Morgunblaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 12
12 Jólablað Morgunblaðsins 2005 JÓLUNUM fylgja veislur, miklar máltíðir í faðmi fjölskyldunnar á skínandi hreinum heim- ilum og pakkaflóð sem virðist magnast með hverju árinu. En þetta gerist ekki af sjálfu sér, langt frá því. Yfir jólin margfaldast álagið á hús- mæðrum og -feðrum landsins. Það er kannski ekki alveg jafn algengt og áður fyrr að heim- ilinu sé umturnað í hreingerningaræði á aðvent- unni. Það tíðkaðist í eina tíð að híbýlin voru þrif- in vandlega í hólf og gólf um leið og bakaðar voru fjórtán sortir af smákökum, lítil jólakorta- verksmiðja sett á laggirnar og helst lagt nýtt parkett og stofan máluð og svo var músastigi sem náði til Egilsstaða föndraður til gamans. Jólaundirbúningshugljómunin Þetta þótti sjálfsagt og þykir kannski enn á sumum heimilum en Marentza Poulsen, smur- brauðssérfræðingur með meiru, segist hafa fengið hugljómun fyrir ein jólin og nú sé jóla- undirbúningurinn hennar með öðru og skemmtilegra sniði. „Ég fór einu sinni sem oftar í heimsókn til Danmerkur skömmu fyrir jólin fyrir nokkrum árum og kynntist þeirra jólaund- irbúningi. Ég varð bara miður mín þegar ég sá úr fjarlægð hvernig ég var sjálf orðin í mínum brjálæðislega jólaundirbúningi. Ég var auðvitað orðin eins og hver annar Íslendingur sem snýst í kringum sjálfan sig upptjúnaður í gúmmíhönskunum fram á að- fangadagskvöld, hrærandi í pottunum með tárin í augunum og vildi bara drífa þetta af svo hægt væri að fara að slaka að- eins á. Þarna í Danmörku fór ég í heimsókn til frænku minnar og spurði hana hvort hún væri búin að öllu. „Öllu hverju?“ spurði hún á móti og ég fór að telja upp allt það sem maður gerði á aðventunni hér á Ís- landi; þvo glugga og gardínur, dúka og teppi, baka smákökusortirnar allar og allt það. Hún spurði þá: „En hvað gerið þið fjölskyldan öll saman í desember?“ Og ég mundi ekki eftir einu atriði, ekki einu einasta. Allir voru bara á fullu að undirbúa þessi jól. Þarna sjokkeraðist ég og sneri blaðinu við og undirbjó okkur á allt annan hátt. Síðan þá er þessi erfiðasti árstími bara orðinn tilhlökkunarefni,“ segir Marentza og brosir. Jólahlaðborð fyrir fjölskylduna „Það er miklu betra að eyða tímanum í að vera góð hvert við annað og upp úr þessu fór ég að halda jólaundirbúningsnámskeið. Þar bendi ég fólki á einfalda hluti sem geta létt manni lífið; að það er hægt að baka í nóvember og borða kökurnar á aðventunni, að leggja á jólaborðið á Þorláksmessu til að hafa meiri tíma á að- fangadag og fleira í þeim dúr. Frá því að ég fékk mína vitrun á þessu sviði hefur líka þjóðfélagið breyst og fólk er farið að njóta aðventunnar með fjölskyldunni meira en tíðkaðist fyrir tíu, fimmtán árum.“ Marentza hefur líka séð um ekta danskt jólahlaðborð á Hótel Loftleiðum undanfarin ellefu ár og þar hefur hún einnig orðið vör við jákvæða þróun í jólahaldi landans. „Mér fannst að Íslendingarnir kveiktu margir hverjir ekki á því að jólahlaðborðið væri fjöl- skyldusamkoma. Til að byrja með voru þetta mikið vinnustaðahópar og margir voru ölvaðir og nutu varla matarins og stemningarinnar. En í dag er mjög gaman að vinna við þetta og sjá heilu fjölskyldurnar koma bara til þess að njóta þess að vera saman í jólastemningu. Í fyrra mættu þrjú hundruð manns í jólahlaðborðið hjá mér á 20. desember. Það hefði ekki gerst fyrir tíu árum, þá hefðu þessir þrjú hundruð verið heima að skrúbba.“ Marentza hlakkar til að geta notið aðventunnar, farið á jólatónleika Karlakórs Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og fleira í þeim dúr. Henni finnst ekkert of snemmt að setja jólaljósin upp um miðjan nóvember, það skapi bara góða jólastemmningu og hún hjálpi manni að skipuleggja aðventuna. Námskeið fyrir kvíðafulla karla? Ég legg fyrir hana eitt vandamál sem hrjáir marga karlmenn á aðventunni og spyr hana hvort hún geti ekki haft námskeið fyrir karl- menn sem kvíða jólagjafainnkaupunum, sér- staklega þá sem eiga í erfiðleikum með að finna réttu gjöfina fyrir eiginkonur sínar. Þetta finnst henni ákaflega spaugilegt en skemmtilegt vandamál. „Ég er alin upp við litlar og persónu- legar gjafir. Í Færeyjum tíðkast ekki og hefur aldrei gert að gefa miklar gjafir. Ég myndi ráð- leggja mönnum að fara sem fyrst í lymskulega ferð í bæinn með konunni sinni. Fara á kaffihús og rölta niður Laugaveginn og hlera hvað þeim finnst fallegt eða skemmtilegt. Menn eiga ekki að gefa konunum sínum handþeytara eða hrærivélar og alls ekki ryksugur, það getur ver- ið verulega móðgandi,“ segir Marentza og hryll- ir sig. „Þeir eiga að gefa þeim dekurgjafir sem þær veita sjálfum sér sjaldan. Útbúa gjafabréf með dekurdegi, bjóða þeim fínt út að borða. Hvíla kannski gullsmiðinn þetta árið, það elska allir gullsmiðir Þorláksmessu, því þá detta karl- arnir inn hjá þeim, alveg búnir að gefast upp á leitinni og búnir að fá sér „en lille en“ og spyrja ekki um verð,“ segir Marentza og stingur upp á skemmtilegu jóladagatali sem hjón geta útbúið hvort fyrir annað. „Falleg orð hrífa alltaf, setjist niður og skrifið eitthvað fallegt á tólf miða hvort og setjið í umslög sem þið hengið á snúru og teljið þannig niður dagana til jóla. Þá fær maður tækifæri til að setjast niður og hugsa eitthvað fallegt um makann, þetta er svolítið próf fyrir mann,“ segir Maritza. „Þakka liðið“ Hún hvetur fólk til að gera meira úr sam- verustundum á aðventunni. „Ég gæti aldrei haldið jól án þess að hafa lifandi grenitré inni í stofu, það ilmar svo vel og mér finnst að fjöl- skyldan ætti að ákveða hvaða dag allir fara sam- an að kaupa jólatréð og gera athöfn úr því og þegar heim er komið er kjörið að allir setjist saman við borð og skrifi á jólakortin með góðan jóladrykk og kökur, eplaskífur, pönnukökur eða hvað sem er. Búa sér til huggulegheit. Mér finnst svo gaman að fá persónuleg jólakort sem segja fréttir af fjölskyldunni, það er ekki eins gaman að opna fimmtíu jólakort sem öll segja þakka liðið. Mér leiðast þakka liðið-jólakort með hripaðri undirskrift sem maður skilur varla.“ Marentza deilir með okkur sinni frábæru uppskrift að hinum sígilda hamborgarhrygg með ljúffengri sósu og piparrótarsalati sem slær alltaf í gegn. Lifrarkæfan er góður for- réttur og á hlaðborðinu í aðventunni. Hamborgarhryggur 2 kg svínahamborgarhryggur 3 gulrætur 3 lárviðarlauf 1 stór laukur 1 flaska óáfengt rauðvín Setjið hamborgarhrygginn í kalt vatn í hentugan pott, skrælið gulræturnar og laukinn og skerið í bita, frekar gróft, og bætið því út í vatnið ásamt lárviðarlaufinu og rauðvíninu. Látið sjóða við væg- an hita í 30–40 mínútur. Látið kjötið síðan kólna að- eins í soðinu. Sykurbráð 1 bolli púðursykur ½ bolli franskt sætt sinnep Allt sett í pott og látið krauma rólega þar til það verður að sýrópi. Setjið hamborgarhrygginn í ofn- skúffu og hellið sykurbráðinni vel yfir kjötið og setjið inn í 150°C heitan ofninn og látið malla í um 10 mínútur eða þar til hamborgarhryggurinn er vel heitur. Geymið 1–2 matskeiðar af sykurbráðini fyr- ir sósuna. Sósa 4 msk smjör 1 laukur, frekar stór ½ lítri rjómi 2 msk sykurbráð pipar eftir smekk ¼ lítri rauðvín ½–1 lítri soð af kjötinu (smjörbolla; 75 g smjör og 100 g hveiti) Laukurinn er skorinn smátt og kraumaður í smjör- inu þar til hann verður glær, þá er sykurbráð, soði og rauðvíni bætt út í ásamt pipar og síðan rjóma. Einnig má bragðbæta sósuna með svínakjötskrafti. Piparrótarsalat ¼ hvítkálshaus 1 blaðlaukur 1 miðlungsstór krukka rauðrófur allt skorið fint niður og blandað vel saman. Sósa 1 dl majones ½ dl sýrður rjómi 10% 4 msk piparrótarmauk (fæst í pökkum) 1 tsk HP-sósa 1 tsk Worchestershiresósa salt og pipar eftir smekk Öllu hráefninu blandað vel saman og hellt yfir grænmetið. Látið standa til næsta dags. Þetta salat má geyma í 10 daga í góðum kæli. Lifrarkæfa ½ kg svínafeiti (spekk) ½ kg svínalifur 2 dl mjólk 1 epli 1 laukur 75 g hveiti 30 g vel hreinsaðar ansjósur 1 tsk. allrahanda 1 tsk. timían 2 lárviðarlauf 2 egg Aðferð: Afhýðið epli og lauk og setjið í mat- vinnsluvél ásamt svínafeiti og grófhakkið. Setjið þetta þvínæst í pott. Hrærið saman hveiti og mjólk og bætið út í. Grófhakkið lifur og ansjósur í mat- vinnsluvélinni og blandið því svo saman við feitina. Bætið kryddinu og einu eggi saman við. Látið kæf- una hitna vel í gegn. Setjið kæfuna í bökunarform og bakið í vatnsbaði í 55 mínútur við 175°C í miðjum ofninum. Rauðrófur í ediklegi 1 kg ferskar rauðrófur ediklögur: 4 dl kryddedik 2½ dl vatn 250 g sykur 4 cm fersk piparrót Aðferð: Setjið rauðrófurnar í vatn og sjóðið í 30–40 mínútur eða þar til þær eru soðnar. Afhýðið þær því næst og skerið í sneiðar. Blandið öllu innihaldi lagarins saman nema piparrótinni og sjóðið. Afhýð- ið piparrótina, skerið í sneiðar og bætið henni svo út í ediklöginn og sjóðið svo áfram í 30 mínútur. Hellið þá heitum leginum yfir rauðrófusneiðarnar og setjið í sótthreinsuð ílát. Niðursoðnar rófur 1 kg rófur 1 l vatn ½ l edik 5 góðir bitar engifer 1 kg sykur Aðferð: Afhýðið rófur og engifer og skerið í sneið- ar eða bita. Blandið saman vatni og ediki og hellið yfir. Látið þetta standa í kæli yfir nótt. Bætið svo sykrinum saman við og er þetta soðið í 45 mínútur við vægan hita. Geymist í leginum í sótthreinsuðu íláti. Þessar róf- ur eru einstaklega góðar með lifrarkæfu og einnig lamba- og svínakjöti. Marentza bjargar jólunum Jólin eru dásamleg, það er engum blöðum um það að fletta. Kertaljós og notalegheit í skammdeginu. Ef það er einhver sem hefur tökin á að gera aðventuna notalega þá er það Marentza Poulsen sem heldur námskeið í greininni. Dagur Gunnarsson spjallaði við hana á notalegu nótunum um jólaundirbúninginn. Heimalagaðar rauðrófur í ediklegi. Morgunblaðið/Þorkell Marentza Poulsen nýtur aðventunnar með gnægt af góðum mat og huggulegheitum. Niðursoðnar rófur eru öðruvísi meðlæti. Sígildur og ómissandi hamborgarhryggur. Ekta dön sk lifrark æfa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.