Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 36
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞAR FÓR ÞAÐ ÞAÐ GEKK EKKI MJÖG VEL AÐ SNYRTA GARÐINN NEI, ÞÚ GLEYMDIR AÐ SNYRTA ÞENNAN BLETT HVÍ ERUM VIÐ Í RÖÐ? VIÐ ERUM AÐ FARA Í SKOÐUN HJÁ HÚKRUNAR- FRÆÐINGI SKÓLANS FLOTT ER, ÞÁ GET ÉG SPURT HANA UM ÞENNAN VERK Í ÖXLINNI ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NÝTA TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ FÁ ÓKEYPIS LÆKNISRÁÐ AÐ HUGSA SÉR AÐ FÓLK SKULI ENNÞÁ SVELTA Í ÞESSUM HEIMI JAFNVEL HÉR Á LANDI ÍMYNDAÐU ÞÉR AÐ ÞÚ FENGIR ALDREI NÓG AÐ BORÐA ÉG KANNAST VIÐ ÞAÐ ÉGHELD EKKI ÉG ÞYRFTI AÐ HITTA LÆKNINN SJÁLFSAGT ÉG HELD ÉG STANDI, EF ÞÉR ER SAMA FÁÐU ÞÉR ENDILEGA SÆTI Á MEÐAN ÞÚ BÍÐUR SVONA GRÍMUR, GERÐU ATLÖGU AÐ MÉR ÉG ER VISS UM AÐ STELPURNAR EIGI EFTIR AÐ LÍTA VIÐ ÞÉR UM LEIÐ OG ÞÚ LOSNAR VIÐ ÞESSA FRUNSU ÉG ER MEÐ SVARTA BELTIÐ Í ANDLEGU- OFBELDI ÞAÐ ERU BARA SVO MARGAR GÓÐAR STÖÐVAR Á ÞESSU JÚ, AUÐVITAÐ VEIT ÉG ÞAÐ LEYFÐU MÉR BARA AÐ FINNA EINA SEM SPILAR GÓÐA ROKK TÓNLIST PABBI, ÞETTA VAR STOPPMERKI! SVO ÞETTA ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÞÚ LENTIR Í ÁREKSTRI, ÞÚ VARST AÐ FIKTA VIÐ ÚTVARPIÐ VEISTU EKKI AÐ ÞÚ ÁTT EKKI AÐ SKIPTA UM STÖÐVAR Á FERÐ? LÖGREGLAN ER Á LEIÐINNI ÞEIR NÁ ALDREI AÐ SAKFELLA MIG. ÞETTA ENDAR ALLT VEL NEI, ÉG ÆTLA AÐ SÆKJA UM SKILNAÐ HA, HVAÐ ÁTTU VIÐ ÉG VIL EKKI AÐ BARNIÐ MITT ALIST UPP Á MEÐAL GRLÆPAMANNA Dagbók Í dag er miðvikudagur 16. nóvember, 320. dagur ársins 2005 Stundum hefur Vík-verji talað um ung- linga og útivistartíma. Enn á ný langar hann að ræða um efnið en út frá helgarferðum for- eldra. Það er orðið al- gengt að foreldrar skreppi til útlanda og skilji unglingana eftir heima og þá án eft- irlits. En málið er að þrátt fyrir að mörgum unglingum sé treyst- andi þá eru ýmis atvik þannig að það er varla hægt að leggja það á unglinga að bera þessa ábyrgð. Krakkar frétta fljótt ef unglingar eru einir heima og þá er tilvalið að fara og banka upp á og koma í heim- sókn. Fyrr en varir er unglingurinn kominn í vanda sem hann ræður ekki við. Heimilið fyllist af ungmennum og oft eru þau með áfengi eða jafnvel fíkniefni með sem þau vilja nota. Hvað á óharðnaður krakki að gera í þeirri stöðu? Slíkt dæmi horfði Víkverji upp á fyrir nokkru og hann hvetur foreldra eindregið til að hugsa sig tvisvar um áður en þeir fara til útlanda og skilja unglinginn sinn eftir einan heima. x x x Víkverja finnstótækt að borga áttatíu til hundrað krónur fyrir eitt rúnn- stykki úti í bakaríi. Hvað réttlætir slíka verðlagningu? Í einni lágvöruverðsversl- uninni er nú hægt að kaupa tíu frosin rúnn- stykki á innan við tvö hundruð krónur. Það eina sem þarf að gera er að hita þau upp. Forsjálir geta því keypt pakka af mjög góðum og mismunandi rúnnstykkjum og hitað upp á sunnu- dagsmorgni fyrir innan við tvö hundruð krónur í stað þess að eyða þúsund krónum í tíu rúnnstykki. Það er líka umhugsunarvert að skoða verð á bakkelsi almennt. Er ekki stórskrítið að borga um 150 krónur fyrir eitt vínarbrauð? Ætli það kosti nokkurs staðar annars staðar í heim- inum tvö þúsund krónur að kaupa rúnnstykki og vínarbrauð fyrir fimm manna fjölskyldu? Og þá er ekki talið með annað sem þarf í morgunverð- inn þegar gera á sér dagamun um helgar. Frosin rúnnstykki fylla nú eina skúffuna í frystiskápnum á heimili Víkverja. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Myndlist | Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari tekur um þessar mundir þátt í sýningunni „Sculpture by the Sea“ í Sydney í Ástralíu. Þetta er í fjórða sinn sem Steinunni er boðið að taka þar þátt. Auk þess var hún þátttakandi í „Sculpture by the Sea“ í Perth í Ástralíu á þessu ári. Þetta er árleg sýning á útilistaverkum og eru þau staðsett með- fram ströndinni frá Bondi til Tamarama en það er fjölfarnasti göngustígur borgarinnar. Hana skoða 400.000 gestir á hverju ári. Verkið sem Steinunn sýnir að þessu sinni heitir „Eyjar“ og er steypt úr áli. Það er staðsett nálægt ströndinni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Útiverk eftir Steinunni er í eigu eins þekktasta listaverkasafnara Ástrala. Steinunn sýnir í Sydney MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Róm. 15, 7.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.