Morgunblaðið - 16.11.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 16.11.2005, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN BLAÐAMAÐUR Morgunblaðsins Guðrún Guðlaugsdóttir skrifaði grein í blaðið 10. nóvember sl., en hún hafði áður; 23.október sl. skrifað á svip- uðum nótum. Við lestur greinarinnar, andvarpaði undirritaður – og taldi sig hafa rekið í gamalt efni í nýju blaði. En við frekari þankagang rann upp fyrir undirrituðum að hér væri á ferðinni glettin manneskja með bráðfyndnar skoðanir. Til að byrja með er þó rétt að leiðrétta um- ræddan greinarhöfund og benda honum á að títtnefnd börn voru ekki 3 og 5 ára. Umræddur dómur var kveðinn upp í febrúar 2004; börnin fædd 1996 og 1999. Flestum telst þá til að þau séu u.þ.b. 5 og 8 ára. Fram- haldsdómur í málinu gekk í okt. síð- astliðnum og þá eru börnin orðin 6 og 9 ára samkv. venjulegum reikni- reglum. Guðrún segir að umrætt orðalag í dómi, um að börnin séu ung að aldri og þurfi meira á móður sinni að halda, þurfi ekki að koma á óvart. Fullur skilningur hafi ríkt í samfélaginu um gildi þess fyrir börn að njóta móður sinnar. Sleppir því að minnast á feður og gildi barna til að njóta feðra sinna; eðli þessa gamanmáls samkvæmt. Þetta styrkir hún svo með því að segja ennfremur: „Þetta fyrirkomulag hef- ur enda gefist vel svo sem aldalöng dæmi sanna.“ En svo brýtur greinarhöfundur blað og segir til rökstuðnings sinni kímnu skoðun: „Meira að segja hinir herskáu og hörðu Spartverjar létu mæður um uppeldi sona sinna til 7 ára aldurs þeirra, er tekið var til að þjálfa þá til hernaðar.“ Hún á þá auðvitað við að þá hafi feður þeirra tekið við upp- eldi þeirra eða karlpeningurinn á þeim tíma. Spartverjar hafa m.ö.o. verið öldum á undan okkur Íslend- ingum, hið minnsta, í þessum mál- efnum. Í fyrsta lagi – þá treystu þeir karl- mönnum fyrir börnum, þótt „ung væru að aldri“ og í öðru lagi fellur þessi rökfærsla um sjálfa sig þegar aldur umræddra barna í dómsmálinu er skoðaður. Spartverjar treystu feðrum og karl- mönnum fyrir uppeldi sona sinna frá 7 ára aldri; samkv. heim- ildum greinarhöfundar; og á þeim tímum virtust 7 ára drengir ekki þurfa meira á móður sinni að halda – merkilegt nokk. En á árinu 2005 í ís- lensku samfélagi er það viðtekin venja að feður fái ekki að ala upp sín börn, ef til skilnaðar kemur, og gildir þá einu á hvaða aldri þau eru, eða hversu hæfir þeir eru til hlutverksins. Jafnvel hæfari. Greinarhöfundur fer inn á líf- fræðilegar rökfærslur í gamanmáli sínu og útilokað að skilja þær á annan hátt en að feður komi ekki til skjal- anna í tengslum og tilfinningalífi barna sinna fyrr en löngu eftir barns- burð. Þeir séu í raun lakara foreldrið fyrir börn. Hafi Guðrún ekki betri vitneskju, telur undirritaður sér skylt að upplýsa hana um eftirfarandi: Talið er að börn byrji að mynda tengsl í móðurkviði við 20. viku meðgöngu; um það leyti sem þau fara að heyra, og skynja raddir og „snertingu“ beggja foreldra, sem svo þróast og verður barni eðlislægt sem kemur í heiminn. Rannsóknir sýna að börn mynda yf- irleitt sterkust tengsl við báða for- eldra sína strax eftir fæðingu og á fyrsta æviárinu. Undirritaður treystir sér ekki eins og greinarhöfundur til að meta það heilt yfir hvort tengsl barna eftir fyrsta æviárið verða sterkari við móður eða föður þegar báðir foreldrar hafa annast barnið jafnmikið – að tímabundinni brjóstagjöf undanskil- inni. Jafnrétti kynjanna, þ.m.t. launa- jafnrétti, jafnrétti til starfa, mennt- unar og lífs, sem og mannréttindi barnanna okkar virðast ekki eiga uppá pallborðið hjá greinarhöfundi. Það eitt og sér hlýtur að vekja konur þessa samfélags til umhugsunar um það hversu víða leynast skoðanir frá tímum Spartverja; og þó ívið eldri. Guðrún telur sig líka þekkja dæmi um að karlar hafi tekið börn og falið um tíma til að þeir standi betur að vígi ef til forsjárdeilu kæmi, og telur slíkar aðgerðir geta valdið slæmu tilfinn- ingalegu veganesti barna. Það kann að vera að karlar hagi sér með þessum hætti og er það miður; en í ljósi þess að konur hafa börn eftir skilnað í 90% tilfella – þá myndi einhver sjá ástæðu til að ætla að karlar væru í miklum minnihluta með slíka hegðun. Þegar hér er komið sögu, þverr áhugi undirritaðs til að hugleiða frek- ar hið forna gamanmál Guðrúnar, en getur eigi látið hjá líða að upplýsa hana um eftirfarandi: Börn eiga eitt heimili fyrir skilnað foreldra. Eftir skilnað eiga börn 2 heimili, annað hjá móður og hitt hjá föður. Börn eiga rétt til beggja foreldra sinna, fyrir og eftir skilnað. Allar rannsóknir benda til þess að það sé börnum fyrir bestu að umgangast báða foreldra sína sem jafnast – fyrir og eftir skilnað, svo fremi að jafnræði ríki í hæfi foreldr- anna til síns hlutverks. Ótal rann- sóknir benda til ört vaxandi hegð- unarvandamála barna og unglinga, þegar tengsl þeirra og samvistir við annað foreldrið minnka verulega eða rofna alfarið. Að lokum vill undirritaður þakka Guðrúnu fyrir bráðmikla skemmtun og lystilega skautun í kringum stað- reyndir nútímans; en skorar á hana að halda hiklaust áfram að segja frá gömlum tímum. Synir og dætur þessa lands munu eflaust fagna frekari „upplýsingum“ af deyjandi viðhorfum úr fortíðinni. Glens Guðrúnar … Stefán Guðmundsson svarar grein Guðrúnar Guðlaugsdóttur ’Börn eiga rétt tilbeggja foreldra sinna, fyrir og eftir skilnað. ‘ Stefán Guðmundsson Höfundur er stjórnarmaður í Félagi ábyrgra feðra. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, hefur uppi áform um að stytta nám til stúdentsprófs um eitt ár með því að færa námsefni frá fram- haldsskóla niður í grunnskóla. Sam- kvæmt orðum ráðuneytismanna er þetta afrakstur af áralangri vinnu sér- fræðinga í málinu þar sem samvinna hafi verið höfð við öll skólastig. Séu ummæli ráðherra skoðuð og skýrsla um styttingu náms til stúdentsprófs lesin er hvergi minnst á að gera skólana betri. Frá sjón- arhorni mennta er skýrslan því ábyrgð- arlaus. Hins vegar er málið gott og gilt frá sjónarhóli sparnaðar því að ríkið þarf að reka styttri framhaldsskóla en samkvæmt skýrslu um styttingu náms til stúdentsprófs mun fækka um 150 stöðu- gildi í framhalds- skólum. Ríkið ætti því að sleppa við talsverðan launakostnað. En hverjir eru helstu sérfræðingarnir í mál- inu aðrir en skólamenn sjálfir? Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum er mikil and- staða við styttingarframkvæmdina hjá kennurum í framhaldsskólum og þeir telja að ráðherra sé að þröngva málinu upp á þá í óþökk þeirra. Hvað með önnur skólastig? Það er ekki að sjá að önnur skólastig í landinu taki málinu fagnandi. Á Haustþingi framhalds- skólakennara á Norðurlandi sagði Ari Ólafsson, prófessor við HÍ og fulltrúi eðlisfræðiskorar, að sú leið sem væri farin við styttingu náms til stúdents- prófs væri mikil tímaskekkja. Taldi hann víst að framkvæmdin ynni gegn yfirlýstum markmiðum Evrópusam- bandsins sem Íslendingar væru aðilar að. Ástæða þessara markmiða er ótti manna í Evrópu við að álfan sé að dragast aftur úr þegar kemur að vís- indum og tækni. Rökstuðningur menntamálaráðu- neytisins, í skýrslu sinni um málið, fyrir því að hægt sé að stytta námið, er sá að á mörkum framhalds- og grunn- skólans sé endurtekið efni og hlífa eigi góðum námsmönnum við þess háttar endurtekningum. Allt gott og blessað. Það er þó líklega afar hæpið að ætla að byggja vinnuna á því að áfangalýs- ingar í grunn- og framhaldsskólum falli saman. Það er ekki endilega víst að alltaf sé farið eftir þeim og að próf- að sé úr þeim með sambærilegum hætti. Annað er það að oft er end- urtekninga þörf til þess að setja efni í nýtt samhengi fyrir nemandanum. En fer nám annars ekki fram að einhverju leyti með endurtekningum? Það er full ástæða til þess að hafa tortryggni í garð menntamálaráðu- neytisins í þessum efnum því að síðast þegar ráðist var í námskrárbreytingu árið 1999 leiddi það til þess að nám í stærðfræði á öllum brautum skertist (sjá grein Rögnu Briem í Skólavörð- unni í mars 2005). Hvernig eigum við að treysta því að námið verði ekki rýr- ara þegar enn meiri breytingar eru í vændum en voru gerðar 1999? Eru framhaldsskólarnir nú ekki þegar búnir að stytta nám til stúdents- prófs? Hvað með Menntaskólann Hraðbraut sem útskrifar menn á tveimur árum eða fjölbrautaskólana sem flestir hafa svigrúm fyrir 3 ára nám? Hefði ekki verið nær að leita lausna hjá framhalds- skólunum í stað þess að þjösna málinu áfram í óþökk þeirra? Þarf að hafa alla skóla eins. Mega menntaskólar ekki bjóða upp á 4 ára nám telji þeir þess þurfa eða nemendur sjái sér hag í því? Hvað með 10. bekk grunnskóla. Af hverju býður ráðuneytið nem- endum ekki upp á raun- verulegan valkost á að ljúka grunnskólanum á 9 árum? Þannig má halda áfram að spyrja. Sjálfur hef ég áður bent á ókosti þess að færa nám frá framhalds- skóla yfir í grunnskóla. Ókostirnir blasa við þeg- ar kemur að stærðfræði og raun- greinum. Allir vita að raungreina- kennsla stendur höllum fæti í námi grunnskólakennara í landinu og eru fáir kennaranemar sem velja sig inn á þær brautir. Það er algerlega óljóst hvort tekst að manna grunnskóla með hæfum kennurum sem til staðar eru í framhaldsskólum. Mun þá námið skerðast ef framhaldsskólinn þarf að kenna aftur það námsefni sem hann missti í einhverri mynd? Komandi ut- an af landi hef ég sérstakar áhyggjur af börnum í hinum dreifðu byggðum þar sem e.t.v. munu ekki fást kenn- arar með menntun til þess að kenna skv. nýju námskránni. Verður raun- verulegur réttur þeirra til náms tryggður? Í skýrslu um styttingu náms til stúdentsprófs virðist ekki gert ráð fyr- ir eðlisfræðibraut og sennilega mun ekki vera pláss fyrir hana frekar en önnur sérsvið. Það virðist enda vera markmið menntamálaráðuneytisins að steypa alla skóla í sama mót eins og samræmd stúdentspróf bera vott um. Þau hafa þann ókost að óhjá- kvæmilegt er að skólar miði starf sitt við þau eins og grunnskólar miða starf sitt við samræmd grunnskólapróf. Í stað þess að reyna að skapa sér sér- stöðu þá reyna skólarnir að vera eins því þeir verða mældir með sömu stik- unni. Menntamálaráðuneytið virðist ekki taka skynsamlegum mótrökum í stytt- ingarmálinu og talar um „skort á yf- irsýn skólamanna“ eins og ráðherra gerði á vordögum. Slík vinnubrögð eru sérstaklega skrítin í ljósi þess að málaflokkurinn heyrir undir það stjórnmálaafl sem stutt hefur ein- staklingsframtak og lýðræði, a.m.k. í orði kveðnu. Málið er ólýðræðislegt og forsjárhyggjulegt þar sem það hefur engan hljómgrunn í grasrótinni sem eru skólarnir og námsmennirnir. Þau sjónarmið virðast helst til höfð sem lúta að peningasparnaði ríkisins og virðist málið eiga stuðningsmenn þar. Það er vissulega gott að spara peninga hvort heldur það er hjá ríkinu eða í formi lengri starfsævi einstakling- anna. Ef hins vegar nýjar námskrár og 3 ára skóli verða til þess að rýra stúdentsprófið, eins og allt bendir til, þá erum við komin á hálan ís og senni- lega er þá betur heima setið en af stað farið. Að búa til verri skóla er vondur sparnaður. Rangar áherslur í menntamálum Unnar Þór Bachmann fjallar um styttingu náms til stúdentsprófs Unnar Þór Bachmann ’Ókostirnirblasa við þegar kemur að stærð- fræði og raun- greinum. ‘ Höfundur er starfandi framhaldsskólakennari. ÞEGAR fjallað er um mál- stefnu hér á landi sem annars staðar í heiminum er gagnlegt að gera greinarmun á stöðu tungu- máls og formi þess. Á stöðu og formi er viss eðlismunur sem hér er reynt að skýra með því að víkja að nærtækum úrlausn- arefnum í íslenskri málrækt. Ákveðið samspil er raunar á milli þáttanna, t.d. styrkir það stöðu tungumáls í sam- félaginu ef orðaforð- inn er vel ræktaður og rík festa er í rit- málinu. Staða tiltekins tungumáls í sam- félaginu ræðst eink- um af því hvern sess það skipar í stjórnsýslu, atvinnu- og menning- arlífi. Meðal þess sem miklu máli skiptir er hvort tungumál er rík- ismál eða minnihlutamál í við- komandi samfélagi. Það atriði getur skipt meira máli en fjöldi málnotenda. Um 300.000 manns kunna íslensku og búa flestir hér á landi. Mörgum þykir 300.000 málnotendur heldur lág tala. En meðan íslenska nýtur þeirrar stöðu að vera eina opinbera tungumálið í landinu og er notuð í allri opinberri starfsemi, í fyr- irtækjum, rannsóknum, íþróttum, listum, fjölmiðlum o.s.frv. er hún í miklu sterkari stöðu en ef hún væri t.a.m. minnihlutatunga sem 300.000 manns kynnu í einhverju ríki þar sem annað mál væri þjóð- tunga. Huga mætti að því hvort þörf er á að verja stöðu íslensku sem opinbers máls á Íslandi enn frek- ar en nú er með lagasetningu eða jafnvel stjórnarskrárbreytingu. Mörður Árnason o.fl. lögðu fram þingsályktunartillögu fyrir tveim- ur árum um að fela forsætisráð- herra að setja á fót nefnd sem athugi réttarstöðu íslensku sem þjóðtungu Ís- lendinga og opinbers máls á Íslandi. Al- þingi samþykkti í maí 2004 að vísa því máli til ríkisstjórnarinnar. Íslensk málnefnd hef- ur bent nefnd um endurskoðun stjórn- arskrárinnar á að taka í starfi sínu m.a. til athugunar hvort sett skuli inn í stjórn- arskrá Íslands ákvæði um að ís- lenska sé ríkismál Íslands. Sú afstaða er almenn á Íslandi að íslenska skuli áfram vera aðal- tungumálið hér á landi og að um ókomin ár verði hægt að nota hana við allar aðstæður. Auk stjórnvalda bera forystumenn í atvinnu- og menningarlífi ríka ábyrgð á því að íslenska verði áfram aðaltungumálið. Þetta er sameiginlegt metnaðar- og hags- munamál alls samfélagsins. Þá skal vikið að hinum meg- inþættinum, þ.e. formi tungumáls. Með því er einkum átt við mál- notkun og málkerfi en á það orka innri og ytri kraftar sem valdið geta breytingum á því. Mikið hagræði er að því fyrir samfélagið að sem mest festa sé á forminu. Það á ekki hvað síst við þegar kemur að frágangi ritmáls. Með þessu er auðvitað ekki átt við að orðaval og orðalag skuli ávallt steypt í sama mót þannig að málbeiting verði einsleit á öll- um notkunarsviðum. En samræmi í stafsetningu, beygingum og slík- um formþáttum er verðmætt í hverju málsamfélagi. Íslendingar hafa sett sér að varðveita íslensku eins og hægt er í núverandi mynd. Megintil- gangur varðveislunnar er að við- halda því samhengi sem er í ís- lensku ritmáli frá upphafi enda geta flestir Íslendingar lesið sér til fróðleiks og skemmtunar það sem ritað hefur verið á íslensku frá því á 12. öld. Það er einstakt og mörgum Íslendingum og fleir- um, sem til þekkja, þykir mik- ilvægt að þessi tengsl haldist áfram eftir því sem hægt er. Skólar, rithöfundar og blaða- menn, stjórnsýsla og fyrirtæki hafa hjálpast að við að festa ís- lenskar rithefðir í sessi. Venjur og reglur um ýmislegt í formi og frágangi hafa mótast smám sam- an og hefur einkum reynt á það undanfarnar tvær aldir eða svo. Íslensk tunga: staða og form Ari Páll Kristinsson skrifar í tilefni af degi íslenskrar tungu, sem er í dag ’Sú afstaða er almenn áÍslandi að íslenska skuli áfram vera aðaltungu- málið hér á landi og að um ókomin ár verði hægt að nota hana við allar aðstæður.‘ Ari Páll Kristinsson Jakob Björnsson: Útmálun helvítis. „Álvinnsla á Íslandi dregur úr losun koltvísýrings í heiminum borið saman við að ál- ið væri alls ekki framleitt og þyngri efni notuð í farartæki í þess stað, og enn meira borið saman við að álið væri ella fram- leitt með raforku úr eldsneyti.“ Þorsteinn H. Gunnarsson fjallar um rjúpnaveiðina og aug- lýsingu um hana, sem hann telur annmarka á. Eggert B. Ólafsson: Vegagerð- in hafnar hagstæðasta tilboði í flugvallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.