Morgunblaðið - 16.11.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 16.11.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 25 SAMFYLKINGIN er flokkur í vanda og jafnvel má ganga svo langt að segja að flokkurinn sé í kreppu. Dvínandi fylgi Samfylk- ingarinnar í könnun eftir könnun er einungis ein birtingarmynd þessa vanda. Flokkurinn er á harðahlaupum frá stefnu sinni fyrir síð- ustu kosningar í hverju málinu á fæt- ur öðru og þótt Ingi- björg Sólrún Gísla- dóttir hafi lýst því yfir á flokksstjórn- arfundi um síðustu helgi að hún hygðist nú reyna að verja miðjuna er ljóst að flokkurinn hefur tek- ið skarpa beygju til vinstri. Vissulega er hægt að hafa ákveðinn skilning á þeim vanda sem Samfylk- ingin á nú við að etja. Það er ekki auðvelt að vera í stjórnarandstöðu og reyna að mála skrattann á veginn þegar þjóðin er að ganga í gegnum eitthvert mesta hagvaxtarskeið Ís- landssögunnar, þeg- ar atvinnuleysi er í lágmarki og kaupmáttur eykst jafnt og þétt. Allt tal um að verið sé að „skerða“ þjónustu til velferð- armála, heilbrigðismála og menntamála verður fremur hjá- kátlegt þegar ljóst er að aldrei hafa Íslendingar varið meiri fjár- munum til þessara málaflokka. Felst „skerðingin“ kannski ein- ungis í því að stjórnvöld reyna ekki að toppa hvert einasta yf- irboð Samfylkingarinnar? Miðstýring eða frjáls hugsun? Formaður Samfylkingarinnar reynir að draga víglínuna á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylking- arinnar og segir baráttuna snúast um átök þess sem hún kallar jafn- aðarmennsku og frjálshyggju. Sú jafnaðarmennska sem formað- urinn talar fyrir og sýnir í verki er hins vegar þegar upp er staðið ekki jafnaðarstefna gamla Al- þýðuflokksins heldur miklu frek- ar sósíalismi Alþýðubandalagsins. Og stefna hins frjálsa hugar sem formaðurinn virðist hafa svo mikla andúð á er sú stefna sem alls staðar er í sókn í hinum vest- ræna heimi og jafnvel flestir nú- tímalegir flokkar jafnaðarmanna hafa tekið upp á sína arma, þ.e. sú stefna að leyfa hinu frjálsa framtaki og sköpun að njóta sín án þess þó að fórna hinum fé- lagslega þætti samfélagsins. Við skulum ekki gleyma að sú gífurlega verðmætasköpun sem hið frjálsa markaðshagkerfi hefur stuðlað að hér á landi á síðustu árum gerir það að verkum að við getum aukið framlög okkar til menntamála, félagsmála og heil- brigðismála jafnmyndarlega og dæmin sýna. Við höfum sýnt að frelsi með ábyrgð fer saman við mildi og mannúð en það hefur alla tíð verið leiðarljós sjálfstæð- isstefnunnar. Gríðarleg aukning til menntamála Formaður Samfylkingarinnar segir hina opinberu umræðu um menntamál snúast um nið- urskurð. Ég spyr: Hvar er þann niðurskurð að finna? Ekki í fram- lögum til framhaldsskólanna en framlög til þeirra hafa aukist um rúma sex milljarða eða um 87% frá árinu 2000. Ekki getur for- maður Samfylkingarinnar verið að tala um háskólana en framlög til þeirra hafa vaxið jafnt og þétt um tæpan milljarð á ári síðast- liðin ár. Alls nemur aukningin um 105% frá árinu 2000 miðað við þær tölur sem er að finna í fjárlaga- frumvarpi þessa árs. Á síðustu dögum hafa sumir fulltrúar stjórnarandstöð- unnar kvartað yfir fjársvelti og skerð- ingu fjármagns til tveggja háskóla sér- staklega, Háskólans á Akureyri og Kenn- araháskóla Íslands. Það er mér ljúft að benda á að framlög til einmitt þessara skóla hafa hækkað umfram meðaltals- hækkun til annarra skóla. Framlög til KHÍ um rúm 123% og framlög til Háskólans á Akureyri um tæp 140%. Eflaust myndu margar aðrar stofn- anir fagna slíkri „skerðingu“ framlaga. Það er sömuleiðis fróðlegt að skoða op- inber framlög á Íslandi til há- skólamála í samanburði við önnur ríki OECD. Á milli áranna 2001 og 2002 jukust þau úr 0,8% af vergri landsframleiðslu í ríflega 1,0% af vergri landsframleiðslu. Þegar útgjöld til eins málaflokks hækka um 0,2% af landsfram- leiðslu milli ára sýnir það svo sannarlega vilja stjórnvalda. Þetta framlag er svipað meðaltali OECD-ríkjanna, sem er 1,1%, og sama framlag og t.d. Frakkar og Þjóðverjar verja til sinna háskóla af opinberum framlögum. Ein- ungis fimm Evrópuríki verja hærra hlutfalli til háskólamála. Því miður eru ekki til nýrri OECD-tölur en líkt og ég gat um áður hefur verið haldið áfram að auka framlög til háskólastigsins og hafa þau verið aukin um rúma þrjá milljarða frá árinu 2002 sem þessar tölur miða við. Er það stefna ríkisstjórnarinnar að halda áfram eflingu allra skólastiga. Kamelljón íslenskra stjórnmálaflokka Samfylkingin hefur á undra- skömmum tíma náð að verða kamelljón íslenskra stjórn- málaflokka. Fyrir kosningar hafði flokkurinn eina ákveðna stefnu í sjávarútvegsmálum en aðra í dag, fyrir kosningar voru skattalækk- anir á dagskrá en í dag er annað upp á teningnum, fyrir ári vildi Samfylkingin skólagjöld í háskóla á framhaldsnámi en í dag eitt- hvað annað og enn og aftur hefur flokkurinn undirstrikað stefnu- leysi í utanríkismálum. Vandamálið er því ekki – líkt og formaður Samfylkingarinnar heldur fram – að ríkisstjórnina skorti „raunverulegan skilning á því að öflugt menntakerfi sem þjónar einstaklingum og atvinnu- lífi … er stóriðja framtíðarinnar“. Vandamál Samfylkingarinnar er að Samfylkingin hefur enga stefnu í menntamálum frekar en í öðrum mikilvægum málaflokkum – a.m.k. ekki marga daga í einu. Á harða- hlaupum til vinstri Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ’… Samfylk-ingin hefur enga stefnu í mennta- málum frekar en í öðrum mik- ilvægum mála- flokkum …‘ Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins. um fá mjög skýr svör og haldfastar skuld- bindingar [frá ríkisstjórninni] varðandi þessa tvo liði, atvinnuleysistryggingar og örorkubyrðina. En það er líka samkomulag við stjórnvöld um að ýmsir þættir sem snúa að okkar starfsmenntamálum eru nú með formlegri hætti á borði menntmálaráð- herra,“ sagði Gylfi og bætti við að í lögunum um starfsmannaleigur fælist mikil réttar- vernd erlendra skjólstæðinga ASÍ. Styrkir stöðu vinnumarkaðarins Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði að örorkubótaþáttur lífeyrissjóðanna væri mál sem ASÍ hefði barist fyrir í mörg ár og bent á að ríkisvaldið gæti ekki vikist undan því að taka þátt í þeirri fjármögnun. „Við höfum búið við það síðustu ár að í sumum lífeyr- issjóðum á okkar vettvangi hafa menn þurft að lækka lífeyrinn til að reyna að halda sam- bærilegum sjó varðandi örorkubæturnar. Að óbreyttu hefði blasað við að fleiri sjóðir hefðu þurft að fara í sama farveg ef ekki hefði komið til samkomulag um aðkomu stjórnvalda,“ sagði Grétar. ósi þeirra heildarhagsmuna sem í er það mín skoðun að þessi nið- afar þýðingarmikil og klárlega til lum aðilum málsins.“ ald, framkvæmdastjóri SA, sagði gar væru í heildina mjög um- r. Hækkun launa, breytingar á sisbótakerfinu, sem atvinnurek- u bera kostnaðinn af til lengdar, ríkisstjórnarinnar væru í raun eiri en framlenging samninga um íma. Hann sagði að þátttaka rík- nnar hefði haft afgerandi þýð- teljum að við séum með þessari að teygja okkur mjög langt í því ma í veg fyrir upplausn á vinnu- m og það réð þessari niðurstöðu lfu.“ Vildu skýr svör rnbjörnsson, framkvæmdastjóri t vera ánægður með að þessi nið- fði náðst. Hann tók í sama streng sagði aðkomu ríkisstjórnarinnar ríðarlega mikla þýðingu. Við vild- og Samtaka atvinnulífsins um breytingar á kjarasamningum r tryggja að arnir halda Morgunblaðið/Golli atvinnulífsins var undirritað síðdegis í gær í húsakynnum ASÍ. F.h.: Grétar sson, Ari Edwald og Hannes G. Sigurðsson. staða erlends vinnuafls í íslensku sam- félagi verður bætt. Ákveðið hefur verið að fela Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að útbúa námsefni í íslenskukennslu fyrir útlendinga. Þá verða veitt sérstök framlög til að greiða fyrir námskeiða- hald og endurmenntun einstaklinga á vinnumarkaði en símenntunarmið- stöðvum um land munu annast námið. Þá er gert ráð fyrir framhaldi á sam- starfi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífs- ins og menntamálaráðuneytisins um mat á raunfærni, þ.e að leggja mat á fyrra nám og færni einstaklinga sem vilja bæta við sig menntun. Ennfremur verður náms- og starfsráðgjöf efld fyr- ir þá sem litla menntun hafa verði skráningarskyldar hér á landi, skuli hafa fulltrúa hér á landi og veita Vinnumálastofnun upplýsingar um starfsemi sína áður en vinna hefst og að starfsmannaleigum utan EES eða EFTA-ríkja verði óheimilt að veita hér þjónustu nema samningar sem Ísland eigi aðild að heimili það. Ennfremur að starfsmannaleigum verði óheimilt að taka við greiðslu frá starfsmönnum fyrir að bjóða eða veita þeim vinnu. Starfs- og endurmenntun efld Þá mun ríkisstjórnin setja um 100 milljónir króna í að efla starfs- og end- urmenntun ófaglærðra og þeirra sem eru með litla menntun auk þess sem fyrst og fremst horft til vangetu ein- staklinga til að afla sér tekna. Nefndin á einnig að fjalla um leiðir til að efla starfsendurhæfingu, bjóða einstak- ingsmiðaða þjónustu og gera kerfið einfaldara og skilvirkara. Fjármögnun þessara aðgerða verður sameiginlega á hendi ríkisstjórnar og aðila vinnu- markaðarins. Lög um starfsmannaleigur Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að setja löggjöf um starfsmannaleigur fyrir jólahlé Alþingis. Í yfirlýsingu hennar kemur fram að frumvarpið muni setja leigunum ákveðin starfs- skilyrði, sem feli m.a. í sér að þær rðir ríkisstjórnarinnar m 1.500–1.800 milljónir Morgunblaðið/Árni Sæberg Fulltrúar vinnuveitenda, verkalýðshreyfingarinnar, fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar og embættismenn ræddust við í ráðherrabústaðnum síðdegis í gær áður en fulltrúar ASÍ og SA skrifuðu undir samkomulag sitt. TALSVERÐAR breytingar á atvinnu- leysisbótakerfinu eru boðaðar í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar. Þar vegur þyngst að grunnbætur verða hækkaðar úr 91.426 krónum í 96.000 krónur á mánuði og tekin verður upp tekjuteng- ing bóta á þriggja mánaða tímabili. Í því felst að atvinnuleysisbætur verða 70% af heildartekjum bótaþega síðustu sex mánuði en þó ekki hærri en 180.000 krónur á mánuði. Með tilkomu laganna verða þeir sem missa vinnuna á grunnbótum fyrstu tíu virku dagana eftir vinnumissinn en að þeim tíma loknum hefst tekjutenging bóta. Réttur til tekjutengdra atvinnu- leysisbóta eru þrír mánuðir á þriggja ára tímabili og þegar bótaþegi hefur fengið tekjutengdar bætur í þrjá mánuði fær hann aftur grunnbætur. Rétturinn til tekjutengdra bóta endurnýjast á 24 mánaða tímabili. Í yfirlýsingunni kemur fram að rík- isstjórnin muni beita sér fyrir lagasetn- ingu um breytingar á greiðslu atvinnu- leysisbóta í samræmi við samkomulag ASÍ og SA. Aðgerðirnar verða fjár- magnaðar með greiðslum úr Atvinnu- leysistryggingarsjóði en ekki þykir ástæða til að hækka atvinnutrygging- argjald við gildistöku laganna, þar sem sjóðurinn hefur svigrúm fyrir slíka hækkun um þessar mundir. Að sögn Ólafs Darra Andrasonar, hagfræðings ASÍ, er hins vegar áætlað að gjaldið þurfi að hækka þegar dregur úr þenslu í þjóðfélaginu. Hann segir að með því að tekjutengja bæturnar sé tryggt að þeir sem verði fyrir því að missa vinnuna í nokkra mán- uði verði ekki fyrir jafnmiklu fjárhags- legu tjóni og ella. Ólafur Darri segir að eðlilega hafi verið tekist á um þetta og verkalýðshreyfingin hefði viljað að há- mark bótanna væri hærra en þetta hafi verið sú niðurstaða sem aðilar sættust á. Atvinnu- leysisbætur allt að 180 þúsund í þrjá mánuði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.