Morgunblaðið - 16.11.2005, Side 8

Morgunblaðið - 16.11.2005, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ný uppistöðulón þarsem vatni er safn-að vegna raforku- framleiðslu eyðileggja mikilvæg vatnasvæði og valda efnahagslegum truflunum að því er kemur fram í nýrri skýrslu frá umhverfisverndarsamtök- unum World Wide Fund for Nature (WWF). Segir í skýrslunni að uppistöðu- lón geti skaðað votlendi, sem geymi vatn líkt og svampar og geti ekki verið endurgerð af mönnunum. Metin eru umhverfisáhrif sex uppistöðu- lóna víðs vegar um heiminn, m.a. í Velize, Laos og á Íslandi. Þá segir að almennt sé hætta á flóðum frá slíkum lónum, þau geti því ógnað fiskimiðum og stefni dýrategund- um í útrýmingarhættu í voða. Nefnt er sem dæmi að í Belize hafi verið stefnt að því að raforkuverð lækkaði með tilkomu stórvirkjun- ar en reyndin hafi orðið þveröfug því raforkuverð fari hækkandi og lónið hafi eyðilagt stór svæði regnskóga. Þá segir í skýrslunni að nú þegar þrengi að í vatnsbú- skap og orkumálum verði að leggja áherslu á að leita annarra leiða sem bæði séu hagstæðar náttúrunni og efnahagslega hag- kvæmar. Kárahnjúkastífla stenst ekki allar kröfur Skýrsla WWF, sem er 16 blað- síður, inniheldur eina blaðsíðu þar sem fjallað er um Kárahnjúkstíflu og uppistöðulónið sem myndast mun við hana. Segir að Ísland sé eitt af ríkustu löndum heims og ákveðið hafi verið að byggja hluta hagvaxtar landsins á álfram- leiðslu, jafnvel þó allt hráefni verði að flytja inn frá fjarlægum stöðum. Vonast sé til að sam- keppnislegir yfirburðir á heims- vísu náist með lágu raforkuverði til álversins. Segir að fram- kvæmdirnar við Kárahnjúka hafi valdið bæði innlendum og alþjóð- legum ágreiningi, þar sem greint hafi verið á um þau umhverfis- áhrif sem svo stórt verkefni geti haft á viðkvæma og ósnortna auðn hálendisins í kringum lónið. Muni lónið líklega færa í kaf 500 hreið- urstæði fágætra heiðargæsa og eyðileggja hluta af heimkynnum eina hreindýrastofns landsins. Þá segir að votlendi muni verða fyrir uppblæstri og áfoki frá jarðvegi sem skilinn verði eftir opinn eftir framkvæmdirnar og frá ströndum lónsins. Einnig segir að ýmis fé- lagasamtök telji að ekki hafi verið farið eftir tillögum nefndar Bern- arsáttmálans um mótvægisað- gerðir við Kárahnjúka. Í skýrslunni er því jafnframt fagnað að til standi að setja á fót þjóðgarð og/eða verndarsvæði norðan Vatnajökuls og vernda þar með Jökulsá á Fjöllum. Í lok skýrslunnar segir að verk- efnið standist ekki stefnumark- andi forgangsmál númer 2 og 4 sem svonefnd Heimsstíflunefnd undir forystu Nelsons Mandela setti fram í skýrslu sinni árið 2000. Alls voru kröfurnar sem settar voru fram í skýrslunni 7, m.a. að tryggja þurfi almanna- samþykki og að gæta þurfi rétt- inda og skipta ávinningi. Krafa númer 2 er sú að heildstætt mat fari fram á þeim kostum sem til greina koma og krafa númer 4 segir að varðveita skuli ár og lífs- afkomu þeirra sem við þær búa. Ókunnugleiki og áróðursbrögð Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir skýrsluna bera ýmis merki um ókunnugleika og áróðursbrögð þar sem treyst sé á vanþekkingu lesenda. Bendir hann m.a. á að stofn heiðargæsarinnar hafi verið óvenju stór undanfarin ár og mat sérfræðinga Náttúrufræðistofn- unar sé að áhrif lónsins á stofn- stærðina verði innan skekkju- marka mælinga á stofnstærð. Þá segir hann að þrátt fyrir að nokk- uð óljóst sé hvað verði um ferðir hreindýra á Vesturöræfum megi benda á að hjarðirnar séu fjöl- margar og stærð stofnsins ráðist og hafi verið stýrt af veiðum en ráðist ekki af áhrifum lónsins. Varðandi uppblástur og áfok segir Þorsteinn að líklegt sé talið að aurasvæði neðar í ánni grói upp eftir virkjun svipað og sjá má með farvegi Blöndu, t.d. í Laugardal. Þá segir Þorsteinn að nefnd Bern- arsáttmálans hafi ekki talið efni til að gera málefni Kárahnjúkavirkj- unar að formlegu umfjöllunarefni nefndarinnar á fundi hennar 2004 en leiðbeinandi ábendingar hafi verið samþykktar. Stjórnvöld og stofnanir þeirra séu að beita sér í samræmi við þær ábendingar. Hvað kröfur Heimsstíflunefnd- ar varðar segir Þorsteinn að mat á umhverfisáhrifum hafi farið fram í samræmi við nútímaleg lög sem sett hafi verið eftir evrópskri fyr- irmynd þar sem mismunandi kostir eru metnir. Fjallað hafi ver- ið um samspil samfélags, náttúru og virkjunarinnar á heildstæðan hátt bæði í matinu og með samráði við fjölbreyttan hóp ólíkra hags- munaaðila. Þá bendir Þorsteinn á að hér á landi hafi fólk ekki þurft að flytja burt frá heimkynnum sínum vegna stíflubygginga. Fréttaskýring | Skýrsla World Wide fund for Nature gagnrýnir gerð uppistöðulóna Telja lónin valda skaða Talsmaður Landsvirkjunar segir margt í skýrslunni byggt á ókunnugleika Framkvæmdir við Kárahnjúka. Hafa starfsstöðvar víðs vegar um heiminn  World Wide Fund for Nature eru umhverfisverndarsamtök með starfsstöðvar víða í heim- inum sem berjast fyrir fyrir nátt- úruvernd, verndun skóglendis og sjávar, gegn loftslagsbreytingum o.fl. Síðastliðinn mánudag birtu samtökin skýrslu þar sem fjallað er um ákvarðanatöku stjórn- valda og framkvæmdir sex stíflna og uppistöðulóna í heim- inum og er Kárahnjúkastífla ein þeirra. Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is SJÓÐFÉLAGAR í Lífeyrissjóði lækna hafa samþykkt sameiningu við Almenna lífeyrissjóðinn í al- mennri atkvæðagreiðslu. Verði sameiningin samþykkt á sjóð- félagafundi í Almenna lífeyr- issjóðnum verður til fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins. Póstkosning fór fram í Lífeyr- issjóði lækna í október, en á kjör- skrá voru alls 1.805 manns. Alls greiddi 451 atkvæði og samþykktu sameiningu 327, á móti voru 103 og auðir seðlar og ógildir voru 21. Miðað við síðustu áramót verða eignir sameinaðs sjóðs um 52 millj- arðar króna. Almenni lífeyrissjóð- urinn hefur sameinast úr nokkrum sjóðum í gegnum tíðina, þar á með- al Almennum lífeyrissjóði VÍB og Lífeyrissjóði arkitekta og tækni- fræðinga. Læknar samþykkja sameiningu HJARTAVERND stendur undir nafni og rekur um- fangsmikla rannsóknar- og vísindastarfsemi og hefur gert í áraraðir. Aðsetur Hjartaverndar er í Kópavogi og þar var í gær unnið við að laga hjartað og koma því saman á réttan hátt til að enginn færi í grafgötur um hvar starfsemina er að finna. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hjartað bætt hjá Hjartavernd Á FUNDI fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna á Seltjarnarnesi sem haldinn var laugardaginn 12. nóv- ember sl. var samþykkt að efna til prófkjörs um val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Próf- kjörið mun fara fram laugardaginn 4. febrúar 2006 og verður fram- boðsfrestur auglýstur á næstu dög- um. Prófkjör hjá Sjálfstæðis- flokknum á Seltjarnarnesi LÍÐAN mannsins sem slasaðist í rafmagnsslysi við háspennulínu í Blöndudal í fyrradag er stöðug að sögn læknis á bruna- og lýtalækn- ingadeild Landspítalans. Maðurinn var á gjörgæsludeild fyrstu nóttina á spítalanum og var síðan færður yfir á brunadeild. Hann mun vera með 2. stigs bruna á fæti eftir að hafa fengið í sig 11 þúsund volta straum. Stöðug líðan eftir rafmagnsslys

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.