Morgunblaðið - 18.10.2005, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Óskarsverðlaunahafarnir Russell
Crowe og Renée Zellweger fara á
kostum í sterkustu mynd ársins.
Mynd eftir Ron Howard
(“A Beautiful Mind”).
TOPPMYNDIN Í USA
2 VIKUR Í RÖÐ
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd
ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
TOPPMYNDIN Í USA
2 VIKUR Í RÖÐ
Spenntu beltin og undirbúðu þig
undir háspennumynd ársins með
Óskarsverðlaunahafanum
Jodie Foster.
Flight Plan kl. 5.50 - 8 - 10.15 b.i. 12 ára
Cinderella Man kl. 5.30 - 8.30 - 10.10 b.i. 14 ára
Must Love Dogs kl. 6 - 10
Charlie and the... kl. 5.45 - 8
Strákarnir Okkar kl. 8
Must love dogs kl. 6 - 10
KÓRINN
íslensk heimildarmynd
Sýnd kl. 8
Það er gaman að vera í kór!
Vinsælasta
myndin í
USA og á
BRETLANDI
Í dag.
V.J.V. TOPP5.IS
ROGER EBERT Kvikmyndir.com
H.J. / MBL
M.M.J. / Kvikmyndir.com
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
Roger Ebert
Í TILEFNI að afhendingu Kvik-
myndaverðlauna Norðurlandaráðs á
miðvikudaginn verða kvikmyndirnar
tíu sem tilnefndar voru frá Finn-
landi, Íslandi, Noregi, og Svíþjóð,
sýndar í Háskólabíói út þessa viku.
Þegar hefur verið tilkynnt að danska
myndin Drabet bar sigur úr býtum
og mun Beate Bille, sem leikur í
myndinni verða viðstödd sýningu
myndarinnar á miðvikudaginn og
taka þátt í málstofu um norrænar
samtímakvikmyndir sem haldin
verður í Norræna húsinu sama dag
kl. 14–17. Þar flytja erindi Finn
Gjerdum, framleiðandi norsku
myndarinnar Hawaii, Oslo, Ruben
Østlund, leikstjóri og handritshöf-
undur sænsku myndarinnar Gitarr-
mongot og Johan Bylund, sem leikur
í myndinni, Jón Proppé, sem fjallar
um Gargandi snilld, Baltasar Kor-
mákur, framleiðandi Dísar, Torben
Godal, prófessor í kvikmyndafræð-
um við Kaupmannahafnarháskóla og
Oddný Sen, kvikmyndafræðingur og
rithöfundur.
Dagskrá hátíðarinnar
Þriðjudagur 18/10:
Kl.18 Dís
Kl. 22 Paha Maa / Eyðilönd. Fin-
land. Enskur texti.
Miðvikudagur 19/10:
Kl. 17.15 Gargandi snilld.
Kl. 22 Drabet. Danmörk. Beate
Bille kynnir.
Fimmtudagur 20/10:
Kl. 20 Hawaii, Oslo. Finn Gjer-
dum kynnir.
Föstudagur 21/10:
Kl. 17.15 Gargandi snilld
Laugardagur 22/10:
Kl. 17.00 Gargandi snilld.
Kl. 19.00 Pusher II. Danmörk.
Enskur texti.
Kl. 21.00 Melancholian 3. Finland.
Enskur texti.
Kl. 23.00 Ett hål i mitt hjärta. Sví-
þjóð. Enskur texti.
Miðaverð á einstakar myndir er
800 kr. en einnig verður hægt að
kaupa hátíðarpassa sem gildir á all-
ar myndirnar tíu fyrir 4.000 kr. Að-
gangur að málstofunni 19. október
er ókeypis.
Kvikmyndir | Bestu myndir Norðurlanda sýndar í Háskólabíói
Úr íslensku kvikmyndinni Dís.
Kvikmyndahátíð og málstofa
ÞAÐ var mögnuð stemmning í Há-
skólabíói þegar tónleikar Jons And-
erson hófust, en þessi frægi forsöngv-
ari framsóknar-rokksveitarinnar Yes
er vissulega án efa tærasti rokk-
söngvari heims. (Við skulum sjá hvað
samkeppnisyfirvöld segja um þessa
fullyrðingu.)
Anderson sveik engan með ein-
lægri framkomu sinni og skemmti-
legum uppátækjum á þessum loka-
tónleikum í tónleikaröðinni „Work in
progress“. Milli laga sagði hann stór-
skemmtilegar sögur af samskiptum
sínum við fjölda fólks, þar á meðal
bandaríska unglinga sem honum
þótti afar vænt um og gríska tónsnill-
inginn Vangelis Papathanassiou, sem
hann átti afar frjótt samstarf með og
unnu þeir saman fjórar plötur.
Jon Anderson er lifaður maður.
Hann á að baki áratugi af því að
skemmta áhorfendum og fremja list
sína fyrir þá. Hann á líka að baki mik-
ið grúsk í gegnum mestu tækni-
framfarir sem hafa orðið í mannkyns-
sögunni og hafa þær ekki síst breytt
starfsumhverfi tónlistarmanna um-
talsvert. Deildi hann með áhorf-
endum skemmtilegum og áhugaverð-
um tilraunum sínum með Midi-gítar,
sem hann notar til að stýra undirleik
við tónlist sína. Þessi uppátæki hefðu
vafalaust getað sprungið í andlitið á
minni mönnum og látið þá líta út eins
og hallærislegan trúbador á knæpu,
en Jon Anderson hefur mikla og góða
útgeislun og er stórskemmtilegur í
samskiptum sínum við áhorfendur.
Með einlægni sinni, sem stemmir af
lífsreynslu og þekkingu á hinu mann-
lega, slapp hann næstum algerlega
við hallærisleikann sem gæti fylgt því
að vera einn með kassagítarinn og
samt með heilan haug af meðfylgj-
andi hljóðum í bakgrunninum.
Jon náði mjög góðum hæðum bæði
í sögum sínum og flutningi, en best
þótti undirrituðum honum takast upp
þegar hann lék einn með kassagít-
arinn og einnig þegar hann tók píanó-
lag þar sem röddin kallaðist á við
hljómborðið í einhvers konar
hrynstríðum borðtennis.
Söngur Jons var skýr og tær og
textarnir komu vel fram, boðskap-
urinn ætíð jákvæður og fallegur,
nokkurs konar möntrur um betra líf.
Ómþýðar laglínur og skemmtilegur
flutningur héldust í hendur og sköp-
uðu hina fínustu kvöldstund með
þessum blíðlynda og skemmtilega
söngvara. Þó flæktist vídeósýning
sem varpað var fyrir ofan söngvarann
dálítið fyrir og minnti á stundum á
karaoke-myndbönd.
Jon lék á tónleikunum mörg af sín-
um þekktustu lögum, þar á meðal
samstarfsverkefni hans og Vangelis
„Somehow I’ll find my way home“ og
„State of independence“ auk þess
sem hann tók sérdeilis forvitnilega
kassagítarútgáfu af hinu sígilda lagi
„Owner of a lonely heart“. Voru
áhorfendur hinir hressustu með það
og fögnuðu vel. Mátti í salnum sjá
fjölmarga karlmenn í kringum fer-
tugs- og fimmtugsaldurinn sem
greinilega höfðu lúrt yfir Yes-
plötunum heima. Kannski fengu þeir
ekki nákvæmlega það sem þeir vildu,
en engu að síður gaf Jon Anderson
mjög fjölbreytta dagskrá af skemmti-
legum útgáfum af fjölda laga. Var
honum verðlaunað með miklu klappi
og söng hann sem uppklappslag lagið
„I’ve seen all good people“ auk óðs
um Írland sem hann söng án undir-
leiks og bar sá söngur lokavitnisburð
um frábæra rödd kappans, sem hefur
engu gleymt þrátt fyrir að aldurinn
sé að færast yfir.
Einlægnin fleytir
mönnum langt
Morgunblaðið/Eggert
„Jon náði mjög góðum hæðum bæði í sögum sínum og flutningi,“ segir
meðal annars í dómnum.
TÓNLIST
Tónleikar
Háskólabíó 16. október.
Jon Anderson – Svavar Knútur Kristinsson
THE VIKING Giant Show er ein-
staklingsverkefni Heiðars Arnar
Kristjánssonar sem hófst með tón-
listargrúski á heimili hans fyrir
nokkrum árum.
„Ætli það séu ekki svona þrjú ár
síðan ég byrjaði að taka upp tónlist
hérna heima,“ segir Heiðar. „Þetta
hefur svo smám saman undið uppá
sig og núna er ég kominn með tvo
með mér. Það eru þeir Kristinn
Gunnar sem ber húðir og Gulli,
bassaleikari í Lights on the
Highway, sem ætla að vera með mér
á tónleikunum.“
Tónleikarnir sem Heiðar vísar til
fara fram á laugardaginn næstkom-
andi klukkan 20.40 í Hafnarhúsinu
og eru hluti af dagskrá Iceland
Airwaves.
Hann segist ekki vera búinn að
ákveða dagskrá fyrir tónleikana á
laugardaginn en segir víst að skipt
verði um gír þegar líða tekur á.
„Ég sé fyrir mér að fyrrihlutinn
verði lágstemmdari en eftir hlé verð-
ur aðeins gefið í og meira stuð,“ seg-
ir Heiðar.
Hann áætlar útgáfu sinnar fyrstu
plötu undir formerkjum The Viking
Giant snemma á næsta ári.
„Hún á eftir að innihalda allt! Ég
geri bara nákvæmlega þar sem mér
dettur í hug án þess að vera að
hugsa um strauma og stefnur í tón-
listinni. Ef mér finnst eitthvað
skemmtilegt þá bara læt ég það
flakka,“ segir Heiðar og segist afar
spenntur fyrir laugardeginum.
„Það er alltaf gaman að taka þátt í
Airwaves. Þetta er alveg nauðsynleg
uppákoma og lífgar uppá bæinn. Það
er ekki síst gaman að hlusta á hin ís-
lensku böndin. Það er spennandi að
fá að fylgjast með hvað hinir eru að
gera í bílskúrnum við hliðina,“ sagði
Heiðar að lokum.
Tónlist | The Viking Giant Show spilar
á Iceland Airwaves
Hugsar hvorki um
strauma né stefnur
Heiðar Örn er The Viking Giant.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Ther Viking Giant Show kemur frá
laugardeginum í Hafnarhúsinu kl.
20.40
Miklar líkur eru taldar á því aðAngelina Jolie fari með hlut-
verk í næstu James Bond-mynd,
Casino Royale.
Herma fregnir að
Angelina sé nú í við-
ræðum við framleið-
endur myndarinnar
um að hún taki að sér
hlutverk rússneska
njósnarans Vesper
Lynd, sem á vingott við Bond, er
leikinn verður af Daniel Craig.
Breska dagblaðið The Sun hefur
eftir heimildarmanni sínum: „Angel-
ina er einmitt sú rétta til að leika
hina fullkomnu Bond-stúlku.“
Bítillinn fyrrverandi, PaulMcCartney, hefur svarað að-
dróttunum Yoko Ono, ekkju Johns
Lennon, þess efnis að
hann væri verri tón-
listarmaður en eig-
inmaður hennar fyrr-
verandi.
Ono lét þau orð
falla á verðlaunahátíð
Q-tónlistarblaðsins í
vikunni sem leið þar sem hún tók við
sérstökum verðlaunum fyrir Lennon
heitinn. Sagði McCartney að hún
væri nú ekki mikið gáfnaljós og virt-
ist sem líf hennar væri helgað því að
gera lítið úr honum ef litið væri til
þess hversu oft hún hefði talað illa
um hann. „Hún er ekkja Johns og
því sýni ég henni þá virðingu að
segja ekki meir,“ sagði McCartney í
viðtali við breska dagblaðið Sunday
Express.
Fólk folk@mbl.is