Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 11 FRÉTTIR „Á UNDANFÖRNUM árum hefur athyglinni fyrst og fremst verið beint að grunnskólanum og við sjáum að þar hefur náðst óvenjulega góður árangur í forvarnarstarfi. Hins vegar hefur minni athygli ver- ið beint að eldri aldurshópnum. Nið- urstöður rannsóknarinnar gefa vís- bendingu um að við þurfum að huga mun meir að unglingum eftir að þeir koma í framhaldsskólann og beina athygli foreldra að því að nýtt skóla- stig þýði ekki að hægt sé að sleppa algjörlega tökunum af þeim,“ segir dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir, hjá Rannsóknum & greiningu og deild- arforseti kennslufræði- og lýð- heilsudeildar Háskólans í Reykja- vík, sem kynnti niðurstöður rannsóknarinnar. Í samtali við Morgunblaðið sagði Inga Dóra að ríkjandi stemning sé að þegar ungmenni ljúki grunnskól- anum séu þau komin í fullorðinna manna tölu. Inga Dóra minnir hins vegar á að unglingar breytist ekki í fullorðna manneskju á einni nóttu við það eitt að ákveðnum aldri er náð. „Sjálfræðisaldurinn er kominn upp í 18 ár og unglingar eru skil- greind börn fram að þeim tíma. Það er því full ástæða til að veita for- eldrum styrk í hlutverki sínu sem foreldrar, líka þegar unglingarnir þeirra eru komnir í framhaldsskól- ann. Við teljum að full ástæða sé til þess að styðja við ungmennin og reyna með jákvæðum hætti að hafa áhrif á atferli þeirra, enda hafa rannsóknir sýnt að það skilar ár- angri. Ákjósanlegast er að foreldrar losi þannig smám saman um taum- inn, en sleppi honum ekki algjörlega þegar unglingar byrja í framhals- skóla,“ segir Inga Dóra og nefnir í því samhengi mikilvægi þess að for- eldrar sýni aðhald, stuðning, eftirlit og atlæti. Að lokum er hún innt eftir því hvað sé jákvæðast í tölum nýju rann- sóknarinnar. Sagði hún jákvætt hversu stór hluti framhalds- skólanema neytti ekki áfengis að staðaldri, reykti ekki og hefði aldrei neytt ólöglegra vímuefna. Styðja þarf betur við bakið á unglingum GUÐMUNDUR Daðason fagnaði í gær 105 ára afmæli sínu í hópi sambýlisfólks síns á dvalarheimilinu Holts- búð í Garðabæ. Meðal gesta í fagnaðinum voru nokkrir for- ystumenn Framsóknarflokksins en Guðmundur hefur lengstum fylgt flokknum að málum. Hér fagna þau Siv Friðleifsdóttir og Halldór Ásgrímsson með afmæl- isbarninu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fagnaði 105 ára afmæli Sumarið eftir að grunnskólalýkur er sérstakur áhættu-tími fyrir unglinga hvaðvarðar upphaf reykinga, ölvunardrykkju, notkunar áfengis og annarra vímuefna. Þegar bornir eru saman nemendur í 10. bekk grunn- skóla vorið 2004 og sami árgangur nemenda í fyrsta bekk framhalds- skóla um haustið sama ár, kemur í ljós að hlutfall þeirra sem reykja daglega hefur aukist á þessum fáu mánuðum úr 11,7% í rúm 15%. Hlut- fall þeirra sem hafa orðið ölvaðir síð- ustu 30. daga eykst á sama tíma úr 26% í 53% og þeim sem hafa prófað hass fjölgar úr 9% í 12,7%. Þetta eru meðal niðurstaðna nýrrar rannsókn- ar um vímuefnaneyslu ungmenna í framhaldsskólum hér á landi árið 2004 sem Rannsóknir & greining vann fyrir Lýðheilsustöð. Rannsókn- ina unnu Álfgeir Logi Kristjánsson, Inga Dóra Sigfúsdóttir og Jón Sig- fússon. Rannsóknin byggist á könnunum sem Rannsóknir & greining lagði fyrir nemendur í þrjátíu framhalds- skólum á Íslandi í október árin 2000 og 2004. Fyrra árið fengust gild svör frá 8.702 nemendum, en svarhlutfall- ið var 70,5%. Seinna árið fengust gild svör frá rúmlega 11 þúsund nemend- um, þar af voru strákar 48% svar- enda og stelpur 51%, en 1% gaf ekki upp kyn sitt. Svarhlutfallið árið 2004 var 80,9%. Niðurstöðurnar sýna að heldur dregur úr reykingum framhalds- skólanemenda milli áranna 2000 og 2004. Þannig sögðust 20,6% stráka og 21,7% stelpna reykja daglega í framhaldsskólum árið 2000, en árið 2004 var hlutfallið komið niður í 17% meðal stráka og 20,8% meðal stelpna. Séu svörin skoðuð eftir aldri má glögglega sjá að hlutfallslega fæstir reykja daglega í yngsta aldurshópn- um, en í aldurshópnum 16 ára og yngri segjast rúm 15% reykja dag- lega. Í aldurshópnum 17–19 ára eru hlutföllin í kringum 17%, en í hópi þeirra sem eru 20 ára og eldri reykja rúm 32% daglega. Rannsóknin leiðir í ljós að mun fleiri nemendur reykja ef annað eða báðir foreldra þeirra er reykingafólk. Þannig sýna tölur að 23,3% þeirra nemenda sem eiga for- eldra sem reykja, reykja sjálfir, en hlutfallið er 13,8% þar sem hvorugt foreldrið reykir. Mikil breyting verður á áfengis- neyslu nemenda fyrstu mánuðina eft- ir að grunnskóla lýkur. Hlutfall nem- enda í 10. bekk sem hafa orðið ölvaðir síðustu 30 daga var 26% vorið 2004, en samsvarandi hlutfall meðal fyrsta árs nemenda í framhaldsskólum þá um haustið var 53,4%. Sama mynstur kemur fram hjá þeim sem höfðu orð- ið drukknir a.m.k. einu sinni um æv- ina. Í þeim hópi voru 48% í 10. bekk vorið 2004, en tæplega 67% hjá sama árgangi fjórum mánuðum seinna. Séu svör framhaldsskólanema milli áranna 2000 og 2004 borin sam- an kemur í ljós að lítil breyting verð- ur á áfengisneyslu framhaldsskóla- nemenda milli ára. Fyrra árið höfðu 75,5% stráka og rúm 77% stelpna drukkið áfengi einu sinni eða oftar sl. 30 daga, en þetta hlutfall var 73,7% meðal stráka og 76,2% meðal stelpna árið 2004. Þegar skoðað var hlutfall þeirra sem höfðu orðið drukkin á sl. 30 dögum kom í ljós að það var tæp 64% frá strákum og 62,7% hjá stelp- um. Bjór algengasti áfengi drykkurinn Rannsóknin leiðir í ljós að bjór er langalgengasti áfengi drykkurinn meðal framhalsskólanema. Tæp 90% stelpna og um 96% stráka sem á ann- að borð drukku áfengi, hafa drukkið bjór sl. 30 daga. Athygli vekur að mati skýrsluhöfunda að 76% 16–17 ára nema, sem á annað borð hafa drukkið áfengi, hafa drukkið sterkt áfengi sl. 30. daga. Mestur munur milli kynja kemur fram í neyslu áfengra gosdrykkja, sem eru jafn- framt þriðju algengustu drykkirnir. Um 67% stelpna sem hafa neytt áfengis sl. 30 daga hafa drukkið áfenga gosdrykki og 43,5% stráka. Fram kemur í skýrslu Rannsókna & greiningar að sumarið eftir að grunnskóla lýkur fjölgar þeim sem hafa prófað hass úr 9% í 12,7%. Stöð- ug aukning verður á hlutfalli þeirra sem hafa prófað hass meðan á námi í framhaldsskóla stendur. Um 12,7% nemenda sem eru 16 ára og yngri hafa prófað hass, um 28% þeirra sem eru 19 ára og tæp 48% þeirra nem- enda í framhaldsskólum sem eru 20 ára og eldri hafa notað hass. Örlítil aukning hefur orðið á notk- un harðari efna milli áranna 2000 og 2004. Tæp 9% höfðu notað amfeta- mín árið 2000 en um 10% árið 2004. Um 5,7% höfðu notað kókaín árið 2000 en 6,6% árið 2004. Þá höfðu 3,7% notað e-töflur árið 2000, en þetta hlutfall var orðið 4,8% árið 2004. Alls sögðust þrír af hverjum fjórum framhalsskólanemum aldrei hafa prófað nein ólögleg vímuefni og er hlutfallið óbreytt frá árinu 2000. Vímuefnaneysla unglinga virðist aukast þegar kemur að framhaldsskólanámi Sumarið að loknum grunnskóla áhættutími Morgunblaðið/Þorkell Hildur Björg Hafstein, verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, fjallaði á blaða- mannafundinum stuttlega um áhrif foreldra á lífsstíl unglinganna. Kynnti hún fundargestum m.a. bækling SAMAN-hópsins um þetta efni.                                 ! " # $ % &    !  '           ()  *+,-      .    /   !%0!$  !#0!"           Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.