Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝJU skyr- og jógúrtdrykkirn-
ir frá íslensku mjólkurbúunum
sópuðu til sín verðlaunum á
Mjólkursýningunni í Herning á
Jótlandi, sem er stærsta sýning
sinnar tegundar í heiminum.
Úrslit voru tilkynnt í gær en
nærri tvö þúsund tegundir osta,
smjörs og ferskvöru voru teknar
til dóma. Íslenskar vörur urðu
stigahæstar í fimm flokkum,
unnu til tíu gullverðlauna, tutt-
ugu silfurverðlauna og jafn-
margra bronsverðlauna.
Drykkjarskyr frá MS og Norð-
urmjólk, og þykkmjólk og AB
mjólk frá MS hlutu gullverðlaun
og voru tilnefnd í keppni Norð-
urlandameistara sem stiga-
hæstu vörurnar í sínum flokki.
Þá var 26% Gouda-gullverð-
launaostur frá KS tilnefndur í
Norðurlandakeppnina, en
danskar afurðastöðvar náðu öll-
um þremur titlunum í Norður-
landakeppninni.
Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, Helgi Jóhann-
esson, forstjóri Norðurmjólkur, og Hólmgeir Karlsson, markaðsstjóri
Norðurmjólkur, ánægðir með viðtökurnar á sýningunni.
Skyrdrykkir slá í
gegn á Jótlandi
LÍTA þarf á heildarafkomu Reykja-
víkurborgar til að meta skuldastöð-
una rétt, og ekki stoðar að nota sjón-
hverfingar til að fela skuldir
borgarinnar, sagði Margrét Sverris-
dóttir, borgarfulltrúi Frjálslynda
flokksins, þegar rætt var um fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar í
borgarstjórn í gær.
Margrét sagði að hreinar skuldir
samstæðunnar, þ.e. borgarsjóðs og
fyrirtækja í eigu borgarinnar, verði
63 milljarðar á þessu ári og verði
rúmlega 73 milljarðar á næsta ári.
Þessi hækkun skýrist m.a. af því að
fjárhagsvanda borgarsjóðs hafi und-
anfarin ár verið velt yfir á fyrirtæki
borgarinnar.
„Hingað til hafa skuldir verið
millifærðar frá borgarsjóði yfir á
Orkuveituna og látnar safnast upp
þar og núna er svipað upp á teningn-
um þegar þeirri sjónhverfingu er
beitt í bókhald-
inu, að Fráveitan,
sem skuldaði jafn
mikið og eignum
hennar nam, eða
tæpa 8 milljarða,
er sameinuð
Orkuveitunni og
síðan endurmetin
verulega hærra
en áður til að
hækka eigna-
stöðu Orkuveitunnar á móti,“ sagði
Margrét.
Hún benti á að þessi sameining
Fráveitunnar og Orkuveitunnar hafi
þannig lækkað heildarskuldir borg-
arsjóðs um rúma 7 milljarða, sem
slagar hátt í þá 8,2 milljarða sem
skuldir borgarsjóðs eigi að lækka á
næsta ári samkvæmt kynningu
borgarstjóra.
Margrét gagnrýndi einnig orð
borgarstjóra, sem sagði stefnu borg-
aryfirvalda þá að halda þjónustu-
gjöldum í lágmarki og veita almenna
þjónustu gjaldfrjálst eða gegn lágu
gjaldi. „Er þessi stefna aðeins í orði
en ekki á borði? Því ég sat fyrir um
það bil hálfum mánuði aðalfundi
Sorpu bs., Strætó bs. og Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins bs. Þar var
m.a. rætt um að auka gjaldheimtu
vegna sorphirðu verulega, þrátt fyr-
ir umdeilda hækkun sorphirðugjalda
á síðasta ári,“ sagði Margrét.
„Á aðalfundi Strætó bs. sama dag
kynnti stjórnarformaðurinn og borg-
arfulltrúinn Björk Vilhelmsdóttir að
brýnt væri að hækka strætófargjöld
og draga jafnframt úr þjónustunni.“
Margrét ræddi stutlega um mál-
efni Hringbrautar. Hún minnti á að
F-listinn hefði flutt tillögur um aðrar
útfærslur lagningar nýrrar Hring-
brautar en raun ber vitni.
Margrét Sverrisdóttir borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins
Segir sjónhverfingum beitt
í bókhaldi borgarinnar
Margrét
Sverrisdóttir
FYRRI umræða frumvarps að fjár-
hagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið
2006 fór fram í borgarstjórn í gær.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri mælti fyrir frumvarpinu en
í umræðum sem á eftir fóru gagn-
rýndi minnihlutinn í borgarstjórn
ýmis atriði sem fram koma í því.
Síðari umræða um fjárhagsáætl-
unina fer fram 6. desember og þá
verða greidd atkvæði um það.
Gert er ráð fyrir því í frumvarp-
inu að hreinar skuldir borgarsjóðs
Reykjavíkur muni lækka um 1,1
milljarð króna að raungildi og
heildarskuldir borgarsjóðs um 8,2
milljarða króna að raungildi á
næsta ári. Áætlunin gerir ráð fyrir
9,6 prósenta hækkun á heildar-
tekjum borgarsjóðs á milli ára og
afgangur af rekstri verður 1,4
milljarðar króna samkvæmt frum-
varpinu.
Þá gerir áætlunin ráð fyrir að
bókfærðar heildareignir lækki um
5,2 prósent milli ára og skýrist
lækkunin af sameiningu Fráveitu
og Orkuveitu Reykjavíkur. Hins
vegar er gert ráð fyrir að bókfærð-
ar heildareignir samstæðunnar
hækki um 14,3 prósent milli ára.
Fyrri umræða um fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar
Morgunblaðið/Þorkell
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti sjálfstæðismanna við umræðurnar í gær.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavík-
urlistans afhjúpar veikburða og löngu
þreytt kosningabandalag sem á skilið
að fara frá völdum eftir borgarstjórn-
arkosningar á komandi vori. Þetta
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn í umræðunum í borgarstjórn í
gær. Han sagði að stjórn R-listans
endurspeglaðist ekki hvað síst í þeim
vinnubrögðum sem snertu sölu á hlut
borgarinnar í Landsvirkjun. Legið
hefði fyrir í langan tíma að Reykja-
víkurborg hygðist selja 45% hlut sinn
í Landsvirkjun til ríkisins. Nú virtist
liggja fyrir að borgarfulltrúar
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs ætluðu sér ekki að taka þátt
í sölunni. „Undir þessum kringum-
stæðum gefst R-listinn upp og setur
málið í heild sinni ofan í skúffu. Hann
bætti við að stjórnunarvandi og veik-
leiki meirihlutans væri augljós og
áberandi í þessu máli eins og svo
mörgum öðrum. Þetta stefnumál R-
listans hefði verið sett „í frystikistuna
eins og svo mörg önnur mál vegna
innbyrðis ágreinings“.
Skattar á íbúa hækkaðir
Vilhjálmur ræddi um skatttekjur
borgarinnar og sagði að útsvarstekj-
ur á tímabilinu 2004–2006 hækkuðu
um 20% en tekjur af fasteignaskött-
um hækkuðu um 32% á sama tíma.
Aðrar tekjur hækkuðu úr 6,7 millj-
örðum króna í 7,7 milljarða króna á
tímabilinu, en það jafngilti um 15%
hækkun. Þá hækkuðu skattar á hvern
íbúa um 36% frá árinu 2000 og fram
til ársins 2006 samkvæmt áætlunum.
Vilhjálmur benti á að hreinn hagnað-
ur borgarsjóðs af sölu byggingarrétt-
ar yrði um 2 milljarðar króna á þessu
ár og því næsta. „Lóðaskortsstefna
R-listans, sem hefur einkennst af tak-
mörkuðu framboði á lóðum undir
íbúðarhúsnæði, veldur þessu fyrst og
fremst,“ sagði Vilhjálmur.
Samkvæmt útkomuspá verður
rekstrarniðurstaða borgarsjóðs á
þessu ári rúmlega 400 milljónir
króna. Um þetta atriði sagði Vil-
hjálmur að engan skyldi undra að
hægt væri „að skila borgarsjóði með
tiltölulega litlum afgangi í framhaldi
mikilla skattahækkana, skatttekna
langt umfram áætlun vegna mikils
góðæris, verulegum hagnaði af sölu
byggingarréttar og afar hagstæðrar
gengisþróunar“.
Hreinar skuldir ekki
lækkað á síðustu árum
Vilhjálmur sagði í ræðu sinni að
ágreiningur hefði verið milli sjálf-
stæðismanna og meirihlutans um
fjármálastjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur. Einnig hefði verið ágreiningur um
forgangsröðun í rekstri og fram-
kvæmdum, skattastefnu og stjórnun-
arháttum. Sagði hann að teknir hefðu
verið úr rekstri Orkuveitunnar marg-
ir milljarðar króna umfram það sem
eðlilegt gæti talist til að bæta hag
borgarsjóðs.
Næmu verðmæti vegna flutning-
anna um 44 milljörðum króna á ár-
unum 1995–2004, umfram það sem
arðgreiðslan miðað við árið 1993 hefði
gert. Þrátt fyrir þessar aðgerðir
hefðu hreinar skuldir borgarsjóðs
ekki lækkað á síðustu árum fyrr en
nú, ef miðað væri við útkomuspá.
Þá ræddi Vilhjálmur um skipulags-
og lóðamál. Benti hann á að íbúum í
Reykjavík hefði fjölgað afar lítið en á
sama tíma hefði fjölgað verulega í ná-
grannasveitarfélögum. Til þess að
stöðva þetta stöðnunartímabil þyrftu
borgaryfirvöld að auka framboð lóða
verulega og tryggja eðlilegt framboð
þeirra, ekki síst undir sérbýli. Enn-
fremur sagði hann að borgarstjórn
mætti sjá sóma sinn í að sinna betur
byggingu þjónustuíbúða með háu
þjónustustigi og byggingu hjúkrunar-
heimila.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Stjórnunar-
vandi meirihlut-
ans áberandi