Morgunblaðið - 16.11.2005, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Samvera eldri borgara
Fimmtudagur 17. nóvember kl. 15.00
Ljóðadagskrá tileinkuð minningu
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Erlingur Sigurðarson segir frá skáldinu og flytur ljóð
hans ásamt fleirum. Unglingakór Glerárkirkju syngur
undir stjórn Ástu Magnúsdóttur.
Kaffiveitingar og helgistund að venju.
Allir velkomnir.
Glerárkirkja
GLERÁRKIRKJA
SNJÓFRAMLEIÐSLA hófst á Ak-
ureyri í gær, ekki í Hlíðarfjalli, heldur
í Innbænum, nánar tiltekið við Minja-
safnskirkjuna og Nonnahús. „Það er
nægur snjór í Hlíðarfjalli og við erum
því bara í svona sérverkefnum,“ sagði
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðu-
maður Skíðastaða í Hlíðarfjalli. Hann
var mættur með eina snjóbyssuna úr
fjallinu í Innbæinn og var að sprauta
snjó yfir Nonnahús og Minjasafns-
kirkjuna. Þar var fjölmennt lið frá
Sagafilm að taka upp sjónvarpsaug-
lýsingu fyrir símafyrirtæki í Evrópu,
sem sýna á í Slóvakíu og með snjó-
framleiðslunni var verið að búa til fal-
lega vetrarmynd í auglýsinguna. Guð-
mundur Karl sagði að snjófram-
leiðslubúnaðurinn virkaði mjög vel og
var hinn ánægðasti. „Þetta er aðeins
forskot á sæluna og það verður gam-
an að prófa búnaðinn í fjallinu fljót-
lega.“ Aðstæður til snjóframleiðslu
voru mjög góðar á Akureyri í gær,
5–6 stiga frost. Slökkvilið Akureyrar
kom einnig að málum, því vatn til
framleiðslunnar var tekið úr bruna-
hana í nágrenninu og var bíll frá
slökkviliðinu notaður til að dæla vatn-
inu að snjóbyssunni. Rafmagnið var
svo fengið úr dísilknúinni ljósavél.
Morgunblaðið/Kristján
Snjóframleiðsla Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli, er hér við nýju snjóbyssuna,
sem notuð var til að sprauta snjó yfir Minjasafnskirkjuna og Nonnahús í gær vegna auglýsingagerðar.
Snjóframleiðsla hafin á Akureyri
TIL stendur að stofna í næstu viku
sjálfseignarfélag um byggingu og
rekstur húsnæðis væntanlegrar líkn-
ardeildar á Akureyri. Fulltrúar ým-
issa félagasamtaka og fyrirtækja á
Akureyri rituðu undir viljayfirlýsingu
sl. sumar um uppbyggingu líknar-
deildar á lóð Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri, en lengi hefur brýn þörf
verið talin á að koma slíkri deild á
laggirnar í bænum. Líknarmeðferð
fer nú fram á bráðadeildum FSA og í
heimahúsum og þykir ekki fara vel
saman.
Bryndís Þórhallsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur hjá Heimahlynningu, sagði
að ákveðið hefði verið að stofna félag-
ið formlega nú á næstu dögum, að lík-
indum á miðvikudag í næstu viku.
„Við ætlum ekki að bíða með það
lengur,“ sagði hún. Þegar ritað var
undir viljayfirlýsinguna í júní sl. hafði
ekki borist svar frá ráðuneyti heil-
brigðismála um hvort það væri tilbúið
að takast á við rekstur deildarinnar.
Talsmenn líknardeildar hafa hitt heil-
brigðisráðherra að máli sem og þing-
menn kjördæmisins og sagði Bryndís
að þeir hefðu mætt velvilja, „en það er
bara ekki nóg, við förum ekki langt á
velviljanum einum.“
Kostar um 80 milljónir
Gert er ráð fyrir að reist verði um
350 fermetra húsnæði undir starf-
semina, með 6 rýmum en húsið verð-
ur reist á lóð FSA, sunnan við Sel.
Áætlaður kostnaður við byggingu og
kaup á nauðsynlegum búnaði er um
80 milljónir króna. Líknarfélög hafa
lýst sig reiðubúin til að standa að baki
um 40% byggingarkostnaðar.
Áætlanir frá því í sumar gerðu ráð
fyrir að fullbúin líknardeild gæti tekið
til starfa á Akureyri næsta sumar, en
nú sagði Bryndís að menn horfðu til
þess að deildin yrði opnuð í desember
á næsta ári.
Bygging líknardeildar
á lóð FSA
Sjálfseign-
arfélag
stofnað í
næstu viku
Eyjafjarðarsveit | Mikið fjölmenni
tók þátt í hátíðahöldum í tilefni
100 ára afmælis Grundarkirkju í
Eyjafirði um sl. helgi.
Hvert sæti var skipað í kirkj-
unni þegar hjónin Ellen Kristjáns-
dóttir og Eyþór Gunnarsson héldu
tónleika þar á föstudagskvöld. Há-
tíðarmessa var svo klukkan 14 á
sunnudag og þar prédikaði sr. Jón
Aðalsteinn Baldvinsson vígslu-
biskup og sr. Hannes Örn Blandon
þjónaði fyrir altari. Meðhjálpari
var frú Gerður Pálsdóttir. Kirkju-
kór Laugarlandsprestakalls söng
og Þuríður Baldursdóttir söng ein-
söng í athöfninni. Frú Sigríður
Schiöth, fyrrverandi organisti
Grundarkirkju til fjölda ára, og
Hjörtur Haraldsson, formaður
sóknarnefndar, lásu ritning-
argreinar.
Eftir messuna flutti Valdimar
Gunnarsson erindi um sögu
Grundarkirkju og Magnús Sig-
urðsson bónda á Grund, sem lét
reisa kirkjuna árið 1905 að öllu
leyti á eigin kostnað. Magnús var
stórhuga framkvæmdamaður og
gerði Grund að stórbýli á nýjan
leik.
Í erindi Valdimars kom fram að
Magnús hafi verið langt á undan
sinni samtíð og hafi hvatt menn til
dáða og brýnt þá lögeggjan að
takast á við tuttugustu öldina.
Hann flutti til landsins annan bíl-
inn sem hingað kom árið 1907 en
þá var lítið um akfæra vegi svo
bíllinn nýttist ekki sem skyldi.
Að lokinni messu var öllum
kirkjugestum boðið í kaffisamsæti
í tónlistarhúsinu Laugarborg, í
boði eigenda Grundarkirkju, frú
Aðalsteinu Magnúsdóttur og Gísla
Björnssonar. Þar bárust kirkjunni
peningagjafir. Gestur Jónsson sem
situr í stjórn Héraðssjóðs afhenti
gjöf frá öðrum sóknum Eyjafjarð-
arprófastsdæmis, kr. 50.000.
Valgerður Schiöth færði kirkj-
unni kr. 100.000 frá hinum sókn-
unum í Laugarlandsprestakalli og
Níels Helgason færði kirkjunni kr.
50.000 í orgelsjóð frá Sigríði Ket-
ilsdóttur frá Torfum og fjölskyldu
hennar, í minningu Finnastaða-
hjóna; þeirra Ketils Guðjónssonar
og Hólmfríðar Pálsdóttur.
Þá söng Karlakór Eyjafjarðar
nokkur lög undir stjórn Petru
Bjarkar Pálsdóttur og endaði há-
tíðina með því að syngja þjóðsöng-
inn, Ó, Guð vors lands.
100 ára Sr. Jón A. Baldvinsson í predikunarstól Grundarkirkju.
Fjölmenni tók þátt
í hátíðahöldum
Grundarkirkja 100 ára
Fyrirlestur | Michael Gibbons
lektor í félagsfræði við Háskólann í
Evansville í Bandaríkjunum flytur
fyrirlestur í dag, miðvikudaginn 16.
nóvember, kl. 16.30 í stofu L203 á
Sólborg. Hann fjallar um áhrif
ferðaþjónustu á samfélag smáeyjar í
Lake Superior. Gibbons vinnur nú
að rannsókn á efnahagslegum og fé-
lagslegum breytingum á Akureyri.
♦♦♦