Morgunblaðið - 16.11.2005, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hljómsveitin Hjálmar fórhljóðlega af stað síðastliðiðhaust, sendi frá sér plötu
og lagðist síðan í spilamennsku.
Smám saman spurðist platan út,
menn áttuðu sig á að hér var ald-
eilis kveðið við nýjan tón og verð-
launuðu plötuna sem rokkplötu (!)
ársins á verðlaunahátíð Íslensku
tónlistarverðlaunanna. Þegar líða
tók á þetta ár náði platan síðan
gullsölu og Hjálmar voru á allra
vörum, enda búnir að spila þvers og
kruss um landið allt. Um daginn
kom svo ný plata sem heitir einfald-
lega Hjálmar. Útgáfutónleikar
þeirrar plötu voru haldnir í félags-
heimilinu á Flúðum um daginn.
Það réð engin tilviljun því að
Hjálmar héldu útgáfutónleika sína
á Flúðum því platan var tekin upp
þar í haust og það einmitt í Félags-
heimilinu. Þeir komu trommusett-
inu fyrir á sviðinu, röðuðu síðan
mögnurum um húsið til að tryggja
að hljómur yrði sem bestur og svo
var talið í. Í spjalli við þá Hjálma,
Sigurð Guðmundsson orgelleikara
og Þorstein Einarsson gítarleikara,
og söngvara kemur fram að upp-
haflega hafi þeir ætlað sér viku til
verksins en verkið gekk mun hrað-
ar, grunnar voru teknir upp á
þremur dögum og síðan tekið upp
ofan á þá á næstu tveim dögum.
„Við byrjuðum klukkan níu á mánu-
dagsmorgni og lukum verkinu
klukkan fimm á föstudagssíðdegi,“
segir Sigurður, en þá var aðeins
eftir að hljóðblanda og gera frum-
eintak.
Því var slegið fram að frumraun
Hjálma, Hljóðlega af stað, væri
fyrsta íslenska reggíplatan, en nær
sanni að hér sé hún komin, þessi
önnur plata Hjálma, því á henni eru
öll lög frumsamin og ljóst að sveitin
hefur náð að skapa sér sérstakan
frumlegan stíl. Þeir benda á að á
því ári sem liðið er síðan Hljóðlega
af stað kom út hafi þeir leikið á
áttatíu eða níutíu tónleikum og
hljómsveitin orðin miklu meiri
hljómsveit fyrir vikið, búin að spila
sig betur saman. „Þetta er svolítið
meira fullorðins,“ eins og Sigurður
orðar það.
Nú skyldi maður ætla að það hveupptökur gengu hratt fyrir
sig myndi skrifast á það hve þeir fé-
lagar voru vel undirbúnir en það er
öðru nær, þeir segjast ekki hafa
undirbúið sig fyrir upptökurnar af
neinni sérstakri natni. „Við vorum
vitanlega búnir að spila flest þessi
lög á tónleikum síðasta árið,“ segir
Þorsteinn, „og þurftum því ekki að
undirbúa svo mikið, en svo voru
líka nokkur lög sem við spiluðum í
fyrsta sinn þegar við vorum að taka
þau upp, lukum við þau á staðnum.“
Tónleikarnir á Flúðum sýndu að
ólíkir aldurshópar hafa gaman af
Hjálmareggíinu og það sannaðist
einnig með góðri sölu á frumraun
þeirra félaga, sem þeir fengu ein-
mitt gullplötu fyrir á Flúðatónleik-
unum. Þeir segjast báðir hafa gam-
an að því hve tónlist nær til margra
og Sigurður bætir við að sér finnist
einmitt svo skemmtilegt að heyra
hvað fólki finnst reggíið þjóðleg
tónlist.
Flúðatónleikarnir voru fyrstutónleikar Hjálma í þrjá mán-
uði, fyrstu tónleikarnir síðan platan
var tekin upp. Eðli málsins sam-
kvæmt æfa Hjálmar ekki mikið,
gleymum því ekki að helmingur
hljómsveitarinnar býr í Svíþjóð.
Ekki finnst þeim það þó stór vandi,
en Þorsteinn getur þó um að hann
vildi gjarnan að þeir hittust oftar.
„Ég myndi gjarnan vilja geta æft,
held það væri gott fyrir hljómsveit-
ina,“ segir hann, en tekur svo undir
það að kannski megi skrifa spila-
gleðina sem var svo áberandi
ríkjandi á Flúðatónleikunum að
einhverju leyti á það hve þeir hitt-
ast sjaldan.
Útgáfutónleikarnir á Flúðum
voru síðasta tækifæri til að sjá
Hjálma í bili, en í byrjun desember
snýr sveitin aftur. „Við ætlum að
reyna að vera sýnilegir, spila úti á
landi og líka halda einhverja tón-
leika í Reykjavík.“
Íslenskt reggí
’Því var slegið fram aðHljóðlega af stað væri
fyrsta íslenska reggí-
platan, en nær sanni að
hér sé hún komin.‘
AF LISTUM
Árni Matthíasson
Hjálmar hafa náð að skapa sér sérstakan og frumlegan stíl.
arnim@mbl.is
LEIKSTJÓRINN James Marsh
kemur verulega á óvart með fyrstu
leiknu mynd sinni, sem ber heitið
Kóngurinn (The King). Hér hefur
hann fengið til liðs við sig traustan
handritshöfund, Milo Addica sem
skrifaði m.a. Monster’s Ball og Birth,
auk frábærra leikara, kvikmynda-
tökumanns og fleira hæfileikafólks.
Útkoman er áhrifamikil kvikmynd
sem fjallar um bókstafstrú, þrúgandi
stofnanir, fátækt, fegurð og illsku í
bandarísku hversdagslífi. Myndin
fjallar um Elvis (Gael Garcia Bernal),
ungan pilt sem hefur nýlokið her-
þjónustu. Hann fer að vitja föður síns
sem á konu og tvö börn á unglings-
aldri og er prestur í strangtrúuðum
kristnum söfnuði í bænum Corpus
Christi í Texas.En þar sem Elvis er
sonur vændiskonu vísar faðirinn hon-
um á dyr og segir hann tilheyra for-
tíðinni, frá því áður en frelsarinn
kom inn í líf hans. Pilturinn tekur
höfnuninni að því er virðist af stóískri
ró og sest að í bænum. Hann finnur
sér þó bakdyraleið að fjölskyldu
prestsins, og brátt kemur í ljós að á
bak við bjart fas piltsins leynist ein-
beittur ásetningur.
Kóngurinn er einkar vel gerð kvik-
mynd, gríðarfallega tekin og allt að
því sefjandi í rólyndislegri athugun
sinni á dýpstu öngstrætum manns-
sálarinnar. Tekið er á bókstafstrú í
bandarísku samfélagi á næman hátt,
og verða spurningar um trúarhita,
firringu, hatur og fyrirgefningu að
miðlægum þætti í myndinni. Gael
Garcia Bernal sýnir sífellt á sér nýjar
hliðar og er hann fullkomlega valinn í
hlutverk hins upplitsdjarfa og allt að
því bernska siðleysingja sem Elvis
reynist vera. William Hurt gæðir
persónu föðurins litrófi manns sem
hefur frelsast til betra lífs, og keyrir
aðra áfram í þeim aga og trúarhita
sem hann sjálfur lifir samkvæmt.
Þau Pell James og Paul Dano leika
hálfsystkin Elvis, sem ungar og fagr-
ar sálir sem leita útgönguleiða úr
agavaldi hins strangtrúaða sam-
félags, hún í ástinni og hann í tónlist-
inni. Útgönguleiðirnar reynast þó
vandfundnar í þessari áhrifamiklu en
harmrænu sögu.
Bókstafstrú í Ameríku
KVIKMYNDIR
Regnboginn: Októberbíófest
Leikstjórn: James Marsh. Aðalhlutverk:
Gael Garcia Bernal, William Hurt, Pell
James og Paul Dano. BNA/Bretland,
105 mín.
Kóngurinn (The King) Heiða Jóhannsdóttir
LJÓÐAVEFURINN Ljóð.is fagnar
fjögurra ára afmæli sínu í dag en
dagurinn er ekki síður merkilegur
fyrir þær sakir að vera fæðing-
ardagur Jónasar Hallgrímssonar og
dagur íslenskrar tungu. Davíð Stef-
ánsson, einn stofnenda vefjarins,
segir að stofnun hans hafi verið
skyndihugdetta sem gekk út á að
prjóna saman netinu og ljóðinu í einn
vettling og skapa ungum og upp-
rennandi skáldum eins konar æf-
ingasvæði til að prófa sig áfram á.
„Ætli okkur hafi ekki þegar borist
um 15–16 þúsund ljóð og ljóðskáldin
sem flest teljast til nýrra ljóðskálda
eru líklega um tvö þúsund talsins.“
Ljóð.is hyggst fagna þessum
merkisdegi á Café Rosenberg við
Lækjargötu þar sem hátt í tíu ljóð-
skáld hyggjast lesa upp úr verkum
sínum. Þau eru Bragi Ólafsson, Hall-
dóra Kristín Thoroddsen, Haukur
Ingvarsson, Henrik Garcia, Hildur
Lilliendahl, Hörður Dan, Óttar
Martin Norðfjörð, Toshiki Toma og
Þórunn Valdimarsdóttir.
Auk þess mun Skúli Þórðarson
trúbador brjóta upp hátíðleikann
með eitruðum lögum sínum og dag-
skránni ljúka svo tveir fram-
úrstefnumenn með verkefni sem
þeir kalla „Ljóðarímixkaríókí
Dadda“. Þar býðst öllum viðstöddum
að láta tölvuforrit framleiða fyrir sig
ljóð á mjög frumlegan máta.
Afmælið hefst kl. 20 eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Davíð Stefánsson er einn stofnenda Ljóð.is.
Skyndihugdetta
Ljóð | Ljóð.is fagnar fjögurra ára afmæli
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminnSýnd kl. 5.30 B.i. 12 ára Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
Africa United
S.V. Mbl.
TOPP5.is
Ó.H.T. Rás 2
S.k. Dv
Sýnd kl. 4 og 6 Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
SÁ BESTI Í BRANSANUM
ER MÆTTUR AFTUR!
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furi-
ous og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir
í gildru...
nú þarf einhver
að gjalda!
Sýnd kl. 5.45 og 10.30 bi. 16 ára
MBL
TOPP5.IS
Sýnd kl. 8 og 10.15 bi. 14 ára
Sýnd kl. 8
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
MMJ Kvikmyndir.com
MBL
TOPP5.IS
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Þetta var hið fullkomna frí
þangað til þau fundu fjársjóðinn!
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
Miðasala opnar kl. 15.30
Sími 564 0000
Sjóðheit spennumynd með ofurtöffaranum Paul
Walker og hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI Í 2 VIKUR
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI Í 2 VIKUR
kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 14 ára