Morgunblaðið - 18.10.2005, Page 35

Morgunblaðið - 18.10.2005, Page 35
ingur, greind kona og ljóðelsk og af- ar skemmtileg, sem kappkostaði að halda tryggð við frændgarð sinn. Margs er nú að minnast, sem ekki verður í letur fært. Í huga mínum mun alltaf verða birta og gleði yfir minningu hennar. Ég sendi innileg- ar samúðarkveðjur frá mér og fjöl- skyldu minni til barna hennar og fjölskyldna þeirra. Blessuð sé minn- ing Sólveigar Jónsdóttur. Vilhjálmur Kr. Andrésson. Mikil vinkona mín Solveig Jóns- dóttir – Dollý er fallin frá. Ég átti því láni að fagna að eiga vin í þessari umbúðalausu konu, þessu kvikusára næmi sem kenndi svo til þegar aðrir þjáðust að hún afbar það varla. Kynni mín af henni hófust í gegnum vináttu við börn þeirra, einkum Ás- dísi dóttur þeirra, sem leiddi til þess að ég var mikill heimagangur heim- ili Solveigar og Ásbergs heitins Sig- urðssonar borgarfógeta. Solveig var engin hversdags- manneskja. Hún gaf umhverfi sínu virðulega reisn. Framhjá henni var aldrei litið. Hnarreist var hún og upplitsdjörf. Hún hafði fríðan og heiðan svip, en fullkomlega laus við alla tilgerð eða hálfvelgju. Alltaf lit- rík og skemmtileg. Lundin var ör, skapið mikið og heitt en hlý og gjöf- ul. Hún var vel að sér um menn og málefni. Henni varð ekki orða vant þegar hún varði þann málstað sem henni var hugstæður. Hún var eins og sápuþveginn heiðarleiki einstak- lingsframtaksins og taldi að þannig mætti mest ávinnast til almennings- heilla. Þegar hún tók til máls duldist engum að hér talaði enginn viðvan- ingur. Orðin spruttu óhikuð af vörum hennar, setningarnar felldar í fast mót, tungutakið þegar íslensk- an er hvað tærust. Oft harmaði ég það að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki borið gæfu til að ráða þessa ágætu konu sem faranderindreka sinn um landið til að flytja fagnaðar- erindið eins og Páll postuli gerði forðum. Kynni mín af heimili Solveigar og fjölskyldu hennar fæ ég aldrei full- þakkað. Né Solveigu á mikilsverðu skeiði ævinnar. Við ætluðum að hitt- ast þegar hún losnaði af sjúkrahús- inu, en hún fór nú aðra för. Sé eitt- hvert eilífðarland handan fjalla bíða hennar vísast nánir ættingjar sem fóru á undan, og vel mætti hugsa sér að þau sætu við guðaveigar, Sig- urlína dóttir hennar og Ásberg eig- inmaður Solveigar og hjá þeim Pálmi í Hagkaup, tvíburabróðir hennar, með blik í auga. Sé þetta land ekki til er myndin samt á sín- um stað Sigríður Ingvarsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 35 MINNINGAR Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLMI EYJÓLFSSON fyrrv. sýslufulltrúi, Hvolsvegi 19, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 22. október kl. 11.00 fyrir hádegi. Jarðsett verður í Stórólfshvolskirkjugarði á Hvolsvelli. Að athöfn lokinni vonumst við til að sjá sem flesta í hádegisverði í Félags- heimilinu Hvoli, Hvolsvelli, kl. 13.00. Margrét Jóna Ísleifsdóttir, Guðríður Björk Pálmadóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Haraldur Sturlaugsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna and- láts og útfarar föður okkar, JÓNS EARNEST HENSLEY, Þverholti 1, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar 1 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og heima- hlynningar á Akureyri. María Hensley, Helga Jónsdóttir, Erla Björk Jónsdóttir, Jón Þorri Jónsson, Dórothea Jónsdóttir, Hjördís Jónsdóttir, Rúnar Guðni Kellog og fjölskyldur. Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN EINARSSON, Grænugötu 12, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 20. október kl. 13.30. Kristbjörg Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson, Guðfinna Kristjánsdóttir, Kristján Magnússon, Árvök Kristjánsdóttir, Einar Kristjánsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Ársæll Kristjánsson, Dóra Kristjánsdóttir, Heiðrún Kristjánsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Vilhjálmur Þ. Snædal, Haukur Arnar Árnason, Sveinbjörg Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Minningarathöfn verður haldin um ástkæran son, föður og bróður, BJARNA ÞÓRI ÞÓRÐARSON, síðast til heimilis í Thysted, Jótlandi, Danmörku, sem lést miðvikudaginn 5. október, í Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 20. október kl. 13.00. Þórður Vilhjálmsson, Ægir Máni Bjarnason, Álfrún Auður Bjarnadóttir, Ísak Logi Bjarnason, Þórdís Þórðardóttir, Ægir Þórðarson, Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir, Kristín Þórðardóttir, Inga Hildur Þórðardóttir. Elskulegur faðir okkar, afi og langafi, GILBERT BENJAMÍN FABER, Sunnuflöt 43, Garðabæ, sem lést fimmtudaginn 13. október, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 21. október kl. 15.00. Donald Faber, Berta Faber, Bruce Faber, Brian Faber. Síminn hringdi og Björg segir mér: „Mamma fór í nótt.“ Þó ég hafi átt von á þessu þá fyllt- ist ég hryggð. Kvöldið áður var ég að skoða myndaalbúmið mitt og í einu hólfi eru tvær myndir. Dag- inn sem sú fyrri var tekin man ég eins og það hefði gerst í gær. Það var sólbjartur maídagur í Siglu- firði og við vorum að koma heim úr enskuprófi. Er við komum að heimili Sissu kom Helga mamma Sissu út á tröppurnar og hrópaði: „Stelpur, stelpur, stríðið er búið. Það er kominn friður.“ Við hlógum og föðmuðumst og í tilefni þessara miklu og góðu frétta fórum við á ljósmyndastofu og létum taka mynd af okkur. Hin var tekin árið 2000 og erum við þar tvær konur sem erum bún- ar að lifa og starfa, mæta gleði og sorgum lífsins, eignast börnin okk- ar, missa makana, en samt brosum við áfram. Minningarnar hrannast upp. Skólaárin ljúfu á kirkjuloft- inu. Er skóla lauk fór Sissa í Verzlunarskólann, en ég að vinna í Reykjavík. Oft kom hún eftir skóla til mín í vinnuna. Þegar hún fór svo til náms í Kaupmannahöfn skrifuðumst við á. Okkur stelp- unum fannst hún svo óralangt í burtu en svo ævintýralegt að vera í námi í Kaupmannahöfn. Okkur stelpunum fannst svo mikið til um þetta að utan á bréfin skrifuðum við fröken Sigurlaug Barðason. Virðulegt skyldi það vera við siglda stúlku sem var að mennta sig í framandi landi. Ég held ég hafi verið sú fyrsta sem hún trúði fyrir að hún væri búin að hitta svo sætan og góðan strák sem væri kallaður Daddi. Svo tók alvara lífsins við. Við giftum okkur og bjuggum sín í hvorum landshlutanum lengi vel. Þá var tíminn sem fór í ferðir milli landshluta miklu lengri en í dag og því virkaði fjarlægðin meiri. Við SIGURLAUG BARÐADÓTTIR ✝ SigurlaugBarðadóttir fæddist í Reykjavík 20. maí 1931. Hún andaðist á líknar- deild Landakots- spítala 13. septem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Kópavogs- kirkju 23. septem- ber. fylgdumst alltaf vel hvor með annarri, lít- il jólakveðja var kær- komin og smá fréttir af og til. Síðustu árin eftir að ég kom til Reykja- víkur var sambandið meira. Ótal símtöl og eitt og eitt matarboð. Hér í glugga mínum stendur fallegur vasi sem hún færði mér síðast þegar hún kom í heimsókn. Hann er mér mikils virði og eitt brotið í ljúft safn minning- anna. Við Sissa vorum þremenningar og ég var alltaf svo stolt af þessari fallegu og prúðu frænku minni sem var líka svo einstaklega fáguð í framkomu. Svo veiktist hún af krabbameininu. Í símtali við mig sagði hún „Ég verð nú áfram með hann Guttorm minn,“ en það kall- aði hún stomapokann. Í annað skipti var hún að segja mér hvern- ig þetta gengi fyrir sig. Þá sagði hún: „Sirra mín, þetta er ekkert fyrir mig kerlinguna, en ungu kon- urnar sem eru með mér í meðferð og eiga ung börn.“ Ekki var nú kvartað mikið. Ég heimsótti hana eftir að hún var komin á líknardeildina, að vísu bara einu sinni því ég tók svo nærri mér að sjá að hverju stefndi. Sú stund er gimsteinn í sjóði minninganna. Ég var sest upp í rúmið hjá henni. Við rifjuðum upp er við 15 ára stóðum saman við kassana sumarið 1946 að salta síld. Oft vorum við þreyttar enda hvorki matar- né kaffitími og orðið pása þekktist ekki. Við töluðum um skólaárin, Siglufjörð og glens og gaman. Þrátt fyrir að Sissa hafi verið orðin helsjúk og vitandi að skammt væri eftir var hún kát, glettin og með gamanmál á vör. Þessi stund var mér dýrmæt og þannig mun ég alltaf minnast Sissu. Þetta litla vísukorn segir betur en ég get orðað sjálf það sem í huga mér býr: Við áttum hér saman svo indæla stund, sem aldrei mér hverfur úr minni, og nú ertu genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Fr. St. frá Grímsstöðum.) Takk fyrir allt, kæra frænka. Sigrún Clausen. Á þessum tíma kröfðust störf út- réttamanna fyrirhyggju og mikillar ábyrgðar um langan rekstur fjár- ins áður en horfið var að bílflutn- ingi eins og nú er tíðast gert. Utan þess, sem hér hefur verið frá sagt, sinnti Þórarinn lítið eða ekki félagsmálum. Hann tók ekki þátt í hvers konar almennum mannfundum, en var glaður og góður viðmælandi hvar sem leiðir hans lágu í daglegu amstri. Að þessu leyti fór hann sín- ar eigin leiðir, allt til síðustu stund- ar. Þórarinn Þorleifsson missti eig- inkonu sína Helgu Kristjánsdóttur árið 1998. Að því skeðu fargaði hann skepnum sínum og fór til vistar á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi þar sem hann virtist una vel hag sínum. Brottför hans kom snöggt og án sýnilegs fyrirvara. Vísa föður hans Þorleifs Jónssonar kom í hugann: Lífið gegn um ljúft í sprett, lítt ég kenni meina. Flýg ég eins og fuglinn létt, frjáls á milli greina. Þannig er gott að lifa og kveðja. Undirritaður þakkar Þórarni langa og trausta samleið, allt frá því að við vorum báðir ungir að árum. Fjölmörgum afkomendum hans og venslafólki votta ég virðingu og samhug. Grímur Gíslason. Sigríður Jóhannes- dóttir starfaði um ára- bil fyrir orlofsbúðir starfsmanna Landsbanka Íslands. Hennar hlut- verk var umsjón orlofshúsa og ekki hvað síst að þjónusta starfsmenn bankans, sem voru á leið í hvíldardvöl í einhverju af hinum mörgu orlofshús- um bankans. Vegna starfa sinna var hún gjarnan kölluð Sigga „holliday“. Starf hennar var ekki einfalt oft á tíð- um og það hefur vafalaust verið mikið mál að halda utan um allar úthlutanir í spjaldskrá eins og gert var á árum áður. Úthlutun og úrvinnsla hennar var öll handunnin og því mikið starf. Með tilkomu tölvuúthlutunar var starf hennar sameinað skrifstofu- starfi félagsins. Eftir það hóf hún SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR ✝ Sigríður Jó-hannesdóttir fæddist að Saurum í Helgafellssveit 8. júní 1939. Hún and- aðist á krabba- meinslækningadeild Landspítalans 18. september síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni 28. september. störf í Austurbæjar- útibúi bankans. Hún var enn í húsinu og því voru samskiptin áfram til staðar. Sigríður var glæsi- leg kona og ákaflega þægileg í öllum sam- skiptum. Hún hætti störfum hjá bankanum kát og glöð og full eft- irvæntingar á leið til fjarlægra landa með nýju ástinni í lífi sínu. Við fréttum af henni glaðri og ánægðri í suð- lægri álfu. Því miður dró ský fyrir sólu allt of fljótt og Sigríður veiktist af sínu banameini. Hún var samt alltaf bjartsýn og gerði það sem hún ætlaði sér. Stjórn félags starfsmanna Lands- banka Íslands kveður Sigríði með vin- semd og virðingu og þakkar um leið farsæl störf hennar í þágu starfs- manna bankans. Við færum sambýlismanni hennar, Birni Dagbjartssyni, og börnum hennar og fjölskyldu samúðarkveðj- ur. F.h. FSLÍ, Helga Jónsdóttir og Sigríður Friðgeirsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.