Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 41 MENNING MÁLIÐMOG GANUM Á MORGUNMÁLI Ð FYLGIR MEÐ GABRÍELA FRIÐRIKS DÓTTIR UM TÖFR ANDI TILG ANGSLEY SI MYNDL ISTARINN AR JAMES Bond kom við sögu á fjöl- skyldutónleikum Caput-hópsins í Ráðhúsinu á sunnudaginn. Stjórn- andi hópsins, Guðmundur Óli Gunnarsson, hafði útsett James Bond-stefið, sem er eftir Monty Norman, og spiluðu hljóðfæra- leikararnir það með glæsilegum tilþrifum í upphafi tónleikanna. Nú kann einhver að spyrja: Hvað kom James Bond fjölskyldu- tónleikum eiginlega við? Hvað þá fjöl- skyldutónleikum Caput-hópsins, sem er fyrst og fremst þekktur fyrir fram- sækna, nýja tónlist? Í sjálfu sér ekk- ert, nema það að á íslensku er James Bond stundum kallaður Jón bóndi, rétt eins og John Wayne var í mínu ungdæmi uppnefndur Jón væni. Næsta atriði hét einmitt Sagan af Jóni bónda, en var þó ekki um njósn- arann fræga, heldur um ósköp venju- legan íslenskan bónda og var hún eft- ir Herdísi Jónsdóttur og Steef van Oosterhout. Ólíkt Bond-myndunum hófst at- burðarásin fremur hversdagslega. Jón svaf svefni hinna réttlátu og Steef, sem er slagverksleikari í Sin- fóníuhljómsveit Íslands, hermdi eftir hrotunum með hljóðfæri sem ég því miður kann ekki að nefna. Ég veit ekki heldur nöfnin á flestum hinum tólunum sem Steef greip í til að krydda söguna, en hljóðin voru svo fyndin að maður veltist um af hlátri. Herdísi sagði líka bráðskemmtilega frá, en hún er víóluleikari í Sinfóní- unni, og þegar hún hermdi auk þess eftir baulandi belju með hljóðfæri sínu, var það svo líkt alvöru kú að það var hreint ótrúlegt. Óhætt er að full- yrða að Sagan af Jóni bónda með sín- um magnaða hljóðheimi hafi verið einhver skemmtilegasti gjörningur sem framinn hefur verið á fjölskyldu- tónleikum hér á landi. Snorri Sigfús Birgisson var líka frábær sem sögumaður í eigin verki, tónlistinni við Stúlkuna í turninum eftir Jónas Hallgrímsson. Ef ég man rétt samdi Þorkell Sigurbjörnsson barnaóperu eftir sömu sögu, sem flutt var af nemendum Tónmenntaskólans í Reykjavík fyrir nokkrum árum, en of langt er liðið síðan ég heyrði hana til að ég treysti mér til að bera verkin saman. Enda óþarfi; tónsmíð Snorra er ekki ópera og enginn söng, tón- skáldið einfaldlega sagði söguna, að vísu með kostulegum tilþrifum sem voru sennilega betri en nokkur söng- ur; alltént vöktu þau mikla kátínu meðal tónleikagesta. Sagan var nær James Bond-trylli en atriðið á undan, hún fjallaði um stúlku sem læstist inni í turni og þar reyndi illfygli eitt að spilla henni með öllum tiltækum ráðum. Tónlistin við þetta hefðbundna ævintýri um bar- áttu góðs og ills var þó síður en svo venjuleg; þvert á móti var hún býsna framúrstefnuleg miðað við að um fjöl- skyldutónleika var að ræða. Samt var hún svo hnitmiðuð og myndræn að hún virkaði prýðilega, a.m.k. gat ég ekki betur séð en að yngstu áheyr- endurnir héldu athyglinni allan tím- ann. Þar sem hljóðfæraleikur Caput- hópsins var jafnframt markviss og líf- legur verður að gefa verkinu og flutningnum hæstu einkunn. Í eftirrétt var svo Á sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns, sem í rokk- aðri útgáfu gæti örugglega sómt sér ágætlega í Bond-mynd. Þá tóku áheyrendur sjálfir lagið og var það fullkominn endir á einstökum tón- leikum sem lengi verða í minnum hafðir. James Bond og Jón bóndi TÓNLIST Ráðhús Reykjavíkur Caput-hópurinn flutti tónverk eftir Monty Norman, Herdísi Jónsdóttur, Steef van Oosterhout, Snorra S. Birgisson og Sig- valda Kaldalóns. Sunnudagur 13. nóv- ember. Fjölskyldutónleikar Jónas Sen Guðmundur Óli Gunnarsson „ÉG GET dregið heimspekilegt innihald nýja verksins saman í þrjú orð: lífið er fallegt. Allt sem er dökkt og drungalegt mun hverfa; hið fagra mun sigra að lokum,“ sagði Dmitríj Sjostakovitsj um átt- undu sinfóníu sína sem leikin verður á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói annað kvöld kl. 19.30. Jafnframt verður á efnis- skránni Sinfonia de Requiem eftir Britten en það verk hljómar nú í fyrsta sinn í lifandi flutningi hér á landi, að sögn Sváfnis Sigurð- arsonar, kynningarstjóra Sinfóní- unnar. Tónsprotinn verður í hönd- um Rumons Gamba. Britten og Sjostakovitsj áttu margt sameiginlegt. Hvorugur þeirra eltist mikið við tískustrauma 20. aldarinnar í tónlist, báðir voru þeir miklir friðarsinnar og hug- sjónamenn sem höfðu mikla andúð á öllu stríðsbrölti og hvers kyns spill- ingu. Með þeim tókst vinskapur sem byggði umfram allt á gagnkvæmri virðingu þeirra á list hvor annars. Alls engin tónlist? „Sjostakovitsj var um tíma út- hrópaður af flokkshollum kollegum sínum í Rússlandi sem vændu hann um úrkynjun í tónlistarsköpun sinni. Ritari Tónskáldafélagsins Vladimir Zakharov gekk einna vaskast fram þegar hann fullyrti eftirfarandi í ræðu: „Frá sjónarhóli alþýðunnar er 8. sinfónían alls engin tónlist.“ Lík- ast til eru fáir sem treysta sér til þess að taka undir þessa fullyrðingu og ljóst að áhuginn á tónlist Sjos- takovitsj er gríðarlegur miðað við aðsókn á tónleika Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands þegar sinfóníur hans eru á efnisskránni,“ segir Sváfnir. Rumon Gamba og hljómsveitin hafa hlotið lof fyrir flutning sinn á sin- fóníum Sjostakovitsj. „Unnendur góðrar tónlistar ættu alls ekki að láta þessa tónleika framhjá sér fara. Það að komast í návígi við orkuna og kraftinn sem felast í lifandi flutningi slíkra verka verður aldrei jafnað með hlustun á upptökur af plötum eða geisladiskum,“ segir Sváfnir. Árni Heimir fjallar um verkin Önnur tónleikakynning vetrarins á vegum Vinafélags Sinfón- íuhljómsveitar Íslands fer fram í Sunnusal Hótels Sögu á morgun kl. 18. Þá mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur fjalla um tónlist- ina sem leikin verður á tónleikunum. Allir eru velkomnir, en áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvubréf á netfangið vina- felag@sinfonia.is eða hringja í síma 545 2500. Tónlist | Sinfónían leikur verk eftir Sjostakovitsj og Britten Hið fagra mun sigra að lokum Benjamin Britten tónskáld. Dmitríj Sjostakovitsj tónskáld. Rumon Gamba stjórnandi. RITHÖFUNDARNIR Sigurður Pálsson og Sigurbjörg Þrastardóttir taka þátt í ljóðahátíðinni Biennale Internationale Des Poètes í Val-de- Marne í París, sem stendur dagana 16.–25. nóvember. Munu þau taka þátt í fimm upplestrum hvort, víðs- vegar um borgina – meðal annars í úthverfum – auk þess sem Sig- urbjörg kemur fram í Marseille. Stjórnandi hátíðarinnar, Henri Deluy, kom hingað til lands sumarið 2003 í því skyni að velja níu ljóðskáld til þátttöku í sérstöku Íslandshefti ljóðatímaritsins Action Poétique. Heftið kom út í fyrra og í kjölfarið bauð hann Sigurði og Sigurbjörgu til leiks á ljóðatvíæringinn, sem nú er haldinn í áttunda sinn. Þar kemur og fram Séverine Daucourt-Frið- riksson, sem yrkir á frönsku en hef- ur verið búsett á Íslandi og skrifar talsvert um upplifun sína af landinu. Sigurði Pálssyni hefur þá verið boðið að koma fram á norrænu bók- menntahátíðinni Boréales í Caen í Normandí á sunnudaginn. Auk þess les hann úr verkum sínum í Déch- argeurs-leikhúsinu í miðborg Par- ísar á mánudaginn í boði franska ljóðafélagsins „Undir Mirabeau-brú og er kvöldið helgað honum. Loks kemur Sigurbjörg fram á einu bók- menntakvöldanna á Íslandshátíðinni Islandbilder í Köln í Þýskalandi fimmtudagskvöldið 24. nóvember. Sigurður Pálsson Sigurbjörg Þrastardóttir Skáld lesa upp í París

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.