Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KARLARÁÐSTEFNA um jafn- réttismál verður haldin á vegum félagsmálaráðuneytisins í Saln- um í Kópavogi 1. desember nk., að því er fram kom í máli Árna Magnússonar félagsmálaráð- herra í umræðu utan dagskrár um stöðu jafnréttismála sem fram fór á Alþingi í gær. Hann kvaðst vænta þess að ráðstefnan yrði vel sótt af körlum á öllum aldri og úr öllum stéttum. Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokks, var málshefj- andi umræðunnar. Hún sagði að tilefni umræðunnar væri baráttu- dagur kvenna sem haldinn var 24. október sl. Í máli hennar kom fram að baráttan um jafnrétti kynjanna snerist um það að koll- varpa kerfi sem hefði varað í ár- þúsundir og hlutverkaskiptingu sem bæði kynin hefðu lengst af verið sátt um. Þá sagði hún að ein meginfyrirstaðan nú lægi í hug- arfari og viðhorfum sem finna mætti úti í samfélaginu sem og í hefðbundinni verkaskiptingu karla og kvenna. Hún sagði síðar að konur sem hefðu komist samsíða körlum inn á Alþingi, í sveitarstjórnir, í stjórnir fyrirtækja eða í aðrar stjórnunarstöður – væru öðrum konum vissulega fyrirmyndir. Þær væru þó aðeins sýnishorn af því sem konur gætu almennt til jafns á við karla. „Þess vegna er unnið gegn jafnréttinu með því að tala kyn út af borðinu sem sér- stakan verðleika en staglast á hæfninni.“ Ef kynið væri ekki verðleiki, sagði hún, hverju skipti þá hlutur kynjanna í stjórnun, stjórnunarstöðum fyrirtækja, sveitarstjórnum eða í landstjórn- inni. Árni Magnússon ítrekaði þá skoðun sína að hann teldi að það bæri að skoða í fullri alvöru að flytja jafnréttismálin til forsætis- ráðuneytisins. Jafnréttismál væru ekki málaflokkur sem ætti endilega að tilheyra einu fag- ráðuneyti. Jafnréttismálin vörð- uðu alla málaflokka og öll svið þjóðfélagsins. Ráðherra ítrekaði ennfremur að ríkisstjórnin hefði í kjölfar kvennafrídagsins 24. október sl. ákveðið að veita tíu milljónum króna til að stofna sér- stakan rannsóknarsjóð, svokall- aðan Jafnréttissjóð. Markmið sjóðsins væri að styrkja kynja- rannsóknir almennt. Hann sagði ennfremur að sjóðurinn yrði vist- aður í forsætisráðuneytinu. „Ekkert eitt mál er mikilvæg- ara að mínu mati, þegar jafnrétt- ismálin eru annars vegar, en að ráðast gegn kynbundnum launa- mun,“ sagði hann og minnti einn- ig á að hann hefði lagt til að kom- ið verði á gæðavottun jafnra launa. „Í félagsmálaráðuneytinu er nú unnið að útfærslu íslenskr- ar gæðavottunar jafnra launa og verður unnið að því í nánu sam- ráði við Jafnréttisráð og Jafn- réttisstofu sem og atvinnurek- endur, launafólk og háskóla- samfélag. Ég er sannfærður um að slík vottun geti gagnast vel sem tæki til framfara við að koma í veg fyrir áhrif kyns á launa- ákvarðanir enda þótt það hvarfli ekki að mér eitt augnablik að það eitt feli í sér hina einu sönnu töfralausn.“ Líkt við færeyskan dans Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, benti m.a. á að konur væru þriðj- ungur fulltrúa í sveitarstjórnum og á Alþingi Íslendinga. Þá sagði hún að konur hefðu 65% af heild- artekjum karla og að ekkert virt- ist þokast í þeim efnum. „Við get- um ekki látið sem þriðjungs- hlutfallið, þriðjungsjafnréttið, ef jafnrétti skyldi, kalla, geti verið það sem við sættum okkur við þrjátíu árum eftir kvennafrídag- inn góða,“ sagði hún. Drífa Hjartardóttir, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, sagði að jafnréttisbaráttan hefði vissulega skilað árangri en samt ekki þeim árangri sem óskandi væri. Hún tók þó fram að sjálfstætt fæðing- arorlof feðra hefði verið mikil- vægur áfangi. „Ef tækifærin til að sækja fram til valda og áhrifa halda áfram að vera háð kyni, verða hæfileikar og kraftar kvenna áfram illa nýttir,“ sagði hún og líkti jafnréttisbaráttunni við færeyskan dans – tvö skref áfram og eitt afturábak. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði í upphafi máls síns að það hefði verið vel til fundið hjá málshefjanda, Jónínu Bjartmarz, að eiga þessi „huggu- legu skoðanaskipti“ við fram- sóknarmanninn og félagsmála- ráðherra, Árna Magnússon. „Með fullri virðingu þá finnst mér að háttvirtur þingmaður, Jónína Bjartmarz, eigi að tuska sína ráðherra til, þar sem hún hefur tækifæri til að gera það sem stjórnarþingmaður, umfram það sem ég hef sem stjórnarand- stöðuþingmaður. Þannig að ég treysti því að það fari nú að sjást aðgerðir í þessum málum.“ Kolbrún minnti á að þingmenn Vinstri grænna hefðu lagt fram frumvarp sem taka eigi á kyn- bundnum launamun. Í því sé lagt til að jafnréttisráð fái í hendur öflugt tæki til að tryggja að launamuninum verði útrýmt. Hún kvaðst treysta því að Jónína og Árni myndu skoða frumvarpið með opnum huga og sjá til þess að það yrði lögleitt. Meiri skattbyrði á konum Sigurjón Þórðarson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, talaði eins og Kolbrún um „hugguleg skoðanaskipti“ í upphafi umræð- unnar milli Jónínu og Árna. Að baki orðum Jónínu lægi þó ákveðin og alvarleg gagnrýni á störf félagsmálaráðherra. Sigur- jón gerði síðan launamun kynjanna að umtalsefni og sagði að ekki mætti líta framhjá því að heildarlaun kvenna væru lægri en heildarlaun karla. Framsókn- armenn, sem hefðu bryddað upp á þessari umræðu, ættu að íhuga það, því þeir hefðu tekið þátt í því að færa skattbyrðina frá þeim sem hærri hefðu launin til þeirra sem lægri hefðu launin. Þar með hefðu þeir verið að færa skatt- byrðina frá körlum til kvenna. Magnús Þór Hafsteinsson, sam- flokksmaður Sigurjóns, tók í sama streng síðar í umræðunni. Hann sagði að skattastefna rík- isstjórnarinnar gengi út á það að hygla þeim hæstlaunuðu í þjóð- félaginu. Þar með væri verið að halda konum niðri. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að skapa þyrfti jafnrétti á efnahags- legum grunni og að launamisrétt- ið væri alvarlegasti þröskuldur- inn á þeim vegi. Hann sagði að launamisréttið væri tvöfalt; ann- ars vegar væri um að ræða kröf- una um sömu laun fyrir sömu vinnu og hins vegar væru lág- launastörfin einkum störf kvenna og hálaunastörfin einkum störf karla. Mörður sagði ennfremur að verkefnin blöstu víða við, m.a. í jafnréttislögum sem væru að verða úrelt og í kjaramálum, sem hið opinbera færi með. Bjarni Benediktsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, sagði undir lok umræðunnar að Alþingi hefði ekki látið sitt eftir liggja í baráttunni fyrir jöfnum rétti kynjanna; samkvæmt íslenskum lögum væru kynin jafnsett. Hann sagði ennfremur að þróunin í jafnréttismálum, að öðru leyti, væri í rétta átt. Sífellt fleiri konur velktust ekki í vafa um hæfni sína til þess að láta að sér kveða, það hefði m.a. komið fram í próf- kjörum og framboðum á umliðn- um vikum. „Og það er tilhneiging í atvinnulífinu til að hleypa konum að í fleiri ábyrgðarstöður heldur en við höfum lengi áður séð.“ Þá sagði hann að koma þyrfti þeim skilaboðum áleiðis til stjórnsýslunnar og atvinnulífsins að þeir sem tækju kyn fram yfir hæfileika væru að sóa hæfi- leikum, fjármunum og þar með tækifærum fyrir íslenskt sam- félag. Þingmenn ræða stöðu jafnréttismála Er meginfyrirstaða jafn- réttisbaráttunnar hefð- bundin verkaskipting? Karlaráðstefna boðuð í byrjun desember Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Einar Már Sigurðarson og Katrín Júlíusdóttir ræða málin á Alþingi í gær. NÍU þingmenn tóku þátt í utandagskrárumræðunni um stöðu jafnréttismála á Alþingi í gær; fimm karlar og fjórar konur. Félagsmálaráðherra vakti athygli á því í lok umræðunnar og fagnaði því alveg sérstaklega. Hann sagði að til þess að umræðan um jafnréttismál kynjanna næði lengra fram að ganga þyrftu karlmenn að láta sig jafnréttismál varða. Einmitt þess vegna stefndi hann að því að halda karla- ráðstefnu um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi 1. desember nk. Hugmyndin kæmi upphaflega frá Vig- dísi Finnbogadóttur, fyrrv. forseta Íslands. Fimm karlar og fjórar konur ÞINGMENN Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Frjálslynda flokksins hafa lagt fram á Alþingi tillögu um að 98,1 milljón króna verði varið til neyðaraðstoðar í kjölfar jarðskjálftanna í Pak- istan. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, benti á í upphafi þingfundar á Alþingi í gær, að ríkisstjórnin hefði þegar ákveðið að láta 18,1 milljón króna af hendi rakna til neyðaraðstoð- arinnar. Hann sagði að það væri rúmlega helm- ingur þess fjár sem ríkisstjórnin hefði varið til stuðnings fórnarlömbum fellibyljarins Katrínar í suðurhluta Bandaríkjanna, fyrr á árinu. Nær væri, sagði hann, að láta þær 87 milljónir, sem fara ætti til stuðnings flugs NATO til Íraks og Afganistan, ganga til fórnarlambananna í Pakistan. Til að svo megi verða hafa þingmenn Vinstri grænna og Frjálslyndra lagt fram tillögu um aukið fjár- framlag til hjálparstarfsins í Pakistan. Tvískinnungur í misjöfnum framlögum Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði á Al- þingi í gær að það gæti auðvitað verið umdeilanleg hve miklum fjármunum væri varið til að styðja uppbyggingu eftir einstakar náttúruhamfarir. Það hefði hins vegar verið álitið að þær upphæðir sem Ögmundur hefði nefnt væru við hæfi. Hann vakti jafnframt athygli á því að söfnun væri í gangi á vegum Rauða kross Íslands, en þar hefðu þeir möguleika sem vildu leggja málefninu lið. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur hins vegar ekki nóg að gert. Hann lagði til að ráðherra léti meira af hendi rakna svo Íslendingar myndu ekki standa sig síður „en gagnvart flóð- bylgjunni miklu,“ sagði Pétur og bætti við: „En það kannski sýnir tvískinnung okkar Íslendinga að það urðu engir hvítir menn fyrir jarðskjálftanum í Kasmír en þeir urðu fyrir flóðbylgjunni.“ Ögmundur og aðrir þingmenn lýstu ástandinu í norðurhluta Pakistans eftir jarðskjálftana í lok október sl. Hann sagði m .a. að yfir sjötíu þúsund manns hefðu látið lífið og að annar eins fjöldi hefði slasast. Nú bærust fréttir af því að sjúkdómar væru að breiðast út og að veður færi kólnandi. Vet- ur væri að ganga í garð og því væri vá fyrir dyrum. Hann sagði að Alþjóða Rauða krossinn hefði í lok október óskað eftir sem svaraði um sjö millj- örðum íslenskra króna til hjálparstarfs á svæðinu. Tæplega helmingur þess hefði skilað sér. Sagði 18 milljónir hlægilega upphæð Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylk- ingarinnar, sagði að það hlyti að vera sameig- inlegur vilji þingmanna að veita meira fé til hjálp- arstarfsins í Kasmír og Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði að rúm- arátján milljónir hlægilega lága upphæð. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, kvaðst telja ríkisstjórnina hafa brugðist hratt og fljótt við. Vilja að rúmlega 98 milljónum verði varið til hjálpar- starfs í Pakistan MAGNÚS Stefánsson, formaður fjárlaganefndar þingsins, sagði aðspurður í umræðum á Alþingi í gær að sendiráðum Íslands hefði ekki tekist að standa undir þeim hagræðingarkröfum sem gerðar hefðu verið til þeirra síðustu árin. Í frumvarpi til fjáraukalaga ársins 2005 er óskað eftir samtals 274 milljóna króna aukafjárveitingu til að mæta upp- söfnuðum halla vegna rekstrar sendiráða. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, gerði þetta að umtalsefni í annarri umræðu um fjáraukalagafrumvarpið í gær. Hann sagði að þetta væru gríðarlega háar fjárhæðir og spurði formann fjárlaganefndar hvernig á þessu stæði. Magnús sagði almennt um hallarekstur stofnana að fjárlög væru lög og að menn ættu að fara að þeim. „Mér skilst hins vegar varðandi sendiráðin að ekki hafi tekist að standa undir hagræðing- arkröfum sem gerðar hafa verið síðustu árin. Það er alls ekki nógu gott og við hljótum að gera at- hugasemdir við það.“ Jón spurði hvernig hægt væri að taka á svona málum vísaði Magnús til umræðunnar sem marg- oft hefði farið fram í slíkum málum. „Það er auðvit- að um það að ræða að hafa eftirlit og beita þeim tækjum sem til eru. Við höfum ýmis lög og reglu- gerðir sem gilda um þessi efni og það er spurning hvernig menn ætla að beita þeim.“ Fjáraukalagafrumvarpinuverður vísað til þriðju og síðustu umræðu í dag. 274 milljónir til að mæta uppsöfnuðum halla sendiráða ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 12 í dag. Fyrst eru atkvæðagreiðslur en síðan 26 fyrirspurnir til ráðherra. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, mun m.a. spyrja utanríkisráð- herra, Geir H. Haarde, um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.