Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Við fengum ein-faldlega tæki-færi á að móta
nýtt húsnæði eftir okk-
ar þörfum og ákváðum
að þar skyldi vera
barnaherbergi,“ segir
Ylfa Jakobsdóttir,
starfsmannastjóri hjá
Marel hf., sem flutti í
nýtt húsnæði að Aust-
urhrauni 9 í Garðabæ
sumarið 2002. Hjá fyr-
irtækinu hér heima
starfa 360 manns.
„Þegar við vorum á
gamla staðnum okkar
uppi á Höfðabakka, tók
ég eftir því að sam-
starfsmaður minn
þurfti oft að koma með
son sinn í vinnuna til að
ljúka ýmsum verkefnum. Litli strákurinn var
oft að koma til mín til að stytta mér stund-
irnar enda lítið við að vera fyrir hann. Við,
sem sátum í húsnæðisnefndinni, fórum í kjöl-
farið að velta því fyrir okkur hvort það
myndi ekki hjálpa að hafa svona aðstöðu,
sem úr varð. Við hönnuðum að-
stöðuna alfarið sjálf, fundum
rými fyrir börnin miðsvæðis í
húsinu og settum inn dót, sem
við töldum að börn á aldrinum
fimm til tíu ára gætu haft af-
þreyingu af.
Leikjatölva og djúsvél
Þarna inni er tölva,
myndbandstæki og sjón-
varp, bækur, litabækur,
púsl, legó, bangsar,
grjónapúði, stólar
og borð. Ráðgert er
að bæta við play-
station og einhverju
fleiru og svo er djús-
vélin einkar vinsæl. „Ég hef
tekið eftir því að einfaldir hlutir
verða dálítið spennandi í hugum krakkanna
og þeim finnst gaman að fá að koma og kynn-
ast því hvað mamma eða pabbi eru að gera á
daginn. Við settum auk þess upp vefmynda-
vél í einu horni herbergisins svo að foreldr-
arnir geti fylgst með börnum sínum í gegnum
Netið.“
Að sögn Ylfu geta ólíkar ástæður leg-
ið að baki því að foreldrar þurfa að vera
með börnin sín á vinnutíma, t.d. veik-
indi, skólafrí, dagmömmufrí, tann-
læknaheimsóknir eða aðrar læknis-
heimsóknir. „Með þessu geta starfsmenn
hæglega komið inn með börnin og klárað
þau verkefni, sem fyrir liggja í vinnunni
og þau unað glöð við leik á meðan. Okkar
skilyrði er þó það að börnin hafi
þroska til að sjá um sig sjálf því við
bjóðum ekki upp á pössun í barna-
herberginu. Þau vita hins vegar hvar
vinnustöð foreldrisins er og þau geta
hringt í foreldrið.“
Nýtingin á barnaherberginu
í Marel er tiltölulega mikil,
segir Ylfa. Börn eru þar
nokkuð reglulega og það
var geysilega mikið fjör í
kennaraverkfallinu auk þess
sem mörg börn koma í lok sum-
ars eftir að sumarfríum lýkur og áður en
skólarnir byrja. „Það er þægilegt fyrir starfs-
menn að vita af þessari aðstöðu. Það er ekki
síður mikilvægt að börnunum okkar líði vel
og að þeim leiðist ekki.“
YLFA JAKOBSDÓTTIR, starfsmannastjóri hjá Marel
Hönnuðum aðstöðu
miðsvæðis í húsinu
Morgunblaðið/Ómar
Börn starfsfólks hjá Marel koma reglulega í heimsókn.
VINNUSTAÐIR | Börnin boðin velkomin í vinnuna með mömmu eða pabba
Kubbar, litir, tölvur og dýnur til að lúlla á
Það færist í vöxt að fyrirtæki hér á landi geri ráð fyrir sérstökum barnaherbergjum í híbýlum sínum sem má segja að
sé vísir að fjölskyldustefnu. Þar eiga börn starfsmanna athvarf, skapist sú staða að taka þurfi börnin með í vinnuna
hluta úr degi einhverra hluta vegna. Jóhanna Ingvarsdóttir talaði við starfsmannastjóra tveggja fyrirtækja, sem bæði
eru í nýlegum húsum. Í báðum þessum fyrirtækjum var gert ráð fyrir skemmtilegum og litskrúðugum barnaherbergjum,
sem átt hafa vinsældum að fagna meðal yngstu kynslóðarinnar. Börnin eru á ábyrgð foreldranna í barnaherbergjum og hægt
er að fylgjast með afkvæmunum á netinu í gegnum vefmyndavélar.
Barnaherbergið okkar erekki hugsað sem dagvistfyrir börn starfsmanna,
heldur sem skjól fyrir börnin til
skemmri tíma í þeim tilfellum,
sem þau þurfa að koma með for-
eldri í vinnuna. Það er alltaf eitt-
hvað óvænt að koma upp í dags-
ins önn. Til dæmis lenda margir í
því að það er hringt úr leikskólanum og barnið
sagt veikt, en þegar til kemur og það hefur
verið sótt er ekkert að því,“ segir Jakobína
Jónsdóttir, starfsmannastjóri hjá Samskipum
hf., sem er í nýlegu húsnæði við Kjalarvog í
Reykjavík.
Í staðinn fyrir að sitja við skrifborðið hjá
mömmu eða pabba og framleiða myndir í
massavís, geta börnin nú dúllað sér í
barnaherberginu í playstation,
horft á myndbönd, lesið
bækur eða dundað sér á
annan hátt. Í barna-
herbergi Samskipa, sem
hugsað er fyrir 3–12 ára
börn, er m.a. að finna leikja-
tölvu, playstation, mynd-
bandstæki, lestrarbækur,
litabækur og kubba auk
þess sem þar inni er sófi og teppi til að leggja
sig ef þreytan fer að segja til sín.
Mælist vel fyrir meðal starfsmanna
„Herbergið er töluvert mikið notað og helst
í neyðartilvikum þegar eitthvað kemur upp á
og það vantar pössun í tvo til þrjá tíma. Í stað
þess að þeytast með börnin út um allt í pössun,
er nú hægt að koma með þau í vinnuna tíma-
bundið sem mælst hefur vel fyrir meðal starfs-
manna. Börnin eru á ábyrgð
foreldra í barnaherberginu
og hefur verið sett upp
vefmyndavél til að auð-
veldara sé að fylgj-
ast með þeim,“
segir Jakobína.
Þegar hug-
mynd að barna-
herbergi vaknaði
samhliða annarri
hönnunarvinnu nýs
húss, var sett á lagg-
irnar sérstök barna-
herbergisnefnd, sem
hafði það hlutverk að
búa herbergið hús-
gögnum og dóti. „Nefnd-
in, sem í sátu þrjár kon-
ur, fór með teikningu af
herberginu í IKEA þar
sem það var fullhannað
og voru innanstokks-
munir keyptir þar. Her-
bergið er afar skrautlegt
með sterkum litum, en
þetta er eina rýmið í öllu
húsinu sem arkitektar
komu ekki nálægt.“
JAKOBÍNA JÓNSDÓTTIR, starfsmannastjóri Samskipa
Skjól fyrir
börnin til
skemmri
tíma
Morgunblaðið/Kristinn
Jakobína Jónsdóttir í barnaherbergi fyrirtækisins.