Morgunblaðið - 18.10.2005, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4 ísl.tal
Göldrótt
gamanmynd!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
S.V. / MBL
Sýnd kl. 4 í þrívídd
Sýnd kl. 6 B.i. 14 ára
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og
Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA
MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.
Topp5.is
S.V. / MBL
Sýnd kl. 3.40 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.40 B.i. 14 ára
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
THE PROFESSIONAL
OG LA FEMME NIKITA
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
SÁ BESTI Í BRANSANUM ER MÆTTUR AFTUR!
kl. 4, 6, 8 og 10
Topp5.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
S.V. / MBL
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.45 B.i. 14 ára
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
THE PROFESSIONAL
OG LA FEMME NIKITA
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
SÁ BESTI Í BRANSANUM ER
MÆTTUR AFTUR!
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Frá leikstjóranum David
Cronenberg kemur ein
athyglisverðasta mynd ársins.
Viggo Mortensen, Maria Bello, Ed Harris og William
Hurt fara á kostum í þessari frábæru spennumynd.
Tom Stall lifði
fullkomnu lífi...
þangað til hann
varð að hetju.
Miða sala opn ar kl. 17.15
Sími 551 9000
OG
FRÁ FRAM-
LEIÐENDUM
Sjáið Wallace
& Gromit í sinni
fyrstu bíómynd.
Frábær
skemmtun
fyrir alla
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR
VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.
Sími 564 0000í i
Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. .30
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fífl ið, XFM
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar
Mörgæsirnar halda í jólaleiðangur sýnd.
Skemmtileg ævintýramynd
með íslensku tali.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
HLJÓMSVEITIRNAR The Zutons,
Annie, Architecture in Helsinki,
Rass, Mitchell Brothers, Hjálmar,
Daníel Ágúst og Jeff Who? eru á
meðal þeirra sem eiga lög á sér-
stökum hátíðardiski Iceland Air-
waves sem kemur út í dag. Disk-
urinn ber einfaldlega nafnið Iceland
Airwaves 05 og inniheldur tuttugu
lög með jafn mörgum listamönnum
sem koma fram á hátíðinni í ár.
Diskurinn er sagður bera keim af
þeirri alþjóðlegu stöðu sem hátíðin
hefur náð en útlendir listamenn hafa
aldrei verið fleiri.
Diskurinn verður seldur í Upplýs-
ingamiðstöð Airwaves sem í ár verð-
ur staðsett í Hressingarskálanum
við Austurstræti, á völdum tónleika-
stöðum og í plötuverslunum Reykja-
víkur. Verð 2.000 krónur.
Iceland Airwaves ’05
1. The Zutons (UK) - Don’t Ever
think (too much).
2. Annie (NO) - Heartbeat
3. Lo-Fi Fnk (SE) - Change
Channels.
4. The (International) Noise
Conspiracy (SE) - Black Mask.
5. Rass (IS) - Kárahnjúkar.
6. The Viking Giant Show (IS) -
Party at the White House.
7. Mitchell Brothers (UK) - Rout-
ine Check (featuring Kano &
The Streets).
8. Hjálmar (IS) - Og mig langar í
kærustu.
9. The Rushes (UK) - I Swear.
10. José Gonzáez (SE) - Crosses.
11. AMPOP (IS) - Eternal Bliss.
12. Daníel Ágúst (IS) - If You Leave
Me Now.
13. Au Revoir Simone (US) - Thro-
ugh the Backyards.
14. Architecture in Helsinki (AUS) -
Do the Whirlwind.
15. New Radio (US) - The Miracle.
16. The Union of Knives (UK) - Evil
Has Never.
17. Jeff Who (IS) - Faces.
18. Bang Gang (IS) - Find What
You Get.
19. Ghostigital (IS) - Not Clean
(feat. Mark E. Smith).
20. Gus Gus (IS) - If You Don’t Jump
Your English.
Tónlist | Hátíðardisk-
ur Iceland Airwaves
Alþjóð-
legt
yfirbragð
JOSÉ González er einn þeirra tónlistarmanna
sem koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í
ár. José er sænskur ríkisborgari, fæddur árið
1978 í Svíþjóð en eins og nafnið gefur til kynna
á hann ættir að rekja til Rómönsku-Ameríku,
nánar tiltekið Argentínu. José segir að á heimili
hans hafi verið gítar sem hann glamraði á þeg-
ar hann var yngri en að tónlistaráhuginn hafi
fyrst vaknað fyrir alvöru þegar faðir hans kom
heim einn daginn með nótnabók með lögum
Bítlanna og sígildum bossa nova-lögum.
José lýsir tónlist sinni sem einfaldri trúba-
dúra-tónlist; hann spili á gítar og syngi en að
töluverðu leyti teygi hann sig eftir klassískum
og suður-amerískum áhrifum við lagasmíð-
arnar.
„Þrátt fyrir að ég hafi lært klassískan gít-
arleik taldi ég mig aldrei eiga neina framtíð í
þeim geira. Að einhverju leyti var ég orðinn of
gamall til að geta keppt við þá bestu og svo leit-
aði hugur minn fljótt út í popptónlist.“
Þegar José lítur yfir lögin sem eru á nýjustu
plötu hans, Veneer, segir hann að áhrifanna
gæti víða, allt frá Geoff Farina og João Gilberto
til Nick Drake en að það megi líka draga línu
frá harðkjarna-pönki sem hann spilaði og hlust-
aði á þegar hann var táningur. „Ég reyni að
vera jafn hreinskilinn í lagasmíðum mínum í
dag og þegar ég samdi harðkjarnalög. Sama
gildir um flutning á tónleikum sem ég reyni að
haga eftir lögmálum harðkjarnatónlistar.
Um textana segir José að þeir séu ekki svo
mikið sögur eða ástarljóð eins og svo algengt er
í popptextum. „Ég reyni frekar að bregða upp
óljósum myndum og jafnvel skyndimyndum úr
daglegu lífi. Ég er ekki mikill aðdáandi hefð-
bundinnar textasmíðar.“
José þykist ekki ætla að feta í fótspor ann-
arra sænskra súperhljómsveita á borð við
ABBA og Cardigans þó að hann sé einn af efni-
legustu tónlistarmönnum Svía um þessar mund-
ir. „Ég er alltof langt út á jaðrinum til að ná
sama plani og þær. Þar að auki er það enginn
metnaður af minni hálfu að verða frægur eða
vinsæll. Mér hefur gengið vel hingað til án þess
að þurfa að höfða til fjöldans og ég hugsa að ég
haldi sömu línu áfram.“
Tónlist | José González spilar á Iceland Airwaves
Dökk-
hærður
Svíi
José González er á góðri leið með að verða skær-
asta stjarna Svía, þvert á eigin óskir.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
José González kemur fram í Þjóðleikhúskjall-
aranum, fimmtudaginn 20 feb. kl. 23.40
Í ÚTHVERFUM Lundúna renna
nú saman menningarstraumar í
skemmtilegan graut sem menn kalla
„grime“. Fulltrúar „grime“ á tónlist-
arhátíðinni miklu Airwaves, eru The
Mitchell Brothers sem leika á
Gauknum á föstudagskvöldið.
Frændurnir Tony og Teddy eru að-
almenn í sveitinni og Teddy segir þá
spennta fyrir því að koma til Íslands.
The Mitchell Brothers vöktu fyrst
athygli fyrir það að vera undir
verndarvæng Mike Skinner sem
kallar sig The Streets. Það bar
þannig við, eins og Teddy rekur sög-
una, að þeir sáu hann í biðröð í
banka og laumuðu disk með kynn-
ingarupptökum í vasa hans. Þau lög,
sem enginn hefur heyrt nema þeir
frændur og Skinner, féllu þeim síð-
arnefnda svo vel í geð að hann samdi
undireins við þá bræður um útgáfu á
breiðskífu á vegum útgáfu sem hann
var þá nýbúinn að stofna.
Ted segir að þótt þeir séu orðnir
þreyttir á að fólk vilji helst bara tala
um Mike Skinner og The Streets
þegar þeir veiti viðtöl vegna plöt-
unnar, þá sé því ekki neita að sam-
band þeirra við hann hafi verið
hljómsveitinni mjög mikilvægt. „Við
héldum mikið upp á hann sem tón-
listarmann áður en hann samdi við
okkur, og það var frábært að fá að
vinna með honum,“ segir Teddy, en
Skinner aðstoðar þá einmitt við gerð
plötunnar.
Áður en látið er af tali um The
Streets og Mitchell Brothers er rétt
að geta þess að þeir Mitchell-
frændur eru í raun talsvert frá-
brugðnir því sem Skinner er að gera,
bæði tónlistarlega og textalega þó
flokka megi hvort tveggja sem
„grime“. Fyrir það fyrsta eru þeir
sprottnir úr hreinu rappi og má
heyra það á frumraun þeirra, A
Breath of Fresh Attire, sem kom út
síðsumars.
Þeir eru líka harðari í textum, lýsa
heimi sem er harkalegri en sá sem
Skinner þekkir, í það minnsta ef
rýnt er í texta beggja. Teddy segir
líka að lífið í sumum hverfum Lund-
úna sé ekki beint þægilegt, það séu
víða vandamál. Í mörgum laganna á
plötunni eru þeir þannig að ríma um
erfiðleika dagslegs lífs, glímu við fá-
tækt, atvinnuleysi og eiturlyf, þó
þeir séu líka að skemmta sér, bregða
á leik.
Tónlistin á A Breath of Fresh Att-
ire er býsna fjölbreytt, mikið í gangi,
og Teddy segir að það sé ekki nema
von, þeir félagar hafi hver sína skoð-
un á því hvernig tónlist eigi að
hljóma og allir leggi sitt af mörkum.
„Það má eiginlega segja að hver
plata sé málamiðlun og hljómsveitin
öll, það fá allir að láta ljós sitt skína
og ef það hljómar vel er um að gera
að nota það.“
Tónlist | The Mitchell Brothers spila á Iceland Airwaves
Hljómsveitin
er málamiðlun
The Mitchell Brothers eru fulltrúar „grime“-stefnunnar á Airwaves í ár.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
The Mitchell Brothers koma fram
á föstudeginum á Gauki á Stöng kl.
23.30