópavogi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut sunnudaginn 16. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Heiður Gestsdóttir,
Zophonías O. Jónsson, Veska A. Jónsdóttir,
Elín Þ. Ólafsdóttir, Grétar O. Róbertsson,
Jóna Ólafsdóttir, Helgi Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.