Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 1
Íslenskt
reggí
Nýja platan með Hjálmum
er alvöru reggí | Menning 42
Úr verinu og Íþróttir
Úr verinu | Síldarfrystingin nánast sjálfvirk Stoltar af
sinni litlu rannsóknastofu Íþróttir | KA-menn drógust gegn
Steaua Búkarest Eyjastúlkur með í knattspyrnunni
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands og
Samtök atvinnulífsins undirrituðu
síðdegis í gær samkomulag um breyt-
ingar á kjarasamningum. Í því felst að
launþegar ASÍ fá 26 þúsund króna
eingreiðslu fyrir 15. desember næst-
komandi og 0,65% launahækkun um-
fram umsamdar hækkanir 1. janúar
2007. Þá munu lágmarkslaun fyrir
dagvinnu hækka.
Samningsaðilar voru sammála um
að aðild ríkisstjórnarinnar að málinu
hefði skipt miklu og haft úrslitaþýð-
ingu. Í aðgerðum ríkisstjórnarinnar
vegur þyngst framlag upp á um 1.500-
1.800 milljónir króna til að draga úr
örorkubyrði lífeyrissjóða á samnings-
sviði ASÍ og SA. Ríkisstjórnin mun
einnig beita sér fyrir lögum um
starfsmannaleigur og að umfangs-
miklar breytingar verði gerðar á at-
vinnuleysisbótakerfinu. Í þeim felst
m.a. að atvinnuleysisbætur verða
tekjutengdar í þrjá mánuði á þriggja
ára tímabili, þannig að bótaþegi fær
70% af heildartekjum síðustu sex
mánaða, en þó ekki hærri upphæð en
180.000 krónur á mánuði. Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra sagði að
samkomulagið væri mikill viðburður í
efnahagsmálum og að vissa um fram-
haldið hefði skapast á ný. Hann sagð-
ist telja að samkomulagið drægi úr
verðbólguvæntingum og þar af leið-
andi verðbólgu til lengri tíma.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
sagði að samningarnir styrktu stöðu
vinnumarkaðarins og sagði mjög mik-
ilvægt að ríkið kæmi að fjármögnun á
örorkubótaþætti lífeyrissjóðanna.
Ingimundur Sigurpálsson, formað-
ur SA, sagði að þær hækkanir sem
samið hefði verið um yrðu þungar fyr-
ir ákveðinn hóp fyrirtækja en í ljósi
þeirra heildarhagsmuna sem í húfi
voru, væri þessi niðurstaða öllum að-
ilum málsins til hagsbóta.
Morgunblaðið/Golli
Fulltrúar SA og ASÍ, Ari Edwald, Grétar Þorsteinsson, Hannes Sigurðsson, Gylfi Arnbjörnsson og Ólafur Andrason, bera hér saman bækur sínar.
Aðild ríkisstjórnarinn-
ar hafði úrslitaáhrif
Samkomulag Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins um að kjarasamningar haldi
Ýmsar aðgerðir | Miðopna
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Lissabon. AFP. | Vísindamenn í Portúgal
hafa þróað bóluefni sem þeir segja að
verji rottur í miklum mæli fyrir tann-
skemmdum og vonast þeir til að finna af-
brigði sem henti mönnum. Rottur voru
notaðar við tilraunirnar vegna þess að
þær mynda holur af svipaðri gerð og hol-
urnar í tönnum manna.
Holur í tönnum myndast vegna þess að
bakteríur í munni framleiða sýrur sem
éta í sundur glerunginn. Paula Ferreira,
einn af þrem vísindamönnum við Oporto-
háskóla sem stóðu fyrir tilraununum, seg-
ir að enn sé lagt í land áður en fundið
verði bóluefni sem gagnist fólki. „Fyrst
þarf að gera tilraunir með dýr sem eru
skyldari mönnum, einkum apa, og það
kostar peninga,“ sagði hún.
Vísindamennirnir hafa þegar fengið
einkaleyfi á bóluefninu í Portúgal og ætla
að reyna að fá einkaleyfi í Bandaríkj-
unum í von um fé til frekari rannsókna.
Bólusett við
tannpínu?
JAFNAÐARMAÐURINN Ritt
Bjerregaard verður næsti yfir-
borgarstjóri Kaupmannahafnar en
flokkur hennar sigraði í höfuðborg-
inni í sveitarstjórnarkosningunum
í Danmörku í gær. Voru jafnaðar-
menn líklegir til að bæta við sig allt
að fjórum sætum í borgarráði og fá
20 en þar sitja 55 fulltrúar. Tals-
menn tveggja annarra öflugra
flokka, miðjuflokksins Radikale
Venstre (RV) og Sósíalíska þjóðar-
flokksins (SF), sögðust myndu
styðja Bjerregaard, sem tryggir
henni embættið.
Venstre, flokkur Anders Fogh
Rasmussen forsætisráðherra, tap-
aði fylgi í Kaupmannahöfn, SF tap-
aði einnig en RV vann verulega á.
Lýsti Søren Pind, borgarstjóraefni
Venstre, yfir því í gærkvöldi að
hann myndi hætta afskiptum af
sveitarstjórnarpólitík.
Bjerregaard verður fyrst
kvenna til að gegna embættinu.
Hún er 64 ára gömul, er meðal
þekktustu stjórnmálamanna Dana
síðustu áratugina, hefur gegnt ráð-
herraembættum og átti um hríð
sæti í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. Jafnaðarmenn hafa
verið öflugasti flokkur í Kaup-
mannahöfn í meira en 100 ár.
Kjörsókn var tæp 70%. Á lands-
vísu voru jafnaðarmenn með um
34,3% en Venstre var með 27,5%.
Íhaldsmenn, sem eiga aðild að rík-
isstjórn Fogh Rasmussen, unnu
mikinn sigur í Óðinsvéum undir
forystu Jan Boye, fjarskylds
frænda jafnaðarmannsins Ankers
Boye sem missir því embætti borg-
arstjóra. Hann hefur gegnt því í 11
ár og flokkur hans verið við völd í
borginni undanfarin 68 ár. Jafnað-
armenn náðu aftur völdum í næst-
stærstu borginni, Árósum, og
héldu þriðja stærsta sveitarfé-
laginu, Álaborg.
Jafnaðarmenn hafa sitt trygg-
asta fylgi í stærstu borgunum en
Venstre stendur víða sterkt á
landsbyggðinni og í litlum bæjum.
Kosið var til 98 ólíkra bæjar-,
hverfis- og borgarráða og í fimm
stórar héraðsstjórnir. Sveitar-
stjórnir í Danmörku hafa mikil völd
og eru heilbrigðismál, stærsti út-
gjaldaliður opinberra aðila, að
miklu leyti í höndum þeirra.
Um 4,2 milljónir manna voru á
kjörskrá og voru um 190.000 þeirra
útlendingar sem fengið hafa var-
anlegt dvalarleyfi.
Bjerregaard
sigraði í Kaup-
mannahöfn
Ritt Bjerregaard, verðandi yfir-
borgarstjóri Kaupmannahafnar.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STOFNAÐ 1913 311. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Framlag
ríkisstjórnarinnar:
Framlag sem nemur 0,25%
af tryggingargjaldsstofni
til að greiða fyrir jöfnun á
örorkubyrði milli lífeyr-
issjóða. Kemur til fram-
kvæmda 2007–9 og nemur
alls 1.500–1.800 milljónum
króna.
Lagt verður fram laga-
frumvarp um starfs-
mannaleigur fyrir jólahlé
Alþingis.
Atvinnuleysisbætur verða
tekjutengdar þannig að
bótaþegi á rétt á 70% af
heildartekjum síðustu sex
mánaða í þrjá mánuði á
þriggja ára tímabili.
Grunnbætur til atvinnu-
lausra hækka úr 91.426
krónum á mánuði í 96 þús-
und krónur.
Um 100 milljónir settar í
að efla starfs- og endur-
menntun ófaglærðra og
einstaklinga með litla
menntun. Þá er einnig
horft til þess að efla stöðu
erlends vinnuafls hér á
landi.
Samkomulag
ASÍ og SA:
Eingreiðsla fyrir 15. des-
ember næstkomandi upp á
allt að 26 þúsund krónur
til þeirra sem hafa verið í
fullu starfi allt árið en
hlutfallslega minna til
þeirra sem ekki hafa unnið
alllt árið.
Almenn launahækkun 1.
janúar 2007 verði 0,65%
hærri en samningar kveða
á um og alls 2,9%.
Lágmarkstekjur fyrir fullt
starf verði 108 þúsund
krónur á mánuði frá og
með 1. janúar næstkom-
andi og 110 þúsund krónur
frá og með 1. janúar 2007.