Morgunblaðið - 25.11.2005, Síða 2
2 Jólablað Morgunblaðsins 2005
Á SÍÐUSTU árum hefur trönuberið
víða orðið eitt af því sem skapar jóla-
stemmningu enda bæði skemmtilegt
á að líta, eldrautt og freistandi, og
bragðið frísklega sætbeiskt. Trönu-
ber eru bandarísk að uppruna og
voru nýtt þar af íbúum löngu áður en
evrópskir innflytjendur streymdu
vestur um haf. Nafnið er þó komið
frá landnemunum sem kölluðu berið
trönu-ber vegna þess að þeim þótti
blóm jurtarinnar minna á fuglinn
sandtrönu.
Fersk eru berin beisk og ekki hafa
allir smekk fyrir þeim, en snemma
varð algengt meðal landnema að
sjóða þau í sósu með hlynsykri og
bera fram með steiktu og soðnu kjöti,
aðallega kalkúna, sem er hefðbundin
máltíð á þakkargjörðardeginum sem
svo er nefndur vestan hafs, en hann
er haldinn á fjórða fimmtudegi nóv-
ember, nú síðast 24. nóvember.
Trönuber voru ekki bara þekkt og
dáð fyrir sitt einstaka bragð, heldur
áttuðu menn sig snemma á heilnæmi
þeirra, en í þeim er ríkulegt af c-
vítamíni. Þeir eiginleikar reyndust
hinu nýja lýðveldi vel í baráttunni við
herji Englandskonungs, því að með-
an Englendingar voru með sítrónu-
tunnur á sínum skipum voru sjómenn
lýðveldisins unga með trönuberja-
tunnur.
Framan af átjándu öld var verð á
trönuberjum geysihátt, enda hafði
engum tekist að rækta þau, menn
urðu að treysta á villt trönuber sem
var bæði erfitt að safna og framboð
ekki nóg. Það var ekki fyrr en í upp-
hafi nítjándu aldar sem tókst að
rækta trönuber en eftir það jókst
framleiðsla hröðum skrefum og verð
lækkaði. Framfarir í vinnslu urðu
líka til að gera hana hagkvæmari,
ekki síst þegar menn tóku að nota
eiginleika berjanna til að flokka þau,
létu þau skoppa niður þrep – þau sem
voru í lagi skoppuðu niður, en hin
klesstust á þrepin. Í berjunum er
nefnilega loftrými þannig að þau
bæði skoppa og fljóta ef þau eru í
lagi, en flothæfni þeirra er notuð við
uppskeru – vatni er hleypt á trönu-
berjaakra, það er síðan „þeytt“ með
sérstökum búnaði, þroskuð berin
losna af lynginu og er síðan fleytt að
berjadælum.
Helsti framleiðandi trönuberja í
heimi er samvinnufélagið Ocean
Spray, sem stofnað var af bændum í
upphafi síðustu aldar, en eigendur
þess eru um 800 trönuberjabændur.
Það glímdi við hefðina fyrstu árin því
markaður fyrir trönuber var aðallega
í nóvember og desember en nánast
enginn aðra mánuði. Eftir mikla til-
raunamennsku tókst fyrirtækinu að
búa til trönuberjasafa sem hægt var
að selja allt árið og hrinti vörunni úr
vör í upphafi sjöunda áratugarins
með því að leita sérstaklega til
lækna, sem upplýstir voru um að
trönuber minnkuðu líkur á þvag-
færasýkingum í konum og væru að
auki góð fyrir heilsuna almennt.
Þetta heppnaðist svo vel að trönu-
berjasafi varð vinsæll drykkur allt
árið og er enn – í haust blossaði til að
mynda upp mikill áhugi á trönu-
berjasafa hér á landi sem kallaði á
mikla söluaukningu.
Tvær trönuberjasósur
1 bolli af sykri
1 bolli af vatni
340 g af frosnum trönuberjum (12
oz pakki frá Ocean Spray), skoluð
og þerruð
Blandið vatni og sykri í pott og hitið að
suðu. Setjið trönuberin út í og hitið aft-
ur að suðu. Minnkið hitann og látið
malla í um tíu mínútur, hrærið af og til.
Setjið lok yfir og látið kólna við stofu-
hita. Kælið þar til bera á sósuna fram.
4 bollar af ferskum trönuberjum
1½ bolli sykur
1 appelsína
½ tsk. rifinn engifer
½ bolli ristaðar pecan-hnetur
Rífið ysta lagið á appelsínuberkinum
fínt og setjið í pott með engifer og sykri.
Bætið safanum úr appelsínunni út í og
sjóðið við vægan hita þar til sykurinn er
uppleystur. Bætið trönuberjunum út í
og sjóðið við vægan hita í um fimm mín-
útur eða þar til þau springa. Bætið pec-
an-hnetunum út í og kælið.
Trönuber eru jólaber
Morgunblaðið/Kristinn
Matur og drykkir
2 Trönuber
10 Finnskar hátíðarrófur
12 Hamborgarhryggur og
lifrarkæfa Marentzu
16 Steiktur strútur og fleira
22 Önd með eplum og gráfíkjum
26 Kalkúnn Hildar Helgu
28 Beikonrúllur og enskar pylsur
30 Lífræn jólamáltíð
32 Sælkerasíða Steingríms
40 Hreinsandi te
48 Hreindýrakássa
52 Krydduð sænsk jólaskinka
56 Eggjalíkjör og kryddsíld
78 Villibráð að hætti veiðimanns
88 Jólate Hólmfríðar
93 Norskur jólamatur
Kökur og konfekt
4 Franskur jóladesert
6 Súkkulaðikakan hennar Eddu
10 Finnskar jólastjörnur
14 Laufabrauð og lummur
22 Ingibjargarkökur
38 Lakkrískurlskökur og
súkkulaðibitakökur
40 Hollt hnetujólakex
42 Hrákökur Sólveigar
47 Trifle
54 Möndlukökur
64 Forsíðuterta og smákökur
68 Engiferkökur
72 Súkkulaðitrufflur
74 Piparkökuhús
82 Kökur Margrétar
90 Jólaostakaka
92 Eplabaka a la Védís
Handverk og skreytingar
8 Skógarævintýri í Reykjavík
38 Jólakort
50 Krosssaumur
63 Heimagerð jólakort
68 Aðventukrans
82 Góð meðferð silfurs
86 Blómaskreytingar
Menning og hefðir
4 Jól að kaþólskum sið
6 Skandinavískur jólahafur
20 Norðlenskir jólaleikir
24 Jólaþorpið í Hafnarfirði
40 Dansgjörningur
50 Saga jólatrésins
56 Sjálfsævisögulegar
teiknimyndir
58 Gunnvör Braga
62 Gæludýr á jólum
66 Styttum börnunum biðina
70 Magni safnari
76 Stafræn jól
84 Hljómsveitin Hraun
88 Hátíð hjá Hjálpræðishernum
93 Vefsíða fjölskylduráðs
94 Heilög Lúsía
95 Trausti Jónsson
96 Jólamyndir rifjaðar upp
98 Aðventu- og jólatónleikar
102 Jólasveinn Tolkiens
Morgunblaðið/Kristinn
Efnisyfirlit
Umsjón
Dagur Gunnarsson
Forsíða
Kristinn Ingvarsson
Súkkulaðikaka bökuð af
Hörpu Grímsdóttur
Ljósmyndir
Árni Sæberg, Brynjar Gauti
Sveinsson, Dagur Gunnarsson,
Kjartan Þorbjörnsson, Kristinn
Ingvarsson, Ómar Óskarsson,
Þorkell Þorkelsson og fleiri.
Umbrot og útlit
Björn Arnar Ólafsson, Hulda Krist-
insdóttir, Sigrún Ragnarsdóttir
Auglýsingar
Katrín Theódórsdóttir
Höfundar efnis
Árni Matthíasson
Bergþóra Jónsdóttir
Brynja Tomer
Dagur Gunnarsson
Guðmundur Sverrir Þór
Guðrún Guðlaugsdóttir
Harpa Grímsdóttir
Hrund Þórsdóttir
Ingveldur Geirsdóttir
Kristján Guðlaugsson
Margrét Þóra Þórsdóttir
Sara M. Kolka
Signý Gunnarsdóttir
Sigurbjörg Arnarsdóttir
Steingrímur Sigurgeirsson
Steinunn Ásmundsdóttir
Steinunn Björk Pieper
Svavar Knútur Kristinsson
Sæbjörn Valdimarsson