Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 39
18. nóvember kl. 20.30, í Háteigskirkju.
Kaffispjall að fundi loknum. www.al-
anon.is.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla mið-
vikudaga frá kl. 13 til 17. Úthlutun matvæla
er alla miðvikudaga frá kl. 15 til 17 í Eski-
hlíð 2–4 v/Miklatorg. Þeir sem vilja styðja
starfið fjárhagslega, vinsamlegast leggið
inn á reikning 101–26–66090 kt. 660903–
2590.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14–17. Sími 551 4349.
Netfang: maedur@simnet.is.
Fundir
Kalak, Grænlensk-íslenska félagið, Skúli
Pálsson | Í kvöld í Norræna húsinu kl. 20.
Sýndar verða myndir sem teknar voru síð-
astliðið sumar í gönguferð um Ammassa-
lik-svæðið á austurströnd Grænlands.
Enginn aðgangseyrir. Kalak, Grænlensk-
íslenska félagið.
Kvenfélag Kópavogs | Fundur í kvöld kl.
20. Fundurinn er tileinkaður 50 ára afmæli
Kópavogs.
Fyrirlestrar
Alliance Francaise | Gilles Elkaïm heldur
fyrirlestur í Öskju (náttúrufræðahús HÍ),
stofu 132 17. okt. kl. 17.15–19.15. Fyrirlest-
urinn er í boði Alliance française og
franska sendiráðsins á Íslandi. Elkaïm er
eðlisfræðingur og þekktur fyrir könn-
unarleiðangra sína. Árið 2000 lagði hann
einn í 3 ára ferð frá Norðurhöfða í Noregi
til Beringssunds (12.000 km) á hunda-
sleða og kajak og mun hann m.a. sýna
kvikmynd sem hann tók á þessu ferðalagi
og kynna hana. Fyrirlesturinn fer fram á
ensku.
Astma- og ofnæmisfélagið | Astma- og
ofnæmisskólinn heldur rabbfund á vegum
Astma- og ofnæmisfélagsins kl. 20 í Síðu-
múla 6 í húsi SÍBS. Michael V. Clausen,
barnalæknir og sérfr. í ofnæmissj. barna,
fjallar um frjókornaofnæmi og svarar fyr-
irspurnum. Fundurinn er öllum opinn. Sjá
nánari www.ao.is.
Kennaraháskóli Íslands | Á degi íslenskrar
tungu verður dagskrá um skáldskap, mál-
far og málstefnu í Bratta, Kennaraháskóla
Íslands við Stakkahlíð, 16. nóv. kl. 16.15–
17.15. Dagskráin verður send beint út á
vefsjónvarpi KHÍ http://sjonvarp.khi.is.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Ólafur K.
Nielsen, dýravistfræðingur NÍ, flytur erind-
ið: Ástand rjúpnastofnsins og áhrif frið-
unar; kl. 12.15 í sal Möguleikhússins við
Hlemmtorg. Hrafnaþing eru öllum opin,
nánari upplýsingar á www.ni.is.
Málstofur
Alþjóðahúsið | Afríka 20.20 heldur mál-
stofu á kaffihúsinu Tíu dropum, Laugavegi
27, kjallara, klukkan 20. Fjallað verður um
hvernig er að vera Afríkubúi á Íslandi.
Lucienne Claudette Jantjies frá Namibíu
og Akeem Cujo Oppong frá Ghana segja
frá og síðan opnar umræður.
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Ís-
lands | Kl. 12.15 heldur Haukur Freyr Gylfa-
son, aðjúnkt í viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands, fyrirlestur um „Lífsgæði
barna með einhverfu og Tourette sjúk-
dóminn og foreldra þeirra. Foreldrar
barnanna mátu lífsgæði sín og barna sinna
lægri en almenningur.
Málþing
Þjóðminjasafn Íslands | Málþing kl. 12.15 á
degi íslenskrar tungu. Guðrún Kvaran flyt-
ur erindi um málfræðistörf Jóns Ólafs-
sonar og Svavar Sigmundsson um mál-
rækt í ritum hans. Auk þess verður lesið
úr verkum Jóns. Að þinginu standa Góð-
vinir Grunnavíkur-Jóns í samvinnu við
Þjóðminjasafn. Allir eru velkomnir og að-
gangur ókeypis.
Námskeið
Maður lifandi | Þorbjörg og Umahro verða
með námskeið í Borgartúni um 10 grunn-
reglur kl. 19–23. Þetta er námskeið fyrir þá
sem eru að breyta um mataræði eða eru
að velta því fyrir sér. Eins kenna þau þátt-
takendum einfaldar uppskriftir til að koma
sér af stað.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 39
DAGBÓK
Laufkóngurinn.
Norður
♠D83
♥D105 N/AV
♦DG982
♣86
Vestur Austur
♠K1052 ♠9764
♥ÁG963 ♥84
♦Á75 ♦103
♣K ♣G10943
Suður
♠ÁG
♥K72
♦K64
♣ÁD752
Sú þjóðsaga hefur lengi gengið í
bridsheimum að laufkóngurinn sé
blankari en aðrir kóngar. Eric Rod-
well leggur ekki trúnað á þjóðsögur,
en hann hirti þó kónginn stakan á
eftir ÁD í viðureign bandarísku
sveitanna á HM í Portúgal.
Vestur Norður Austur Suður
– Meckstroth Hampson Rodwell
– Pass Pass 1 lauf
Dobl * 1 tígull 1 spaði 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Laufopnun Rodwells er sterk og
dobl vesturs sýnir kerfisbundið há-
litina.
Greco kom út með smátt hjarta og
Rodwell tók slaginn heima á kóng til
að eiga örugga innkomu í borði síðar.
Og spilaði tígli. Greco valdi að taka
strax á tígulásinn og fría hjartað með
ás og öðru.
Rowell hafði nú átta slagi í hendi
og gat svínað fyrir þann níunda
hvort heldur í spaða eða laufi. En
honum lá ekkert á. Hann tók tígul-
slagina og fylgdist vel með afköstum
varnarinnar.
Einspil vesturs í laufi teiknaðist
upp þegar hann sýndi þrjá tígla, svo
svíning þar var augljóslega með lík-
um. En austur taldi sig þurfa að
halda í fjögur lauf og fór niður á einn
spaða.
Rodwell nýtti sér þau mistök
glæsilega. Hann henti spaðagosa
heima í síðasta tígulinn og skildi eftir
spaðaás og ÁD75 í laufi. Síðan tók
hann spaðaásinn og lagði niður lauf-
ás. Spilinu var auðvitað lokið þegar
kóngurinn féll, en það hefði engu
máli skipt þótt austur ætti kónginn
eftir. Rodwell hefði þá spilað litlu
laufi og fengið níunda slaginn á
drottninguna síðar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Kl. 9 og 13 postulíns-
málun, leikfimi. Opið á hárgreiðslu-
og fótaaðgerðastofu kl. 9–16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist,
spiladagur, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Dalbraut 21–27 opin hand-
verkstofa kl. 8–16 alla virka daga. Fé-
lagsvist kl. 14. Fimmtud. 17. nóv. kl. 11–
14 jólamarkaður/skartgripir. Föstud.
18. nóv. kl. 13.30 Elsa E. Guðjónsson
spjallar um íslenskan útsaum m.m.
Kosið í Notendaráð.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30.
Viðtalstími í Gjábakka kl. 15–16. Fé-
lagsvist spiluð í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17. Síð-
degisdans föst. 18. nóv. kl. 15–17, Guð-
mundur Haukur leikur fyrir dansi.
Kaffi og rjómaterta. Ath. síðasta
skipti fyrir jól.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Brennu-Njáls saga. Eldri borgarar
lesa saman Brennu-Njáls sögu í fé-
lagsheimilinu Gullsmára 13, Kópavogi,
alla miðvikudaga kl. 15.45. Stjórnandi
og leiðbeinandi Arngrímur Ísberg.
Ókeypis aðgangur. Leshópur FEBK
Gullsmára.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11,
bútasaumshópur kl. 13 í Kirkjuhvoli.
Brids spilað í Garðabergi kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Kl.
10.30 gamlir leikir og dansar. Frá há-
degi spilasalur opinn. Kl. 14 leggur
Gerðubergskór af stað í heimsókn á
hjúkrunarheimilið Skjól. Allar uppl. á
staðnum og í síma 575 7720 og
wwwgerduberg.is.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni,
sögustund og léttar æfingar, leikfimi í
salnum, postulínsmálun kl. 13 og al-
menn handmennt.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dag-
blöðin. Kl. 9 fótaaðgerð og hár-
greiðsla. Kl. 11 banki. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi.
Hraunbær 105 | Mánudaginn 21. nóv.
kl. 10–16 verður kortagerð á vinnu-
stofu. Skráning á skrifstofu.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Línudans kl. 11. Saumar kl. 13. Gler-
skurður kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Gafl-
arakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu kl. 9–16 mósaik, ullarþæf-
ing og íkonagerð. Jóga kl. 9–12. Sam-
verustund kl. 10.30. Böðun fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Munið Bókmenntaklúbb kl.
20 í kvöld. Síðustu dagar skráningar
á Halldór í Hollywood 24. nóv. og Vín-
arhljómleikana 6. jan. 2006. Kaffi-
brauð Sigríðar í síðdegiskaffinu. Kíkið
við og kynnið ykkur alla dagskrána.
Sími 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun
fimmtudag er Pútt á Korpúlfsstöðum
kl. 10.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl.9–16.30
opin vinnustofa, kl. 9 opin fótaað-
gerðastofa, sími 568 3838, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátún 12. Félagsvist í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd-
mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafn-
istulaug). Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í
Bónus Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt
og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, handmennt almenn kl. 9.30–
16.30, hárgreiðsla kl. 9, morgunstund
kl. 10, fótaaðgerðir kl. 10, bókband kl.
10–13, verslunarferð kl. 12.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Allir foreldrar vel-
komnir með börn sín. Kirkjuprakkarar
kl. 15.30. TTT–starf kl. 17. ÆFAK
(yngri deild) kl. 20.
Árbæjarkirkja | Kirkjustarf með tíu
til tólf ára börnum kl. 16 í Selásskóla.
Söngur, helgistund, sögur og leikir.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í safn-
aðarheimili II milli kl. 11–12 í dag.
Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum. Foreldramorgnar eru
frá kl. 10–12 og opið hús eldri borgara
er frá kl. 13–16.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugleiðing, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimili
eftir stundina. Kirkjuprakkarar (7–9
ára) kl. 16. TTT (10–12 ára) kl. 17.
Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkj-
unnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra frá kl.
13. Við spilum, föndrum og erum með
handavinnu. Um klukkan 15 er kaffi.
Gestur dagsins er Haraldur Finnsson,
fv. skólastjóri. Öllum er velkomið að
taka þátt í þessu starfi. Nánari uppl
www.kirkja.is.
Dómkirkjan | Bænastund í Dómkirkj-
unni kl. 12.10–12.30. Hádegisverður á
kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum
veitt móttaka í síma 520 9700.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10–12.30. Fyrirlestur
mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir
mömmur og börn að hittast og kynn-
ast. Allir velkomnir, pabbar og
mömmur, afar og ömmur. Alltaf heitt
á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni.
Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari,
orgelleikari Hörður Bragason. TTT
fyrir börn 10–12 ára á miðvikudögum í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30.
Grensáskirkja | Samvera eldri borg-
ara kl. 14. Boðið er upp á Biblíulestur
og veitingar. Kvenfélagið í kirkjunni
heldur utan um samveruna.
Hafnarfjarðarkirkja | Kyrrðarstundir
í kirkjunni í hádegi kl. 12–14. Léttur
hádegisverður kl. 12.30–13 í Strand-
bergi.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8
árdegis. Íhugun, altarisganga. Ein-
faldur morgunverður í safnaðarsal
eftir messuna.
Háteigskirkja | Starf eldri borgara.
Fyrirbænastund kl. 11. Súpa kl. 12.
Brids kl. 13. Foreldramorgnar kl. 10 í
Setrinu. Stund í kirkjunni kl. 10.30
Fræðsla og kaffi kl. 11. Góð samvera
fyrir foreldra ungra barna.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12 í Hjallakirkju. 10–12 ára krakkar
hittast í Hjallakirkju kl. 16.30–17.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Kl. 12
bæn. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamvera, „súpa og brauð“ frá
kl. 18–20. Samveran hefst með mál-
tíð gegn vægu gjaldi. Kl. 19 hefst bibl-
íulestur og Skátastarf Royal Rangers
fyrir öll börn 5–17 ára.
Keflavíkurkirkja | Bókaþing ungra
lesenda á degi íslenskrar tungu í
Kirkjulundi kl. 10 árd. Kyrrðarstund í
Kapellu vonarinnar kl. 12. Orgelleikur.
Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25,
súpa, salat og brauð á vægu verði.
Umsjón sr. Sigfús Baldvin Ingvason.
Æfing Barnakórs Keflavíkurkirkju kl.
16–17 og Kórs Keflavíkurkirkju kl. 19–
22.30.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudag 16. nóv. kl. 20.
„Hann veitti sálum vorum lífið“. Sr.
Kjartan Jónsson talar. Valdís Magn-
úsdóttir segir Kenýafréttir. Kaffi.
Langholtskirkja | Bænagjörð með
orgelleik kl. 12.10. Súpa og brauð kl.
12.30 (kr. 300). Starf eldri borgara kl.
13–16. Söngur, tekið í spil, föndur,
spjall og kaffi. Verið velkomin. Upp. í
síma 520 1300.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin leggur upp frá kirkjudyr-
um. Kl. 14.10–15.30 Kirkjuprakkarar.
(1.–4. bekkur) Kl. 16.15 T.T.T. (5.–7.
bekkur). Kl. 17 Adrenalín gegn ras-
isma. Miðborgarstarf KFUM & K o.fl.
Kl. 19.30 Fermingartími. Kl. 20.30
Unglingakvöld.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Kaffi og spjall. Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Kjartan Jónsson.
Opið hús kl. 15. Sjálfbær þróun. Hvað
er sjálfbær þróun og verndun náttúr-
unnar í verki? Björn Guðbrandur
Jónsson líffræðingur fjallar um efnið.
Kaffiveitingar á Torginu.
Selfosskirkja | Morguntíð kl. 10. Fyr-
irbænir – og einnig tekið við bæn-
arefnum. Kaffisopi í safnaðarheim-
ilinu á eftir. Sr. Gunnar Björnsson.
Hlutavelta | Þær Ingibjörg Ósk
Helgadóttir, 10 ára, og Telma Ósk
Einarsdóttir, 12 ára, héldu tombólu á
Eskifirði og gáfu ágóðann til styrkt-
ar Rauða krossinum, alls 1.870 kr.
Með þeim á myndinni er formaður
Rauðakrossdeildarinnar á Eskifirði,
Ásta Tryggvadóttir.
MIÐASALA á breska
kammerkórinn The
Tallis Scholars, sem
heldur tónleika í
Langholtskirkju 7. og
8. janúar næstkom-
andi, er hafin í versl-
uninni 12 tónum.
The Tallis Scholars
hefur í yfir þrjá ára-
tugi verið í fremstu
röð kóra sem sérhæfa
sig í tónlist end-
urreisnartímans, og
nýtur vinsælda um all-
an heim fyrir sam-
hæfðan og blæ-
brigðaríkan söng.
Kórinn hefur hljóð-
ritað yfir 50 geisla-
diska sem margir hafa
komist á metsölulista,
og varð fyrsti end-
urreisnarhópurinn til að vinna hin
margfrægu Gramophone-verðlaun
fyrir geisladisk ársins. Tallis Schol-
ars hafa komið fram á yfir 1.400 tón-
leikum, þ.á m. í öllum helstu tón-
leikasölum heims.
Fyrri tónleikar Tallis Scholars á
Íslandi verða haldnir hinn 7. janúar
kl. 17. Þá flytur kórinn verk eftir
bresk tónskáld, m.a. William Byrd
og Thomas Tallis. Á seinni tónleik-
unum, sem verða 8. janúar kl. 20,
verður m.a. flutt Missa Ĺhomme
armé eftir Josquin des Prez og hið
margfræga Miserere eftir Gregorio
Allegri, en það er verkið sem Páfa-
garður leyfði ekki að væri dreift út
fyrir raðir eigin söngvara fyrr en
hinn ungi Mozart skrifaði það upp
eftir heyrn. Auk Tallis Scholars
kemur Kammerkórinn Carmina
fram á seinni tónleikunum. Munu
kórarnir tveir flytja í sameiningu
verk eftir Palestrina, Clemens og
fleiri endurreisnartónskáld.
Miðasala hafin á tónleika
The Tallis Scholars
Kammerkórinn The Tallis Scholars.
Miðasala á tónleikana fer fram í
versluninni 12 tónum, Skólavörðu-
stíg 15, og er miðaverð 2.500 kr.
FRÆÐSLUFUNDUR Minja og
sögu verður haldinn á fimmtudag-
inn í fyr-
irlestrasal Þjóð-
minjasafns
Íslands við Suð-
urgötu og hefst
kl. 17.
Að þessu sinni
flytur Guðjón
Friðriksson
sagnfræðingur
fyrirlestur er
hann nefnir
„Hannes Haf-
stein og konurnar“. Um þessar
mundir er að koma út ævisaga
Hannesar eftir Guðjón er hann
nefnir Ég elska þig stormur. Í fyr-
irlestri sínum mun Guðjón ræða
um konurnar í lífi Hannesar og
áhuga hans og forgöngu fyrir
kvenréttindum.
Að loknum fyrirlestri mun Guð-
jón svara fyrirspurnum.
Guðjón er meðal annars þekktur
fyrir ritverk sín um Einar Bene-
diktsson, Jónas frá Hriflu og Jón
Sigurðsson svo eitthvað sé nefnt.
Guðjón segir
frá Hannesi
Hannes Hafstein
ÁRLEGUR upplestur Hins íslenska
glæpafélags á Grandrokk, Smiðju-
stíg 6, Reykjavík, verður á fimmtu-
daginn kl. 21. Á undan upplestri
munu seiðandi djasstónar leika um
eyru gesta. Einnig verður leikinn
djass undir upplestri höfunda og
hljómsveitin leikur áfram að lestri
loknum til að undirstrika ógnvæn-
legt andrúmsloft glæpanna, segir í
kynningu. „Illkvittnislegir bar-
þjónar með vafasamt bros munu
bjóða upp á vindla, vindlinga og viskí
og höfundar segja frá eiturlyfjum,
fjöldamorðum, raðmorðum, einka-
morðum, prívatmorðum og öðrum
morðum og alls kyns fantaskap. En
lausnarinnar verður áfram að leita í
bókunum svo að allir fara söguþyrst-
ir heim,“ segir ennfremur.
Meðal höfunda sem lesa upp eru:
Árni Þórarinsson, Jón Hallur Stef-
ánsson, Reynir Traustason, Súsanna
Svavarsdóttir, Viktor Arnar Ingólfs-
son, Þráinn Bertelsson og Ævar Örn
Jósepsson.
Upplestur á
glæpasögum